Morgunblaðið - 19.07.2002, Blaðsíða 39
EINS og fram hefur komið er lax-
veiði víða að glæðast eftir erfiða
byrjun. T.d. hefur verið líflegt á
bökkum Elliðaánna síðustu daga.
Dagveiðin í Elliðaánum hefur farið
upp í 22 laxa og líflegar göngur komu
í ána á dögunum. Lax er nú dreifður
um alla á og síðustu daga hefur verið
fallegt sjónarspil fyrir vegfarendur
sem hafa horft ofan á torfuna ofan
við Árbæjarstíflu.
Lax um allt Sog
Um síðustu helgi voru komnir 23
laxar á land úr Soginu og veiddust
þeir flestir á örfáum dögum. Í vik-
unni hefur síðan verið að reytast
bærilega. Lax er kominn á öll svæði,
minnst þó efst, á Syðri Brú þar sem
einn var kominn á land, en menn
höfðu þó misst fleiri. Ásgarður var
með 13 laxa, Alviðra 6 og Bíldsfell 3
laxa. Í Bíldsfelli voru auk þess komn-
ar 102 bleikjur og 56 í Ásgarði. Sil-
ungasvæði Ásgarðs hefur verið gjöf-
ult, en alvöru tölur fást þar sjaldan
því ýmsir skrá aðeins brot af afla sín-
um á svæðinu.
Lifnar yfir…
Lifnað hefur yfir Gljúfurá, Krossá
og Reykjadalsá í Borgarfirði. Þessar
ár hafa allar loks gefið sína fyrstu
laxa, þrír veiddust í Reykjadalsá í
Borgarfirði, allir smáir og þar hafa
auk þess veiðst þó nokkrar fallegar
bleikjur, 2-3 punda. Menn eru farnir
að sjá laxa víða í Gljúfurá, enda gat
lax komist upp úr grunnum ósnum
eftir að rigndi loksins. Alveg dæmi-
gert fyrir Gljúfurá var að mjög góð
veiði hefur verið í Straumunum af og
til meðan laxinn komst ekki í Gljúf-
urá vegna þurrka.
Glæðist í Sogi
og Elliðaám
Sara Dögg Jónsdóttir, 6 ára, með Maríulaxinn sinn úr Fosskvörn í
Elliðaánum, 7 punda hæng.
ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?
Markaður í
Skagafirði
MARKAÐUR verður haldinn í sam-
komutjaldinu í Lónkoti í Skagafirði
sunnudaginn 28. júlí. Hefst markað-
urinn kl. 13 og stendur til kl. 18.
Sölufólk getur aflað sér upplýsinga
og pantað söluborð hjá Ferðaþjón-
ustunni Lónkoti. Markaðir í Lónkoti
eru haldnir síðustu sunnudaga í júlí
og ágúst.
ÞREYTA er ein af aðalorsökum umferðarslysa. Um síðustu helgi urðu
að minnsta kosti tvö alvarleg umferðarslys sem rekja má til þreytu. En
hvað er til ráða? Með því að skipuleggja ferðina okkar fyrirfram getum
við sparað tíma, peninga og komið í veg fyrir óþarfa streitu og þreytu.
Hvað mun ferðalagið taka marga tíma? Skynsamlegt er að stoppa á
tveggja tíma fresti, teygja úr sér og njóta náttúrunnar. Forðumst að
leggja snemma af stað að morgni þe. eftir lítinn svefn eða strax eftir
þunga hádegismáltíð, slys af völdum þreytu eru algeng á þessum tím-
um. Langt ferðalag eftir fullan vinnudag býður hættunni heim. Skyn-
samlegt er að hafa varaökumann sem getur tekið við ef þreytan verður
óbærileg. Ýmis lyf geta stuðlað að þreytu. Ráðfærum okkur við sér-
fræðingana sem skaffa lyfin. Ekki freista þess að klára ferðina ef
þreytan sverfur að, það gæti mistekist. Skynsamlegast er að leggja
bílnum á öruggum stað og kúra í kortér. Svefn er eina meðalið við
þreytu.
Komum heil heim…
Frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2002 39
SAMGÖNGURÁÐHERRA, sem er
ráðherra ferðamála, hefur sent frá
sér yfirlýsingu þar sem fagnað er að
tekist hafi að leysa málefni víkinga-
skipsins Íslendings og því frum-
kvæði sem bæjarstjórn Reykjanes-
bæjar tók í málinu.
