Morgunblaðið - 26.06.2002, Side 43
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 43
UNGLINGALANDSLIÐ Íslands
vann öruggan sigur á Alþjóðlega
Búnaðarbankamótinu sem lauk í
Garðabæ um helgina. Liðið hlaut 15
vinninga af 24 mögulegum og varð
3½ vinningi á undan úrvalsliði Kata-
lóníu undir 18 ára sem lenti í öðru
sæti. Úrslit mótsins urðu annars eft-
irfarandi:
1. Unglingalandslið Íslands 15 v.
2. Úrvalslið Katalóníu 11½ v.
3. Glefsir 11 v.
4. Kvennalandsliðið 10½ v.
Glefsir er lið gestgjafanna, Tafl-
félags Garðabæjar, en mótið var
þáttur í langtímaáætlun félagsins um
uppbyggingu meistaraflokks þess.
Unglingalandsliðið var þannig skip-
að:
1. Halldór B. Halldórsson 1 v. af 4
2. Dagur Arngrímsson 4 v. af 5
3. Björn Ívar Karlsson 2½ v. af 5
4. Guðm. Kjartansson 3½ v. af 5
5. Stefán Bergsson 4 v. af 5
Besti skákmaður mótsins var kjör-
inn Christian Homedes sem tefldi á
fjórða borði í úrvalsliði Katalóníu.
Frammistaða kvennalandsliðsins
vakti mikla athygli, ekki síst að það
hélt jöfnu gegn hinu sterka liði Kata-
lóníubúa, 4–4. Segja má að kvenna-
landsliðið hafi ráðið úrslitum á
mótinu með þessu. Sérlega ánægju-
legt var að sjá þær Sigurlaugu Frið-
þjófsdóttur og Guðlaugu Þorsteins-
dóttur aftur við skákborðið eftir allt
of langt hlé. Árangur Guðlaugar var
glæsilegur og sýndi að hún hefur
engu gleymt, en hún vann allar þrjár
skákirnar sem hún tefldi.
Að mótinu loknu var slegið upp
hraðskákmóti og urðu úrslit þessi:
1. Xavier Avila 12 v. af 15,
2. Björn Ívar Karlsson 11½ v.,
3.–4. Lluis Oms, Ingvar Þór Jóhann-
esson 11 v.,
5.–6. Björn Jónsson, Jóhann H.
Ragnarsson 10½ v.,
7.–8. Leifur I. Vilmundarson, Juan
M. Sanchez 8½ v.,
9. Hrannar B. Arnarsson 7½ v.,
10. Christian Homedes 7 v. o.s.frv.
Þátttakendur voru 16.
Eftirfarandi skák var tefld í loka-
umferðinni.
Hvítt: Dagur Arngrímsson
Svart: Juan Manuel Sanchez
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 7. Rd5
Rxd5 8. exd5 Re7 9. c3 Rf5 10. Bd3
g6 11. 0–0
Nýr leikur í stöðunni, en líklega er
aðeins um breytingu á leikjaröð að
ræða. Venjulega leikur hvítur hér 11.
a4 o.s.frv.
11. – Bg7
Ef svartur leikur 11. – a6 12. Ra3
b5, þá kemur Rc2-b4, ásamt a2-a4 og
hann lendir í vandræðum.
12. Kh1 0–0 13. f4 Re7 14. Bc2 f5
Spurningin er, hvort svartur getur
leikið 14. – Bf5, t.d. 15. fxe5 dxe5 16.
c4 a6 17. Rc3 He8 18. Ba4 Bd7 19.
Df3 f5 o.s.frv.
15. a4 e4 16. Be3 b6
Það er ekki að sjá, að svartur kom-
ist hjá að leika þennan leik, sem veik-
ir c6-reitinn mikið. Eftir 16. – a6 17.
Ra3 b6 18. Bb3 He8 19. Rc2 Bd7 20.
Rd4 hefur svartur við svipuð vanda-
mál að glíma og í skákinni.
17. Rd4 Kh8 18. c4 Bd7 19. b4 Dc7
20. Bb3 a5
Eftir 20. – a6 21. Dd2 Hfb8 22.
Hac1, ásamt 23. b5 er svartur í sömu
vandræðunum, því að varla svarar
hann því axb5, vegna cxb5 o.s.frv.
