Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 49
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 49
!"#"$ ' ! " '# .(8'
9':;:/ ,!"#"$
*
& < ' ' , ! !
'"' = $
< ! "
'# !
, ! . 9':;/ $ " #
0 $1 '", +'"' $
. 9':;:/ (
% /
'$
' :;:/ ! "# $
/
# # ,
,-& . (/ ,0 (
,((
, * ' * ,".. 1 /
,2 $ $
3( &*+ ' &
'* *+ /
!"#"$
NÚ ÞEGAR líður að
lokum kosningabarátt-
unnar og ljóst er að
áhlaup D-listans gegn
sitjandi borgarstjórn
mun ekki takast er
mikilvægt að kjósend-
ur gleymi ekki þriðja
aflinu, F-listanum.
Samkvæmt skoðana-
könnun Talnakönnun-
ar 8. og 15. maí sl. er
staða D-listans
óbreytt, 43%. F-listinn
hefur hinsvegar aukið
fylgi sitt um 1,5% milli
kannananna og vantar
því aðeins herslumun-
inn til að ná inn manni.
Með því að tryggja kjör forystu-
manns F-listans, Ólafs F. Magnús-
sonar borgarfulltrúa og læknis, velja
kjósendur öflugan málsvara ábyrgð-
ar og heiðarleika í borgarstjórn
Reykjavíkur.
Ólafur er þekktur af góðum verk-
um í borgarstjórn sl. 12 ár. Hann
hefur verið einarður baráttumaður
heilbrigðis-, öryggis-, velferðar- og
umhverfismála. Ólafur hefur ætíð
lagt áherslu á að beita sér í þeim
málum sem mestu skipta fyrir vel-
ferð íbúanna.
Hann hefur sérstaklega varið rétt-
indi aldraðra, öryrkja og annarra
sem fjálglega er talað um á tyllidög-
um en vilja gleymast þegar kemur að
því að forgangsraða málaflokkum.
Ólafur þekkir sem heimilislæknir vel
til baráttunnar um að verja heil-
brigðis- og velferðarþjónustuna
gegn niðurskurði sem harðast bitnar
á öldruðum, öryrkjum,
barnafjölskyldum og
láglaunafólki. Ólafur er
þekktur umhverfis-
verndarsinni og einn af
stofnendum Umhverf-
isvina, sem með snörpu
og samstilltu átaki
tókst að koma í veg fyr-
ir óafturkræf umhverf-
isspjöll á hálendi Aust-
urlands. Hann er
hinsvegar fylgjandi
nýtingu auðlinda lands-
manna innan skynsam-
legra marka. Í því sam-
bandi er vert að minna
á athyglisverða upp-
byggingu Orkuveitu
Reykjavíkur á Nesjavöllum og und-
irbúningsframkvæmdir að gufuafls-
virkjun á Hellisheiði. Með því að
kjósa Ólaf F. Magnússon til áfram-
haldandi setu í borgarstjórn Reykja-
víkur sjá kjósendur til þess að meiri-
hlutinn fái nauðsynlegt aðhald og
hvatningu til að láta þá málaflokka
sitja í fyrirrúmi, sem mestu varðar
fyrir íbúa borgarinnar.
Ólaf F. Magnús-
son í borgarstjórn
Sveinn
Aðalsteinsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Reykjavík
Ólafur er, segir Sveinn
Aðalsteinsson, þekktur
af góðum verkum í
borgarstjórn sl. 12 ár.
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122