Morgunblaðið - 19.07.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.07.2002, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ                           !      " # !   #  $ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞEIR, sem tíðum leggja leið sína í kirkju, veita ýmsu athygli, sem þeir, er lítt sækja slík hús, verða ekki var- ir. Ég geri ráð fyrir, að fólki, sem sækir ekki kirkju nema á hátíðum og tyllidögum, sé að miklu leyti sama, hvernig guðsþjónustan fer fram. Ég er tíðum í kirkju, oftast í minni sóknarkirkju, enda hæg heimatökin. Prestar eru tveir, og skiptast þeir á um að messa. Vinna einnig saman, eins og við fermingar barna. Er slíkt til mikillar fyrirmyndar, því að illt er, ef slíkt verður nokkurs konar reip- dráttur. Báðir eru prestarnir áheyri- legir. Þeir stíga báðir í ræðustólinn, en standa ekki fyrir framan altarið við ræðupúlt, eins og sagt er, að sum- ir prestar séu farnir að gera. Mikill kostur er það, er prestar eru skýr- mæltir og liggur hátt rómur, því að þá heyra kirkjugestir betur til þeirra. Staðreynd er, að margir hinna trygg- ustu kirkjugesta er eldra fólk, sem heyrir ekki jafn vel og það gerði á sín- um yngri árum. Ég hef tekið eftir því, að prestar fara dálítið misjafnt með trúarjátn- inguna. Sumir tala um upprisu mannsins, en aðrir holdsins. Ég lærði hið síðarnefnda hjá mínum presti fyr- ir ferminguna, hvað sem um það má segja eða hvort réttara er. Svo mikið er þó víst, að í dönsku sálmabókinni stendur: „Ködets opstandelse“. Þetta var nú um upprisuna. En nú er ég eiginlega kominn að aðalefni þessa bréfs. Í seinni tíð er altaris- ganga í hverri guðsþjónustu, sem tekur að vonum all-langan tíma, ef margt fólk er í kirkju. Þar að auki á fólk að standa talsverðan tíma, áður en altarisgangan fer fram. Þetta er hrein viðbót við stöður fólks í kirkju áður. Þetta reynir mjög á gamalt fólk, sem margt er orðið þreytt í fót- um. Ég er ekki á móti altarisgöngum sem slíkum, en mér finnst, að þær þurfi ekki að vera í hverri guðsþjón- ustu. Áhrif þeirra verða þá minni. Þegar ég var fermdur á sínum tíma var altarisgangan ekki samtímis og fermingin fór fram, heldur síðar. Ég held nú raunar, að ég hafi ekki mætt við þá altarisgöngu, því að þá var ég kominn í vegavinnu, enda talinn full- orðinn maður að þeirra tíma hætti. Ég hef oft mætt í guðsþjónustur í Danmörku, sem fara að miklu leyti fram eins og hér, enda er íslenska þjóðkirkjan arftaki dönsku kirkjunn- ar. Þeir biðja þar fyrir drottningu og manni hennar á stólnum, og nefna þau með nafni. Gott er, að slíkt skuli ekki viðhaft hér á landi. Við lítum ekki upp til yfirvalda, veraldlegra sem andlegra, á svipaðan hátt og margar aðrar þjóðir. Við erum meiri jafnaðarmenn í hugsun, guði sé lof! AUÐUNN BRAGI SVEINSSON, Hjarðarhaga 28, Reykjavík, Nokkur orð frá kirkjugesti Frá Auðuni Braga Sveinssyni: ÍSLENDINGAR njóta um þessar mundir aðdáunar erlendra þjóða fyr- ir varðveislu ósnortinna víðerna. Ný- mæli er að hingað streymir fjöldi as- ískra ferðalanga sem aldrei hafa augum litið ósnortið land. Fréttir af þessu einstæða eylandi náttúruperlna hafa borist um veröldina og Ís- lendingar veg- samaðir fyrir að láta eyðileggingu sögualdar vera sér víti til varnaðar og að hafa ekki látið auðhyggjuáróður nútímanns byrgja sér sýn. Hjá öllum þjóðum vegur þungt að hafa það gott og helst meira þótt skammvinn velmegunin sé of oft tekin út á framtíðina. Það er þegar komandi kynslóðum er ætlað að blæða fyrir valdadrauma skamm- sýnna pólitíkusa. Um veröldina þvera og endilanga eru misvitrir stjórnend- ur að eyða ósonlaginu og nýta til þess áróður sem engin rök stenst. Valds- menn vona að þegar afleiðingar gerða þeirra verða lýðum ljósar séu þeir ekki til að svara til saka fyrir voðann sem af mun hljótast. Samkvæmt nátt- úrulögmáli þarf ég ekki að óttast eyðileggingu láðs og lagar og það að ganga með súrefnisgrímu og færa bú- stað minn hærra upp á landið. En ég á börn og barnabörn og ég óttast um framtíð þeirra og komandi kynslóða ef svo heldur sem horfir. Gífurlegum fjármunum er nú varið í að blekkja alþýðu allra landa til að hún trúi því sem stjórnvöld segja henni og fer aðferðin eftir stöðu hverrar þjóðar. Fátækar eru gjarnan beittar harðræði en hinar blekktar með glansmyndum og lygum. Meng- un hverskonar og kjarnorkuúrgang- ur gengur nú kaupum og sölum og er orðin algeng skiptimynt milli þjóða. Skipulögðum glæpasamtökum sýnist í þessu, eins og í mansali, meiri gróði og minni áhætta en eitursölu og öðr- um hefðbundnum myrkraverkum og því kærkomin viðbót til að svala græðginni. Ágætu landar mínir, horfum fram á veginn og látum ekki loforð inn- lendra og erlendra draumóra- og fjárglæframanna glepja okkur sýn á hvað okkur er fyrir bestu til lengri tíma litið. Loft, láð og lögur eru und- irstaða alls lífs, ef við spillum því er voðinn vís. Jesús sagði um ofsóknarmenn sína: Fyrirgefið þeim því þeir vita ekki hvað þeir gera. Það er ekki hægt að segja slíkt um þá sem nú vilja fórna ósnortinni náttúru Íslands fyrir pólitískan frama sinn því viðvaranir við gerðum þeirra eru á hverju strái. Í náinni framtíð verður rafmagn framleitt með vistvænum hætti og flest annað en eiturspúandi stóriðja mun fleyta mönnum fram á veginn. Jarðvarmi og vindorka eru að þróast til framleiðslu rafmagns og sól og sjávarföll eru sjálfbær náttúruauðæfi sem bíða við bæjardyrnar. ALBERT JENSEN, Sléttuvegi 3, Reykjavík. Ísland – undur veraldar Frá Alberti Jensen: Albert Jensen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.