21. b5
21. – Hae8 22. Hc1 Rg8 23. Dd2
Rh6 24. h3 Rf7 25. Df2 Hb8 26. Hfd1
Bf6 27. Rc6 Hb7 28. Bd4 Rh6
Sjá stöðumynd
29. c5! dxc5
Eða 29. – bxc5 30. Bxf6+ Hxf6 31.
Dd2 Bxc6 32. dxc6 Hb8 33. Dc3 Kg7
34. Hxd6 Dxd6 35. Hd1 Df8 36.
Hd7+ Kh8 37. c7 He8 38. b6 e3 39. b7
e2 40. b8D e1D+ 41. Dxe1 Hxe1+ 42.
Kh2 He8 43. Hd8 og hvítur vinnur.
30. Bxf6+ Hxf6 31. d6 Dc8
Eftir 31. – Hxd6 32. Db2+ Hd4 33.
Rxd4 vinnur hvítur létt.
32. Bd5 Hb8
Eða 32. – Df8 33. Rxa5 Ha7 34. Rc4
Dd8 35. Db2 Kg7 36. a5 bxa5 37. b6
Ha6 38. Bb7 Ha8 39. Bxa8 Dxa8 40.
b7 Db8 41. Re5 Ba4 42. d7 Bxd1 43.
Hxd1 og hvítur vinnur.
33. Db2 Kg7 34. Rxb8 Dxb8 35.
Bc6 Dc8 36. De5 Rg8 37. Bxd7 Dxd7
38. Dd5 Hf7 39. Dc6 Dd8 40. d7 Re7
Eftir 40. – Rf6 41. Hd6 e3 42. Dc8
Hf8 43. Dxd8 Hxd8 44. He1 Hxd7 45.
Hxd7+ Rxd7 46. Hxe3 á hvítur unnið
endatafl.
41. De6 Hf6?
Svarti sést yfir næsta leik hvíts, en
eftir 41. – Rg8 42. Hd6 He7 43. Dd5
Rf6 44. Dc6 Hf7 45. Db7 e3 46. Dc8
Hf8 47. He1 Dxc8 48. dxc8D Hxc8 49.
Hxe3 c4 50. Hc6 á hvítur unnið enda-
tafl.
42. Dxe7+
og svartur gafst upp, vegna fram-
haldsins 42. – Dxe7 43. d8D o.s.frv.
Kramnik sigraði Anand
Vladimir Kramnik og Viswanath-
an Anand tefldu sex skáka einvígi í
Leon á Spáni 20.–24. júní. Skák-
mennirnir máttu nota skákforrit og
skákgagnagrunna við að ákveða leiki
sína. Tímamörkin voru klukkustund
á skák og tvær skákir voru tefldar á
dag. Öllum skákunum lauk með jafn-
tefli nema þeirri þriðju sem Kramnik
vann. Lokaúrslitin urðu því 3½–2½
Kramnik í vil.
Unglingalandsliðið
sigraði á BÍ-mótinu
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Helgi Ólafsson stórmeistari, Guðmundur Arason og Bragi Kristjánsson
fylgjast með viðureign íslenska unglingalandsliðsins gegn Katalóníu.
SKÁK
Garðabær
ALÞJÓÐLEGA BÚNAÐARBANKAMÓTIÐ
19.–23. júní 2002
HEIMSÓKN Jiang Zemin, forseta
Kína, verður lengi í minnum höfð.
