Morgunblaðið - 23.07.2002, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Kvöldgöngur um Borgarfjörð og nágrenni
Gengið um í
kvöldkyrrðinni
UngmennasambandBorgarfjarðarstendur fyrir
kvöldgöngum um byggðir
Borgarfjarðar í sumar.
Morgunblaðið ræddi við
Ásdísi Helgu Bjarnadótt-
ur, sambandsstjóra
UMSB, um gönguferðirn-
ar.
– Hvert var upphaf
gönguferðanna?
„Þannig var mál með
vexti að þegar Skógrækt-
arfélag Borgarfjarðar hélt
upp á 80 ára afmæli sitt ár-
ið 1998 lagði ég fram þá
hugmynd að félögin myndu
standa saman að göngu-
ferðum um skógana hér í
Borgarfirði. Þannig hófust
kvöldgöngurnar, og vöktu
þær mikla lukku meðal
innansveitarmanna og annarra.
Að vísu var viðbúið að sumarbú-
staðaeigendur hér í nágrenninu
myndu slást í för, en færri þeirra
hafa mætt en við áttum von á. Von-
umst við þó alltaf eftir nýjum gest-
um í göngurnar hjá okkur.“
– Hafa göngurnar síðan verið á
ykkar dagskrá?
„Já, áhuginn var svo mikill að
Ungmennasamband Borgarfjarð-
ar ákvað að halda þessu áfram.
Þetta er því fjórða sumarið sem
við bjóðum upp á kvöldgöngur af
þessu tagi. Við ákváðum að leita
fanga víðar um svæðið til göngu-
ferða, til dæmis að skoða menning-
arminjar og náttúruperlur í sýsl-
unni. Að sama skapi þótti okkur
spennandi að skoða dýralíf eða
náttúrufar á einstökum stöðum.
Þetta er útivist fyrir alla fjölskyld-
una og fræðandi ferð um héraðið.
Ókeypis er í gönguferðirnar.“
– Eru leiðsögumenn með í för?
„Já, fyrsta sumarið fengum við
umsjónarmenn skógræktarinnar
til að segja almenningi frá rækt-
uninni, aldursgreiningu trjáa, teg-
undunum og sögu skógræktarinn-
ar. Hin síðari ár höfum við svo
fengið heimamenn til að leiða
gönguna, enda eru þeir oft fróðir
um umhverfið, eða þá sérfræðinga
á ýmsum fræðasviðum til að miðla
þekkingu sinni. Við höfum lagt
áherslu á að viðkomandi tengist
svæðinu og þekki það mjög vel.“
– Er farið á sömu staði árlega?
„Nei, á þessu fjögurra ára tíma-
bili höfum við enn aldrei farið
sömu leið aftur. Fjölbreytnin er
svo mikil, og við erum hvergi
nærri búin að þræða alla fallega
staði hér um slóðir, enda spretta
hugmyndir fram um nýjar göngu-
leiðir. Við förum um níu göngur á
hverju ári, annan hvern fimmtu-
dag yfir sumarið.“
– Kvöldgöngur samræmast
sannarlega starfi sambandsins.
„Já, þær gera það, sérstaklega í
tilefni af átaki UMFÍ, „Göngum
um Ísland“, sem hleypt var af
stokkunum í vor. Gefin var út
handhæg gönguleiðabók, þar sem
við tilnefndum nokkrar gönguleið-
ir sem okkar framlag. Kvöldgöng-
urnar smellpassa inn í starf sam-
bandsins á þennan hátt,
en ólíkt gönguleiðunum
í bókinni eru okkar ferð-
ir um ómerktar slóðir
og ekki á allra færi að
rata þær án leiðsagnar.
Einnig völdum við fjall til að ganga
á þar sem árið 2002 er ár fjallsins.“
– Bíddu nú við, völduð þið fjall?
„Já, árið í ár er ár fjallsins, og
umhverfisnefnd UMFÍ, sem ég á
sæti í, lagði til að hvert og eitt hér-
aðssamband tilnefndi fjall á sínu
svæði um leið og það legði til
gönguleiðir. Fjallið skyldi vera að-
gengilegt fyrir alla fjölskylduna og
ekki endilega algengt að fólk gengi
á það. Hinn 22. júní var farið með
gestabækur á ein 16 fjöll víðs veg-
ar um landið til þess að þátttak-
endur gætu ritað nöfn sín. Við til-
nefndum Hestfjall, sem stendur
við mynni Skorradals og Lundar-
reykjadals. Það er rétt um 200
metra hátt og mjög aðgengilegt.
Fyrsta gangan í sumar var á Hest-
fjall, með eigendum landsins, og
komum við fyrir gestabókinni.“
– Hvert er leiðinni heitið á næst-
unni?
„Hinn 25. júlí, á fimmtudaginn,
verður gengið á Grábrók og
Brekkurétt skoðuð. Það er gömul
fjárrétt, hlaðin úr hraungrýti. Þór-
hildur Þorsteinsdóttir, bóndi í
Brekku, mun leiða gönguna. Mæt-
ing er við bílastæðið við Grábrók
kl. 8 um kvöldið. Þarnæsta ganga
er hinn 8. ágúst, þá verður farið
um fornan árfarveg Hvítár inn við
Húsafell og Kalmanstungu. Það er
stórskemmtileg leið með fjölda
skessukatla. Björn Þorsteinsson,
sem er mikill plöntu- og grasa-
fræðingur, mun leiða þá göngu, og
verður hist við verslunina í Húsa-
felli. Síðari gangan í ágúst er svo
hinn 25. klukkan 19.30, þá verður
gengið í Skálpastaða-
skógi í Skorradal, og
mun Ágúst Árnason,
fyrrum skógarvörður,
ganga með hópinn. Þá
munum við skoða
sveppi, og einnig trjátegundir sem
eiga erfitt uppdráttar hér á landi,
en þrífast í skjólinu í Skorradal.
Loks má nefna að við ætlum að
skoða asparræktina við Járn-
blendiverksmiðjuna hinn 5. sept-
ember, og höfum við verið í sam-
starfi við starfsmannafélagið þar
um skipulagningu þeirrar ferðar.“
Nánari upplýsingar um sam-
bandið má finna á www.umsb.is.
Ásdís Helga Bjarnadóttir
Ásdís Helga Bjarnadóttir
fæddist á Akranesi árið 1969.
Hún lauk stúdentsprófi af
íþróttabraut eftir nám í Héraðs-
skólanum í Reykholti og Fjöl-
brautarskóla Vesturlands á
Akranesi, prófi frá Hússtjórn-
arskólanum á Hallormsstað, Bú-
fræði- og búfræðikandidatsprófi
frá Bændaskólanum á Hvanneyri
og Cand.agr. í garðyrkjufræðum
frá Norges Landbrukshøgskole á
Ási í Noregi. Nú starfar hún við
Lífræna miðstöð LBH – upplýs-
ingamiðstöð fyrir lífræna rækt-
un á Hvanneyri. Hún er formað-
ur Búnaðar- og garðyrkju-
kennarafélags Íslands, situr í
stjórn Ungmennafélags Íslands
(UMFÍ) og hefur auk þess verið
sambandsstjóri Ungmenna-
sambands Borgarfjarðar frá
árinu 1998. Ásdís Helga býr á
Hvanneyri með syni sínum, Guð-
mundi Snorra Sigfússyni.
Áhersla lögð
á fræðslu og
skemmtun
ÁRNI ÞÓR Sigurðsson, forseti
borgarstjórnar Reykjavíkur, tók
nýverið fyrstu skóflustungu að
nýbyggingu fyrir aldraða við Dal-
braut 14. Í byggingunni, sem
Samtök aldraðra standa að, verða
27 íbúðir.
Íbúðunum hefur þegar verið út-
hlutað, en reiknað er með að hús-
ið verði fokhelt í janúar og íbúð-
irnar fullbúnar til afhendingar
15. september 2003. Næst hyggj-
ast Samtök aldraðra láta byggja
hús með um 50 íbúðum á lóð við
Sléttuveg í Fossvogi.
Stungið í svörðinn
Morgunblaðið/Sverrir