Morgunblaðið - 26.06.2002, Qupperneq 24
UMRÆÐAN
24 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SKIPULAGSSTOFNUN fjallar
nú um skýrslu Landsvirkjunar um
mat á umhverfisáhrifum vegna
Norðlingaölduveitu sunnan Hofsjök-
uls í Þjórsárverum. Nær 100 athuga-
semdir bárust innan umsagnarfrests
og sem nærri má geta voru þær
langflestar á þann veg að verja bæri
Þjórsárverin gegn þessum áformum
um uppistöðulón sem gengi enn
frekar en orðið er á friðlandið í
Þjórsárverum.
Einstök hálendisvin
Þjórsárver eru víðfeðmasta og
tegundaríkasta hálendisvinin á Ís-
landi. Þar er stærsta og fjölbreytt-
asta freðmýri landsins með tilliti til
búsvæða og lífvera. Þar eru flæði-
engjar, tjarnastararflóar, gulstarar-
flóar, brokflóar, flár með rústum og
tjörnum, mela-, heiða- og háfjalla-
gróður. Þetta er einstök gróðurvin í
hálendi Íslands og gegnir mikilvægu
hlutverki sem búsvæði og fræbanki
fyrir nærliggjandi svæði. Í Þjórsár-
verum er stærsta varpland heiða-
gæsar í heiminum og eru fræðimenn
á einu máli um að svæðið hafi úr-
slitaáhrif á tilvist og viðhald heiða-
gæsastofnsins. Landslag er stór-
brotið, fjölbreytt og fagurt víðerni
með Hofsjökul og ekki síst Arnarfell
hið mikla sem einstakan bakgrunn.
Þeim sem áð hefur í hlíðum Arn-
arfells hins mikla á góðum degi
gleymist ekki sú stund. Slíka stund
hefur undirrituð tvívegis upplifað.
Verin þegar stórlega skert
Miðað við fyrri reynslu kemur
ekki á óvart að í matsskýrslu Lands-
virkjunar er mjög svo leitast við að
draga úr neikvæðum áhrifum fyrir-
hugaðra framkvæmda og sérstaka
athygli vekur að þrátt fyrir leit er
ekki að finna í skýrslunni tilvísun til
þeirrar skerðingar sem þegar er orð-
in á þessu svæði vegna fyrri fram-
kvæmda. Þá staðreynd verður að
hafa í huga að Þjórsárver hafa þegar
verið stórlega skert með 1.-5. áfanga
Kvíslaveitu. Norðlingaöldulóni er
ekki á bætandi.
Einkennilegar eru þær skilgrein-
ingar sem Landsvirkjun hefur uppi í
skýrslunni á stigum umhverfis-
áhrifa, þar sem talað er um lítil,
nokkur, talsverð eða
mikil áhrif. Í sumum
tilvikum er viðurkennt
að áhrifin kunni að
verða óafturkræf!
Hins vegar er forðast
að nota skilgreiningu
laga um mat á um-
hverfisáhrifum, þ.e.
umtalsverð umhverfis-
áhrif sem þá eru um
leið óafturkræf.
Með tilliti til lang-
varandi og yfirgrips-
mikilla rannsókna
Þóru Ellenar Þórhalls-
dóttur grasafræðings
vekur undrun hversu
lítið skýrsluhöfundar
leyfa sér að gera úr hættunni á vind-
rofi og áfoki. Sú niðurstaða gengur
þvert á upplýsingar Þóru Ellenar á
fundi með Náttúruverndarráði sál-
uga fyrir rúmu ári. Í skýrslunni er
talað um einfaldar fyrirbyggjandi
mótvægisaðgerðir, en þær eru ekki
frekar skýrðar.