Þrír ráðherrrar ríkisstjórnarinnar,
þau Davíð, Sólveig og Halldór, í sam-
ráði við ríkislögreglustjóra og fleiri
embættismenn sinna ráðuneyta,
ákváðu að hefta för Falun Gong, sem
eru mótmælendur mannréttinda-
brota í Kína, við landgöngu á Kefla-
víkurflugvelli og jafnframt ferða-
frelsi þeirra með Flugleiðum til
landsins. Um hinn lagalega gjörning
verður ekki fjallað hér, enda mun
væntanleg rannsókn leiða í ljós hvort
framkvæmd stjórnvalda var byggð á
lagalegum grundvelli og aðkoma kín-
verskra yfirvalda að málinu. Hins
vegar virðist áhættumat öryggis-
gæslunnar vegna komu forsetans
vera ofmetið og vanmat á styrk lög-
reglunnar við slíkar aðstæður á vett-
vangi. Lögreglan hefur áður eins og
kunngt er framkvæmt mun víðtæk-
ari lögreglu- og öryggisaðgerðir, tví-
vegis vegna Nato-funda og leiðtoga-
fundarins að Höfða með viku
fyrirvara með góðum árangri. Áður-
nefndir ráðherrar hefðu átt að láta
þá reynslu lýsa sér veginn og treysta
löggæslunni að sjá um friðsama Fal-
un Gong mótmælendur. Sá skolla-
leikur að lögreglunni sé m.a. falið að
sjá um að Falun Gong séu helst ekki í
sjónfæri forsetans er algjört
hneyksli og jafnframt virðingarleysi
gagnvart lögreglunni að þurfa að
sinna slíkum fyrirmælum. Nálgunar-
bann af þessu tagi hélt ég að ætti að-
eins við einstaklinga sem ofsækja
aðra með ósæmilegum hætti, varla
er hægt að heimfæra nærveru Falun
Gong undir slík ákvæði laga.
Þessi gjörningur viðkomandi ráð-
herra hefur fengið mikla umfjöllun
og aðfinnslur erlendis, sem getur
m.a. stórskaðað ímynd okkar sem
ráðstefnulands, en sem kunnugt er
hefur miklu fjármagni verið varið á
undanförnum áratugum í að auglýsa
Ísland sem góðan valkost á þeim
vettvangi með góðum árangri. Nú
gæti hæglega syrt í álinn þegar mat
ríkisstjórnarinnar á styrk eigin lög-
reglu er slíkur, að hefta þarf aðkomu
friðsamra mótmælenda til landsins
vegna heimsóknar forseta Kína.
Vissulega er umfjöllunarefni flestra
ráðstefna á þeim nótum að friðsemd
ríkir og ráðstefnugestir verða ekki
fyrir aðkasti, en í öðrum tilvikum
getur mikill ágreiningur ríkt sem á
sér engin landamæri og mótmælend-
ur reyna að vekja athygli á sínum
sjónarmiðum, oft með hvers konar
ofbeldisaðgerðum.
Vel skipulögð lögreglu- og örygg-
isgæsla er einn af veigamestu þátt-
um varðandi alþjóðlegt ráðstefnu-
hald. Yfirlýsingar ráðherranna og
stuðningsmanna þeirra um vanmátt
lögreglunnar vegna fámennis til að
veita einum þjóðhöfðingja nægjan-
lega vernd er ekki gott innlegg til að
gera Ísland að eftirsóttu ráðstefnu-
landi. Vitanlega eigum við að stórefla
lögregluna og vel kemur til álita að
þjálfa t.d. 400–500 þjóðvarðliða,sem
hægt er að kalla á vettvang með
stuttum fyrirvara, en daglega
myndu þessir þjóðvarðliðar vinna
hefðbundin borgaraleg störf. Ungir
og hraustir björgunarsveitarmenn
kæmu sterklega til greina við val í
slíkt lið enda hafa þeir oft gegnt
veigamiklu hlutverki við að aðstoða
lögregluna við öryggisgæslu. Fyrir
nokkrum áratugum skrifaði ég
nokkrar greinar um öryggis- og
varnarmál á Keflavíkurflugvelli, sem
fjölluðu einnig um endurskoðun
varnarsamningsins. Í þeim greinum
benti ég m.a. ítrekað á nauðsyn þess
að Íslendingar ættu að þjálfa heima-
varnarlið, sem væri í stakk búið að
taka við ákveðnum störfum er lúta að
öryggismálum varnarstöðvarinnar.
Er ekki tímabært að skoða þessi
mál með ábyrgum hætti með hlið-
sjón af þeim breytingum, sem
Bandaríkjamenn boða nú á varnar-
stöðinni?
KRISTJÁN PÉTURSSON,
fyrrv. deildarstjóri.
