Morgunblaðið - 26.06.2002, Síða 37
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 37
Það er í besta falli kropp í lax-
veiðiánum og til marks um það er
Norðurárholl sem dró 28 laxa á
land á þremur dögum, sem er nóg
til að halda mönnum við efnið en
telst engan veginn góð veiði. Ann-
að dæmi um kropp og lítil skot er
morgunveiði úr Æðarfossum í
Laxá í Aðaldal í gærmorgun, er
fimm laxar voru dregnir á þurrt,
sem er eins og Norðuráraflinn,
viðunandi, en slök veiði ef skoðuð
er heildarmyndin.
Aðrir laxapunktar …
Gljúfurá var opnuð síðasta
fimmtudag og veiddi fyrsta hollið
til laugardags án þess að svo mik-
ið sem sjá lax. Síðan var næsta
holl óselt, þannig að fyrsti laxinn
var ókominn á hádegi í gær.
Í fyrrakvöld voru komnir sjö
laxar á land úr Elliðaánum og 21
lax hafði farið um teljarann.
Í fyrrakvöld voru laxarnir úr
Korpu orðnir níu, en laugardag-
urinn var mjög góður, þá veidd-
ust sjö laxar.
Ekki hefur frést af laxi úr
Stóru Laxá sem er sögð venju
fremur vatnslítil nú um stundir.
Stórlax á Peacock
Sú veiðisaga fer nú um eins og
eldur í sinu, að Dr. Guðmundur
Stefánsson hafi fengið 14 punda
lax er hann var á bleikjuveiðum
fyrir landi Spóastaða í Brúará
síðastliðinn sunnudag. Guð-
mundur og félagi hans sáu lax
fyrst bylta sér þar sem heitir
Breiðibakki, en urðu ekki varir er
þeir reyndu. Leið svo smátími, en
síðan fór Guðmundur aftur yfir
svæðið og var þá með væna
straumflugu á taumnum en
hengdi Peacock í svokallaðan
„dropper“. Fiskur tók og eftir 40
mínútna glímu landaði doktorinn
14 punda laxi sem reyndist hafa
tekið Peacockinn.
Silungar gefa sig
Nú um stundir eru það silungs-
veiðimennirnir sem helst halda
aftur heim með bros á vör og
hvað eftir annað eiga menn góðar
stundir í vötnum landsins. Tals-
verð umferð var um Arnarvatns-
heiði um síðustu helgi, og góðar
veiðitölur bárust frá Arnarvatni
stóra, Arnarvatni litla og Úlfs-
vatni.
Fengu einstakir menn jafnvel
tugi fiska á stöngina. Mjög góð
veiði hefur og verið í Veiðivötn-
um á Landmannaafrétti og sást til
veiðimanns rogast inn í reykhús í
borginni nýverið með tvo stóra
svarta plastpoka fulla af stór-
urriða sem hann hafði veitt á
makríl í Þórisvatni.
14 punda lax
á Peacock
Morgunblaðið/Golli
Hywell Morgan, heimsmethafi í fluguköstum, hélt sýningu fyrir veiði-
menn í Hljómskálagarðinum á sunnudaginn.
ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka
við fyrirbænum í síma 520 9700.
Háteigskirkja. Morgunbænir kl. 11.
Súpa og brauð kl. 12 á hádegi í Setrinu
á neðri hæð safnaðarheimilis. Brids kl.
13 fyrir eldri borgara. Kvöldbænir kl. 18.
Neskirkja. Fyrirbænastund kl. 18 í
umsjá Guðmundu Ingu Gunnarsdóttur.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir velkomn-
ir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkj-
unni og í síma 567 0110.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar verða í
sumar í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl.
10–12. Við hittumst og spjöllum. Heitt á
könnunni og djús fyrir börnin. Öll foreldri
velkomin með eða án barnanna.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyr-
irbænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í
Ljósbroti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á
fimmtudögum kl. 10–12.
