Morgunblaðið - 26.06.2002, Síða 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Vegna styrkingar krónunnar
og lægra dollaraverðs
lækka
Viking fellihýsin um
100.000 kr.
Verð nú 759.000 með bremsum
• Tæki sem brenna gasi eiga að vera CE merkt •
Netsalan ehf.
Garðatorgi 3, 210 Garðabæ,
símar 565 6241 og 893 7333, Fax 544 4211, netfang: netsalan@itn.is
Opið
Virka daga frá kl. 10-18.
Laugardag frá kl. 10-16.
Lokað á sunnudögum
BRYNJÓLFUR Bjarnason tekur við
starfi forstjóra Landssíma Íslands
innan skamms en hann hefur sagt
starfi sínu sem forstjóri Granda hf.
lausu. Stjórn Landssíma Íslands
ákvað á fundi sínum í fyrradag að
Brynjólfur yrði ráðinn til starfans
en ákvörðunin var kynnt í gær. Ósk-
ar Jósefsson, sem gegnt hefur starfi
forstjóra Símans frá síðastliðnu
hausti, mun láta af störfum.
Brynjólfur lauk stúdentsprófi frá
Verzlunarskóla Íslands 1967, prófi í
viðskiptafræði frá viðskiptadeild
Háskóla Íslands 1971 og MBA-prófi í
rekstrarhagfræði frá University of
Minnesota árið 1973.
Brynjólfur var forstjóri hjá Al-
menna bókafélaginu 1976–1983 og
forstjóri Granda hf. (áður Bæj-
arútgerð Reykjavíkur BÚR) frá
1984. Hann situr í stjórn nokkurra
fyrirtækja, þ.á m. Bakkavarar, Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna og
Þróunarfélags Íslands.
Brynjólfur Bjarnason er 56 ára
gamall, kvæntur Þorbjörgu Jóns-
dóttur, hann á fimm börn.
Rannveig Rist, stjórnarformaður
Landssíma Íslands, segist vænta far-
sæls samstarfs við Brynjólf. Hún
segir að þegar ný stjórn tók við
Landssíma Íslands í mars sl. hafi
stjórnin viljað kynna sér fyrirtækið
vel áður en að ráðningu forstjóra
kæmi. „Við vildum átta okkur á því
hvers lags einstakling, reynslu og
menntun þyrfti í forstjórastarfið.
Við töldum líka önnur mál meira að-
kallandi en að ráða forstjóra. Óskar
Jósefsson hefur staðið sig ágætlega
og var vel inni í málum og mjög hæf-
ur til að setja stjórnina inn í málin,“
segir Rannveig.
Meira aðkallandi mál voru að
mati Rannveigar sæstrengsmálið,
dótturfélög Landssímans, ýmis mál
varðandi Samkeppnisstofnun og
fleira. Aðspurð segist Rannveig hafa
rætt við Brynjólf fyrst fyrir mánuði
en endanleg ákvörðun var ekki tek-
in fyrr en í fyrradag. Rannveig segir
að fleiri hafi komið til greina í starf-
ið en aðeins var rætt við Brynjólf.
„Við vildum fá vel menntaðan mann
með mikla reynslu af viðskiptalífinu,
samskiptum við opinbera aðila og
Verðbréfaþing. Mann sem hefði rek-
ið tiltölulega stórt fyrirtæki með
mörgum starfsmönnum og tekist
það farsællega. Landssíminn er í því
ferli að fara úr því að vera ríkisfyr-
irtæki yfir í að verða einkafyrirtæki.
Við lítum svo á að það þurfi tals-
verða reynslu til að ráða við að
halda utan um slíkt ferli. Brynjólfur
hefur þá reynslu úr því að breyta
BÚR í Granda hf.,“ segir Rannveig.