Andartak í aldanna rás
Mikla athygli vekur sú niðurstaða
skýrslunnar að líftími Norðlinga-
öldulóns verði tiltölulega mjög
skammur, lónið myndi hálffyllast á
um 100 árum nema gripið yrði til
mótvægisaðgerða. 100 ár eru aðeins
andartak í aldanna rás og mótvæg-
isaðgerðir eru óskýrðar eins og fyrri
daginn.
Engin raunveruleg tilraun er gerð
til þess að meta ástand svæðisins og
þróun út frá svokölluðum núll-kosti.
Hins vegar er fjallað um áhrif núll-
kosts á hagkvæmni orkuvinnslu og
að sjálfsögðu komist að
þeirri niðurstöðu að
þau verði neikvæð þar
sem eingöngu er tekið
mið af fjárhagslegum
forsendum. Umhverfis-
áhrif og framtíðarskaði
eru aldrei metin til fjár.
Í nýgerðri bráða-
birgðaskýrslu um til-
raunamat Faghóps I
vegna rammaáætlunar
um greiningu virkjun-
arkosta er Norðlinga-
öldulón talið hafa í för
með sér umtalsverð
óæskileg og óafturkræf
umhverfisáhrif. Aðeins
Kárahnjúkavirkjun og
virkjun á öllu vatnasvæði Jökulsár á
Fjöllum voru taldar hafa meiri um-
hverfisáhrif. Þessar staðreyndir
virðast ekki hafa truflandi áhrif á
áform Landsvirkjunar um Norð-
lingaölduveitu frekar en á hinum
svæðunum og sannast hér enn og
aftur að umhverfisþáttur virkjana-
framkvæmda vegur létt í mati
Landsvirkjunar.
Svæði á heimsmælikvarða
Í lokakafla skýrslu Landsvirkjun-
ar eru niðurstöður dregnar saman
og er þar lítið gert úr umhverfis-
áhrifum vegna fyrirhugaðra fram-
kvæmda. Í lokaorðum er sagt að
Landsvirkjun telji „... að matsskýrsl-
an sýni að framkvæmd komi ekki til
með að hafa umtalsverð neikvæð
áhrif á umhverfið og að nýting og
verndun Þjórsárvera geti farið sam-
an“.
Undirrituð hafnar algjörlega
þessari niðurstöðu Landsvirkjunar.
Þjórsárver voru lýst friðland árið
1981 og tekin á Ramsarskrá árið
1990 sem alþjóðlega mikilvægt vot-
lendi einkum með tilliti til fuglalífs.
Slíkt er náttúruverndargildi Þjórs-
árvera að þau má fyrir hvern mun
ekki skerða meira en orðið er. Rétt-
ara væri að stækka friðlandið eins og
lagt hefur verið til. Þetta er tvímæla-
laust einstakt svæði á heimsmæli-
kvarða sem ber að varðveita til fram-
tíðar.
Verjum Þjórsárver
Kristín
Halldórsdóttir
Höfundur er fyrrverandi þingkona.
Landvernd
Slíkt er náttúruvernd-
argildi Þjórsárvera,
segir Kristín Halldórs-
dóttir, að þau má fyrir
hvern mun ekki skerða
meira en orðið er.
ÞETTA hafa verið
einkennilegir síðustu
dagar. Svolítið eins og í
leikriti eftir Dario Fo;
maður veit ekki al-
mennilega hvort maður
á að gráta eða hlæja,
gerir samt hvort
tveggja.
Íslendingar eru held-
ur seinir upp úr sófan-
um þegar kemur að
mótmælum. Sérstak-
lega ef sófinn er mjúk-
ur. Þetta sést best í
verkföllum. Röðin í
stólalyftuna í Bláfjöllum
er pökkuð en Jón stend-
ur einn á stallinum sín-
um á Austurvelli, ef undan er skilinn
einn og einn ógæfumaður á röltinu.
