Morgunblaðið - 17.05.2002, Qupperneq 48
UMRÆÐAN
48 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477
Opið: Mán. - fös kl. 10-18
Laugardaga kl. 11-16
Stórútsa la á teppasettum
Takmarkaðmagn!!! 15-70%afsláttur
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
2
00
2
SÍÐASTA dag apr-
ílmánaðar fór ég á op-
inn fund um byggða-
mál í Eyjafirði og á
Akureyri þar sem
fulltrúar flokkanna
sem bjóða fram til
næstu bæjarstjórnar-
kosninga tjáðu sig um
þetta mikilvæga mál-
efni. Þeim varð öllum
tíðrætt um hve mikil-
vægt hefði verið fyrir
atvinnuuppbyggingu á
og við Akureyri að fá
Háskólann í bæinn og
jöfnuðu því við stóriðju
sem það vissulega er.
Um þetta töluðu allir frambjóðend-
ur sig hása og mæltist oft vel. Þegar
einn fundarmanna spurði þá hins
vegar um afstöðu þeirra til þróunar
Verkmenntaskólans og hvað væri til
ráða til að efla hann enn frekar varð
fátt um svör og engin sérstök fram-
tíðarsýn útmáluð eins og þegar há-
skólann bar á góma. Var helst að
skilja að menn teldu þetta ekkert
sérstakt forgangsmál þegar kemur
að því að efla atvinnulífið á svæðinu.
Vandræðalegri þögn sló á samkom-
una og mælskan hjaðnaði niður.
Gleymd
stefnumótun
Árið 1999 samþykkti bæjarstjórn
vandaða og ítarlega stefnumótun í
atvinnumálum fyrir Akureyri. Mikil
vinna og metnaður var lagður í
þetta verk og niðurstaðan kynnt
með kurt og pí. Þar er rækilega
undirstrikað að aukin og bætt
tengsl fyrirtækja og menntastofn-
ana í bænum sé forsenda öflugs at-
vinnulífs og samkeppnishæfni. Að
sjálfsögðu er Háskólinn nefndur þar
til sögunnar en einnig er lögð
áhersla á mikilvægi uppbyggingar
iðnnámsbrauta í samræmi við þarfir
atvinnulífsins.
M.a. er bent á matvælagreinar,
málm- og skipaiðnað og rafeinda-
iðnað í því sambandi. Þar er sett
fram sú metnaðarfulla stefna að í
bænum verði boðin bókleg og verk-
leg kennsla til lokaprófs í öllum
helstu iðngreinum. Hvatt er til þess
að Háskólinn og
Verkmenntaskólinn
vinni saman að áætlun
um skipulag iðn- og
framhaldsnáms í
tæknigreinum eins og
málm- og rafeindaiðn-
aði svo og vinnslu-
greinum í matvælaiðn-
aði og gengið frá
tillögum um skipulag
þeirra og framkvæmd.
Í þessari stefnu bæj-
arstjórnar er sem sagt
mikill skilningur á því
að öflugt verknám og
háskólanám verði að
fara saman og það svo
grundvöllur öflugs at-
vinnulífs.
Það vakti hins vegar undrun mína
og furðu að þegar frambjóðendur
töluðu um frekari uppbyggingu at-
vinnulífsins minntust þeir ekki einu
orði á þessa metnaðarfullu stefnu-
mörkun bæjarins og alls ekki hvern-
ig gengur að koma henni í fram-
kvæmd. Menn virðast alveg hafa
gleymt sér úti við Glerá og horfa
þar til himins í mærðarfullri alsælu.
Ætla mætti að einhvers staðar í
öðrum bæjarfélögum myndi minni-
hlutinn nýta sér slíka værð til að
minna á það sem meirihlutinn ætl-
aði að gera. Slíku var ekki fyrir að
fara á fundinum góða og hallaðist nú
ekki á merinni frekar en fyrri dag-
inn.
Látum verkin tala
Um leið og ég hvet alla verðandi
bæjarstjórnarmenn í okkar góða bæ
til að rifja upp eigin stefnumörkun í
atvinnumálum hlýt ég og aðrir kjós-
endur að krefjast þess að henni
verði fylgt fast eftir, m.a. með því að
fara að vinna að því að gera verk-
mennt á Akureyri að nýrri stóriðju.
