Morgunblaðið - 16.07.2002, Side 46
DAGBÓK
46 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Del-
lach og Arina Arctica
koma og fara í dag.
Arnarfell og Kristrún
koma í dag. Brettingur,
Poseidon, Akureyrin og
Langenes fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss kom í gær,
mv. IDC – 3 kemur í
dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Lokað vegna sum-
arleyfa frá 1. júlí til 23.
ágúst.
Mannamót
Félagsþjónustan í
Hvassaleiti, Hæðargarði
og Sléttuvegi fara í ferð
um Reykjanes miðviku-
daginn 24. júlí. Lagt af
stað kl. 10.30 frá Hæð-
argarði með viðkomu á
Sléttuvegi og Hvassa-
leiti. Ekið verður um
Vatnsleysuströnd og í
Sandgerði og Fræða-
setrið skoðað. Farið að
Hvalsnesi og kirkjan
skoðuð. Leiðsögumaður
Pálína Jónsdóttir.
Allir útbúa sig með sitt
nesti. Skráning á skrif-
stofum staðanna eða í
símum: 588 9335,
568 3132 eða 568 2586.
Aflagrandi og Hraun-
bær. Sameiginleg ferð á
Akranes miðvikudaginn
24. júlí. Steinasafnið
skoðað og drukkið kaffi
hjá öldruðum á Akra-
nesi. Leiðsögumaður á
Akranesi. Lagt af stað
frá Reykjavík kl. 13og
Hraunbæ 13.30. Skrán-
ing í síma 562 2571 og
587 2888.
Aflagrandi 40. Kl. 9 og
kl. 13 vinnustofa og bað.
Árskógar 4. Kl. 9 bað-
þjónusta, kl. 9 bókband
og öskjugerð, kl. 9 opin
handavinnustofa, kl.
9.30 Íslandsbanki á
staðnum, kl. 13 opin
smíðastofa og handa-
vinnustofa, kl. 13.30
frjáls spilamennska.
Bingó fellur niður í júlí.
Púttvöllurinn opin kl.
10–16 alla daga. Allar
upplýsingar í s.
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–16
handavinna kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 14–15
dans.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 13 fönd-
ur og handavinna.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Púttað á
Hrafnistuvelli kl 14–16.
Félagsheimilið Hraun-
sel verður lokað vegna
sumarleyfa starfsfólks
til 11. ágúst. Orlofs-
ferðir að Hrafnagili við
Eyjafjörð 19. til 23.
ágúst, munið að greiða
gíróseðla sem fyrst.
Olofsferð að Höfða-
brekku 10 til 13. sept.
Skráning og upplýs-
ingar kl. 19–21 í s.
555 1703, 555 2484 eða
555 3220.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi: Félagið
hefur opnað heimasíðu
www.feb.is. Göngu-
Hrólfar fara í göngu frá
Glæsibæ miðvikudag kl.
10. Dagsferð í Húna-
vatnssýslu 24. júlí,
hringferð um Vatnsnes,
Hvammstangi, Bergs-
staðir, viðkoma í Hind-
isvík hjá Hvítserk, í
Borgarvirki og víðar.
Hafið hádegisnestis-
pakka með. Kaffihlað-
borð í Staðarskála.
Leiðsögumaður: Þórunn
Lárusdóttir. Skráning
hafin á skrifstofunni.
Fyrirhugaðar eru ferðir
til Portúgals og Tyrk-
lands í haust, fyrir fé-
lagsmenn FEB, skrán-
ing er hafin,
takmarkaður fjöldi.
Nánari upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Silfurlínan er opin á
mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10–
12. í s. 588 2111. Skrif-
stofa félagsins er flutt í
Faxafen 12, sama síma-
númer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 12.40 Bón-
usferð.
Gerðuberg, félagsstarf.
Lokað vegna sumar-
leyfa frá mánudegi 1.
júlí. Opnað aftur þriðju-
daginn 13. ágúst. Á veg-
um Íþrótta- og tóm-
stundaráðs eru sund og
leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug kl. 9.30 mánu-
miðviku- og föstudaga.
Umsjón Brynjólfur
Björnsson íþróttakenn-
ari.
Gjábakki, Fannborg 8.
Afgreiðslan er lokuð 15.
til 19. júlí. Matarþjón-
usta, kaffistofa, handa-
vinnustofa og annar
daglegur rekstur verður
eins og venjulega. Hár-
greiðslustofan verður
lokuð frá 15. júlí til 6.
