Morgunblaðið - 26.06.2002, Síða 44
DAGBÓK
44 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Hver á
bleikt þríburablóm?
ER einhver sem gæti út-
vegað mér bleikt þríbura-
blóm (Bougainvillea)? Ég
get boðið í skiptum mörg
sjaldgæf pottablóm ef ein-
hver vill skipta. Upplýsing-
ar í síma 555 4215.
Öryrkjum mismunað
Í húsdýragarðinum fá ör-
yrkjar afslátt, en aðeins ör-
yrkjar búsettir á höfuð-
borgarsvæðinu.
Ég er öryrki sem býr
ekki á höfuðborgarsvæðinu
og fæ því ekki afslátt. Með
þessu er verið að mismuna
fólki eftir því hvar það býr.
Ég er ekki alveg sátt við
þetta og spyr hvers vegna
þetta sé svona.
Öryrki.
Til hvers
er mottan?
ÉG fór fyrir stuttu í Lyfja-
verslunina í Austurveri.
Fyrir innan dyrnar var
motta sem ég þurrkaði fæt-
urna á. Þá segir lítil stúlka
sem þar var stödd: Hvað er
hún að gera? Móðir stúlk-
unnar segir: Hún er að
þurrka af sér. Þá segir
barnið: Af hverju? Aldrei
gerum við það.
Finnst mér þetta athygl-
isvert því barnið vissi ekki
til hvers mottan var, hafði
aldrei verið sagt til hvers
hún væri notuð.
Andrea
Oddsteinsdóttir.
Tapað/fundið
Hver fann
afmælisgjöfina?
HÁLSMEN úr hvítagulli
með demöntum týndist sl.
föstudag, 21. júní, senni-
lega í Faxafeni eða í ná-
grenni. Hálsmenið hefur
mikið tilfinningalegt gildi
fyrir eiganda. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
462 3710 eða skili hálsmen-
inu til lögreglunnar. Fund-
arlaun.
Veiðistangir
gleymdust
Á VEIÐIDEGI fjölskyld-
unnar síðastliðinn sunnu-
dag gleymdust þrjár veiði-
stangir á bílastæði við
Þingvallavatn, í brekkunni
við Gjábakka. Finnandi
vinsamlega hafi samband í
síma 894 1949.
Fundarlaun.
Dýrahald
Hundar í óskilum
á Hundahótelinu
Leirum
FJÓRIR hundar eru í
óskilum á Hundahótelinu
Leirum, ljósbrún blend-
ingstík, border collie hvolp-
tík, labrador-hvolpur og ísl.
hundur með hálsklút. Eig-
endur, vinsamlega vitjið
þeirra strax. Upplýsingar í
síma 566 8366 og 698 4967.
Kela vantar heimili
KELI er einstaklega blíð-
ur, fallegur og heimilis-
prúður og hefur síðan í
nóvem-
ber árið
2000
verið
heimil-
isfastur
á Seltjarnarnesi, þangað
sem hann kom rammvilltur
og hrakinn. Keli er eyrna-
merktur og geldur fress-
köttur en við eftirgrennsl-
an tókst ekki að hafa uppi á
eigandanum. Nú eru gest-
gjafar Kela að flytja og
geta því miður ekki leyft
honum að fljóta með og
þess vegna er lýst eftir
nýju, góðu heimili fyrir
hann. Sá sem tekur Kela að
sér mun áreiðanlega ekki
sjá eftir því. Sími gestgjafa
Kela er 561 1307.
Kettlingar fást gefins
TVEIR kettlingar, kassa-
vanir og 12 vikna gamlir
högnar, óska eftir heimili.
Upplýsingar í síma
820 1951.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI ók nýverið um Kjal-veg en hann hefur verið opn-
aður fyrir sumarumferðinni. Það er í
sjálfu sér ekki í frásögur færandi
nema hvað vegurinn er alltaf að
batna. Mælir hann með því að þeir
sem eiga erindi milli Norður- og Suð-
urlands fari um Kjalveg, að minnsta
kosti ef asinn þarf ekki að vera því
meiri.