Nauðsynlegt er að hefja um það
samstarf við yfirvöld menntamála
eins og gert var þegar Háskólanum
var komið á fót. Nýta sér m.a.
möguleika á að reka á Akureyri öfl-
uga kjarnaskóla í sem flestum iðn-
greinum og sinna þannig kalli tím-
ans um að gera iðnaðar- og
skólabæinn að öflugustu miðstöð
verkmennta á Íslandi. Það er undir
okkur sjálfum komið að slíkur
draumur rætist og þess vegna er
nauðsynlegt að Akureyringar og ná-
grannasveitarfélög sýni frumkvæði
og áræði og fylgi þessu þarfa mál-
efni eftir í góðri samvinnu við fyr-
irtæki, skóla og aðra sem málið
varðar.
Verkmennta-
bærinn
Akureyri
Ragnar
Sverrisson
Höfundur er kaupmaður í JMJ og
formaður Kaupmannafélags
Akureyrar.
Akureyri
Menn virðast, segir
Ragnar Sverrisson,
alveg hafa gleymt sér
úti við Glerá.
SÍÐASTLIÐINN
mánuð hafa átt sér
stað viðræður í stjórn
Lánasjóðs íslenskra
námsmanna á milli
fulltrúa námsmanna-
hreyfinganna sem
skipa minnihluta í
stjórninni og fulltrúa
ríkisins sem skipa
meirihluta. Markmið
þessara viðræðna er
að fara yfir reglur
sjóðsins og sneiða af
annmarka sem í þeim
finnast en minnihlut-
inn í Stúdentaráði
hefur látið þau orð
falla að árangurinn í þessum við-
ræðum sé prófsteinn á hina nýju
forystu Vöku í ráðinu. Í þessum
reglum eru þó einnig ákvæði sem
snerta hag námsmanna og hefur
því verið mikið metnaðarmál hjá
þeim námsmannahreyfingum sem
taka þátt í viðræðunum að bæta
lánakjör stúdenta.
Mismunandi áherslur
Í Háskóla Íslands eru tvær álíka
stórar fylkingar sem hafa keppst
um að leiða starf Stúdentaráðs HÍ.
Árangur í lánasjóðsviðræðum hef-
ur oft verið áberandi í þeirri bar-
áttu en fylkingarnar hafa ekki allt-
af verið sammála um hvernig best
verði að þeim staðið. Vaka vakti
máls á því að árangur síðustu ára í
lánasjóðsviðræðum væri ekki við-
unandi fyrir námsmenn enda væru
þau kjör sem þeir nytu hjá LÍN í
engu samræmi við kaupmáttar-
aukningu í landinu. Þær aðferðir
sem fulltrúar Stúdentaráðs hafa
beitt síðustu ár hafa einkennst af
háværum upphrópun-
um og mikilli tor-
tryggni í garð meiri-
hluta stjórnar LÍN.
Nýr meirihluti í Stúd-
entaráði telur að þessi
aðferð sé ekki vænleg
því að enginn dansar
við sjálfan sig og hef-
ur því miðað sína
samningaviðleitni að
því að finna sameig-
inlegan grundvöll
þeirra hagsmunaaðila
sem að viðræðunum
koma.
Námsmanna-
hreyfingarnar
Ljóst er að betra samstarf hefur
ríkt á milli námsmanna í barátt-
unni fyrir bættum kjörum náms-
manna en oft áður. Sterkt Stúd-
entaráð undir forystu Vöku setti
fram skýr markmið sem samþykkt
voru einróma á fundi Stúdentaráðs
18. apríl síðastliðinn. Í góðri sam-
vinnu við hinar námsmannahreyf-
ingarnar var lokahöndin lögð á að
marka stefnu íslenskra náms-
manna í lánasjóðsviðræðunum sem
síðan var birt fulltrúum ríkisins.
Frá upphafi var ákveðið að fara
samningaleiðina í viðræðunum og
leita leiða til að finna sameiginleg-
an grundvöll og niðurstöðu sem
allir gætu sætt sig við.
