Morgunblaðið - 19.07.2002, Síða 42
DAGBÓK
42 FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Odd-
geir og Hákon koma í
dag. Mánafoss, Árni
Friðriksson og Meloy-
fisk fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Vædderen kom í gær.
Vysokovsk og Viking
koma í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, kl. 14 bingó.
Árskógar 4. Bingó spil-
að næst 9. ágúst. Pútt-
völlurinn er opin kl. 10-
16 alla daga. Allar upp-
lýsingar í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8-
16 hárgreiðsla, kl. 8.30-
12.30 böðun, kl. 9-17
fótaaðgerð, kl. 13-16
frjálst að spila í sal.
Verslunarferð annan
hvern föstudag kl. 10-
11.30.
Félagsstarfið Dalbraut
18-20. Kl. 9-12 aðstoð
við böðun, kl. 9-16.45
hárgreiðslustofan opin.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Fimmtudaginn 25. júlí
verður ferð „á drauga-
slóðir í Árnessýslu“.
Leiðsögumaður Þór
Vigfússon sem mun gefa
þátttakendum innsýn í
voveiflega atburði sem
áttu sér stað í lág-
sveitum Árnessýslu fyrr
á öldum – sumir þessara
drauga ganga ljósum
logum enn þann dag í
dag.
Hann mun einnig lýsa
stað- og þjóðháttum á
svæðinu. Þuríðarbúð
verður skoðuð, enn-
fremur rjómabúið á
Baugsstöðum. Ekið
verður síðan um Gaul-
verjabæ og gegnum
Villingaholtshrepp að
Þingborg og til Selfoss.
Kaffhlaðborð að Básum
undir Ingólfsfjalli.
Lagt af stað frá Gjá-
bakka kl. 13.15 og frá
Gullsmára kl. 13.30
Þátttökulisti liggur
frammi í félagsheimilinu
Gjábakka og einnig má
skrá sig hjá ferðanefnd í
s. 554 0233 Bogi,
554 0999 Þráinn. Skráið
ykkur sem fyrst. Ferða-
nefndin.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10-12
verslunin opin, kl. 13
„opið hús“ spilað á spil.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Púttað á
Hrafnistuvelli kl 14-16.
Á morgun morg-
ungangan kl. 10 frá
Hraunseli. Rúta frá
Firðinum kl. 9.50 Fé-
lagsheimilið Hraunsel
verður lokað vegna
sumarleyfis starfsfólks
til 11. ágúst. Orlofs-
ferðir að Hrafnagili við
Eyjafjörð 19.-23. ágúst,
greiða þarf gíróseðlana
sem fyrst. Orlofsferð að
Höfðabrekku 10.-13.
sept. Skráning og upp-
lýsingar milli kl. 19 og
21 s. 555 1703, 555 2484
eða 555 3220.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10-13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Félagið
hefur opnað heimasíðu,
www.feb.is Dagsferð í
Húnavatnssýslu 24. júlí,
hringferð um Vatnsnes,
Hvammstangi, Bergs-
staðir, viðkoma í Hind-
isvík hjá Hvítserki, í
Borgarvirki og víðar.
Hafið hádegisnestis-
pakka með. Kaffihlað-
borð í Staðarskála.
Leiðsögumaður Þórunn
Lárusdóttir. Ath. sækið
miðana fyrir helgi.
Hringferð um Norð-
Austurland 17.-24.
ágúst. Vinsamlega at-
hugið að það þarf að
greiða staðfesting-
argjald fyrir 20. júlí nk.
Fyrirhugaðar eru ferðir
til Portúgals 10. sept-
ember í 3 vikur og til
Tyrklands 1. október í
10 daga fyrir fé-
lagsmenn FEB, skrán-
ing er hafin. Takmark-
aður fjöldi. Upplýsingar
á skrifstofu FEB. Silf-
urlínan er opin á mánu-
og miðvikudögum frá kl.
10-12 í s. 588 2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt í Faxafen 12, sama
símanúmer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31, (vinnustofa
lokuð frá 15. júlí til 23.
ágúst). Kl. 9-17 hár-
greiðsla, kl. 9.30 göngu-
hópur, kl. 14 brids. Mið-
vikudaginn 24. júlí
verður farið í ferð um
Reykjanes. Lagt af stað
kl. 10.30 frá Hæðargarði
með viðkomu á Sléttu-
vegi og Hvassaleiti. Ek-
ið verður um Vatns-
leysuströnd og í
Sandgerði og Fræða-
setrið skoðað. Farið að
Hvalsnesi og kirkjan
skoðuð. Leiðsögumaður
Pálína Jónsdóttir. Allir
útbúa sig með sitt nesti.