Ég er engin undantekning frá þessu,
nema síður sé. Fylgist ekki með frétt-
um, hef enga almennilega skoðun á
holræsagjöldum í Reykjavík og þekki
hvorki haus né sporð á málinu um
Byggðastofnun. Er bara almennt
frekar sátt ef ég á góða rauðvíns-
flösku inni í skáp, svona ef gestir
skyldu kíkja í heimsókn.
Og þar komum við að orðinu sem
hefur verið á allra vörum í vikunni
sem leið – gestir. Allir skyldu gest-
irnir okkar vera jafnir, en sumir gest-
ir örlítið jafnari öðrum.
Kínverskur erindreki sagði okkur á
blaðamannafundi að það væri erfitt að
halda mannréttindi í heiðri í Kína af
því að þar búa svo margir. Eftir stend
ég stóreyg og spyr mig hvort því sé
einmitt öfugt farið á Íslandi. Íslensk
yfirvöld megi brjóta á rétti manna af
því við erum svo fá, og höfum þar af
leiðandi svo fáa lögreglumenn. Hefði
þá ekki verið betra að segja við forset-
ann sem kom alla leið frá Kína: „Því
miður, okkur langar gjarnan að fá þig
í heimsókn en við getum það ekki,
ráðum hreinlega ekki við það. Hjá
okkur gilda nefnilega lýðræðisleg lög
og eftir þeim verðum við að fara. Það
þýðir að við megum aldrei mismuna
fólki, sama hverjar skoðanir þeirra
eru.“ Það fór þó aldrei svo, eins og all-
ir vita. Og almenningur, fullur óhug á
aðferðunum sem er beitt, mótmælir
ákvörðun ríkisstjórnar okkar. Við
þetta kemur í ljós að á þeim bæ eru
ekki allir jafnhrifnir af
andmælum.
Þegar á bilinu 70–80
manns á aldrinum 18–
38 ára (vinkona mín
taldi!) mótmæltu með
friðsömum hætti fyrir
framan stjórnarráð Ís-
lendinga miðvikudags-
morguninn 12. júní seg-
ir einn af ráðamönnum
þjóðarinnar í viðtali við
fjölmiðla að ekki hafi
orðið vart við neikvæð
viðbrögð, ef undan
væru skildir „20 krakk-
ar“ fyrir utan stjórnar-
ráðið. Þá sló ég á lær
mér og sagði við mig
sjálfa: „Tja! 20 krakkar!“ En niðrandi
ummælum um þá þegna sem nýttu
sér sinn sjálfsagða rétt til mótmæla
var þar með ekki lokið. Fimmtudag-
inn 13. júní birtist auglýsing í Morg-
unblaðinu þar sem 367 einstaklingar
settu nafn sitt við afsökunarbeiðni til
okkar erlendu gesta fyrir óskiljanlegt
framferði íslenskra stjórnvalda.
Seinna þann dag gefur áðurnefndur
maður í skyn að auglýsingin sé með
öllu ómarktæk. Það séu nefnilega
bara þrír sem skrifa sig á listann sem
eru með réttu ráði. Hinir 364 skrifi
gagnrýnislaust undir alla lista sem að
þeim eru réttir og séu þess vegna
ekkert með. Er 1% af 367 annars ekki
örugglega rúmlega 3? Þvættingurinn
keyrir þó endanlega um þverbak þeg-
ar hungurverkfall þrjátíu manns á de
Gaulle flugvelli er harmað vegna þess
að frönsk matargerð sé svo fín. Er
það bara ég eða er einhver þefur af
mannfyrirlitningu og ósegjanlegu
dramblæti í þessum orðum?
Ég vil taka það skýrt fram að ég er
ekki á móti því að forseta Kína sé boð-
ið hingað til lands, þrátt fyrir hryll-
inginn á Torgi hins himneska friðar
1989 og jafnvel þrátt fyrir þau mann-
réttindabrot sem framin eru í nafni
stjórnar hans. Ég trúi því að bætt
samskipti og traust á milli ólíkra
þjóða geti, ef til lengri tíma er litið,
leitt til bættra lífsgæða almennings.
