Morgunblaðið - 17.05.2002, Page 44
44 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Gröfumaður
óskast strax
Upplýsingar í símum 892 1167 og 565 3140.
Klæðning ehf.
Sölufulltrúi
Heildverslun, sem sérhæfir sig í vönduðu sæl-
gæti og gjafavöru, óskar eftir sölumanni.
Við leitum að samviskusömum starfskrafti, með
góða og vandaða framkomu, sem hefur metnað
til að takast á við krefjandi starf. Reynsla er æski-
leg og aðeins er um að ræða framtíðarstarf.
Upplýsingar verða veittar á skrifstofu Íslenskrar
Dreifingar, Skútuvogi 1e, í dag, föstudaginn
17. maí, á milli klukkan 15.00 og 18.00.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Útgerðarfélag Vestmannaeyja hf.
Aðalfundur
Aðalfundur Útgerðarfélags Vestmannaeyja
vegna ársins 2001 verður haldinn í Kiwanis-
húsinu, Vestmannaeyjum, fimmtudaginn
30. maí nk. kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
KENNSLA
Vélskóli Íslands
Skólaslit 18. maí
Vélskólanum verður slitið í hátíðarsal skólans
laugardaginn 18. maí kl. 14.00.
Kvenfélagið Keðjan verður með kaffi og veit-
ingar í matsal Sjómannaskólans.
Afmælisárgangar eldri nemenda eru boðnir
sérstaklega velkomnir.
Skólameistari.
TILKYNNINGAR
Stækkun ÍSAL í Straumsvík
1. áfangi: Stækkun í allt að 330.000 t á ári
2. áfangi: Stækkun í allt að 460.000 t á ári
ÍSAL hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofn-
unar matsskýrslu um stækkun ÍSAL í Straumsvík.
1. áfangi: Stækkun í allt að 330.000 t á ári.
2. áfangi: Stækkun í allt að 460.000 t á ári.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla
um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur
frammi til kynningar frá 17. maí til 28. júní 2002
á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Hafnarfjarð-
arbæjar og bókasafni Hafnarfjarðar, Strand-
götu 1. Einnig liggur skýrslan frammi í Þjóðar-
bókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun í Reykja-
vík. Matsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu
Hönnunar: www. honnun.is.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina
og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir
skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en
28. júní 2002 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi
166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari
upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfis-
áhrifum, nr. 106/2000.
Skipulagsstofnun.
Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er
hér með auglýst til kynningar eftirfarandi tillaga að deiliskipulagsáætlun í Reykjavík:
Sólheimar, Langholtsvegur, Skeiðavogur, deiliskipulag.
Tillagan tekur til svæðis er afmarkast af lóðum íbúðarhúsa við Langholtsveg til norðurs, lóðum
íbúðarhúsa við Skeiðavog til austurs og Sólheimum til vesturs.
Um er að ræða tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið. Markmið tillögunnar er m.a. að gefa
skipulagssvæðinu heildstæða mynd með sameiginlegu útivistarsvæði í garði umhverfis bóka-
safnið, ákveða fyrirkomulag, nýtingu og byggingarmöguleika til framtíðar. Uppbygging á
svæðinu miðar m.a. að því að bæta útirými og mynda skjól.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að uppbygging eigi sér stað á 5 lóðum. Lóðinni Sólheimum 29-35
verði skipt upp í tvær lóðir. Einnar hæðar verslunarhús á lóðinni verði rifið. Á nyrðri hluta lóðar-
innar verði heimilt að byggja fjölbýlishús á 3-4 hæðum ásamt kjallara. Á syðri hluta lóðarinnar
verði heimilt að lyfta risi núverandi húss í fulla hæð og byggja tveggja hæða nýbyggingu við
húsið til norðvesturs. Á lóðinni nr. 23a verði heimilt að byggja 185m2 viðbyggingu við útibú
Borgarbókasafnsins. Ný byggingarlóð verði til þar sem nú er bílastæði fyrir Sólheima 25-27 og
þar verði heimilt að byggja 460m2 byggingu á einni hæð. Þá gerir tillagan ráð fyrir að heimilt
verði að stækka safnaðarheimili Langholtskirkju, að lóðinni nr. 11-13 við Sólheima, um 600m2.
Tillagan liggur frammi í sal skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, 1.
hæð, virka daga kl. 10.00 – 16.00 frá 17. maí til 2002 til 28. júní 2002. Eru þeir sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við
hana þær skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 28. júní 2002.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 17. maí 2002.
Skipulagsfulltrúi
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