Víkverji hefur alloft farið þessa
leið, fyrst fyrir meira en þremur ára-
tugum og þá var ívið seinfarnara en
nú. Krókóttur vegarslóðinn lá nánast
þar sem einhver fór um fyrst og ekki
var lagt í neinar vegabætur á þeim
árum. Aðeins það helsta lagfært í
byrjun sumars. Nú er hins vegar
næstum því rennifæri um Kjöl eða
að minnsta kosti stóran hluta þessa
160 km vegar milli byggða norðan og
sunnan. Þegar ekið er að norðan er
farið á upphækkuðum og sléttum
malarvegi suður fyrir Blöndulón.
Nokkru norðan Hveravalla gerist
vegurinn krókóttari og grófari og er
svo allt suður að Hvítá. Eftir það er
aftur allgóður malarvegur um Blá-
fellsháls og að Gullfossi.
Eins og áður segir mælir Víkverji
með að menn fari þessa leið þegar
þannig stendur á. Ef farið er um
Kjalveg án þess að staldra of mikið
við eða taka útúrdúra tekur ferðin
ekki nema þrjá til fjóra tíma eftir því
hversu hratt er farið yfir. Það er því
skemmtileg tilbreyting frá byggða-
leiðinni að fara Kjöl. Á góðum degi
sér til jökla á báðar hendur með
Kerlingarfjöllum annars vegar og
Hrútafelli hins vegar og ýmsu þar á
milli.
Kjalvegur er þó fremur jeppaveg-
ur en fyrir fína fólksbíla þótt hann sé
vel fólksbílafær. Það getur hins veg-
ar ekki verið gaman að aka þennan
grófa veg á fólksbíl og mun áhyggju-
lausara að vera á jeppa. En Víkverji
mælir eindregið með þessum kosti til
tilbreytingar og því er upplagt að
fara aðra leið um Kjalveg ef menn
eru á ferð fram og aftur milli þessara
landshluta.
x x x
UM leið má velta vöngum yfirþeirri hugmynd samgönguyfir-
valda að byggja upp nokkra fjallvegi.
Þeir yrðu þó varla gerðir að heils-
ársvegum heldur er fyrst og fremst
hugmyndin að gera þá aðgengilegri
ferðafólki á öllum tegundum öku-
tækja – og er það svo sem vel.
Spurning er hins vegar hversu langt
á að ganga í því að leggja rennislétta
akvegi um allar óbyggðir. Á ekki að
vera hæfilega torsótt að komast á
þær slóðir? Er það ekki hluti af að-
dráttarafli þeirra hversu umferðin
er þar lítil og hversu mikil kyrrðin
getur verið? Mætti allt eins varpa
fram þeirri hugmynd að menn fari
þarna helst ekki um nema á hestum.
Eða gangandi. Víkverji er reyndar
afskaplega lítill hestamaður en þyk-
ist þó vita að á þann hátt kynnast
menn landinu á annan veg en á bíl.
Og á enn annan hátt gangandi.
x x x
FERÐ Víkverja á dögunum lá umNorðurland og var m.a. staldr-
að við í Skagafirði. Skaut upp þeirri
hugmynd að nátta hjá einhverjum
ferðaþjónustubóndanum en þá kom í
ljós að þröng var á þingi. Höfðu þeir
fullbókað í svefnpokapláss sín og
Víkverji hélt því austar og fann sér
ból á Akureyri. Kom á óvart hversu
setinn bekkurinn virtist vera í
bændagistingu enda líklega bæði
nokkuð ódýr og þægilegur kostur
sem vex að vinsældum.
ÉG bý í Vesturbænum,
nánar tiltekið í Sænsku
húsunum við Kapla-
skjólsveg og Nesveg. Í
götunni minni er það
mjög áberandi að þeir
sem eru að bera út blöð
eða annan póst koma
upp eftir stéttinni að
húsinu en svo er farið
yfir garðana og grind-
verkin til að spara sér
sporin. Flestir eru með
ræktun í sínum garði
og er þetta mjög hvim-
leitt og hef ég horft á
þetta margsinnis. Eins
hef ég séð foreldri
keyra eftir grasinu sem
er meðfram götunni til
að spara blaðburðar-
börnum sporin. Mér er
jafnmikið annt um að
grasið við götuna sé
fallegt og snyrtilegt og
lóðin mín og fer ég
fram á að blaðburðar-
fólk og þeir sem með
því eru taki tillit til
þess.
Það er alltaf verið að
tala um að græða upp
landið og hlýtur það
einnig að eiga við um
gróður hér í bænum.
Garðeigandi.
