Morgunblaðið - 19.07.2002, Page 14

Morgunblaðið - 19.07.2002, Page 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Gasol® Heimsendingarþjónusta ÍSAGA nær til Stór-Reykjavíkursvæðisins. Heimsendingargjald er kr. 500,- Afgreiðslan Breiðhöfða 11 er opin virka daga frá kl. 8 til 17. 800 5555 Hluti af Linde Gas Group ÍSAGA ehf. • Breiðhöfða 11 Sími 577 3000 • Fax 577 3001 www.aga.is IS A -2 43 .1 – ÍD E A Hopparar MEISTARINN.IS Þrýstimælar Við mælum með Fiskislóð 26 · Sími: 551 4680 · Fax: 552 6331 www.sturlaugur.is i i l í i l i iskislóð 26 Sími: 551 4 80 www.sturlaugur.is BORGARRÁÐ hefur samþykkt samstarfssamning við félagsvísinda- deild Háskóla Íslands í tengslum við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórn- mála. Vill Reykjavíkurborg með þessu stuðla að samstarfi borgarinn- ar og Háskóla Íslands um kennslu, þróun og rannsóknir á stjórnsýslu sveitastjórnarstigsins. Borgaryfir- völd hafa ákveðið að leggja stofn- uninni til rekstrarstyrk að upphæð 2,5 m kr. á ári frá 2003 til 2005. Í greinargerð með tillögu að sam- starfssamningnum segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri að þróun í opinberri stjórnsýslu og stjórnun hafi verið mikil og hröð á síðustu árum. Löggjöf, sem skil- greini réttindi borgaranna gagnvart hinu opinbera, ný samskipta- og upplýsingatækni og nýjar áherslur í stjórnun og stjórnsýslu opinberra aðila hér á landi, sem og annars staðar, leiði til þess að þörfin fyrir símenntun, rannsóknir, samskipti og upplýsingar milli þeirra sem starfa á þessum vettvangi verði æ ljósari. Borgarstjóri bendir á að opinber stjórnun þurfi að taka tillit til sér- staks lagaumhverfis opinbera geir- ans og ýmissa viðhorfa sem snerti lýðræði og siðferði hjá hinu opin- bera. Ennfremur sé mikilvægt að fylgjast með víðtækum umbótum og nýjungum sem sífellt verði í opin- berri stjórnun í umheiminum. Reykjavíkurborg fær fulltrúa í stjórn stofnunarinnar „Með samstarfi við Háskóla Ís- lands og fulltrúa í stjórn Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála er þess vænst að Reykjavíkurborg geti átt aðgang að upplýsingum og mik- illi þekkingu á þessu sviði jafnframt því sem hún geti miðlað af þeirri margháttuðu reynslu af stjórnsýslu sveitarstjórnarstigsins sem hún býr yfir,“ segir borgarstjóri. Segir þar jafnframt að áhersla Háskóla Íslands á þennan hátt menntunar og rannsókna sé til þess fallinn að vekja áhuga stúdenta á að leggja fyrir sig störf á þeim vett- vangi. Í bréfinu segir að áformað sé að í fyrstu stjórn stofnunarinnar eigi sæti kennarar við Háskólann, m.a. úr lagadeild og stjórnmálafræði- skor, en jafnframt fulltrúar frá Reykjavíkurborg og úr stjórnsýslu ríkisins. Þannig geti borgin tekið þátt í mótun stofnunarinnar frá upp- hafi, tekið þátt í sameiginlegum rannsóknarverkefnum og átt að- gang að skipulagi námskeiða um sveitarstjórnarmál og opinbera stjórnsýslu. Í samstarfssamningi borgarinnar og Háskólans segir að borgin eigi einn fulltrúa í stjórn stofnunarinnar og skal hann valinn í samvinnu borgarstjóra og forseta félagsvís- indadeildar. Í samningnum segir m.a. að stefnt sé að því að nemendur og kennarar hjá stofnuninni sinni rannsóknar- og þróunarverkefnum í þágu borgarinnar en jafnframt skuli leita leiða til að reynsla og þekking starfsmanna og stjórnenda borgar- innar nýtist stofnuninni. Samning- urinn er til þriggja ára, frá 2003–5 og er heildarframlag borgarinnar á tímabilinu 7,5 m.kr. Stofnunin gefi út og kynni niðurstöður rannsókna Í reglum um Stofnun stjórnsýslu- fræða og stjórnmála við H.