En samskipti Íslendinga við þjóð eins
og þá kínversku hljóta að vera heppi-
legust þegar jafnræði gildir. Ef við
viljum kalla okkur lýðræðislegt ríki,
þá verður að halda mannréttindi í
heiðri. Svo einfalt er það. Það þýðir að
við verðum að virða tjáningar- og
ferðafrelsi. Það gerum við ekki með
því að hneppa fólk, sem ekki er grun-
að um annað en að ætla sér að fremja
friðsamleg mótmæli, í varðhald; það
gerum við ekki með því að koma í veg
fyrir að friðsöm mótmæli verði sýni-
leg og notum til þess þær örfáu hræð-
ur sem mynda lögreglulið okkar og
bílana er það hefur yfir að ráða til
þess að byrgja fyrir útsýni ráða-
manna. Og síðast en ekki síst: Það
gerum við örugglega ekki með því að
meina saklausu fólki aðgang að land-
inu á forsendum lista, sem fyrir óskilj-
anlegt kraftaverk birtist eins og bréf
frá guði (áhugasömum er bent á að
vagnstjórar New York-borgar á 19.
öld voru vanir að kalla stykkin sem
hestarnir gerðu á götuna „a letter
from god“…).
Að lokum vil ég segja þetta: Það að
forsætisráðherra, í landi sem gefur
sig út fyrir að vera lýðræðislegt, tali
með fyrirlitningu um fólk sem sinnir
sinni sjálfsögðu borgaralegu skyldu
og mótmælir þegar mannréttindi eru
brotin, hlýtur að teljast í besta falli
óeðlilegt og í því versta einræðislegt.
20 krakkar
María Heba
Þorkelsdóttir
Mannréttindi
Ef við viljum
kalla okkur lýðræðislegt
ríki, segir María Heba
Þorkelsdóttir, þá
verður að halda
mannréttindi í heiðri.
Höfundur er bókmenntafræðingur
og nemi við Listaháskóla Íslands.
og aftur er almenningur
sleginn.
VÍS hefur nú boðað
til þjóðarátaks gegn
umferðarslysum, annað
árið í röð. Í þjóðarátak-
inu er fólk hvatt til að
strengja tíu umferðar-
heit sem öll miða að
bættri umferð og fækk-
un slysa, sé eftir þeim
farið.
Þótt VÍS bindi vissu-
lega vonir við að þjóðin
verði við þeirri áskorun
sem felst í þjóðarátaki
félagsins, er deginum
ljósara að það eitt dugir
ekki til að koma í veg
fyrir hörmungar umferðarslysanna.
Sá boðskapur sem felst í umferðar-
heitunum tíu nær vonandi til sem
flestra en þeir eru einnig alltof margir
sem hlusta hvorki á né heyra slíkan
boðskap og aka nákvæmlega eins og
þeim hentar í umferðinni. Og það sem
meira er; þeir virðast komast upp
með það í flestum tilfellum. Til þess
að sporna við umferðarslysum þarf að
fara saman góður umferðaráróður/
boðskapur og öflug umferðarlög-
gæsla.
VÍS hefur lagt sitt af mörkum með
þjóðarátaki félagsins auk annarra
forvarnaaðgerða undanfarin ár. Sú
sem þetta ritar hefur þráfaldlega
bent á nauðsyn öflugrar umferðarlög-
gæslu á vegum úti, enda virðist þörfin
vera brýnust þar. Flest banaslys og
önnur alvarleg slys í umferðinni verða
á þjóðvegum landsins. Ástæðan er
m.a. sú að umferðareftirlit er lítið víða
ÞEGAR þetta er ritað hafa 17
manns látist í umferðarslysum það
sem af er þessu ári. Samkvæmt tölum
frá VÍS hefur umferðarslysum fjölg-
að um 12% fyrstu fimm mánuði ársins
miðað við sömu mánuði á fyrra ári.