ágúst.
Hvassaleiti 56–58. Kl
9.45 bankaþjónusta.
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing. Allir velkomnir.
Hraunbær 105. Kl. 9-17
fótaaðgerð, kl. 10-11
boccia, kl. 12.15 versl-
unarferð, kl. 13-17 hár-
greiðsla.
Hæðargarður. Hár-
greiðsla kl. 9-17.
Norðurbrún 1. Vinnu-
stofur lokaðar fram í
ágúst. Kl. 10 ganga.
Hárgreiðsla lokuð
vegna sumarleyfa frá
16. júlí til 13. ágúst.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–16
handavinna, kl. 13 spila-
mennska.
Vitatorg. Kl. 9.30 morg-
unstund , kl. 10.30
boccia, kl. 14 félagsvist,
kl. 10 hárgreiðsla og
fótaaðgerð.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í s. 552 6644 á fund-
artíma.
Bergmál, líknar- og
vinafélag, sumarferðin
verður farin sunnudag-
inn 21. júlí, ekið verður
að Byggðasafninu að
Skógum, helgistund í
umsjá séra Halldórs
Gunnarssonar og Þórð-
ar Tómassonar safn-
varðar. Brottför kl. 10
frá húsi Blindrafélags-
ins, Hamrahlíð 17. Þátt-
taka tilkynnist í síma
864 4070 eða 891 9017.
Minningarkort
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrif-
stofutíma. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrifstofu
félagsins í Suðurgötu 10
(bakhúsi) 2. hæð, s. 552-
2154.
Skrifstofan er opin
miðvikud. og föstud. kl.
16–18 en utan skrif-
stofutíma er símsvari.
Einnig er hægt að
hringja í síma 861-6880
og 586-1088. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Minningarkort MS fé-
lags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103
Rvk.Skrifstofan er opin
mán.–fim. kl.10-15. Sími
568-8620. Bréfs. 568-
8621. Tölvupóstur
ms@msfelag.is.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimer-
sjúklinga. Minningar-
kort eru afgreidd alla
daga í s. 533-1088 eða í
bréfs. 533-1086.
Heilavernd. Minningar-
kort fást á eftirtöldum
stöðum: í síma 588- 9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, Ísafirði.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd í síma
552-4440 frá kl 13-17.
Eftir kl. 17 s. 698-4426
Jón, 552-2862 Óskar eða
563-5304 Nína.
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást á
skrifstofu samtakanna
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s. 562-
5605, bréfsími 562-5715.
Minningarkort Krabba-
meinsfélags Hafn-
arfjarðar ( K.H. ),
er hægt að fá í Bókabúð
Böðvars, Reykjavík-
urvegi 64, 220 Hafn-
arfirði s. 565-1630
og á skrifstofu K.H.,
Suðurgötu 44, II. hæð,
sími á skrifstofu 544-
5959.
Í dag er þriðjudagur 16. júlí 197.
dagur ársins 2002. Orð
dagsins: Takið því hver annan að
yður, eins og Kristur tók yður að
sér, Guði til dýrðar.
(Rómv. 15, 7.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 traustur, 8 slægju-
landið, 9 ærin, 10 um-
fram, 11 glymur, 13
kaka, 15 háðsglósur, 18
rithöfundur, 21 glöð, 22
svala, 23 döpur, 24 ægi-
legt.
LÓÐRÉTT:
2 aldan, 3 klæðir sig vel, 4
fnykur, 5 ýlfrar, 6 mjólk-
urlaus, 7 ilma, 12 elska,
14 tré, 15 poka, 16 styrk-
ir, 17 hávaði, 18 sæti, 19
fangbrögð, 20 deyfð.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: - 1 kæpir, 4 fækka, 7 læpan, 8 loðin, 9 alt, 11
nára, 13 saur, 14 ungum, 15 skýr, 17 ágæt, 20 hal, 22
leiti, 23 ertum, 24 negla, 25 tunga.
Lóðrétt: - 1 kýlin, 2 pipar, 3 runa, 4 fölt, 5 koðna, 6 ann-
ar, 10 lygna, 12 aur, 13 smá, 15 súlan, 16 ýring, 18 gotan,
19 tomma, 20 hika, 21 lest.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI lofar að víkja ekkieinu orði að knattspyrnu í
þessum pistli, enda víst nóg komið af
slíku. Nýafstaðið heimsmeistaramót
í íþróttinni hefur hins vegar vakið
hann til umhugsunar um aðra hluti.
