Morgunblaðið - 26.06.2002, Blaðsíða 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 19
ÆÐSTU yfirmenn júgóslavneska
hersins lýstu í gær stuðningi sínum
við þá ákvörðun Vojislavs Kost-
unica, forseta Júgóslavíu, að víkja
Nebojsa Pavkov-
ic, yfirmanni her-
aflans, úr starfi í
fyrradag. Þá
lýstu fulltrúar
Evrópusam-
bandsins ánægju
sinni með
ákvörðunina en
Pavkovic, sem
var á sínum tíma
mikill bandamað-
ur Slobodans
Milosevic, neitaði hins vegar í fyrra-
kvöld að hlíta brottrekstrinum.
Allt frá því að Kostunica tók við
embætti forseta í Júgóslavíu fyrir
tæpum tveimur árum hafa vestur-
veldin þrýst á hann um að víkja
Pavkovic úr starfi. Milosevic gerði
Pavkovic að yfirmanni heraflans
eftir Kosovo-stríðið fyrir þremur ár-
um en hann hafði gegnt stöðu æðsta
yfirmanns hersins í héraðinu á með-
an á stríðinu stóð.
Talið er að Kostunica hafi skirrst
við að víkja Pavkovic frá störfum
fram til þessa sökum þess að hann
taldi sig standa í þakkarskuld við
hann fyrir að hafa ekki beitt hern-
um til að bæla niður þá ólgu í Júgó-
slavíu, sem varð til þess að Milosev-
ic hrökklaðist frá völdum. Samband
þeirra er hins vegar sagt hafa
versnað til muna að undanförnu.
Pavkovic sagði að Kostunica væri
augsýnilega uppsigað við sig og
kvaðst hann telja brottreksturinn
ólöglegan. Javier Solana, utanrík-
ismálastjóri ESB, fagnaði hins veg-
ar brottrekstri Pavkovic í gær og
sagði mikilvægt að yfirráð lýðræð-
islegra kjörinna stjórnvalda yfir
hernum væru viðurkennd. Zoran
Djindjic, forsætisráðherra Serbíu,
sagði brottreksturinn aftur á móti
vera „hneyksli“ en þau ummæli
þykja staðfesta þá togstreitu sem
einkennir samband Djindjic og
Kostunica.
Yfirmanni
herafla
Júgóslavíu
vikið úr
starfi
Nebojsa
Pavkovic
Belgrad, Brussel. AFP.
Hinsta
flug
Skjöldu
NORÐMAÐURINN Olav
Kjeldstad var á ferð í bíl sín-
um við Aalgård í Rogalandi á
mánudaginn ásamt þrem vin-
um þegar kýr féll skyndilega
eins og af himnum ofan og
lenti á götunni aftan við bílinn.
„Þetta var hrikalegt en okk-
ur tókst að komast hjá því að
keyra á kúna,“ sagði Kjeld-
stad í samtali við Dagbladet.
Hann sagðist hafa verið
nokkra stund að átta sig á því
hvað hefði gerst. Mennirnir
sáu fyrst eins og stóran
skugga á himni en síðan dynk-
inn þegar hún lenti á veginum.
Kjeldstad leit í bakspegilinn
og sá þá að kýr lá á veginum.
Hann segist hafa skolfið en
jafnframt hafi þeir ekki getað
stillt sig um að hlæja dálítið.
„Þetta var svo grátbroslegt,“
sagði hann.
Lögreglan sagði að kýrin
virtist hafa ráfað fram af tíu
metra hárri bjargbrún við
veginn. Hún náði að baula
nokkrum sinnum áður en hún
drapst eftir slysið.
Spænska þingið setur lög er banna starfsemi flokka sem styðja hryðjuverk
Beint gegn stjórnmálaarmi ETA
Madríd. AFP.
EFRI deild spænska þingsins sam-
þykkti í gær ný lög sem munu gera
stjórnvöldum kleift að banna starf-
semi Batasuna, pólitísks arms Að-
skilnaðarhreyfingar Baska (ETA)
en ETA hefur barist fyrir sjálfstæði
Baskalands undanfarna þrjá ára-
tugi. Um átta hundruð manns eru
talin hafa fallið í þeirri baráttu. Seg-
ir í frétt BBC að aðeins 13 af 259
þingmönnum hafi lýst andstöðu
sinni við lögin í atkvæðagreiðslu.
Neðri deild þingsins hefur þegar
samþykkt lögin en þau fela í sér
bann við starfsemi stjórnmálaflokka
sem taldir eru styðja starfsemi
hryðjuverkahópa með beinum eða
óbeinum hætti. Er lagasetningin
runnin undan rifjum hægri stjórnar
Jose Maria Aznar forsætisráðherra
en Sósíalistaflokkurinn, sem er í
stjórnarandstöðu, studdi hana hins
vegar einnig. Áður en hún tekur
gildi þarf sérstök nefnd hæstarétt-
ardómara að leggja blessun sína yfir
hana.
Ekki eru nema örfáir dagar síðan
ETA stóð fyrir fimm sprengjutil-
ræðum á Spáni og áttu þrjú þeirra
sér stað nálægt vinsælustu ferða-
mannastöðum landsins. Níu særð-
ust, þar af einn alvarlega, en tilræðin
áttu sér stað á sama tíma og leiðtog-
ar Evrópusambandsríkjanna fund-
uðu í borginni Sevilla á Suður-Spáni.
Ógnun við tjáningarfrelsið?
Samkvæmt lögunum getur hæsti-
réttur Spánar – í samræmi við óskir
ríkisstjórnar landsins eða a.m.k.
fimmtíu fulltrúa á þingi – framvegis
bannað starfsemi stjórnmálaflokka
hverra markmið er talið „að skaða
eða eyða lýðræðisstofnunum lands-
ins“. Þykir ljóst að lögunum er beint
gegn Batasuna en flokkurinn hlaut
10% atkvæða í héraðskosningum í
Baskalandi á síðasta ári.
Þúsundir stuðningsmanna Batas-
una hafa tekið þátt í mótmælum
vegna lagasetningarinnar á undan-
förnum vikum í borgunum Bilbao og
Pamplona. Þá hafa ýmsir vinstri-
sinnar og fræðimenn varað við því að
lagasetningin ógni lýðræði í landinu,
og þá einkum tjáningarfrelsinu.