Tilkynna þarf þátttöku
sem fyrst, í síma
568 3132.
Gerðuberg, félagsstarf.
Lokað vegna sum-
arleyfa, opnað aftur
þriðjudaginn 13. ágúst.
Á vegum Íþrótta- og
tómstundaráðs eru sund
og leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug kl. 9.30
mánudaga, miðvikudaga
og föstudaga. Umsjón
Brynjólfur Björnsson
íþróttakennari.
Gjábakki, Fannborg 8.
Afgreiðslan er lokuð 15.
til 19. júlí. Matarþjón-
usta, kaffistofa, handa-
vinnustofa og annar
daglegur rekstur verður
eins og venjulega. Hár-
greiðslustofan verður
lokuð frá 15. júlí til 6.
ágúst.
Hraunbær 105. Kl. 9-12
baðþjónusta, kl. 9-12.30
bútasaumur, kl. 9-17
hárgreiðsla, kl. 9-17
fótaaðgerð, kl. 13-14
pútt.
Norðurbrún 1. Vinnu-
stofur lokaðar fram í
ágúst. Hárgreiðslustofa
lokuð vegna sumarleyfa
frá 16. júlí til 13. ágúst.
Ganga kl. 10.
Hvassaleiti 56–58. .
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing. Allir velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 9-16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 10 kántrý
dans, kl. 11 stepp, kl.
14.30 kaffi og dansað í
aðalsal.
Vitatorg. Kl. 9.30 morg-
unstund, kl. 13.30 bingó.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laugar-
dögum.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (ca.
16-25 ára) að mæta með
börnin sín á laugard. kl.
15-17 á Geysi, Kakóbar,
Aðalstræti 2 (gengið inn
Vesturgötumegin).
Opið hús og kaffi á
könnunni, djús, leikföng
og dýnur fyrir börnin.
Minningarkort
Bergmál, líknar- og
vinafélag. Minning-
arkort til stuðnings or-
lofs fyrir krabbameins-
sjúka og langveika fást í
síma 587-5566, alla daga
fyrir hádegi.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningarkort Thor-
valdsensfélagsins eru
til sölu í Thorvaldsens-
bazar, Austurstræti 4, s.
551-3509.
Samúðar- og heilla-
óskakort Gídeonfélags-
ins er að finna í anddyr-
um eða safnaðar-
heimilum flestra kirkna
á landinu, í Kirkjuhús-
inu, á skrifstofu
KFUM&K og víðar.
Þau eru einnig afgreidd
á skrifstofu Gídeon-
félagsins, Vesturgötu
40, alla virka daga frá
kl. 14-16 eða í síma
562 1870. Allur ágóði fer
til kaupa á Nýja testa-
mentum sem gefin
verða 10 ára skólabörn-
um eða gefin sjúkra-
húsum, hjúkrunarheim-
ilum, hótelum,
fangelsum og víðar.
Minningarspjöld
Kristniboðssambands-
ins fást á skrifstofunni,
Holtavegi 28 (hús
KFUM og K gegnt
Langholtsskóla) s. 588-
8899.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju eru til sölu
í kirkjunni í síma
587 9070 eða 587 9080.
Einnig er hægt að nálg-
ast kortin í Kirkjuhús-
inu, Laugavegi 31,
Reykjavík.
Líknasjóður Dómkirkj-
unnar, minningarspjöld
seld hjá kirkjuverði.
Í dag er föstudagur 19. júlí, 200.
dagur ársins 2002. Orð dagsins: En
ég vil færa þér fórnir með lofgjörð-
arsöng. Ég vil greiða það er ég hefi
heitið. Hjálpin kemur frá Drottni.
(Jónas 2, 10.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 illmenni, 4 kústur, 7
stafagerð, 8 vindurinn, 9
fjör, 11 friður, 13 skjóta,
14 hefja, 15 málmur, 17
muna óljóst eftir, 20
hress, 22 pretti, 23 óvætt-
ur, 24 galdurs, 25 þjónar
fyrir altari.
