Morgunblaðið - 16.07.2002, Page 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Audi A6 2,4, nýskráður 14.04.2000,
ekinn 32 þús km, brúnn,
sjálfskiptur, framdrif,
leðurinnrétting, 16" álfelgur o.fl.
Verð kr. 3.890.000.
Nánari upplýsingar
hjá Bílaþingi
Opnunartímar:
Mánud.-föstud. frá kl. 10-18.
Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is
Netfang: bilathing@hekla.is
HAFNARSTJÓRINN ungi sat á
gömlum mosagrónum staur á leif-
um Ríkisbryggjunnar á Siglufirði
á laugardagsmorguninn var.
Hafnar-
stjórinn
ungi
Ljósmynd/SVP
Æ ALGENGARA er að börn og
unglingar noti debet- og hrað-
bankakort eða allt niður í níu ára
aldur. Eðlismunur er á þessum
kortum: með hraðbankakortum er
einungis hægt að taka út fé í hrað-
banka eða hjá gjaldkera í banka
en debetkortin má nota nánast
hvar sem er. Þá er vitaskuld hægt
að fara yfir á debetkortum en
hættan er mun minni hjá yngri de-
betkortahöfum þar sem þeir fá
jafnan svokölluð síhringikort, þ.e.
hringt er (eða hringja ætti) í hvert
sinn til að athuga hvort innistæða
er fyrir úttekt. Þetta getur þó
brugðist og vill brenna við að í
sumum verslunum sé kannski að-
eins hringt í lok dags.
Ekki er um neinar samræmdar
reglur að ræða af hálfu bankanna
við hvaða aldursmörk þeir miða
útgáfu debet- og hraðbankakorta
og í raun getur hver banki fyrir
sig ákveðið þetta. Þannig geta ell-
efu ára krakkar fengið debetkort,
með samþykki forráðamanns, hjá
Búnaðarbankanum og í Sport-
klúbbi Landsbankans geta níu ára
börn fengið hraðbankakort. Hjá
Landsbankanum þurfa krakkar að
vera á fjórtanda ári til þess að fá
debetkort en á tólfta ári hjá Spari-
sjóðunum og Landsbankanum.
Á talsmönnum bankanna er að
heyra að veruleg eftirspurn sé eft-
ir kortum til handa bæði börnum
og unglingum og þeir séu því ein-
faldlega að bregðast við þessari
eftirspurn.
Engin neðri mörk
í lögunum
Þórhildur Líndal, umboðsmaður
barna, segir að hún hafi á sínum
tíma hvatt banka og sparisjóði til
þess að setja sér ákveðnar grunn-
reglur um viðskipti þeirra við
börn. Samkvæmt lögræðislögum
séu börn ekki fjárráða fyrr en við
átján ára aldur en þau ráði hins
vegar yfir sjálfsafla- og gjafafé
sínu. „Það eru engin neðri mörk í
lögunum varðandi þetta sjálfsafla-
eða gjafafé. Börnum er því heimilt
að ráðstafa þessu fé með þeim tak-
mörkunum þó að ef um háar fjár-
hæðir er að ræða getur forsjáraðili
gripið inn í.“
Hjá Vaxtalínu Búnaðarbankans
geta krakkar nú sótt um debet- og
hraðbankakort við ellefu ára aldur
en fyrir skemmstu var aldurs-
markið tólf ár. Hvort sem sótt er
um debet- eða hraðbankakort þarf
að fá samþykki foreldra og hjá
Búnaðarbankanum er póstur send-
ur í nafni foreldranna. Þá geta
krakkar fengið aðgang að Heima-
banka Búnaðarbankans en aðeins
með samþykki foreldranna.
Ómar Daníel Kristinsson hjá
Búnaðarbankanum segir að kort
sem bjóðist unglingum og krökk-
um undir átján ára aldri séu svo-
kölluð síhringikort en þá eigi að
hringja inn í hvert skipti sem þau
séu notuð þannig að hættan á að
farið sé yfir á debetkorti minnki
verulega. Þó sé aldrei hægt að
koma alveg í veg fyrir slíkt.