Í. sem samþykktar voru á deildarfundi fé- lagvísindadeildar í lok maí og stað- festar voru af háskólaráði 26. júní sl. segir m.a. að hlutverk stofnunarinn- ar sé að efla framhaldsnám, starfs- menntun og rannsóknir á sviði stjórnsýslu og stjórnmálafræði inn- an stjórnmálafræðiskorar, m.a. með því að leita samstarfs við hagsmuna- aðila í þjóðlífi. Stofnuninni er ætlað að standa fyrir námskeiðahaldi og gefa út og kynna niðurstöður rann- sókna, m.a. ritröð um íslenska stjórnmálafræði, og sjá um að halda úti veftímaritum og lifandi umræðu- vettvangi um stjórnmálafræði og stjórnsýslu. Háskóli Íslands lætur stofnuninni í té starfsaðstöðu og er stjórn stofnunarinnar heimilt að ráða forstöðumann. Borgarráð samþykkir samstarfssamning við Stofnun stjórnsýslufræða við HÍ Stofnunin sinni rannsóknar- verkefnum í þágu borgarinnar Morgunblaðið/Golli Borgaryfirvöld hafa ákveðið að leggja stofnuninni til rekstrarstyrk að upphæð 7,5 m kr. til næstu þriggja ára. Með samstarfinu vonast borgin eftir því að eiga aðgang að mikilli þekkingu á sviði stjórnsýslufræða. Reykjavík EFTIR rigningu undanfarna daga lét sólin loks á sér kræla í höf- uðborginni í gær. Milt var í veðri og skýjabólstrar á lofti. Í dag er gert ráð fyrir að verði skýjað með köfl- um á suðvesturhorni landins en þykknar upp á morgun. Myndin er tekin við Grafarvog. Í forgrunni er Grafarvogskirkja en Esjan gnæfir yfir í baksýn. Morgunblaðið/Leifur Sveinsson Yfir spegilsléttan Grafarvoginn Reykjavík BÓKASAFN Garðabæjar hef- ur opnað nýjan vef á slóðinni www.gardabaer.is/bokasafn. Á vefnum er að finna fjöl- margar upplýsingar fyrir bókaunnendur og aðra sem vilja kynna sér starfsemi bókasafnsins. Þar eru ábendingar um góðar skáldsögur og fræðiefni og hægt er að lesa bókagagn- rýni frá gestum safnsins. Þá er þar einnig efni sem sérstaklega er ætlað ungling- um og hluti vefjarins er ætl- aður börnum. Á unglingavefn- um eru m.a. ábendingar um góðar bækur og upplýsingar um netnotkun og hvað ber að varast á netinu. Á barnavefn- um er m.a. hægt að nálgast ýmsa leiki og fá ábendingar um skemmtilegar bækur. Á vefnum má einnig finna upplýsingar um reglur safns- ins og opnunartíma. Nýr bóka- vefur opnaður Garðabær UNNIÐ er að því að rífa húsnæði leikskólans Hraunkots í Hafnar- firði, sem um nokkurra ára bil hef- ur verið hluti af starfsemi leikskól- ans Arnarbergs. Húsnæðið, sem nú lýkur hlutverki sínu, er einnig þekkt sem gamla æskulýðsheimilið en þar var á árum áður rekin fé- lagsmiðstöð fyrir hafnfirska æsku. Í stað Hraunkots og Arnarbergs verður reistur nýr fjögurra deilda leikskóli á slóðum Hraunkots og er áætlað að framkvæmdir við þá byggingu standi í um það bil eitt ár. Hraunkot rifið Hafnarfjörður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.