Ábending til útburðarfólks
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Thetis,
Mermaid, Selfoss,
Dettifoss og farþega-
skipið Astor.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag er Selfoss vænt-
anlegur.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrifstofa,
s. 551 4349, opin mið-
vikud. kl. 14–17. Flóa-
markaður, fataúthlutun
og fatamóttaka, s.
552 5277, opin annan og
fjórða hvern miðvikud.
kl. 14–17. Sumarlokun
frá 1. júlí til 1. sept-
ember.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl 9 og
kl. 13 vinnustofa.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofan, kl. 13
spilað, kl. 13–16.30 opin
smíðastofan og handa-
vinnustofan. Kl. 13.30
keila. Bingó er 2. og 4.
hvern föstudag. Pútt-
völlurinn er opinn kl.
10–16 alla daga. Allar
upplýsingar í s.
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–10.30
banki, kl. 13–16.30 spil-
að.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslu- og handa-
vinnustofur opnar, kl.
10–10.45 leikfimi, kl.
14.30 banki.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl
16.30–18.
Suðurnesjaferð.
Fimmtudaginn 4. júlí
verður farið um norð-
anverðan Reykjanes-
skaga, Voga, Garð og
Sandgerði. Söfn og
sögustaðir skoðaðir með
leiðsögumanni. Farið frá
Gjábakka kl. 13.15 og
Gullsmára kl. 13.30.
Nánar auglýst síðar.
Munið félagsskírteinin.
Ferðanefndin.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Sundleikfimin
hjá Lovísu í Sundlaug
Garðabæjar byrjar 25.
júní kl. 16 og verður á
þriðjud. og fimmtud. í 3
vikur. Allir velkomnir.
Golfnámskeiðið hjá
Sturlu verður á þriðjud.
og miðvikud. kl. 13
næstu 3 vikur í GKG í
Vetrarmýrinni.
Fótaaðgerðarstofa,
tímapantanir eftir sam-
komulagi, s. 899 4223.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Línu-
dans kl. 11, pílukast kl.
13.30. Á morgun,
fimmtudag, bingó kl.
13.30. Orlofsferð að
Hrafnagili við Eyjafjörð
19.–23. ágúst, 4 nætur.
Skoðunarferðir: Húsa-
vík, Mývatn, Dalvík,
Ólafsfjörður og Siglu-
fjörður. Skráning og all-
ar upplýsingar í Hraun-
seli í síma 555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
,Glæsibæ. Kaffistofan
opin alla virka daga frá
kl. 10–13. Kaffi – blöðin
og matur í hádegi.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Hlemmi kl.
9.45. Línudanskennsla
Sigvalda kl. 19.15.
Fimmtudagur: Brids kl.
13.
Þórsmörk – Langidalur
4. júlí. Kaffihlaðborð á
Hvolsvelli. Leiðsögn
Þórunn Lárusdóttir.
Skráning hafin.
Hálendisferð 8.–14. júlí,
7 dagar. Ekið norður
Sprengisandsleið, fjöl-
margir áhugaverðir
staðir skoðaðir t.d.
Herðubreiðarlindir,
Askja, Mývatn o.fl. Ek-
ið suður um um Kjöl.
Leiðsögn Sigurður
Kristinsson.
Ferð í Galtalæk á úti-
tónleika 14. júlí 2002
með Álftagerðis-
bræðrum og Diddú. Örn
Árna og Karl Ágúst slá
á létta strengi. Lagt af
stað kl. 15 frá Glæsibæ.
Nánari upplýsingar á
skrifstofunni.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 fh. í síma 588 2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
fótaaðgerð, opin vinnu-
stofa, m.a. postulín,
mósaik og gifsaf-
steypur, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 9–16 böðun.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
salur opinn. Á morgun
ferðalag um Suðurnes.
M.a. ekið um Hafn-
arfjörð, Vatnsleysu-
strönd, um Reykja-
nesbæ, Garðaskaga,
Stafnes og Miðnes.
Kaffihlaðborð í Golf-
skálanum í Leiru. Ath.
mæting í Gerðubergi kl.
12.30.
Upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
kl. 13 félagsvist FEBK,
kl. 15–16 viðtalstími
FEBK, kl. 17 bobb.
Vegna forfalla eru 4
sæti laus í ferð um Vest-
firði 15.–19. júli. Þeir
sem ekki hafa staðfest
nú þegar eru beðnir að
gera það sem fyrst.
Uppl. í síma 554 3400.