Níu ára börn geta fengið
hraðbankakort
„Við erum bara að bjóða upp á
þetta og foreldrar bera auðvitað
ábyrgð á fjármálum barna sinna
þannig að með því að skrifa upp á
og undirrita umsókn eru þeir um
leið að taka ábyrgð á reikningnum.
Með því að láta foreldra skrifa
undir erum við einnig að gera þá
meðvitaðri um ábyrgð sína.“
Hjá Landsbanka Íslands fengust
þær upplýsingar að þar geti
krakkar gengið í svokallaðan
Sportklúbb við níu ára aldur og
fengið hraðbankakort en við tólf
ára aldur geti þau líka notað
Sportkortin í verslunum, þ.e. sem
debetkort, en þau virki þá sem sí-
hringikort. Við fjórtán ára aldur
taki svo Námsmannalínan við.
Hjá Landsbankanum þarf sam-
þykki foreldra, hvort sem um
hraðbankakort eða debetkort er að
ræða.
Hjá sparisjóðunum geta krakkar
fengið debet- og hraðbankakort á
því ári sem þau verða tólf ára. Þau
þurfa að fara heim með umsókn og
skilyrði er að forráðamenn skrifi
undir, hvort sem um debet- eða
hraðbankakort er að ræða. Ekki
hafa verið nein teljandi vandræði
vegna korta til þessa aldurshóps.
Hæstu aldursmörkin
hjá Íslandsbanka
Hjá Íslandsbanka geta krakkar
á fjórtánda aldursári sótt um
debetkort en krakkar frá tólf ára
aldri geta sótt um hraðbankakort.
Farið er fram á undirskrift frá for-
eldrum vegna beggja kortanna og
þau geta ekki komist í aðra reikn-
inga sem stofnaðir hafa verið í
þeirra nafni, s.s. sérstaka gjafa-
eða sparnaðarreikninga. Talsmenn
Íslandsbanka segja að mikil
áhersla sé lögð á fræðslu til
barnanna þegar þau fá kort og
þeim gerð grein fyrir að það kost-
ar að vera með debetkort. Það hafi
verið meðvituð ákvörðun að fara
ekki neðar í aldri vegna útgáfu
debetkorta, m.a. vegna álits lög-
fræðinga innan bankans og um-
boðsmanns barna, og það sé ekki
stefna bankans að lækka aldurs-
mörkin að svo stöddu.
Aðgangur barna að debet- og hraðbankakortum
Mörkin sífellt
að færast neðarERIC Clapton lauk veiðum í Laxá á
Ásum um hádegisbil í gær og land-
aði hann ásamt írskum veiðifélaga
81 laxi á sex dögum. Að sögn Jóns
Guðmanns Jakobssonar veiðivarðar
líkaði Clapton vistin vel í Húnavatns-
sýslu. Jón sagði að Clapton væri ein-
staklega geðþekkur og skemmti-
legur maður og hefði honum þótt
birtan í umhverfinu ævintýraleg,
töfrum líkust. Hann „fílaði þetta í
botn“, sagði Jón veiðivörður.
Jón sagði að Clapton og hinn írski
veiðimaður hefðu ekkert þekkst áð-
ur en þeir deildu veiðihúsinu við
Laxá á Ásum í sex daga, en Írinn var
þarna að veiðum þriðja sumarið í
röð. Jón Guðmann sagði að Clapton
hefði áritað gítar litla bróður síns og
að áritun lokinni hefði kappinn stillt
gítarinn og tekið nokkur gítarsóló.
Til gamans má geta þess að þegar
Clapton og Georg hinn írski hófu
veiðar fyrir sex dögum voru 43 laxar
komnir á land en á hádegi í gær er
þeir luku veiðum var talan komin í
122 laxa.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Jóhann með Clapton-gítarinn.
Lönduðu
81 laxi
Blönduósi. Morgunblaðið.