„Í næstum tvö ár hefur ríkt óvissa
um framtíð skipsins og er því for-
ganga Reykjanesbæjar um lausn
málsins sérstakt fagnaðarefni. Í
Njarðvík, nýrri heimahöfn skipsins,
mun það fá hlutverk sem skipinu
sæmir og mun það efla íslenska
ferðaþjónustu. Er öllum sem að
þessu verki hafa komið óskað til
hamingju með þetta framfaraskref.
Vegna árþúsundamótanna fór
fram umfangsmikil kynning á Ís-
landi vestanhafs á árinu 2000. Sá lið-
ur kynningarinnar sem fékk mesta
athygli var sigling víkingaskipsins
og náði umfjöllun fjölmiðla til millj-
óna manna. Sérstakan áhuga vakti
framganga áhafnarinnar enda ekki á
allra færi að sigla yfir Atlantshafið
við aðstæður sem tíðkuðust fyrir
þúsund árum.
Gunnar Marel Eggertsson, sem
smíðaði skipið og var jafnframt skip-
stjóri þess, stóð í eldlínunni og vakti
mikla athygli fjölmiðla vestanhafs.
Það kom því engum á óvart þegar
Gunnar hlaut fjölmiðlabikar Ferða-
málaráðs árið 2000. Ferðaþjónustan
kom þannig á framfæri við hann og
áhöfnina alla innilegu þakklæti fyrir
frábærlega unnin störf í þágu grein-
arinnar.
Samgönguráðherra færir öllum
sem að því komu að fá Íslending
heim á ný sínar bestu þakkir.“
Fagnar því að Íslend-
ingur sé á heimleið
Tilkynning frá samgönguráðuneytinu
Barna-
hátíð á
Ingólfstorgi
LAUGARDAGINN 20. júlí nk. verð-
ur haldin barnahátíð á Ingólfstorgi á
vegum Ungmennahreyfingar Rauða
kross Íslands í Reykjavík. Hátíðin er
liður í verkefninu „Gegn ofbeldi“,
sem unnið er innan Ungmennahreyf-
ingar Rauða kross Íslands. Á hátíð-
inni verður margt skemmtilegt í
boði, m.a. leiktæki af ýmsum toga,
andlitsmálun o.fl. Þá verður gestum
boðið upp á að taka táknræna af-
stöðu gegn ofbeldi með handþrykki.
Hátíðin hefst kl. 13.00 og lýkur kl.
17.00.
Gönguferðir í
Herðubreið-
arfriðlandi
LANDVERÐIR í Herðubreiðarfrið-
landi og Öskju bjóða í sumar upp á
gönguferð á laugardögum kl. 14 frá
bílastæði við Vikraborgir inn að
Öskjuvatni og Víti. Fjallað verður
um sögu og náttúrufar svæðisins,
sem er margbrotið og áhugavert.
Gangan tekur um eina og hálfa
klukkustund, hún er öllum fær og
þátttakendum að kostnaðarlausu.
Leiðrétt
Heiðursgestur á
hönnunarsýningu
Í frétt um hönnunarsýningu í Epal
í blaðinu á dögunum var ranglega
sagt að Michael Young hefði verið
heiðursgestur á Kortrijk Design-
hönnunartvíæringnum í október sl.
Rétt er að hann verður heiðursgest-
ur þar næstkomandi október. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
Sjö sóttu um
stöðu skatt-
stjóra Vest-
fjarða
HINN 14. júlí sl. rann út umsókn-
arfrestur um stöðu skattstjóra Vest-
fjarðaumdæmis. Sjö umsóknir bár-
ust um stöðuna og eru nöfn
umsækjenda sem hér segir: Álfheið-
ur D. Gunnarsdóttir, Björn Jóhann-
esson, Guðrún Björg Bragadóttir,
Ólafur Páll Gunnarsson, Pétur
Björnsson, Valdimar Tómasson og
Þórir Jóhannesson.
Fjármálaráðherra mun skipa í
stöðu skattstjóra Vestfjarðaum-
dæmis frá og með 1. september nk.
til næstu fimm ára.