Brynjólfur hefur farið fram á að
starfslok hjá Granda hf. verði sem
fyrst. Hann segir í samtali við
Morgunblaðið að breyting á
starfsvettvangi leggist ágætlega í
sig. „Ég lít á þetta sem mjög stórt
verkefni, mjög spennandi og ögr-
andi. Ég hef starfað í átján ár í
sjávarútvegi og það hefur verið
ánægjulegur tími, sem reyndar hef-
ur einkennst af miklum breytingum,
til dæmis á fiskveiðistjórn-
unarkerfinu. Starfið hjá Granda
hefur verið ánægjulegt en ég kveð
það nú og kært starfsfólk sem ég hef
átt afar gott samstarf við. Ég er 55
ára gamall og þegar mér bauðst að
taka þetta starf, leit ég þannig á að
ég ætti að taka því núna, það væri
ekki víst að hægt væri að gera þetta
mikið seinna,“ segir Brynjólfur.
„Það er af mörgum verkefnum að
taka og ég held að það verði mjög
spennandi. Landssími Íslands er
hlutafélag og alveg á sama hátt og
með Granda hafa eigendur sett sitt
áhættufé í það. Það hlýtur að vera
verk mitt að ná fram arðsemi í
rekstri fyrirtækisins fyrir eigendur
og gera hlut þeirra eftirsóknarverð-
ari fyrir fjárfesta. Á því er enginn
munur fyrir rekstur fyrirtækis í
sjávarútvegi eða rekstur Landssíma
Íslands, að mínu mati.“
Brynjólfur
Bjarnason frá
Granda til Símans
Morgunblaðið/Sverrir
Brynjólfur Bjarnason sem mun innan skamms taka við starfi forstjóra
Landssíma Íslands hf. og Rannveig Rist stjórnarformaður.
BARN fæddist í aftursæti bifreið-
ar í Súgandafirði rétt fyrir mið-
nætti í fyrrakvöld. Foreldrarnir,
Violetta Maria Laskowska og
Maríusz Dúda, búa á Suðureyri,
en þau lögðu af stað til Ísafjarðar
þegar Violetta fór að finna fyrir
verkjum klukkan 22.30 um kvöld-
ið. Korteri síðar missti hún vatn-
ið og klukkan 23.30 urðu þau að
stöðva bifreiðina í Súgandafirði
og barnið kom í heiminn. Faðir-
inn tók á móti barninu í aftursæt-
inu en sjúkrabíll var þá á leiðinni
á móti þeim frá Ísafirði og voru
þau síðan flutt með honum á
sjúkrahúsið.
Hjónin voru í góðu jafnvægi og
bæði mjög yfirveguð við komuna
á spítalann, að sögn Andra Kon-
ráðssonar, læknis á Sjúkrahúsi
Ísafjarðar.
Barnið var drengur, 3.485 g að
þyngd og 52,5 cm á lengd. Hann
er fjórða barn foreldra sinna.
Móður og barni heilsast vel.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Móðurinni, Violettu Mariu Laskowska, og drengnum heilsast vel.
Drengur fæddist
í aftursæti bíls
KOSNINGAR til sveitarstjórna eru
afstaðnar, með öllu tilkynninga- og
auglýsingaflóði sem þeim fylgdi. Eða
hvað? Fyrir síðdegisfréttir Ríkisút-
varpsins á mánudag mátti heyra til-
kynningar þar sem skorað var á
kjósendur að styðja ákveðna fram-
bjóðendur til sveitarstjórnarkosn-
inga. Ekki hafa Morgunblaðinu bor-
ist fregnir um að áheyrendur hafi
fylkt liði á kjörstaði af þessu tilefni,
enda hefðu þeir þá komið að læstum
dyrum.
Að sögn Lárusar Guðmundssonar,
auglýsingastjóra Ríkisútvarpsins, er
ástæðan fyrir því að gamlar tilkynn-
ingar frá kosningum hljómuðu í út-
varpinu þessa vikuna sáraeinföld.