Hallgrímskirkja, eldri
borgarar. Farið verður
frá kirkjunni fim. 27.
júní kl. 10 að Sólheimum
í Grímsnesi. Kaffiveit-
ingar að Iðufelli. Stopp-
að í Skálholti og Hvera-
gerði. Skráning og
nánari uppl. veitir Dag-
björt milli kl. 10–12 í
síma 510 1034 og
693 6694. Verið velkom-
in og takið með ykkur
gesti.
Hraunbær 105. Kl. 9 op-
in vinnustofa, handa-
vinna, bútasaumur, kl.
9–17 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 11
banki, kl. 13 brids. Mið-
vikudaginn 3. júlí verður
farið í heimsókn að Sól-
heimum í Grímsnesi.
Lagt verður af stað frá
Hraunbæ kl. 13.30. Haf-
ið með ykkur nesti.
Skráning í síma
587 2888.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
böðun, kl. 9 og kl. 10
jóga. Fótaaðgerð, hár-
snyrting. Allir velkomn-
ir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa, kl.
9–16 fótaaðgerðir, kl. 9–
12 tréskurður, kl. 13
banki, kl. 14 félagsvist,
kaffi, verðlaun. Allir vel-
komnir.
Vesturgata 7. Kl. 8.25
sund, kl. 9–16 fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
9.15–16 postulínsmálun
og mósaik, kl. 13–14
spurt og spjallað.Versl-
unarferð í Bónus kl.
13.30.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 bókband og
handmennt, kl. 10 morg-
unstund, kl. 12.30 versl-
unarferð í Bónus.
Bankaþjónusta 2 fyrstu
miðvikudaga í mánuði.
Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastsdæma. Boðið
er upp á orlofsdvöl í
Skálholti í sumar. Í boði
er 1.–5. júlí. Skráning á
skrifstofu f.h. virka daga
í síma 557 1666.
Félag eldri borgara á
Suðurnesjum. 4 daga
ferð verður farin á Vest-
firðina 22., 23., 24. og 25.
júlí. Vinsamlegast látið
vita fyrir 10. júlí. Ferða-
nefndin. Nánar auglýst í
Suðurnesjafréttum.
Minningarkort
Landssamtökin Þroska-
hjálp. Minningarsjóður
Jóhanns Guðmunds-
sonar læknis. Tekið á
móti minningargjöfum í
síma 588 9390.
Minningarsjóður
Krabbameinslækninga-
deildar Landspítalans.
Tekið er við minning-
argjöfum á skrifst.
hjúkrunarforstjóra í
síma 560 1300 alla virka
daga milli kl. 8 og 16.
Utan dagvinnutíma er
tekið á móti minning-
argjöfum á deild 11-E í
síma 560 1225.
Hrafnkelssjóður (stofn-
aður 1931), minning-
arkort afgreidd í símum
551 4156 og 864 0427.
Minningarkort Breið-
firðingafélagsins eru til
sölu hjá Sveini Sig-
urjónssyni, s. 555 0383
eða 899 1161.
Í dag er miðvikudagur 26. júní,
177. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Augað er lampi líkamans.
Sé auga þitt heilt, mun allur
líkami þinn bjartur.
(Matt. 6,22.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 dramb, 4 romsar, 7
fórn, 8 fugls, 9 fjör, 11
þyngdareining, 13
hræðslu, 14 ógæfu, 15 til
sölu, 17 bæta við, 20
óhreinka, 22 niðurgang-
urinn, 23 narra, 24 rétta
við, 25 nabbinn.
LÓÐRÉTT:
1 kjálka, 2 amboðin, 3
hreint, 4 kauptún, 5 blítt,
6 þusa, 10 ófullkomið, 12
veiðarfæri, 13 reykja, 15
menn, 16 Sami, 18 heim-
ild, 19 flýtinn, 20 ilma, 21
alda.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: - 1 skoplegur, 8 hopar, 9 nadds, 10 lóa, 11 fenna,
13 rymja, 15 hesta, 18 óskar, 21 far, 22 skott, 23 aftan, 24
sporvagns.
Lóðrétt: - 2 kæpan, 3 perla, 4 Einar, 5 undum, 6 óhóf, 7
Esja, 12 nýt, 14 yls, 15 hosa, 16 skolp, 17 aftan, 18 óraga,
19 kætin, 20 rýna.
K r o s s g á t a