Morgunblaðið - 26.06.2002, Side 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!"
#
$!" %
& '
( ! ! "
)%$
FREGNIR bárust af því fyrir
skemmstu að til stæði að gefa út í ís-
lenskum búningi ensku barnabókina
Molly Moon’s Incredible Book of
Hypnotism eftir Georgiu Byng. Bók-
in sú segir frá stelpunni Molly Moon,
sem er foreldralaus og á heldur
óskemmtilegu munaðarleysingja-
hæli sem rekið er af uppþornaðri
piparjúnku sem er haldin kvalalosta,
nema hvað. Molly hefur nafn sitt af
því að í kassanum sem hún var skilin
eftir í á tröppum heimilisins stóð
„Sykurpúðar Moons“ og í honum var
einnig spýta af sleikibrjóstsykri
(Lollypop) og hún því kölluð Lolly
Moon, sem síðar varð að Molly.
Molly er rengluleg og uppburðar-
lítil en þrjósk og með fjörugt ímynd-
unarafl. Mikil umskipti verða í lífi
hennar þegar hún kemst yfir dular-
fulla forna kennslubók í dáleiðslu,
enda kemst hún þá að því að í henni
blunda sérstaklega magnaðir hæfi-
leikar til að dáleiða fólk. Þegar besti
vinur hennar er síðan ættleiddur til
Bandaríkjanna ákveður Molly að
nota hina nýju hæfileika sína til að
fara til New York og hafa uppi á hon-
um. Áður en af samfundum þeirra
getur þó orðið þarf Molly að yfirstíga
ýmsar hættur og þrautir, ekki síst
vegna þess að á eftir henni er óþokki
sem vill komast yfir bókina fornu til
að nota dáleiðslutæknina til ills.
Eftir ævintýralega frásögn fer allt
vel að lokum, en Molly hefur líka
lært sína lexíu, lært að ekki er gott
að fá allt upp í hendurnar, að það sem
maður vinnur fyrir er jafnan meira
virði en það sem maður kemst yfir
með brögðum, þó í góðum tilgangi sé,
og svo má telja. Ekki má þó skilja
það sem svo að í bókarlok sé allt
komið í himnalag; glannaleg dá-
leiðsla Molly hrinti nefnilega af stað
atburðarás sem hún á eftir að greiða
úr þegar við skiljum við hana á næst-
síðustu blaðsíðu bókarinnar og ekki
spurning að önnur bók um Molly er
væntanleg og líkast til margar slíkar.
Talsverðar umræður spunnust um
bókina á Bretlandi í vor og þá að-
allega vegna þess að leiðbeiningar í
dáleiðslubókinni góðu eru útskýrðar
býsna rækilega í sögunni og eru svo
raunverulegar að margir sáu ástæðu
til að vara við því að börn læsu bók-
ina, þau gætu tekið upp á því að dá-
leiða til hægri og vinstri og hvað veit
ég – eða svo létu sumir að minnsta
kosti í blöðunum. Varla er þó ástæða
til að óttast slíkt, eða í það minnsta
fer engum sögum af faraldri dá-
leiðsluglæpa breskra barna og því
varla ástæða til að óttast um heill ís-
lenskra lesenda þegar að útgáfunni
kemur hér heima. Í frétt sem birtist
var rætt um bókina sem líklega til
ámóta vinsælda og Harry Potter og
þó þar sé heldur langt gengið er því
ekki að neita að bókin er bæði æv-
intýraleg og bráðskemmtileg.
Dáleitt til
hægri og
vinstri
Molly Moon’s Incredible Book of Hypnot-
ism eftir Georgiu Byng. Macmillan gefur
út 2002. 330 síður innbundin. Kostaði
um 2.000 kr. í Blackwells í Lundúnum.