Þessi óheillaþróun í umferðinni vekur
ugg meðal þjóðarinnar enda þeir ófáir
sem nú eiga um sárt að binda eftir
hörmuleg umferðarslys undanfarinna
mánaða. Í kjölfar slíkra slysaaldna
koma sérfræðingar á sviði umferðar-
mála saman og ræða hvað sé til ráða.
Niðurstaðan er jafnan sú sama: Gera
verður allt sem í mannlegu valdi
stendur til að sporna við þessari þró-
un. Menn harma slysin, sem eðlilegt
er, og hvetja ökumenn til að fara var-
lega í umferðinni. Svo líður og bíður
og næsta slysaalda skellur á þjóðinni
á þjóðvegum landsins
og umferðarhraðinn því
oft óhóflegur.
Á þessu eru þó góðar
undantekningar, sbr.
kröftug umferðarlög-
gæsla lögreglunnar í
Húnavatnssýslu, Borg-
arfirði og Árnessýslu.
Þar hafa ófáir ökumenn
verið kærðir fyrir of
hraðan akstur sem skil-
ar sér um leið í almennt
lægri umferðarhraða í
þessum umdæmum því
öflugt umferðareftirlit
er fljótt að spyrjast út.
Þannig eru hraðamæl-
ingar ekki aðeins til að
koma böndum á þá sem aka of hratt,
heldur virka þær ekki síður sem öflug
forvörn og víti til varnaðar. Mér er
t.d. til efs að þeir séu margir öku-
mennirnir sem fari yfir löglegan um-
ferðarhraða í nánd við Blönduós, ein-
faldlega vegna þess að þar má búast
við lögreglunni við hraðamælingar.
Það er vissulega staðreynd að þörf
er á þjóðarvakningu og hugarfars-
breytingu meðal almennings í um-
ferðaröryggismálum. En það þarf
ekki síður hugarfarsbreytiungu hjá
stjórnvöldum hvað varðar áherslur í
löggæslumálum.
Brot á umferðarlögum eru ekki síð-
ur alvarleg en önnur brot og slík lög-
brot leiða oftar til dauða og alvarlega
líkamsáverka en önnur lögbrot, sbr.
meðaltal látinna og alvarlega slasaðra
í umferðinni á ári hverju.
Sólveig Pétursdóttir, dómsmála-
ráðherra, hefur sýnt umferðaröryggi
mikinn áhuga og gert ýmsar úrbætur
sem miða að fækkun umferðarslysa,
sbr. hækkun á umferðarlagasektum á
síðasta ári. En það er til lítils að
hækka sektir og þyngja viðurlög, ef
menn komast í alltof mörgum tilfell-
um upp með að brjóta lögin óáreittir,
enda lögreglan oft víðsfjarri.
Um leið og ég heiti því að virða um-
ferðarlögin og aka alltaf eins og ég vil
að aðrir aki nálægt mér og mínum
ástvinum, skora ég á þjóðina að gera
slíkt hið sama og taka þannig þátt í
þjóðárátaki VÍS. Í þessum orðum
felst ekki síður áskorun á stjórnvöld
að efla umferðarlöggæslu til mikilla
muna.
Þannig getum við best komið í veg
fyrir fleiri mannlega harmleiki í um-
ferðinni. Nóg er nú samt.
Ég heiti því og skora á aðra?
Ragnheiður
Davíðsdóttir
Forvarnir
Ég heiti að virða
umferðarlögin og aka
alltaf eins og ég vil að
aðrir aki nálægt mér
og mínum ástvinum,
segir Ragnheiður
Davíðsdóttir, og skora
ég á þjóðina að gera
slíkt hið sama.
Höfundur er forvarnafulltrúi VÍS.
C vítamín 400 mg
með sólberjabragði
Bragðgóðar tuggutöflur.
Eflir varnir.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum