Morgunblaðið - 26.06.2002, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 47
Á DÖGUNUM héldu skipti-nemasamtökin AFS heljar-innar grillveislu í Heiðmörk-
inni til að kveðja þá skiptinema sem
dvalið hafa á landinu síðasta árið.
Þetta er árlegur viðburður hjá sam-
tökunum og mættu um hundrað
manns, sjálfboðaliðar og núverandi,
fyrrverandi og tilvonandi skiptinem-
ar ásamt fjölskyldum sínum.
Ruben Tempelaere er einn þeirra
skiptinema sem dvalið hafa hér á
landi frá því í fyrra. Hann bjó hjá
fjölskyldu í Hafnarfirði og stundaði
nám við Flensborgarskólann.
„Fjölskyldan sem ég bjó hjá var al-
veg frábær og ég er mjög ánægður
með dvöl mína hér,“ sagði Ruben.
„Ég ákvað að koma hingað til
lands vegna þess að ég er mikill nátt-
úruunnandi og ég held að ef þú hefur
það áhugamál líki þér vel á Íslandi.
Svo er hljómsveitin Sigur Rós líka
héðan og ég held mikið uppá hana.“
Ruben segir að Ísland hafi komið
honum talsvert á óvart þar sem hann
hafði ekki búist við neinu sérstöku
þegar hann kom hingað. Hann segist
skilja íslenskuna mjög vel en að sér
gangi ekki eins vel að tala hana.
Ísland ólíkt heimalöndunum
Jarmila Gomezjurado kemur frá
Ekvador. Hún segist, líkt og Ruben,
vera náttúruunnandi og að því hafi
Ísland komið henni skemmtilega á
óvart. „Mér fannst mjög gaman að
sjá hve Ísland er ólíkt heimalandi
mínu,“ segir Jarmila. „Ég hlakka til
að fara heim og hitta fjölskylduna
þótt dvölin hér hafi verið frábær.“
Jarmila segist skilja íslenskuna vel
og að nám hennar við Menntaskól-
anum í Hamrahlíð hafi þar hjálpað
mikið til. „Ég er samt ekki mjög góð í
að tala íslensku en hef þó eignast
mitt uppáhaldsorð og það er
„heyrðu“,“ segir Jarmila.
Virna Benzoni frá Ítalíu hefur búið
í Hafnarfirði síðasta árið og líkt og
Ruben stundað nám í Flensborgar-
skóla. Aðspurð segist hún hafa valið
Ísland vegna þess fjölda fallegra
mynda sem hún hafði séð af landinu.
„Reykjavík er ólík öllum borgum
sem ég hef komið til en mér finnst
hún mjög falleg,“ segir Virna.
Hún segist mjög ánægð með dvöl
sína hér en að þó sé þetta ekki eitt-
hvað sem hún myndi mæla með fyrir
alla. „Það er öllum hollt að komast
aðeins í burtu og kynnast einhverju
nýju en það er mjög einstaklings-
bundið hvort þetta hentar fólki.“
Leandro Oscar LaLa Nne kom
hingað til lands frá Argentínu og
gekk í Borgarholtsskóla en fjöl-
skylda hans var búsett í Grafarvogi.
„Starfsmenn AFS-skiptinemasam-
takanna í Argentínu bentu mér á að
koma hingað og ég féllst á það eftir
að hafa séð myndir af landinu ykkar.
Mér fannst Ísland líta út fyrir að
vera spennandi land,“ segir Leandro.
Hann segir Ísland hafa komið sér
á óvart á marga vegu. „Allt hér er
ólíkt heimalandi mínu, náttúran,
fólkið, tungumálið og bara allt.“
Sjálfboðaliðar í síðari
heimsstyrjöldinni
AFS eru alþjóðleg fræðslusamtök
sem hafa það að markmiði að efla
fræðslu og samskipti á milli þjóða
heims. Samtökin eru óháð stjórn-
málaflokkum, trúfélögum og hags-
munasamtökum og eru ekki rekin í
hagnaðarskyni. Aðildarlönd AFS eru
nú 54. Árlega fara um 10 þúsund
manns um heim allan til dvalar á veg-
um samtakanna í lengri eða skemmri
tíma.