Það eru fordómar í garð annarra
þjóða og kynþátta, sem lýsa sér í
ótrúlega meiðandi ummælum sem
fólk virðist telja viðunandi að setja
út úr sér í hita leiksins.
Víkverji var auðvitað í hópi þeirra
sem reyndu að sjá sem flesta leiki
heimsmeistaramótsins og stakk sér
þá inn á þá staði þar sem kveikt var
á sjónvarpi hverju sinni. Það lagðist
hins vegar ákaflega illa í hann að
geta ekki notið boltans án upphróp-
ana um „apana“ frá Senegal sem
ættu að koma sér upp í trén aftur
eða „nasistana“ frá Þýskalandi, svo
aðeins séu tekin tvö mjög gróf dæmi
sem Víkverji varð vitni að.
Víkverji dvaldi um tíma í Banda-
ríkjunum og gerði þá oft grín að því
sem honum fannst ofurviðkvæmni
heimamanna fyrir öllu sem túlka
mætti sem kynþáttahyggju. Eitt
dæmi af slíku var af pólitíkus sem
komst í hann krappan þegar hann
notaði gott og gilt lýsingarorð,
„niggardly“, sem þýðir einfaldlega
samansaumaður eða nískur, en hef-
ur ekkert með hið neikvæða orð
„nigger“ að gera. Orðin voru hins
vegar of lík fyrir marga pólitískt
réttþenkjandi samlanda hans og þar
þótti Víkverja þeir skjóta yfir mark-
ið.
x x x
DVÖLIN í Bandaríkjunum hefurþó líklega haft það í för með
sér, að Víkverji gerir sér betur grein
fyrir því en áður hversu meiðandi yf-
irlýsingagleðin getur verið. Hann
rekur alltaf í rogastans þegar hann
heyrir fólk ryðja út úr sér grófum
ummælum um aðrar þjóðir, oftast
nær undir því yfirskini að það sé að
grínast. En ætli einhverjum leik-
manna Þýskalands þyki fyndið að
vera kallaður nasisti? Eða reikna
menn með að leikmenn Senegal
hristist af hlátri þegar lagt er til að
þeir fari aftur upp í trén? Maður
sem Víkverji þarf stundum að skipta
við hefur það viðkvæði, heyri hann
einhvern kvarta undan lélegri
þjónustu eða vinnubrögðum, að
spyrja glottandi hvort viðkomandi
starfsmaður hafi verið negri! Ef svo
væri, myndi léleg þjónustan eða slæ-
leg vinnubrögðin vera eðlileg, af því
að svona eru allir hörundsdökkir?
Víkverji leggur til að það fólk,
sem kýs að tala niðrandi um aðra á
grundvelli kynþáttar eða þjóðernis,
staldri við, setji sig í spor þeirra sem
um er rætt og hlífi svo þeim og sam-
ferðamönnum sínum við soranum.
x x x
AF OG til birtast fréttir af fram-gangi kvenna í atvinnulífinu
eða í stjórnmálum, svo dæmi séu
tekin. Víkverji fagnar því vissulega
þegar konur ná að vinna hefðbundin
karlavígi, en honum þykir þó sem
stundum vinni þessar fréttir gegn
tilgangi sínum. Með því að taka sér-
staklega fram í fyrirsögn að kona
hafi náð þeim árangri að verða önn-
ur konan sem sest í formannssæti í
ungliðasamtökum stjórnmálaflokks
er gefið í skyn að í raun sé þetta
karlavígi, þegar það vígi féll auðvit-
að um leið og fyrsta konan settist í
formannsstól. Sama á við þegar sér-
staklega er greint frá því að ein-
göngu konur hafi mannað vakt í
flugumferðarstjórn. Það er varla
fréttnæmt nú þegar fjöldi kvenna
gegnir starfi flugumferðarstjóra,
miklu fleiri en þær sjö sem stóðu
umrædda vakt.
Vegaframkvæmdir
í Árbæ
ÉG vil koma á framfæri
kvörtun minni vegna vega-
framkvæmda í götunni á
móti Árbæjarskóla. Þarna
er mikil umferð en á sama
tíma eru vinnuflokkar frá
Reykjavíkurborg sem
grafa holur sitt hvoru meg-
in götunnar. Framkvæmd-
in virðist felast í því að
byrja á nýrri holu áður en
gengið er frá þeirri fyrri.