LÓÐRÉTT:
1 rúmin, 2 sjaldgæf, 3 lé-
legt, 4 skarn, 5 sekkir, 6
aflaga, 10 hólatröll, 12
vond, 13 spor, 15 skurð-
ar, 16 hugrekki, 18 spilið,
19 sálir, 20 gufu, 21 dæg-
ur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 skáldlegt, 8 sýpur, 9 nefið, 10 inn, 11 unnur, 13
armar, 15 hængs, 18 kraft, 21 ýsa, 22 látin, 23 plaga, 24
sinnulaus.
Lóðrétt: 2 kápan, 3 lúrir, 4 linna, 5 gæfum, 6 æsku, 7 ið-
ur, 12 ugg, 14 rýr, 15 hali, 16 nýtni, 17 sýnin, 18 kapal, 19
ataðu, 20 traf.
Víkverji skrifar...
Í MORGUNBLAÐINU í gær varmynd af manni og hundi sem voru
að skokka saman í rigningunni á ein-
um af göngu- og hjólastígum borgar-
innar. Það færist í vöxt að fólk skokki
með hundana sína og eflaust er það
hin bezta heilsubót og ánægjuleg
samverustund manns og dýrs. Hins
vegar furðar Víkverji sig á því að oft
eru skokkandi hundar ekki í bandi,
t.d. ekki hundurinn á myndinni.
Í samþykkt um hundahald í
Reykjavík segir í 11. grein að hundar
skuli ævinlega vera í taumi utanhúss í
borginni, en þó megi sleppa þeim
lausum á ákveðnum, afmörkuðum
svæðum. Víkverja sýnist að margir
hundaeigendur virði þessar reglur að
vettugi. Víkverji er hundavinur en
hann kýs þó að hundar, sem hann
mætir á förnum vegi, séu í bandi, þó
ekki væri nema vegna þess að hann
hefur lent í því að bláókunnugir
hundar vilja flaðra upp um hann –
auðvitað af tómum elskulegheitum –
og hafa þá stundum óhreinkað snyrti-
legan klæðnað Víkverja. Svo eru aðr-
ir, sem eru hræddir við hunda og vilja
alls ekki fá þá flaðrandi upp um sig.
Það er sjálfsögð tillitssemi við sam-
borgarana að hafa hundinn sinn í
bandi, líka þegar verið er að skokka.
x x x
VÍKVERJA finnst nýyrðið „lág-vöruverðsverzlun“ ósköp óþjált
og hvimleitt. Átt er við búðir, sem
leggja lítið upp úr innréttingum og
þjónustu en þeim mun meira upp úr
hagkvæmum innkaupum og halda
þannig verðinu niðri. Afbrigði orðsins
hefur reyndar líka skotið upp kollin-
um, sem er „lágvöruverzlun“. Það er
alveg út í hött og gefur til kynna að til
sé eitthvað sem heitir lágvara – og þá
væntanlega líka hávara, kannski
svona eins og lágmenning og hámenn-
ing. Svo má auðvitað endalaust deila
um hvort verð sé hátt eða lágt. Vík-
verji hefur heyrt a.m.k. tvær tillögur,
sem honum þykja skárri kostur. Það
eru sparnaðarverzlun og buddubúð.
x x x
LÍTIL dóttir Víkverja hugðist takaþátt í „sumarleik Coca Cola“
með því að safna svokölluðum „boing-
merkjum“ af kókflöskum og öðlast
þar með rétt til að kaupa „vinninga“,
merkta stórfyrirtækinu, á „afsláttar-
verði“ – sennilega svona rétt upp í
framleiðslukostnaðinn á Tævan eða í
einhverju öðru þriðjaheimsríki. Í
fyrri sumarleikjum hafa vinningarnir
iðulega verið upp urnir þegar sú
stutta hefur loksins verið búin að
safna nógu mörgum kóktöppum ein-
hvern tímann á miðju sumri (enda eru
foreldrar hennar þeirrar skoðunar að
hún eigi ekki að drekka mjög mikið
kók, sem er auðvitað í hróplegri and-
stöðu við hugmyndafræði sumarleiks-
ins). Í þetta sinn bauð Vífilfell hins
vegar upp á þá þjónustu að geta þess
á heimasíðu sinni hversu miklar
birgðir væru eftir af hverjum hlut.
Dóttur Víkverja langaði í Coca
Cola-handklæði og til að tryggja að
ekki yrði farin fýluferð í Elko, þar
sem vörurnar voru seldar, var athug-
að á heimasíðunni hvað væri eftir af
handklæðunum; það áttu að vera á
annað þúsund stykki. Annað reyndist
vera upp á teningnum þegar í Elko
var komið – öll handklæði búin. Það
var heldur súr framtíðarviðskiptavin-
ur Coca Cola sem fór heim aftur með
„boing“-merkin sín, sem henni þótti
ekki ástæða til að eyða á dótið, sem
eftir var.