Bandarískir sjálfboðaliðar, sem
óku sjúkrabifreiðum á vígvöllum
Evrópu í fyrri og síðari heimsstyrj-
öldinni á vegum American Field Ser-
vice, lögðu grunninn að núverandi
starfsemi AFS árið 1947. Þeir trúðu
því að nemendaskipti milli landa
væru leið til að auka víðsýni og skiln-
ing milli ólíkra menningarheima og
þar með leið til að draga úr líkum á
að hörmungar stríðsins endurtækju
sig. AFS (Alþjóðleg fræðsla og sam-
skipti) á Íslandi var stofnað árið 1957
en þá fóru fyrstu skiptinemarnir frá
Íslandi til Bandaríkjanna. Síðan þá
hafa um 2.400 ungmenni farið til
dvalar erlendis á vegum félagsins og
rúmlega 800 erlend ungmenni komið
hingað til lands.
Náttúran
og Sigur Rós
aðdráttarafl
Árlega ferðast þúsundir ungmenna um
heiminn þveran og endilangan fyrir til-
stuðlan AFS-skiptinemasamtakanna. Birta
Björnsdóttir kynnti sér sögu samtakanna
og ræddi við nokkur ungmenni sem voru að
kveðja Ísland eftir ársdvöl.
Virna, Jarmila, Leandro og Ruben voru öll ánægð
með dvöl sína á Íslandi.
Morgunblaðið/Þorkell
Skiptinemarnir, vinir þeirra og vandamenn gæddu
sér á ljúffengu grillmeti í Heiðmörkinni.
Skiptinemar skilja við Ísland
birta@mbl.is
betra en nýtt
„Fylgist með á www.borgarbio.is“
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i 16.
Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 8 og 10.
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Þær eru fjarska fallegar
En ekki koma of nálægt
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
421 -1170
Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 10.Sýnd kl. 8 og 10.
Þær eru fjarska fallegar
En ekki koma of nálægt
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is
Miðasala opnar kl. 15.30
5 hágæða bíósalir
kl. 10.40.
kvikmyndir.com
1/2 RadioX
DV
1/2 kvikmyndir.is
Frá David Fincher,
leikstjóra Seven & Fight Club
„Meistari spennumyndanna hefur náð að
smíða enn eitt meistaraverkið“
1/2kvikmyndir.com
Radíó X
1/2HK DV
Rás 2
J O D I E F O S T E R
Sýnd kl. 5.38 og 8. B. i. 10.
Sýnd kl. 3.50.
Íslenskt tal.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Yfir 34.000
áhorfendur
Sýnd kl. 5, 8 og 10.50. B. i. 10.
1/2 kvikmyndir.is
1/2 kvikmyndir.com
Tímaritið Sánd
Rás 2
/ i i i
/ i i
í i i
i .
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
kl. 8
Menn eru dæmdir af verkum sínum.
Bruce Willis í magnaðri spennumynd.
Sýnd kl. 10.30
B. i. 16.
www.laugarasbio.is
Hann ætlar
að reyna hið óhugsandi.
Alls ekkert kynlíf í
40 daga og 40 nætur.
Drepfyndin grínmynd með hinum
ómótstæðilega Josh Hartnett.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Þegar Toula
kynnist loksins
draumaprinsinum
neyðist hún víst til að
kynna hann fyrir
stórfurðulegri fjölskyldu
sinni og auðvitað fer allt
úr böndunum.
Stórskemmtileg
rómantísk grínmynd.
1/2
kvikmyndir.com
Radíó X
1/2HK DV
Sýnd kl. 6 og 8.
B.i. 16.
Framleiðandi
Tom Hanks
Sýnd kl. 6, 8 og 10.