Slæm landkynning
Frá Kristjáni Péturssyni:
ÁKVEÐNIR aðilar hér á landi hafa
hingað til viljað kalla sig Evrópu-
sinna og það með röngu. Þetta eru
þeir aðilar sem vinna að því leynt og
ljóst að koma Íslandi inn í Evrópu-
sambandið sem síðast þegar ég
vissi var ekki það sama og Evrópa.
Svo virðist þó vera í hugum um-
ræddra aðila sem með réttu eiga
auðvitað að nefnast Evrópusam-
bandssinnar eða einfaldlega ESB-
sinnar.
Evrópusambandssinnar saka mig
og aðra andstæðinga sína um að
vera einangrunarsinna og um að
vera á móti samvinnu á milli Evr-
ópuþjóða. En þessu er einmitt öfugt
farið. Ég er persónulega afar
hlynntur sem mestu jákvæðu og
uppbyggjandi samstarfi á milli ríkja
Evrópu, svo og alls heimsins, þar
sem allir sitja við sama borð og eng-
inn er yfir aðra settur svo ekki þurfi
að koma til neitt fullveldisafsal.
En Evrópusambandssinnar vilja
ekki frjálsa samvinnu á milli Evr-
ópuþjóða á jafnréttisgrundvelli.
Þeir vilja koma okkur undir yfir-
þjóðlegt vald og selja úr landi full-
veldi þjóðarinnar og sjálfsákvörð-
unarrétt. Þeir vilja einangra okkur
inni í tolla- og samskiptamúrum
Evrópusambandsins og afsala okk-
ur sjálfsögðum rétti okkar til við-
skiptasamninga, og annarra form-
legra samskipta, við heiminn fyrir
utan sambandið.
Þessir aðilar kalla andstæðinga
sína einangrunarsinna, sem fyrr
segir, en eru það síðan sjálfir þegar
upp er staðið. Þeir tala eins og Evr-
ópusambandið sé allur heimurinn
og að ekkert sé fyrir utan það. Ekk-
ert virðist einfaldlega skipta máli í
hugum þessara aðila annað en Evr-
ópusambandið. Þröngsýnin er alls-
ráðandi.
HJÖRTUR J. GUÐMUNDSSON,
Sagnfræðinemi og
meðlimur í Flokki framfarasinna.
Að einangra sig í ESB
Frá Hirti J. Guðmundssyni:
Íbúð 143 fm, bílskúr 48 fm.
Byggt 1973, steinn. Herbergi
4+1 stofa. Um er að ræða
eigulegt einbýlishús við strönd
Stokkseyrar. Eignin er: And-
dyri, hol, stofa og borðstofa,
eldhús, þvottahús, 4 svefn-
herbergi, baðherbergi og bíl-
skúr. Lóðin liggur út að sjó.
Stofan er sérlega falleg, upptekin, panilklædd loft og myndarlegur
arinn skilur að stofu og borðstofu. Á borðstofu eru fallegar flísar
en á stofu og holi er parket. Eldhúsinnrétting er rúmgóð og úr
beyki. Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu, flísalagt í hólf
og gólf. Sólpallur er í bakgarði. Ásett verð 12,3 m. kr. Áhvílandi
4,1 m.
HÁSTEINSVEGUR 14 - STOKKSEYRI
Austurvegi 6 - 800 Selfoss - Sími 482 4800
Í kvöld milli kl. 18 og 22 verður kynning á nýbyggingum við
Þrastarás 36-40 í Áslandinu í Hafnarfirði. Um er að ræða glæsileg
raðhús í fjögurra raðhúsalengju á frábærum útsýnisstað efst í
hverfinu. Húsin eru sérlega vönduð og að miklu leyti viðhaldsfrí
að utan, m.a. álgluggar. Eignirnar eru rúml. 200 fm á tveimur hæð-
um, inngangur og bílskúr á efri hæð. Fjögur svefnherb. og tvær
stofur. Góður möguleiki á aukaíbúð í endahúsi.
Kíktu við á byggingarstað í kvöld og fáðu teikn.
og allar nánari uppl. Kaffi á könnunni.
Traustur byggingaraðili: Múrfag ehf.
Kynning á nýbyggingum í kvöld!
Þrastarás 36-40 Hf. - Glæsieignir
Bæjarhrauni 22, Hafnarfirði.
Sími 565 8000 • www.hofdi.is
Begga fína