Morgunblaðið - 26.06.2002, Blaðsíða 1
Átta
hundruð
ekkjur
Reuters
AFGANSKAR ekkjur, alls um 800
talsins, hlýða á ræðu sem haldin
var á námskeiði í Kabúl í gær. Óháð
samtök buðu konunum að fá tilsögn
í saumaskap, vefnaði og gerð tilbú-
inna blóma til að þær geti aflað sér
tekna. Talibanastjórnin bannaði
konum að vinna eða fara í skóla.
147. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 26. JÚNÍ 2002
YASSER Arafat, leiðtogi Palestínu,
hét því á fundi með utanríkisráð-
herra Frakkands í gær að efnt yrði
til kosninga á svæðum Palestínu-
manna í janúar 2003. Leiðtoginn
sagðist ekki telja að George W.
Bush Bandaríkjaforseti hefði í ræðu
sinni um málefni Mið-Austurlanda á
mánudag krafist þess að annar
maður tæki við forystu Palestínu-
manna. „Það mun þjóð mín ákveða
og enginn annar,“ sagði Arafat sem
tók fram að hann teldi Bush hafa
lagt fram „mikilvægar“ tillögur sem
myndu gagnast við að koma á friði í
deilunum við Ísraela og Palestínu-
manna. Bush nafngreindi ekki Ara-
fat í ræðu sinni en sagði að skipta
yrði um forystu. Colin Powell, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði
í gær að Bandaríkjastjórn hefði
orðið að hætta algerlega að styðja
Arafat. Það hefði hún ekki gert með
glöðu geði en Arafat væri ófær um
að leiða þjóð sína inn á braut frið-
arins.
Amr Moussa, framkvæmdastjóri
Arababandalagsins, sagði margt já-
kvætt í ræðu Bush og viðbrögð
ráðamanna í ríkjum araba við ræðu
Bush voru yfirleitt á sömu lund þótt
stjórnir þeirra höfnuðu kröfu hans
um að Arafat viki. Bent var á að
það væri lýðræðislegur réttur Pal-
estínumanna að velja sér sjálfir
leiðtoga og Arafat væri réttkjörinn
í embættið. Hosni Mubarak, forseti
Egyptalands, sagði að Bush hefði
gætt „fyllsta jafnvægis“ í ræðunni.
Fjölmiðlar í arabaríkjunum gagn-
rýndu flestir Bush og sögðu hann
eingöngu hafa gert kröfur á hendur
Palestínumönnum en Ísraelum
leyfðist sem fyrr að fara sínu fram.
Helstu leiðtogar Evrópulandanna
hrósuðu frumkvæði Bush og Jack
Straw, utanríkisráðherra Bretlands,
sagði að hugmyndir hans um að tvö
ríki, annars vegar Ísraela og hins
vegar Palestínumanna, væru þær
„einu sem dygðu“. Evrópsku leið-
togarnir voru hins vegar sammála
um að rangt væri að krefjast þess
að Palestínumann kysu sér nýja
forystumenn. Rússar sögðust styðja
stefnu Bush í málinu en sumt þyrfti
þó að útskýra betur.
Bush minntist að þessu sinni ekk-
ert á tillögur um að kalla saman
friðarráðstefnu í sumar til að fjalla
um deilurnar í Mið-Austurlöndum
en Evrópusambandið ítrekaði í gær
stuðning sinn við slíka ráðstefnu.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagðist efast
um að rétt væri að krefjast taf-
arlausra kosninga meðal Palestínu-
manna núna þar sem niðurstaðan
gæti orðið að herská öfl hefðu þá
sigur. Annan benti á að mikilvægt
væri að Bush hefði tekið undir kröf-
ur um að framfylgt yrði samþykkt-
um SÞ um að Ísraelar drægju her
sinn á brott frá hernumdum svæð-
um.
„Ég talaði við Arafat …“
Colin Powell sagði að full sam-
staða væri í Bandaríkjastjórn um
að krefjast afsagnar Arafats en
Powell hefur lengi verið helsti tals-
maður þess í stjórn Bush að reyna
að semja við Palestínuleiðtogann.
Powell sagðist hafa skipt um skoð-
un síðan 9. apríl er hann sagði rík-
isstjórnina viðurkenna að Palestínu-
menn teldu Arafat vera leiðtoga
sinn. Arafat og samstarfsmenn
hans hefðu sýnt á undanförnum
vikum að þeir gætu ekki veitt þjóð-
inni þá forystu sem hún þyrfti og
ætti skilið, forystu til að koma á
friði og stöðva hryðjuverk. Hann
sagðist hafa tjáð Arafat með skýr-
um hætti í apríl hvað hann þyrfti að
gera.
„Ég talaði við Arafat … og sagði
honum að hann hefði verið á villu-
götum og tími væri kominn til þess
að hann tæki grundvallarákvörðun
fyrir þjóð sína en því miður hefur
hann ekki tekið þá ákvörðun,“ sagði
Powell. Hann sagði Bandaríkja-
menn styðja lýðræði en ekki væru
nein teikn á lofti um að Arafat og
stjórn hans ætluðu að koma á raun-
verulegu lýðræði, bæta stjórnar-
hætti og berjast gegn spillingu.