Sinn er siður ...
FYRIR skömmu dvaldi ég
um hríð í Bandaríkjunum.
Það kom mér skemmtilega
á óvart hve oft mér var gef-
inn elliafsláttur; á söfnum, í
búðum og í strætó. Engu
máli skipti þótt ég væri út-
lendingur.
Þetta kom upp í hugann
þegar ég las bréfið hennar
Kristínar Bjarnadóttur í
Velvakanda í dag, 15. júlí.
Henni var synjað um eldri-
borgara afslátt í Húsdýra-
garðinum vegna þess að
hún á ekki heima í Reykja-
vík.
Sinn er siður í landi
hverju.
Edda Bjarnadóttir.
Leiðinleg dagskrá
MIG langar að kvarta yfir
leiðinlegri dagskrá í sjón-
varpinu, sérstaklega á virk-
um dögum.
Þór Ólafsson.
Tapað/fundið
Skýrsla og hárbursti
í plastpoka
SKÝRSLA og fleiri gögn
um umhverfismál ásamt
hárbursta í poka gleymdist
í Björnsbakaríi við Klapp-
arstíg 5. júlí sl. Upplýsing-
ar í síma 552 1531.
Kvenúr týndist
Í BYRJUN júlí týndist
„Rolex-úr“. Úrið er ekki
verðmætt en hefur minn-
ingagildi þar sem það var
keypt af götusala í Kína.
Gæti hafa týnst á Suður-
landi eða á höfuðborgar-
svæðinu. Skilvís finnandi
hafi samband við Sólveigu í
síma 553 6239 og 895 6132.
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU fundust á
Skólavörðustíg sl. fimmtu-
dag. Upplýsingar í síma
568 6972.
Dýrahald
Emma er týnd
EMMA er grábröndótt
með rauðum yrjum og
rauðri stjörnu á enni. Hún
er ómerkt. Hún týndist frá
Kleppsvegi 10. júlí sl. Þeir
sem hafa orðið hennar varir
hafi samband í síma
557 5703 og fh. í síma
440 3379.
Dímon er týndur
DÍMON er grár á litinn og
hann hvarf frá heimili sínu
aðfaranótt þriðjudagsins 9.
júlí og hefur ekki sést síð-
an. Dímon er með svarta ól
með bláu merkispjaldi sem
hann hefur nagað. Hann er
inniköttur en stökk af svöl-
unum heima hjá sér og er
líklegt að hann leiti inn í
hús.
Ef sést hefur til hans vin-
samlega hafið samband við
Snorra og Huldu í síma
861 3371 eða 562 6295 e. kl.
18.00.
Blár ástargaukur
týndist
BLÁR ástargaukur týndist
4. júlí í Holtunum. Þeir sem
hafa orðið hans varir hafi
samband í síma 552 0277.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
FYRIR nokkrum dögum hlustaði ég á
viðtalsþátt í RÚV þar sem talað var
við konu í Reykjavík sem tekur að sér
að ganga með fólki um Þingholtin og
næsta nágrenni miðborgarinnar.
Ferðirnar eru kallaðar „menning-
arferðir“ og er svo sem ekkert við það
að athuga. Ég hrökk hins vegar við
þegar þáttarstjórnandinn spurði kon-
una hvort þetta væru ekki miklu
skemmtilegri ferðir en „með svona
einhverjum leiðsögumanni“ sem færi
bara á eitt ákveðið safn og svo ekkert
meira.
Hér finnst mér stjórnandinn vega
að fólki sem hefur sótt sér fag-
menntun sem leiðsögumenn og fylgir
ferðamönnum í alls konar ferðir um
Reykjavík og nágrenni, bæði gang-
andi og akandi, heimsækir bæði söfn
og sundlaugar, fiskmarkað og kirkjur
og ýmislegt fleira.
Mér leikur forvitni á að heyra frá
stjórnandanum hvað hann hafi átt við
með orðunum „svona einhverjum leið-
sögumanni“.
Mér finnst þetta það neikvætt og
meiðandi fyrir þessa starfsstétt að
ástæða sé til að fá skýringu hjá þeim
sem þannig talar til alþjóðar.
Með fyrirfram þakklæti.
Leiðsögumaður.
„Með svona einhverjum
leiðsögumanni“