Morgunblaðið - 19.07.2002, Side 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2002 41
Sími 525 3000 • www.husa.is
20-40%
Útimálning
á stein, þak og timbur
afsláttur
Steinflísarnar frá BM Vallá eru öðru fremur
sniðnar að veröndinni hjá þér. Klassískt og
viðhaldsvænt yfirborð þeirra gefur garðinum
hlýlegt og skemmtilegt útlit. Flísarnar fást
í ýmsum stærðum og gerðum og því engin
ástæða til að festast í forminu.
öðrum fremur
VIÐ hjónum vorum á ferðalagi um
Suðurland í síðustu viku. Þegar við
ókum fram hjá Dyrhólaey ákváðum
við að bregða okkur niður eftir enda
ekki komið þar í mörg ár. Við geng-
um niður að ströndinni og þar var
fjöldi útlendinga sem komið höfðu
með áætlunarbílum og bílaleigubil-
um. Veðrið var afar fagurt, sól skein
í heiði, fuglar flögruðu yfir eða
syntu í sjónum fyrir utan ströndina
og létt báran skolaði fjöruborðið.
Þarna var einkar friðsælt. Fjöldi
fólks var á ströndinni. Sumir voru á
gangi, aðrir stóðu lengi kyrrir við
fjöruborðið, horfðu út á hafið og
virtust hlusta á skvaldur bárunnar
við sandinn.
Við tókum sérstaklega eftir hópi
fólks sem hafði komið sér fyrir undir
berginu. Þar sat fólkið langa stund,
mælti ekki orð frá vörum, horfði út á
hafið, hlustaði á tóna náttúrunnar og
lét fíngerða steina fjörunnar sem
öldur höfðu velt og slípað í áranna
rás renna milli fingra sér. Þegar við
virtum ferðamennina undir berginu
fyrir okkur veltum við því fyrir okk-
ur að hugsanlega væri stund sem
þessi ein af dýrmætustu minning-
unum frá Íslandi sem fólkið tæki
með sér heim. Í hraða nútímans gef-
ur fólk sér of sjaldan tíma til þess að
njóta augnabliksins og í mörgum
löndum fer þeim stöðum fækkandi
þar sem fólk getur staldrað við og
fundið bein tengsl við náttúruna. Í
Dyrhólaey bíður ósnortin náttúra,
sandur, haf og fuglar ferðamanna
sem geta sest niður stutta stund og
tíminn stendur kyrr eitt augnablik.
Ef til vill verða slíkir staðir það eft-
irsóknarverðasta í Íslandsheimsókn
ferðamanna og það dýrmætasta sem
við getum boðið þeim.
ÞRÁINN ÞORVALDSSON
Brautarlandi 10, Reykjavík.
Hvað er eftirsóknar-
verðast fyrir ferðamenn
í Íslandsheimsókn?
Frá Þráni Þorvaldssyni:
Ætli ljósmyndarinn hafi náð að festa á filmu þá stund sem fólkið tekur
með sér heim sem dýrmætustu minninguna frá Íslandi?
Fallegt er að horfa yfir til Dyrhólaeyjar.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkom-
ur alla laugardaga kl. 11-12.30. Lofgjörð,
barnasaga, prédikun og Biblíufræðsla.
Barna- og unglingadeildir á laugardögum.
Létt hressing eftir samkomuna. Allir vel-
komnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10,
13 og 22 á FM 105,5.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Unglinga-
samkoma í kvöld kl. 21.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi.
Samkomur á laugardögum:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti. Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Styrmir Ólafsson. Bæna-
stundir á hverju kvöldi kl. 20-22 í hliðarsal
kirkjunnar. Allir velkomnir.
Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2,
Keflavík. Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðs-
þjónusta kl. 11. Umsjón: Ungt fólk úr
Reykjavík og Hafnarfirði. Allir hjartanlega
velkomnir.
Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40,
Selfossi. Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjón-
usta kl. 11. Ræðumaður Guðný Kristjáns-
dóttir.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmanna-
eyjum. Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta
kl. 11. Ræðumaður Gavin Anthony.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði.
Guðsþjónusta/Biblíufræðsla kl. 11. Ræðu-
maður: Jóhann Grétarsson. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Safnaðarstarf