Eric Clapton og írskur veiðifélagi hans
hættir veiðum í Laxá á Ásum
KAUPHÖLL Íslands hf. og Verð-
bréfaskráning Íslands hf., sem eign-
arhaldsfélagið Verðbréfaþing hf. var
stofnað um í júní, hafa tekið á leigu
húsnæði á Laugavegi 180 undir
starfsemi sína. Um er að ræða gler-
húsið á horni Laugavegs og
Kringlumýrarbrautar. Félögin eru
núna til húsa á Tryggvagötu 11.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar, segir nýja hús-
næðið, sem er á 5. hæð, henta starf-
semi Kauphallarinnar mjög vel.
„Þetta er glæsilegt húsnæði og við
hlökkum til að flytja. Það hentar
okkur mjög vel, stærðin á hæðinni
er nákvæmlega sú sem við þurfum.
Við viljum leggja mikla áherslu á að
vera á einni hæð með alla starfsemi
okkar.“
Þórður segir að um skeið hafi ver-
ið leitað að hentugu húsnæði. „Það
er mikið framboð af húsnæði til
skrifstofuhalds en eftir gaumgæfi-
lega skoðun á húsnæði fannst okkur
þetta vera heppilegasta framtíðar-
húsnæðið fyrir starfsemina.“ Þórður
segir leiguverð húsnæðisins trúnað-
armál milli leigutaka og leigusala.
Með flutningunum segir Þórður
að sameinist á einum stað Kauphöll
Íslands hf. og Verðbréfaskráning Ís-
lands hf. sem hingað til hafa verið á
sitt hvorri hæðinni á Tryggvagötu
11. „Þannig gefst færi á að samnýta
betur stofnkrafta þessara tveggja
félaga sem var ætlunin með stofnun
eignarhaldfélagsins Verðbréfaþings
hf. í júní,“ segir Þórður.
Þórður segir að samanlagt starfi
um þrjátíu starfsmenn hjá Kaup-
höllinni og Verðbréfaskráningu.
Áætlað er að félögin flytji inn í nýja
húsnæðið í lok september.
Kauphöllin og Verðbréfaskráning flytja
MIKIL jarðskjálftahrina var í
Eyjafirði aðfaranótt laugardags
og mældust 45 skjálftar á sjö og
hálfum tíma. Bergþóra Þor-
bjarnardóttir jarðskjálftafræð-
ingur segir að þetta sé ekki
óvanalegt og sama eigi við um
skjálftana sem hafa verið í Mýr-
dalsjökli undanfarna daga.
Bergþóra segir að skjálftanna
fyrir norðan hafi orðið vart um
20 km norðaustur af Gjögurtá
frá kl. hálfþrjú til kl. 10 um
morguninn. Nokkrir þeirra hafi
verið yfir 2 á Richter og sá öfl-
ugasti 2,9. Hún segir að svona
smáhrinur séu algengar og þær
standi þá yfir í stuttan tíma.
Undanfarna daga hafa verið
nokkrir skjálftar í Mýrdalsjökli.
Á laugardag reyndist sá sterk-
asti 2,3 á Richter í vestanverð-
um jöklinum en einn skjálftinn
mældist 2,2 á sunnudag. „Það er
ekkert óvanalegt að gerast,“
segir Bergþóra.
Skjálfta-
hrina í
Eyjafirði
LÍÐAN átta ára íslenskrar stúlku,
sem liggur á sjúkrahúsi í Árósum,
fer smám saman batnandi. Lovísa
Jónsdóttir, móðir Sigrúnar litlu,
segir að skammtur af svefnlyfi
sem dóttur hennar er gefið hafi
verið minnkaður örlítið en þó hafi
ekki verið tekin ákvörðun um hve-
nær hún verði vakin og tekin úr
öndunarvél.
Enn í öndunarvél
Lovísa segir að enn sem komið
er sé súrefnisupptaka Sigrúnar
ekki nægilega mikil til að unnt sé
að taka hana úr öndunarvél. Hún
segir að minnstar sveiflur hafi ver-
ið á líðan Sigrúnar síðastliðna tvo
daga. Hún er nokkurn veginn hita-
laus.
Annað lunga Sigrúnar féll sam-
an eftir áreksturinn 4. júlí sl. Það
féll eilítið saman á ný í síðustu
viku. Lovísa segir að síðan þá hafi
ekki orðið frekara samfall en
áverki sé á lunganu sem lagist
smám saman.
Á hægum
batavegi