Morgunblaðið - 23.07.2002, Síða 13
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 13
Öflugt bætiefni
Ath. 24 mg í hverjum belg
www.islandia.is/~heilsuhorn
Fyrir augun
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Árnesaptóteki Selfossi og
Yggdrasil Kárastíg 1.
Það er óþarfi að hafa líka áhyggjur af bílaviðskiptum
Traustir fjölskylduvinir
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
18
34
0
07
/2
00
2
BMW 320 Coupe.
Skráður: Október 2001.
Vél: 2000 cc, 5g.
Ekinn: 5000 km.
Litur: Svartur.
Verð: 3.670.000 kr.
Útbúnaður: Leður,sóllúga,
viðarinnrétting, sportsæti,
álfelgur ofl.
Mitsubishi Pajero GLS DID
Skráður: Júní 2000.
Vél: 3200 cc, ssk.
Ekinn: 78.000 km.
Litur: Blár.
Verð: 3.960.000 kr.
Toyota Landcruiser 90
Skráður: Nóvember 2000.
Vél: 3000 cc, 5g.
Ekinn: 50.000 km.
Litur: Svartur/Grár.
Verð: 3.690.000 kr.
Útbúnaður: 35" breyting,
varadekkshlíf, grillgrind ofl.
Volkswagen Golf GT VR6
Árgerð: 2000.
Vél: 2800 cc, 5g.
Ekinn: 18.000 km.
Litur: Svartur.
Verð: 2.250.000 kr.
Útbúnaður: Álfelgur, sól-
lúga ofl.
Audi A8 Quattro.
Árgerð: 1995.
Vél: 4200 cc ssk.
Ekinn: 129.000 km.
Litur: Dökkgrár.
Verð: 2.990.000 kr.
Einn með öllu.
Við bjóðum áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti. Allir notaðir bílar hjá okkur fara í gegnum strangt skoðunarferli. 14 daga skiptiréttur. Ókeypis skoðun eftir
fyrstu þúsund kílómetrana. Allt að eins árs ábyrgð á notuðum bílum. Skoðaðu úrvalið á Nýbýlavegi 4, á www.toyota.is eða hringdu í síma 570 5070.
KRAKKARNIR á myndinni komu á
dögunum fram á skemmtun hjá
Hjálpræðishernum á Akureyri í því
skyni að safna fé til styrktar ABC
hjálparstarfi. Þau söfnuðu alls
3.899 krónum sem þegar hafa verið
lagðar inn á reikning ABC, og eiga
að renna til 11 eða 12 ára stúlku
sem heitir Jayja og býr á Heimili
litlu ljósanna, sem svo er kallað.
„Við skipulögðum skemmtun;
leikrit, brúðuleikhús og fleira og
það var selt inn. Við auglýstum
þetta úti í bæ og það komu bæði
fullorðnir og krakkar. Að vísu ekki
mjög margir, en það getur vel verið
að við höldum aðra skemmtun,“
sagði Þorsteinn Sævar Krist-
jánsson, sem kvaðst vera talsmaður
hópsins.
Krakkarnir eru, frá vinstri á
myndinni: Bjarki Freyr Jónsson,
Ísak Herner Konráðsson, Þorsteinn
Sævar, Valdís Eiríksdóttir og Íris
Erlingsdóttir.
ABC hjálparstarf er íslenskt,
samkirkjulegt hjálparstarf, sem var
stofnað árið 1988 af nokkrum
kristnum einstaklingum og er
markmið þess að veita hjálp sem
kemur að varanlegu gagni, að-
allega með því að gefa fátækum
börnum kost á skólagöngu og heim-
ilislausum börnum heimili.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Krakkar á Akureyri sem söfnuðu 3.899 krónum til ABC-hjálparstarfs á
Indlandi með skemmtun hjá Hjálpræðishernum. Frá vinstri: Bjarki
Freyr Jónsson, Ísak Herner Konráðsson, Þorsteinn Sævar Kristjánsson,
Valdís Eiríksdóttir og Íris Erlingsdóttir.