Lágafellskirkja. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimili frá kl. 10–12.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgn-
ar í dag kl. 10–12.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar
í síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Orð guðs rætt og mikil lofgjörð.
Allt ungt fólk velkomið.
Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58.
Kveðjusamkoma fyrir Elísabetu Jóns-
dóttur og Bjarna Gíslason sem eru á för-
um til kristniboðsstarfa. Guðlaugur
Gunnarsson talar. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Safnaðarstarf
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Heilbrigðisstofnunin Siglufirði
Læknar, læknanemar
Okkur vantar lækna, læknanema í afleysingar
í júlí og ágúst eða eftir nánara samkomulagi.
Upplýsingar gefur Valþór Stefánsson, heilsu-
gæslulæknir, sími 467 2100.
Netfang: valthor@hssiglo.is
Hjúkrunarfræðingar
Okkur vantar hjúkrunarfræðinga strax til starfa.
Leitum að hjúkrunarfræðingum sem geta unnið
sjálfstætt og geta tekið á fjölþættum verkefnum.
Upplýsingar gefur Guðný Helgadóttir, hjúkrun-
arforstjóri, sími 467 2100.
Netfang: gudny@hssiglo.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TIL LEIGU
Húsnæði óskast
Óska eftir að taka á leigu verslunar- og skrifstof-
uhúsnæði, 280—500 fermetra á póstnúmera-
svæðinu 101—108. Æskilegt er húsnæði á jarð-
hæð. Húsnæði á annarri hæð að hluta eða alveg
kemur einnig til greina. Góður staður í Kópavogi
með gott auglýsingagildi og með nægum bíla-
stæðum kemur einnig til greina.
Upplýsingar má senda til eirikur@icesec.com
eða í síma 863 2800, Eiríkur.
Til leigu
Suðurlandsbraut 50
Mjög gott ca 130 fm verslunarhúsnæði (í
bláu húsunum) þar sem GRACE tísku-
verslun er til húsa. Húsnæðið getur verið
laust til afhendingar 1. júlí nk.
Ársalir fasteignamiðlun,
sími 533 4200 eða arsalir@arsalir.is
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Heiðarvegi
15, Vestmannaeyjum, fimmtudaginn 4. júlí 2002 kl. 9.30 á
eftirfarandi eignum:
Áshamar, 34, 50% eingarhl. gþ., þingl. eig. Gerhard Guðmundsson,
gerðabeiðandi Sparisjóður Vestmannaeyja.
Áshamar 63, 2. hæð til vinstri (0402019), þingl. eig. Dröfn Sigurbjörns-
dóttir og Sif Sigurbjörnsdóttir, gerðabeiðandi Íbúðalánasjóður.
Bárustígur 2, íbúð á 2. hæð, matshluti 01 02-01, FMR 218-2612, íbúð
á 2. hæð, matshluti 02 02-01, FMR 218-2614, íbúð á 3. hæð, matshluti
02 03-01, FMR 218-2615, íbúð á 4. hæð, matshluti 02-04-01, FMR
218-2616, auk rekstrartækja, skv. 24. gr. laga um samningsveð, þingl.
eig. V.I.P. Drífandi ehf., gerðarbeiðendur Ferðamálasjóður og Vest-
mannaeyjabær.
Bárustígur 2, verslunarhúsnæði á 1. hæð, matshluti 01 01-01, FMR.
218-2610, þingl. eig. Þröstur Bjarnhéðinsson, gerðarbeiðandi Vest-
mannaeyjabær.
Bárustígur 2, verslunarhúsnæði á 1. hæð, matshluti 01 01-02 og
02 01-01, FMR. 218-2613, þingl. eig. Þröstur Bjarnhéðinsson, gerðar-
beiðandi Vestmannaeyjabær.
Boðaslóð 7, neðri hæð, þingl. eig. Ágúst Ómar Einarsson, gerðarbeið-
andi Stilling hf.