LAUGARDAGINN 20. júlí verður
nýtt sýningarhús vígt við Byggða-
safnið í Skógum og sýningin Sam-
göngur á Íslandi opnuð. Sam-
gönguráðherra, Sturla Böðvarsson,
mun opna sýninguna. Þetta er sýn-
ing á samgöngutækjum og tækni-
minjum frá árdögum vélaaldar á
Íslandi og fram yfir miðja 20. öld,
auk ýmissa muna frá 19. öld. Lögð
er áhersla á að lýsa þeirri sam-
göngubyltingu sem tilkoma vél-
araflsins hafði í för með sér.
Í sýningarskrá segir m.a.: „Á ör-
fáum áratugum urðu aldahvörf í
tæknimálum Íslendinga þegar raf-
orka og vélarafl héldu innreið sína
í gamalgróið samfélag og þúsund
ára kyrrstaða í samgöngum og
tæknilegum efnum var rofin.“ Það
er Byggðasafnið í Skógum sem
stendur að sýningunni en sam-
starfsaðilar eru Þjóðminjasafn Ís-
lands, Vegagerðin og Íslandspóst-
ur, en þessir aðilar hafa lánað
Skógasafni marga muni sem prýða
munu sýninguna.
Nýja sýningarhúsið er 1510
ferm. að stærð, límtréshús klætt
yleiningum.
Teiknistofan Arkís ehf. hefur séð
um hönnun hússins í samstarfi við
Límtré hf. og Ístak hf. Í húsinu
verður gestamóttaka, kaffistofa,
safnverslun og um 1100 fermetra
sýningarsvæði þar sem tækniminj-
ar af ýmsum toga verða til sýnis,
auk ökutækja af öllum stærðum og
gerðum, allt frá upphafi bílaaldar á
Íslandi og fram á okkar daga.
Menntamálaráðuneytið styrkti
byggingu hússins, en einnig hefur
safnið fengið fjárveitingu frá Al-
þingi og styrki til verkefnisins frá
ýmsum aðilum.
Björn G. Björnsson hefur hann-
að sýninguna og séð um uppsetn-
ingu hennar. Hér er um að ræða 1.
áfanga þessa verkefnis, en áætlað
er að uppbygging þessarar sýning-
ardeildar taki um tvö ár og að yf-
irlitssýning um samgöngur á Ís-
landi frá landnámi til okkar daga
verði opnuð árið 2004, en þá verða
liðin 100 ár frá komu fyrstu bif-
reiðarinnar til landsins.
Nýtt sýningarhús
vígt í Skógum
Nýtt vefumsjónarkerfi
opnað á Hornafirði
NÝTT „hótel“ hefur verið tekið í
notkun á Hornafirði, en það nefnd-
ist Vefhótel Galdurs. Vefhótelið er
vefumsjónarkerfi sem gerir öllum
kleift að búa til sinn eigin vef með
lítilli fyrirhöfn og litlum tilkostn-
aði.
Vefhótel Galdurs hentar sér-
staklega vel einstaklingum, félaga-
samtökum og litlum og meðalstór-
um fyrirtækjum sem vilja stíga
það nauðsynlega skref að verða
sýnileg á internetinu.
Vefhótel fyrir
venjulegt fólk
Allir geta unnið í kerfinu og þarf
enga sérkunnáttu til þess að búa
til síður og viðhalda efni þeirra.
Það eina sem þarf er nettengd
tölva og venjulegur vefskoðari.
Til þess að búa til vef með
venjulegum efnissíðum þarf ein-
ungis að hafa svokallaðan grunn-
aðgang, sem kostar aðeins 1.500
kr. á mánuði. Innifalið er eitt af
fjölmörgum stöðluðum útlitum, að-
gangur að vefumsjónarkerfi og
tengill á Heimasíðu Hornfirðinga,
horn.is.
Ótal möguleikar
Auk grunnaðgangs býður Gald-
ur ehf. uppá ýmsar sérlausnir sem
tengja má við vefhótelið. M.a. má
nefna sérhannað útlit, fréttakerfi,
póstlistakerfi, fyrirspurnakerfi,
póstsendingaform o.fl.
Galdur ehf. er austfirskt fyr-
irtæki á sviði Internetlausna, graf-
ískrar hönnunar og upplýsinga-
miðlunar. Einnig starfrækir
Galdur frétta- og upplýsingavefinn
horn.is.
Fyrirtækið er til húsa í Ný-
herjabúðum og hefur hefur starfað
í um níu mánuði. Eigendur Gald-
urs eru Heiðar Sigurðsson vef-
hönnuður og Sigurður Mar Hall-
dórsson ljósmyndari.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.galdur.is/vefhotel.