Umtalsverð hækkun
Töluverðar breytingar voru
gerðar á reglum sjóðsins sem
flestar miða að því að einfalda
þær. Mestu breytingarnar á út-
hlutunarreglunum eru þó þær sem
snúa að þeim námsmönnum sem
taka lán. Námsmannahreyfingarn-
ar hafa á undanförnum árum lagt
ríka áherslu á að hækka grunn-
framfærsluna enda er ljóst að
hækkun hennar bætir hag náms-
manna mest. Mikil samstaða hefur
verið um þetta atriði því að stúd-
entar eru almennt sammála um að
nám sé full vinna og ekki sé eðli-
legt að námsmenn verði að vinna
með námi. Því lögðu námsmenn til
að fulltrúar ríkisins tækju tillit til
þessa sjónarmiðs og legðu náms-
mannahreyfingunum lið í þeim til-
gangi að létta fólki námið.
Menntun er fjárfesting og sem
slík skilar hún miklum arði fyrir
allt þjóðfélagið. Þessi sameiginlegi
grundvöllur sem fannst í nefndinni
leiddi til þess að ákveðið var að
grunnframfærslan var hækkuð úr
69.500 í 75.500, sem er rúmlega
8,6% hækkun á lánunum. Ljóst er
að á síðustu árum hefur grunn-
framfærslan ekki hækkað eins
mikið en sem dæmi má nefna að í
síðustu viðræðum náðist sam-
komulag um 4,5% hækkun.
Fjárhagslegt sjálfstæði
Vaka hefur lengi talað fyrir því
að afnema beri tekjutengingu
maka því að fjárhagslegt sjálf-
stæði einstaklinga hefur alltaf
skipt miklu máli fyrir fylkinguna.
Því er ánægjulegt að greina frá
því að að þessu sinni komust
fulltrúar ríkisstjórnarinnar og
námsmannahreyfinganna að sam-
komulagi um að afnema skuli
tekjutengingu maka. Nú geta
námsmenn hagað sambúðarmálum
sínum eftir eigin höfði án þess að
hafa áhyggjur af skerðingu á fjár-
hagslegu frelsi og ljóst að stórt
hagsmunamál stúdenta er nú í
höfn.
Meðal annarra breytinga má
nefna lán vegna töku sumarprófa,
hækkun skólagjaldalána, hækkun
bókakaupaláns, rýmkun á hinni
svokölluðu fimm ára reglu og auk-
in réttindi einstæðra foreldra.
Aðeins
fyrsta skrefið
Nýr meirihluti í Stúdentaráði
hefur haft að leiðarljósi í starfi
sínu að auka samstarf allra hags-
munaaðila sem að sjóðnum standa.
Árangurinn talar sínu máli og má
því segja að Vaka í meirihluta hafi
staðist þetta próf með ágætisein-
kunn. Þetta er þó aðeins eitt af
mörgum skrefum sem taka þarf til
að bæta stöðu stúdenta, því mikið
starf er þar óunnið. Í ár standa til
að mynda skerðingarhlutfall og
frítekjumark lánanna óbreytt og
því ljóst að þar þarf að taka til
hendinni í næstu samningaviðræð-
um.
Sterkt Stúdentaráð undir for-
ystu Vöku hefur í þessu skilað
námsmönnum langþráðum ár-
angri. Þetta er árangur sem allir
stúdentar hljóta að gleðjast yfir.
Frábært samstarf námsmanna-
hreyfinganna var algjör grundvöll-
ur þess árangurs sem nú hefur
náðst og eins hafa samskipti við
fulltrúa ríkisins verið góð og kann
ég öllum sem að málinu hafa kom-
ið bestu þakkir fyrir samstarfið.
Grunnframfærslan var
hækkuð um rúm 8,6%
Ingunn
Guðbrandsdóttir
LÍN
Sterkt Stúdentaráð
undir forystu Vöku, seg-
ir Ingunn Guðbrands-
dóttir, hefur í þessu
skilað námsmönnum
langþráðum árangri.
Höfundur er fulltrúi Stúdentaráðs
HÍ í stjórn LÍN.