Morgunblaðið - 26.06.2002, Blaðsíða 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 39
Í KJÖLFAR Estonia-slyssins voru
samþykktar nýjar reglugerðir af
Alþjóðasiglingamálastofnuninni
um að allar ferjur í föstum áætl-
unarsiglingum hefðu svokallaða
sjálfréttandi björgunarbáta um
borð en slíkir björgunarbátar
rétta sig við sjálfir með nýrri
tækni, ef þeir blása upp á hvolfi. Í
kjölfar þessara nýju alþjóða-
reglugerða efndu Ríkiskaup til út-
boðs á slíkum bátum fyrir hönd
Vegagerðarinnar þar sem gerðar
voru ýtrustu kröfur um gæði og
öryggi.
Í kjölfar útboðsins voru keyptir
23 DSB-björgunarbátar sem fram-
leiddir eru í Þýskalandi. Keyptir
voru tólf 35 manna bátar fyrir
Herjólf og níu 25 manna bátar fyr-
ir Baldur. Að auki voru keyptir 18
manna hífanlegir (Means of
Rescue) MOR-bátar fyrir bæði
skipin. Þetta eru opnir björgunar-
bátar án þaks og með hífibúnaði
þannig að þegar björgunarskip
kemur á staðinn getur fólk fært
sig yfir í þá báta og björgunarskip
híft þá með fólki um borð, segir í
fréttatilkynningu.
Nýir björgunarbátar
í Herjólf og Baldur
Hjörtur Cýrusson, sérfræðingur ICEDAN, og Sævaldur Elíasson, skip-
stjóri á Herjólfi, við nýju björgunarbátana.
HESTAR
EKKI er útilokað að einhverjir
þeirra sem hugðust keppa á lands-
móti en mistókst að tryggja sér sæti
þar fái nú möguleika á að keppa á
Vindheimamelum þrátt fyrir allt því
á mánudag, reyndar degi áður en
landsmótið sjálft hefst formlega,
verður haldið upphitunarmót í þeim
tilgangi að prófa tölvukerfi mótsins
fyrir starfsmenn þess. Auk þess fá
dómarar þarna góða upphitun og
möguleika á samstillingu fyrir alvör-
una sem hefst þriðjudaginn 2. júlí.
Á heimasíðu landsmótsins kemur
fram að skráning í upphitunarmótið
verði á staðnum en Hinrik Már Jóns-
son mótsstjóri upplýsti að að sjálf-
sögðu yrði um mjög takmarkaða
þátttöku að ræða í þessu móti sem
yrði sömuleiðis afar óformlegt. „Ætl-
unin er að renna nokkrum hrossum í
gegn í öllum flokkum í forkeppni
þannig að það reyni á öll kerfin.
Einnig verða sett upp einhver úrslit
og getur þá verið um önnur hross að
ræða þar en þau sem tóku þátt í for-
keppninni,“ sagði Hinrik. Hann upp-
lýsti einnig svona til frekari árétt-
ingar að gæðingakeppni mótsins
yrði þrískipt eins og lög og reglur
kveða á um, þ.e. forkeppni þar sem
þrír verða inni á velli í senn og sýnd
eru þrjú atriði, tölt, brokk og skeið
eða yfirferðartölt. Síðan eru milli-
riðlar þar sem 20–25 efstu í hverjum
flokki sýna að auki fet og stökk og
einn keppandi er inni á velli í senn.
Að endingu verða svo A-úrslit í öllum
greinum en að auki B-úrslit hjá al-
hliða gæðingum og klárhestum. Af
þessu má sjá að það verða strembin
verkefnin hjá þeim tveimur hestum
sem lenda í og vinna í B-úrslitum og
taka að endingu þátt í A-úrslitum.
Svo gæti allt eins hagað svo til að
annar eða báðir þessir hestar tækju
þátt í einhverri af fjölmörgum af-
kvæmasýningum mótsins eða rækt-
unarhópssýningum.
Hinrik sagði að allur undirbúning-
ur væri að komast á lokastig, menn
væru bjartsýnir á að vel tækist til og
hestamenn muni eiga góða daga á
Vindheimamelum í næstu viku.
Hann sagðist búast við talsverðum
fjölda keppenda strax á laugardag.
Aðgangseyrir inn á mótið verður
7.500 krónur fyrir alla dagana en
verðið lækkar klukkan 23 á föstu-
dagskvöld í 6.000 krónur og sólar-
hring síðar fer það í 3.500 krónur og
klukkan 7 á sunnudagsmorgun kost-
ar 2.500 krónur inn. Unglingar á
aldrinum 13 til 16 ára greiða 1.500
krónur fyrir allan tímann og frítt er
fyrir börn 12 ára og yngri. Móts-
stjórn fer vinsamlega fram á það við
væntanlega mótsgesti á þessum
aldri að framvísa persónuskilríkjum.
Upphitun-
armót fyrir
dómara og
starfsmenn
á mánudag
M O N S O O N
M A K E U P
lifandi litir
Kaffibollar
Cappucino
verð kr. 2.700
Mokka
verð kr. 1.890
Kaffikönnur
verð kr. 1.890
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mánudag-föstudag 11-18,
laugardag 11-15