Árni Matthíasson
Forvitnilegar bækur
ÞAÐ HEFUR lengið loðað við
tölvufróða að vera taldir hálfgerðir
furðufuglar. Þó flestir slíkir séu
eins og fólk er flest er því ekki að
neita að býsna margir skera sig úr
fyrir klæðaburð og hegðun, með
sítt óhirt hár og úfið skegg, helst
þykk gleraugu og jafnan illa til
fara; eins konar auglýsing um að
þeir séu svo miklir snillingar að
þeir hafi ekki tíma til að sinna svo
jarðbundnum hlutum sem almenn-
um þrifnaði. Á bak við þetta óhrjá-
lega útlit eru svo menn sem margir
eiga afskaplega illt með að eiga
samskipti við annað fólk, einfarar
sem fundið hafa sér fróun í tölvu-
heimi, eiga þar sína vini og sam-
starfsmenn, sem þeir hafa oftar en
ekki aldrei hitt augliti til auglitis.
Einn merkilegasti forritari síð-
ustu ára, Richard Stallman, er
einnig með mestu sérvitringum
sem um getur, því ekki er bara að
hann er afburðasnjall forritari,
heldur er hann óþolandi þverhaus
að því flestir segja, maður sem
ekki er hægt að lynda við nema
menn séu fullkomlega sammála
honum og jafnvel það er ekki alltaf
nóg. Stallman er því umdeildur í
hugbúnaðarheiminum ekki síður en
utan hans, þar sem andstæðingar
hafa gripið til þess að kalla hann
„Stalinman“ í viðleitni að gera
áherslu hans á svonefndan frjálsan
hugbúnað hans tortryggilegan.
Richard Stallman má kalla föður
frjáls hugbúnaðar sem kallast free
software vestan hafs og þá átt við
free eins og í frelsi en ekki ókeyp-
is, þó margir túlki það svo. Þegar
Linus Thorvalds kynnti stýrikerfi
sitt sem hann kallaði Linux treysti
hann á hugbúnað sem Richard
Stallman hafði safnað saman undir
GNU-pakka sinn, en GNU, sem er
skammstöfun fyrir GNU’s Not Un-
ix, var að segja fullbúið stýrikerfi
þegar Linux kom fram á sjónar-
sviðið.
Í bókinni, sem hér er gerð að
umtalsefni og lesa má á Netinu
eins og viðeigandi verður að teljast
þegar skrifað er um Richard Stall-
man, rekur Sam Williams sögu
Stallmans á skemmtilegan hátt og
dregur ekkert undan um persónu-
leikagallana sem gert hafa hann
svo umdeildan. Frásögn af æsku
Stallmans bendir til þess að hann
hafi verið einhverfur og eimir af
því enn, hann átti mjög erfitt með
að mynda tilfinningatengsl við ann-
að fólk og erfitt með að skilja það,
gat trauðla sett sig í spor annarra.
Það kemur þó á óvart við lesturinn
að Stallman er mikill kvennamaður
og gríðarlega áhugasamur um
þjóðdansa, dansaði í mörg ár í slík-
um félagsskap.
Þrjóskan í Stallman er goð-
sagnakennd, frægt varð þegar
hann keppti einn við heilan hóp
forritara og hafði í fullu tré við þá
með því að fara ekki út úr tölvu-
herberginu dögum saman og vaka
sólarhringum saman. Sú saga er
vel þekkt en ekki eins þekkt að
hann og félagar hans beittu
skemmdarverkum til að hrella þá
sem læstu skrifstofum sínum svo
ekki var hægt að komast í tölvu
þeirra, auk þess sem hann hélt
uppi andófi gegn því að menn
hefðu notandaheiti og aðgangsorð,
honum fannst að allir ættu að fá að
nota tölvur sem vildu.
Gallaður
snillingur
Free as in Freedom, Richard Stallman’s
Crusade for Free Software eftir Sam
Williams. O’Reilly gefur út. Lesið á Net-
inu, sjá: www.oreilly.com/openbook/
freedom/. Einnig er til innbundin útgáfa,
240 síður, sem kostar ytra um 2.200 kr.