Þegar auglýsingar og tilkynningar
eru bókaðar eru þær mataðar inn í
tölvu sem sér um að koma þeim í loft-
ið á réttum dögum. Einhverra hluta
vegna virðist hins vegar sem svo að
tilkynningar sem heyrðust í útvarp-
inu á mánudag hafi fengið ranga
dagsetningu, þ.e. 24. júní í stað 24.
maí, sem er dagurinn áður en kosið
var til sveitarstjórna þetta árið.
Hvatt til kosninga UNDIRRÉTTUR í Hollandistaðfesti í gær framsalsbeiðni
íslenskra stjórnvalda á Íslend-
ingi sem grunaður er um aðild
að stórfelldum fíkniefnabrot-
um. Málinu hefur verið áfrýjað
til hæstaréttar og er líklegt að
niðurstöðu verði ekki að vænta
fyrr en í fyrsta lagi að nokkrum
mánuðum liðnum, að sögn Stef-
áns Eiríkssonar, skrifstofu-
stjóra í dómsmálaráðuneytinu.
Að sögn Stefáns var óskað
eftir framsali á manninum frá
hollenskum yfirvöldum fyrr á
þessu ári. Ekki var fallist á
framsal og fór málið fyrir dóm-
stóla þar í landi. Að sögn Stef-
áns er maðurinn grunaður um
aðild að alvarlegum fíkniefna-
brotum sem tengjast stórfelld-
um innfutningi á fíkniefnum.
Fallist
á framsals-
beiðni
Íslendingur í Hollandi
ÁKVEÐIÐ var að innkalla og
taka úr sölu allt kjúklingakjöt
sem grunur leikur á að hafi
verið sýkt salmonellu hjá
Reykjagarði hf. í síðustu
viku.
Í fréttatilkynningu frá
Reykjagarði segir að vísbend-
ingar um mögulega mengun
hafi komið fram við reglu-
bundið eftirlit í sláturhúsi, en
endanlegar niðurstöður liggi
ekki fyrir fyrr en síðar í þess-
ari viku. „Ákvörðunin var
tekin í samráði við viðkom-
andi yfirvöld en ekki að kröfu
þeirra,“ segir í tilkynning-
unni. Tekið er fram að sé eld-
unarleiðbeiningum á umbúð-
um fylgt eigi mönnum ekki að
stafa hætta af neyslu kjöts-
ins.
„Þessi viðbrögð eru í sam-
ræmi við stefnu fyrirtækisins
um neytendavernd og kunna
að vera yfirdrifin reynist
grunur ekki á rökum reistur.
Við viljum biðja viðskiptavini
okkar velvirðingar á mögu-
legum óþægindum sem af
þessum aðgerðum kunna að
hljótast,“ segir í fréttatil-
kynningu Reykjagarðs.
Kjúklingar
innkallaðir
FORSÆTISRÁÐHERRA
skipaði í gær samstarfsnefnd
um málefni þjóðlendna, en
nefndin skal vera forsætisráð-
herra til aðstoðar við stjórn og
ráðstöfun réttinda innan þjóð-
lendna.
Í nefndina voru skipaðir
Kristján Andri Stefánsson
deildarstjóri, sem jafnframt er
formaður nefndarinnar, Guðjón
Bragason lögfræðingur, sam-
kvæmt tilnefningu félagsmála-
ráðherra og iðnaðarráðherra
tilnefndi Kristínu Haraldsdótt-
ur lögfræðing. Þá eru í nefnd-
inni Sigríður Norðmann lög-
fræðingur, samkvæmt tilfnefn-
ingu landbúnaðarráðherra,
Gunnar Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri, samkvæmt til-
nefningu samgönguráðherra,
og Sigríður Auður Arnardóttir
deildarstjóri, samkvæmt til-
nefningu umhverfisráðherra.
Tveir menn voru skipaðir sam-
kvæmt tilnefningu Sambands
íslenskra sveitarfélaga og eru
það Hjörleifur B. Kvaran borg-
arlögmaður og Sveinn A. Sæ-
land oddviti.
Samstarfs-
nefnd um
þjóðlendur