Söfnuðu fyrir
Jayja á Indlandi
TAP varð á rekstri íþróttafélags-
ins Þórs samkvæmt fjögurra mán-
aða uppgjöri og hefur Akureyr-
arbær því tilkynnt forsvars-
mönnum félagsins að rekstar-
styrkur til félagsins verði ekki
greiddur út um næstu mánaðamót.
Samkvæmt samningi sem tók gildi
um síðustu áramót og er við fjögur
íþróttafélög í bænum skuldbinda
þau sig til að reka starf sitt með
hagnaði. Þá er þeim einnig skylt
að ráðstafa hagnaði einstakra
deilda til að mæta tapi annarra, en
verði það ekki gert er bænum
heimilt að draga úr fjárframlögum
sínum.
„Fjárhagur félagsins er með
þeim hætti að það uppfyllir ekki
skilyrði samningsins,“ sagði Krist-
ján Þór Júlíusson, bæjarstjóri.
„Ég geri ráð fyrir að forsvars-
menn félagsins muni gera okkur
grein fyrir tillögum sínum varð-
andi það með hvaða hætti tekið
verði á vandanum.“
Akureyrarbær hefur gert samn-
inga við fjögur íþróttafélög í bæn-
um, Þór, KA, Golfklúbb Akureyrar
og Skautafélag Akureyrar. Í hon-
um felst að bærinn leggur félögun-
um til fjármagn til að reka mann-
virki, íþróttavelli og skrifstofur.
Ýmis skilyrði eru í samningum af
hálfu bæjarins varðandi rekstrar-
styrkina, en þau lúta m.a. að
ábyrgri fjármálastjórn og er bæn-
um heimilt að hafa eftirlit með
bókhaldi félaganna. Þeim er gert
að skila ársfjórðungslega uppgjöri
til fjármálastjóra ÍBA og sam-
kvæmt fyrsta uppgjörinu varð tap
af rekstri Þórs á umræddu tíma-
bili.
Skila tillögum um
viðbrögð í lok vikunnar
Jón Heiðar Árnason, formaður
Íþróttafélagsins Þórs, sagði að tap
hefði verið af rekstri hand- og
körfuknattleiksdeilda félagsins á
tímabilinu. „Við munum í lok vik-
unnar skila inn tillögum til bæj-
arins um á hvern hátt við munum
bregðast við. Það er margt hægt
að gera til að laga stöðuna og ég
held að okkur muni takast að losa
okkur úr snörunni,“ sagði Jón
Heiðar.
Hann sagði ferðakostnað félags-
ins gífurlegan eða allt að 25 millj-
ónir króna á ári. Félagið er með
meistaraflokka í þremur greinum,
knattspyrnu, handknattleik og
körfubolta. Jón Heiðar sagði
rekstur körfuknattleiksdeildar af-
ar erfiðan og í raun þýddi hver
leikur tap. Áhorfendur væru fáir
og innkoman því afar lítil. Ekki
hefði þó verið rætt af alvöru um að
hætta rekstri deildarinnar. „Það
þarf mikið að koma til ef við hætt-
um þessu alveg,“ sagði hann.
Félögin ekki
í gjörgæslu
Þröstur Guðjónsson, formaður
Íþróttabandalags Akureyrar, sagði
að hin félögin þrjú sem gert hafi
samninga við Akureyrarbæ hafi
verið réttu megin við núllið í árs-
fjórðungsuppgjörinu. „Við gerum
okkur vonir um að þó svo Þór hafi
fengið þessa viðvörun núna muni
yfirvöld bæjarins setjast niður
með stjórn Þórs og fara yfir málið
og hvað hægt sé að gera í framtíð-
inni. Menn verða að taka höndum
saman, það er það eiga sem gild-
ir,“ sagði Þröstur.
Kristján Þór sagði að Akureyr-
arbær væri ekki með hin félögin
þrjú í gjörgæslu eins og haldið
hefði verið fram. „Við styrkjum
starfsemi íþróttafélaganna, en þau
verða að spila úr þeim fjármunum
sem þau fá eins og þeim þykir best
og vera ábyrgð gerða sinna.“
Enginn rekstrar-
styrkur til Þórs
vegna tapreksturs