Árni Matthíasson
Forvitnilegar bækur
FYRIR nokkrum dögum var breski
sagnfræðingurinn David Irving
lýstur gjaldþrota fyrir rétti í Bret-
landi og lauk þá merkilegri at-
burðarás sem hófst með því að Irv-
ing höfðaði meiðyrðamál gegn
bandarískum sagnfræðingi, Debor-
ah Lipstadt, og Penguin-bókaútgef-
andanum. Irving höfðaði málið
vegna bókar Lipstadt, Denying the
Holocaust, sem kom út vestan hafs
1993 og í Bretlandi 1994, en í henni
er hann talinn með þeim sem þrætt
hafa fyrir helförina, útrýmingar-
herferð Þjóðverja gegn gyðingum
og öðrum þjóðum sem þeir töldu
óæskilegar.
Vildi vernda mannorð sitt
Í viðtali um það leyti sem hann
höfðaði málið sagðist Irving vera að
vernda mannorð sitt, þessi yfirlýs-
ing Lipstads hafi gert honum
ókleift að framfleyta sér með því að
skrifa bækur um sérsvið sitt, þriðja
ríkið og höfuðpaura þess, eins og
hann hafi rekið sig á þegar hann
gaf út bók um Josef Göbbels 1996
og bóksalar víða um Bretland neit-
uðu að selja hana. Hann höfðaði því
málið til að fá bættan skaða sem
hann taldi sig hafa orðið fyrir og
um leið að ummælin yrðu dregin til
baka.
Nú er málum svo háttað í bresku
réttarkerfi að gríðarlega dýrt er að
reka mál fyrir rétti, án þess að far-
ið sé nánar út í það hér, og einnig
að meiðyrðalöggjöf er þeim sem
verður fyrir meintum meiðyrðum
hagstæð. Ákærandinn þarf að
sanna að mannorð sitt hafi orðið
fyrir skaða, og gat Irving þannig
bent á nafngreinda bóksala sem
neituðu að selja bækur hans vegna
ásakananna, en hinn ákærði að
sanna að staðhæfingar séu réttar.
Í ljósi þess hve kostnaðarsamt er
að reka meiðyrðamál fyrir rétti í
Bretlandi fara mál sem
þetta sjaldnast fyrir
dómstóla; yfirleitt er
samið áður en mál eru
tekin fyrir. Penguin-
útgáfan kaus þó að
verjast og greiða um
leið málskostnað Lip-
stadt, enda meira í
húfi að mati rit-
stjóra fyrirtækisins
en ein bók og
mannorð höfundar
hennar.
Finnst lítið til
Lipstadt koma
Bandaríski rithöf-
undurinn David D. Guttenplan
fylgdist með réttarhöldunum og
skrifaði um þau merkilega bók, The
Holocaust on Trial, sem er kveikjan
að þessari grein. Í bókinni rekur
Guttenplan réttarhöldin rækilega
og dregur ekkert undan í skoð-
unum sínum á þátttakendum.
Þannig finnst honum lítið til Lip-
stadt koma, enda varð meðal ann-
ars ljóst í réttarhöldunum hve
óvönduð vinnubrögð hún stundaði
við skrif sín og einnig kann Gutt-
enplan greinilega ekki að meta að
hún telji þjáningar gyðinga hafa
verið meiri en annarra sem lentu í
útrýmingarmaskínu Þjóðverja, til
að mynda sígauna, því gyðingar séu
guðs útvalda þjóð.
Sumir andstæðinga Irvings koma
líka heldur illa út fyrir það að láta
óvild sína á persónunni David Irv-
ing spilla fræðimennsku sinni.
Versta útreið fær þó Irving sjálfur,
enda kom smám saman í ljós við
réttarhöldin hve óvandaður sagn-
fræðingur hann er, hvernig hann
hagræðir staðreyndum með því að
segja ekki alla söguna, lítur
framhjá því sem honum þykir spilla
fyrir hinni jákvæðu mynd af
Adolf Hitler sem
hann vill helst
halda á lofti og
svo má telja.