Hvernig stendur á því?
Þessar framkvæmdir eru
til mikils ama fyrir íbúa við-
götuna því ekki er hægt að
aka nema stuttan spöl eftir
henni án þess að stoppa til
að hleypa umferð á móti í
gegn. Þetta gengur ekki og
íbúar í götunni eru mjög
ósáttir við þessar fram-
kvæmdir.
Eins er í götunni stræt-
isvagnaskýli sem var fært
til, það er búið að standa
ófrágengið í marga mánuði
og virðist ekkert eiga að
gera í því máli.
Reiður íbúi.
Vonbrigði
með Víkverja
ÉG hef alltaf litið á Morg-
unblaðið sem vandað blað.
Því voru það mér vonbrigði
er ég las Víkverja í dag,
föstudaginn 12. júlí, þar
sem hann hvetur viðskipta-
vini Bónuss í Kringlunni til
þjófnaðar vegna greiðslu
fyrir leigu á innkaupakörfu.
Bendir hann á ýmsar leiðir
til að svíkjast um greiðsl-
una. Er ein aðferðin sú að
nota megi skápaskífurnar í
sundlaugunum í stað 100
kr. myntarinnar.
Víkverja skal bent á að
skífurnar eru eign sund-
lauganna og er óheimilt að
taka þær með sér til ann-
arra nota en ætlast er til.
Slíkt er þjófnaður.
Grétar Eiríksson.
Fá ekki
afslátt
ÉG fór með langömmu-
börnin mín í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinn nýlega.
Þar sem ég er eldri borgari
reiknaði ég með afslætti
fyrir mig og spurði um elli-
afslátt. Þá var mér sagt að
ég fengi ekki afslátt nema
ég gæti sýnt fram á að ég
væri löglegur íbúi Reykja-
víkur.
Getur það staðist að eldri
borgarar utan Reykjavíkur
fái ekki afslátt?
Kristín Bjarnadóttir.
Tapað/fundið
Svissneskur hnífur
týndist
SVISSNESKUR vasahníf-
ur, rauður á lit, týndist um
miðjan júnímánuð, líklega í
eða við Hvammsvík í Kjós.
Hnífurinn er með ótal tækj-
um og tólum og var í leð-
urhulstri, þar sem eru átta-
viti og ýmis annar búnaður.
Hnífurinn hefur mikið gildi
fyrir eigandann og er því
skilvís finnandi vinsamlega
beðinn um að hafa samband
í síma 698 6789.
Filma týndist
TUDOR filma í glæru plast-
hylki, 36 mynda, týndist á
leiðinni frá Jökullóninu að
Seljavöllum undir Eyjafjöll-
um. Finnandi hafi samband í
síma 896 6591 eða 554 6291.
Dýrahald
Kettlingur
fæst gefins
7 VIKNA kettlingur fæst
gefins. Er kassavanur. Upp-
lýsingar í síma 555 2447.
Kettlingar fást gefins
TVEIR svartir og hvítir
kettlingar, fallegir og kassa-
vanir, fást gefins. Upplýs-
ingar í síma 568 8082.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
VIÐ hjónin vorum að
versla í Kringlunni sl.
miðvikudag 10. júlí. Þeg-
ar bóndi minn ætlar að
borgar uppgötvar hann
að veskið er týnt. Okkur
bregður illilega því að öll
hans kort og skilríki voru
þar í. Hann leitar þar sem
hann hafði farið en fann
veskið ekki. Svo hann fer
í Búnaðarbankann og
hitti þar stúlku og segir
henni hvað skeð hafði og
lætur stoppa kort og
reikninga. Því næst fór-
um við niður að upplýs-
ingaborði en ekki var
veskið þar. Við urðum að
hringja í Landsbankann
en þá kemur þessi góða
stúlka frá Búnaðarbank-
anum með veskið til okk-
ar en maður hafði komið
með það í bankann.
Mikið er yndislegt að
uppgötva svona mikinn
heiðarleika og góð-
mennsku. Við viljum
þakka þessum frábæra
manni skilvísina og fyr-
irhöfnina. Megi guð launa
honum og stúlkunni í
Búnaðarbankanum.
Guðbjörg og Hreiðar
Ársælsson.
Þakkir fyrir skilvísi