Leiðtogar arabaríkjanna
hrósa friðartillögum Bush
Powell segir að Arafat hafi fengið
mörg tækifæri en hunsað þau
Kaíró, London, Moskvu, Washington. AP, AFP.
Víða til efni í
geislasprengju
Vín. AFP.
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin,
IAEA, varaði við því í gær að hryðju-
verkasamtök gætu komist yfir efni í
geislasprengjur út um allan heim og
sagði að yfir hundrað ríki hefðu ekki
gert nægar ráðstafanir til að fyrir-
byggja að geislavirk efni kæmust í
hendur hryðjuverkamanna. „Við
þurfum að fylgjast með ferli geisla-
virkra efna frá upphafi til enda til að
hindra að þeim sé stolið eða þau notuð
af hryðjuverkamönnum,“ sagði Mo-
hamed El-Baradei, forstjóri IAEA.
Geislavirk efni eru m.a. notuð á
sjúkrahúsum og á ýmsum rannsókna-
stofum. Vitað er að hryðjuverkahópar
reyna að komast yfir geislavirk efni
sem þeir geta notað til að búa til svo-
nefndar „skítugar“ sprengjur. Er þá
efninu komið fyrir utan á hefðbund-
inni sprengju er síðan gæti dreift
geislavirku ryki um allstórt svæði og
valdið mikilli hræðslu auk þess sem
sum efnin eru afar lengi að eyðast.
Þau gætu því gert stór mannvirki
ónothæf um langt skeið.
El-Baradei sagði að IAEA legði nú
áherslu á að aðstoða ríki við að herða
reglur um eftirlit með efnum af þessu
tagi. Hann sagði að auðvelt væri að
flytja slík efni milli staða í lítilli ferða-
tösku ef hryðjuverkamennirnir
skeyttu ekkert um eigið öryggi og
hættuna á geislavirkni.
Menn hafa lengi haft áhyggjur af
útbreiðslu geislavirkra efna frá fyrr-
verandi lýðveldum Sovétríkjanna en
stofnunin segir að hættan sé til staðar
úti um allan heim, meðal annars í
Bandaríkjunum og löndum Evrópu-
sambandsins. Um 1.500 geislavirkir
hlutir hafa týnst í Bandaríkjunum frá
1996 og í ESB-löndunum týnast 70
geislavirkir hlutir á ári hverju.
Í sigur-
vímu
Reuters
ÞJÓÐVERJAR sigruðu Suður-
Kóreumenn í heimsmeistarakeppn-
inni í knattspyrnu í gær með einu
marki gegn engu og munu því leika
til úrslita gegn annaðhvort Brasilíu-
mönnum eða Tyrkjum á sunnudag.
Mikill fögnuður varð í Þýskalandi er
úrslit í leiknum voru ráðin. Víðast
hvar réð gleðin ríkjum en í borginni
Mannheim brutust út átök er nokkur
hundruð skallabullur fleygðu flösk-
um í lögreglumenn og skutu að þeim
flugeldum. Hér fagna hamingju-
samir Þjóðverjar sigri á Mallorca.
Þjóðverjar/B4
Fitandi sjónvarp
FÓLKIÐ á sjónvarpsskjánum
virðist vera 4–5 kílógrömmum
þyngra en það er í raun og veru,
ef marka má rannsókn sem vís-
indamenn við Liverpool-háskóla
hafa gert og sagt er frá í norska
blaðinu Aftenposten. Breska
læknafélagið gaf fyrir tveim árum
út ritling um átraskanir og fjöl-
miðla og varaði við vaxandi tíðni
slíkra kvilla meðal kvenna er
starfa í sjónvarpi en þær reyna
margar að grenna sig óhóflega til
að koma betur út á skjánum.
Fyrirbærið er vel þekkt meðal
leikara sem segja að aðdáendurn-
ir verði oft undrandi þegar þeir
hitti þá á götu. Karlarnir séu
minni og rýrari en áhorfendur
höfðu haldið og konurnar
grennri. Breiðbandstæknin er
sögð munu leysa vandann. „Hægt
er að senda út myndir í þrívídd á
breiðbandinu og þá fáum við
sannari mynd af því hvernig fólk
lítur út,“ segir Bernard Harper
vísindamaður við Liverpool-há-
skólann.
HELGE Sander, ráðherra vísinda í
Danmörku, hyggst setja símafyrir-
tækjum stólinn fyrir dyrnar: Ef þau
hætta ekki að krefja fólk um greiðslur
fyrir dýrar upphringingar sem það
hefur ekki beðið um er hann reiðubú-
inn að beita sér fyrir lagasetningu til
að tryggja rétt neytenda, að sögn
Berlingske Tidende.
Vitað er um tilfelli þar sem við-
skiptavinir hafa fengið reikninga upp
á 50.000 danskra krónur, um 560 þús-
und íslenskar. Hefur þá númerið
þeirra verið misnotað af tölvuþrjótum
sem nota sjálfvirkan búnað á Netinu
til að laumast í síma grunlausra net-
viðskiptavina og nota þá til samskipta
við fjarlæg lönd með tilheyrandi mín-
útuverði en hinir síðarnefndu sitja
síðan uppi með kostnaðinn.
Síminn borgi
fyrir svindlarana