Fjólugata 8, neðri hæð, þingl. eig. Guðmundur Jakob Jónsson, gerð-
arbeiðandi Vestmannaeyjabær.
Flatir 19, þingl. eig. Netagerðin Ingólfur ehf., gerðarbeiðandi Byggða-
stofnun.
Heimagata 28, neðri hæð, 50% eignarhl. gþ., þingl. eig. Ágústa Sal-
björg Ágústsdóttir, gerðarbeiðandi Kreditkort hf.
Helgafellsbraut 19, þingl. eig. Anna Sigríður Ingimarsdóttir og Pétur
Árnmarsson, gerðarbeiðandi Vestmannaeyjabær.
Kirkjubæjarbraut 10, 1. hæð, þingl. eig. Oddfríður Lilja Jónsdóttir
og Erlendur G. Gunnarsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Skólavegur 19, efri hæð og ris, þingl. eig. Agnar Guðnason, gerðar-
beiðandi Íbúðalánasjóður.
Skólavegur 19, kjallari, 1/3 hluti hússins, þingl. eig. Agnar Guðnason,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Smáragata 26, þingl. eig. Sigríður Magnúsdóttir, gerðarbeiðendur
Samskip hf. og Tempra hf.
Strembugata 6, þingl. eig. Páll Rúnar Pálsson, gerðarbeiðandi Íbúða-
lánasjóður.
Þorri VE-050 (áður Narfi VE-108), skipaskrárnr. 0464, þingl. eig. Út-
gerðarfélagið Þorri ehf., gerðarbeiðandi Olíufélagið hf.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
25. júní 2002.
TIL SÖLU
Sundlaug til sölu
Harðplasteiningar sem hægt er að
minnka í „risapott"
Stærð sundlaugar 4x6 m, stærð pottar 4x4 m.
Upplýsingar í síma 849 7214.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58—60
Samkoma í Kristniboðs-
salnum í kvöld kl. 20:30.
Elísabet Jónsdóttir og Bjarni
Gíslason, sem eru á förum til
kristniboðsstarfa, flytja kveðjur.
Guðlaugur Gunnarsson talar.
Allir hjartanlega velkomnir.
sik.is
26. júní
Kjalarnes (Útivistarræktin)
Brottför á eigin bílum kl. 18:30
frá skrifstofu Útivistar.
Ekkert þátttökugjald.
28. — 30. júní.
Fimmvörðuháls (Nætur-
ganga)
Brottför frá BSÍ kl. 17:00. Verð:
8.700 / 10.200 (í skála í Básum),
8.200 / 9.700 (í tjaldi í Básum).
Fararstjóri: Oddur Friðriksson.
29. — 30. júní
Kerlingadalur — Heiðarvatn
(Jeppadeild)
Ekið inn á afrétt Mýrdalsjökuls
og gist í Þakgili. Brottför frá Vík
kl. 10:30. Fararstjóri: Bjarni Jón
Finnsson. Verð kr. 4.300 / 4.900.
29. — 30. júní
Fimmvörðuhálsganga
Brottför frá BSÍ kl. 08:30.
Verð kr. 7.700 / 9.200. Fararstjóri:
Sigurður Jóhannsson.
30. júní — 3. júlí
Lónsöræfi
Gist í Múlaskála og áhugaverðir
staðir skoðaðir. Brottför frá Stafa-
felli kl. 10:00.
Verð kr. 13.900 / 16.200.
Fararstjóri: Gunnlaugur Ólafsson
29. júní.
Hekla
Brottför frá BSÍ kl. 08:00. Verð kr.
2.900 / 3.300. Fararstjóri: Tómas
Þ. Rögnvaldsson.
30. júní
Í kringum Hvalvatn
Brottför frá BSÍ kl. 10:30. Verð kr.
1.700 / 1.900. Fararstjóri: Steinar
Frímannsson.
mbl.is
ATVINNA