Ritin gegnsýrð
óheiðarleika
Til að gefa sem
besta mynd af
fræðimanninum
David Irving fengu
verjendur sagnfræð-
inginn Richard Evans
til að fara rækilega
yfir verk Irvings,
reyna að rekja heim-
ildir sem hann studdist
við og grafast fyrir um
hvernig hann notaði
þær. Skemmst er frá því að segja
að Evans segist hafa verið sleginn
yfir því hve rit Irvings séu gegn-
sýrð óheiðarleika; í þeim séu ótelj-
andi dæmi um rangtúlkun, villandi
framsetningu, þýðingarvillur, sem
hljóti að vera vísvitandi í ljósi þess
að Irving talar þýsku reiprennandi,
og svo megi telja. Ekki sé bara að
Irving taki að kríta þegar hann sé
að fjalla um frammámenn þriðja
ríkisins, heldur fer hann einnig
frjálslega með staðreyndir, svo ekki
sé meira sagt. Sem dæmi um það
nefna menn frægt rit Irvings um
árás bandamanna á Dresden þar
sem hann ýkti mannfall og afleið-
ingar árásarinnar stórkostlega.
Irving og aðrir sem draga helför-
ina í efa hafa á hraðbergi ýmsar
„staðreyndir“ sem veikgeðja falla
oft fyrir, en þær eru allvel raktar í
bók Guttenplans og hraktar. Meðal
annars sýnir Guttenplan fram á að
þrátt fyrir staðhæfingar Irvings og
anarra Hitlersvina bendi flest til
þess að Adolf Hitler hafi verið full-
kunnugt um útrýmingarherferð á
hendur gyðingum, kommúnistum
og sígaunum, og frumskipunin
komin frá honum sjálfum.
Alger ósigur Irvings
Málaferlum Irvings gegn Lid-
stadt og Penguin lauk með algerum
ósigri Irvings og í dómsorði var
tekið undir allar staðhæfingar um
ófagleg vinnubrögð Irvings, bent á
hvernig hann hefði hagrætt sann-
leikanum í gegnum árin til að hann
félli betur að pólitískum skoðunum
hans; í raun sagt að bækur hans
séu að segja gagnslausar sem sagn-
fræðirit. Í kjölfarið var Irving síðan
dæmdur til að greiða Penguin
málskostnað sem skipti tugum
milljóna. Irving reyndi að fá að
áfrýja málinu en var hafnað og ekki
tókst honum að semja um máls-
kostnaðinn. Á endanum var hann
síðan lýstur gjaldþrota um daginn,
eins og nefnt er í upphafi, og veiga-
mesti leiðtogi Hitlersvina því æru-
og peningalaus.
The Holocaust on Trial eftir D.D.
Guttenplan. 349 síðna kilja sem
Granta Books gaf út í janúar sl.
Kostaði um 1.500 kr. á Heath-
row-flugvelli.
Ærulaus öreigi
Til eru þeir sem halda því fram að helförin sé uppspuni einn, Þjóðverjar hafi ekki stundað skipu-
lögð fjöldamorð í útrýmingarbúðum og þó svo hafi verið hafi Adolf Hitler ekkert vitað af því.
Einn af þeim sem þessu hafa haldið fram er breski sagnfræðingurinn David Irving. Árni
Matthíasson segir frá bók um málaferli Irvings sem gert hafa hann ærulausan öreiga.
AP
Sagnfræðingurinn David Irving
var kokhraustur þegar hann
mætti til að hlýða á úrskurð
hæstaréttar í apríl 2000.
Vandaðar heimilis-
og gjafavörur
Kringlunni 4-12 - sími 533 1322
Hnífastandur
úr stáli
Verð kr. 3.900
KARÍBAHAF - sept. uppselt
Hópferð á hálfvirði - næst 7. feb. 03
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA
STÓRA THAILANDSFERÐ
Frábær ferð 16. okt. Lægsta verð.
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA