Morgunblaðið - 23.07.2002, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 9
OFT er fólk í vandræðum með
hvaða lit það á að velja á húsin sín
þegar þau eru máluð. Kjartan
Keen á ekki við þetta vandamál að
stríða. Það er miklu frekar að
hann sé í vandræðum með að
finna nógu stóra fleti á húsinu
sínu til að mála því þótt hann hafi
málað nokkur hús á hefðbundinn
hátt finnst honum mun skemmti-
legra að gefa ímyndunaraflinu
lausan tauminn og skreyta hús
með myndum. Þannig málaði hann
nýlega þessa myndarlegu tröll-
skessu á gaflinn á húsinu sínu og
má telja víst að ekkert annað ill-
þýði komist að húsinu meðan sú
gamla er á gafli þess. Ekki vildi
Kjartan gefa upp hver væri fyr-
irmyndin að skessunni hjá sér.
Tröllskessa á ferð
Morgunblaðið/ÓB
Skagaströnd. Morgunblaðið
„FYRST og fremst er það styrking
krónunnar sem veikir rekstrar-
grundvöll okkar vegna þess að við
fáum minna fyrir afurðirnar en áð-
ur,“ svarar Kristján Ragnarsson,
formaður Landssambands íslenskra
útvegsmanna, LÍÚ, þegar hann er
spurður um áhrif gengisbreytinga
erlendra gjaldmiðla á íslensk útvegs-
fyrirtæki.
Á síðustu 12 mánuðum hefur
gengi dollars gagnvart krónunni fall-
ið um tæplega 20% eða úr 103 krón-
um í 83 krónur. Krónan hefur einnig
verið að styrkja sig gagnvart fleiri
gjaldmiðlum. „Á móti kemur hins
vegar t.d. öryggi á vinnumarkaði og
að sum aðföng okkar eru í dollurum,
t.d. olían, svo það hefur í för með sér
lækkun sem skiptir mjög miklu máli
fyrir okkur.“
Kristján segir styrkingu krónunn-
ar gagnvart erlendri mynt vera
komna út á ystu nöf, „og gæti farið
að skaða greinina. Krónan hefur
styrkst mjög mikið og það veldur
lækkuðu vöruverði og minni verð-
bólgu sem er í okkar hag, en á móti
kemur að við fáum minna fyrir af-
urðirnar svo tekjurnar minnka.
Ákveðinn fórnarkostnaður er þó
réttlætanlegur til þess að tryggja
vinnufrið. Staða sjávarútvegsins í
heild er það góð að við eigum að geta
búið við núverandi ástand en það
sem myndi gerast héðan í frá gæti
valdið okkur erfiðleikum,“ sagði
Kristján.
Frekari styrking
krónunnar gæti
skaðað sjávarútveginn
LÖGREGLAN í Vestmannaeyjum
fann 5,5 grömm af hassi í bifreið á
sunnudagskvöld. Lögregla var við
eftirlit við Herjólf en bifreiðin kom
úr ferjunni og þótti ökumaðurinn
grunsamlegur. Að sögn lögreglu
var maðurinn handtekinn og var
fíkniefnahundur lögreglunnar lát-
inn leita í bifreiðinni.
Við leitina fannst hassið í bif-
reiðinni, auk þess sem áhöld til
fíkniefnaneyslu fundust á heimili
mannsins. Maðurinn játaði við yf-
irheyrslu að eiga efnið og sagði
það vera til einkanota.
Fíkniefnahundurinn, schaeffer-
tíkin Tanja, er mikið notaður og
stendur sig vel, að sögn lögreglu.
Hass fannst
í bíl í Vest-
mannaeyjum
ÖKUMAÐUR bifreiðar, sem
grunaður var um ölvun við akst-
ur, var stöðvaður í Ártúns-
brekku aðfaranótt sunnudags.
Hann sinnti ekki stöðvunar-
merkjum lögreglu og þegar
hann gerði sig líklegan til að aka
upp Ártúnsbrekku á móti um-
ferð ók lögreglubifreið utan í bif-
reið mannsins til þess að þvinga
hann út af götunni og var hann
tekinn í vörslu lögreglunnar.
Reyndi að
aka á móti
umferð
Útsala - Útsala
ÚTSALA - ÚTSALA
Viðbótarafsláttur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
15%
aukaafsláttur
af allri
útsöluvöru
Ennþá frábært úrval!
Bankastræti 14, sími 552 1555
Áfram með fataveisluna
Allt að 90% afsláttur
Nýjar vörur að birtast
Matseðill
www.graennkostur.is
22/7-29/7 frá GRÆNUM KOSTI, Skólavörðustíg 8.
Opið mánudaga-laugardaga kl. 11.30-21.00,
sunnudaga kl. 13.00-21.00. Pantanir í síma 552 2028,
skrifstofa 552 2607, fax 552 2607
Mán. 22/7: Speltpasta í girnilegri grænmetissósu
m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti.
Þri. 23/7: Sumarlegur grænmetispottréttur o.fl.
m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti.
Mið. 24/7: Saffranlasagna með jarðeplum, fersku
salati, hrísgrjónum & meðlæti.
Fim. 25/7: Grænmetisflatbaka & baunasalat m/fersku
salati, hrísgrjónum & meðlæti.
Fös. 26/7: Austurlenskur karrýpottréttur & kúss kúss
m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti.
Helgin 27/7 & 28/7: Indverskt dahl & fleira gott
m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti.
Mán. 29/7: Pönnukökukaka & sumarsalat.
Ath! Öll hrísgrjón eru lífrænt ræktuð sem og annað hráefni eftir
árstíð og föngum. Almennur skammtur kr. 800, aðeins stærri
skammtur kr. 1.000. Ýmsar bökur og kökur, lífrænt te og kaffi, gos
og safar. Best er að panta milli kl. 9.00 og 10.00 samdægurs.
Hringið og fáið nánari upplýsingar í síma 552 2607 eða 552 2028.
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473
Útsalan
í fullum gangi
25-50%
afsláttur
Útsalan í fullu fjöri
Allt með 50% afslætti
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, s. 553 2347
Fataprýði, sérverslun. Sérhönnun st. 42-56
Ný haustsending -
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Opið mán.-fös. kl. 10-18,
laugardag kl. 10-14
Sumarútsala allt að 50% afsláttur
Síðumúla 3-5
sími 553 7355
Opið mán.-fös. kl. 11-18,
laugard. kl. 11-15.
ÚTSALA
Undirföt - Sundföt
20-50% afsl.
undirfataverslun
! "# $% & '(
!
"
#$
%&
&&&
)
)**+
'& ,