Morgunblaðið - 23.07.2002, Síða 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 17
STJÓRNVÖLD á Spáni og í Mar-
okkó staðfestu í gær að sam-
komulag hefði náðst í deilu
ríkjanna um Perejil-eyju sem er
um 200 m undan strönd Marokkó.
Ríkin lofuðu að fjarlægja af eyj-
unni allar „útstöðvar, fána og tákn
um yfirráð“, þannig að aftur yrði
horfið til þeirrar stöðu mála sem
var áður en stjórnvöld í Marokkó
sendu þangað hermenn 11. júlí.
Ana Palacio, utanríkisráðherra
Spánar (fyrir miðju), er hér á leið
til fundar við utanríkisráðherra
Marokkó í Rabat þar sem þau
ræddu deiluna í gær. Viðræðunum
verður haldið áfram í Madrid í
september.
Samkomu-
lag um
Perejil
staðfest
AP
SHIMON Peres, utanríkisráðherra
Ísraels, sagði í gær að Ísraelar væru
tilbúnir að draga herinn til baka frá
tveimur borgum á Vesturbakkanum
svo lengi sem palestínskar öryggis-
sveitir væru reiðubúnar að taka við
stjórn þar og koma í veg fyrir árásir
á ísraelska borgara. Þá sagði Peres
að Ísraelar gætu hugsað sér að láta
af hendi allt að tíu prósent af palest-
ínskum skattpeningum sem Ísraelar
hafa fryst frá því að átökin hófust
fyrir tæpum tveimur árum, ef tryggt
væri að peningarnir yrðu ekki not-
aðir til að fjármagna hryðjuverk.
Palestínumenn hafa krafist þess
að ísraelski herinn hverfi frá öllum
sjö borgum og bæjum sem eru nú
undir hans stjórn og að Ísraelar láti
af hendi allt það fé sem með réttu sé
Palestínumanna, en samtals er um
að ræða 50 milljarða íslenskra
króna.
Peres staðfesti fréttir þess efnis
að til greina kæmi að herinn yfirgæfi
Betlehem og Hebron á suðurhluta
Vesturbakkans. „Sumar borgir eru
rólegri en aðrar,“ sagði hann. „Við
viljum fyrir alla muni hverfa þaðan
um leið og Palestínumenn geta hald-
ið uppi lögum og reglu.“
Saeb Erekat, ráðherra í palest-
ínsku heimastjórninni, sagði hins
vegar að Palestínumenn gætu ekki
sætt sig við neina málamiðlun. „Við
samþykkjum ekki neina takmarkaða
lausn, takmarkaðan brottflutning
hermanna eða takmarkaðar
greiðslur á okkar fé,“ sagði Erekat.
„Eina lausnin á vandamálinu er að
binda enda á hernámið.“
Ísraelski herinn hertók fyrir rúm-
um mánuði sjö af átta stærstu borg-
um og bæjum Palestínumanna á
Vesturbakkanum eftir hrinu sjálfs-
morðsárása, og hefur útgöngubann
verið í gildi í bæjunum síðan. Bann-
inu var aflétt um stundarsakir í
nokkrum bæjum í gær, þar á meðal
Hebron.
Ólöglegir nauðungarflutningar
Útlit er fyrir að áform Ísraela um
að flytja 21 ættingja sjálfsmorðs-
árásarmanna frá Vesturbakkanum
til Gaza-svæðisins muni ekki ganga
eftir. Í áliti, sem ríkissaksóknara-
embættið í Ísrael lét vinna, segir að
ólöglegt sé að flytja menn nauðuga
viljuga nema hægt sé að færa á það
sönnur að þeir hafi með beinum
hætti tekið þátt í að skipuleggja eða
framkvæma hryðjuverkin. Talsmað-
ur Ariels Sharons, forsætisráðherra
Ísraels, sagði að farið yrði eftir álit-
inu en verið væri að rannsaka hvort
einhver mannanna tengdist hryðju-
verkum ættmenna sinna á þann hátt
að mögulegt væri að flytja þá til
Gaza.
Nokkur þíða hefur læðst inn í
samskipti Palestínumanna og Ísr-
aela síðustu daga. Heimastjórn Pal-
estínumanna lét handtaka yfirmann
skattheimtunnar fyrir spillingu, en
bæði Bandaríkjamenn og Ísraelar
hafa lagt hart að heimastjórninni að
taka á spillingu, sem þykir landlæg
innan hennar. Ísraelar opnuðu í gær
skrifstofu Sari Nusseibehs, rektors
Al Quds-háskólans í Jerúsalem, sem
hafði verið lokað 9. júlí síðastliðinn.
Nussbeieh er háttsettur maður inn-
an Frelsissamtaka Palestínu (PLO),
og var honum gefið að sök að hafa
notfært sér stöðu sína í háskólanum
til að vinna PLO brautargengi.
Hann hefur nú lofað því að starf
hans innan samtakanna verði ekki
tengt háskólanum.
Tilslakanir af
hálfu Ísraela
í vændum
Jerúsalem. AP, AFP.
Nauðungarflutningar á ættingjum
sjálfsmorðsárásarmanna ólöglegir
HUNDRUÐ óbreyttra borgara
hafa fallið í hernaði Bandaríkja-
manna í Afganistan undanfarna
sex mánuði, að því er fram kemur
í The New York Times sl. sunnu-
dag. Ástæðan er sögð sú tilhneig-
ing Bandaríkjahers að vilja beita
loftárásum en þær ógna ekki lífi
og limum bandarískra hermanna í
sama mæli og landhernaður
myndi gera. Þá hafa upplýsingar
frá Afgönum, um skotmörk á
jörðu niðri, ekki alltaf reynst fylli-
lega áreiðanlegar.
Haft er eftir talsmönnum
bandarísku samtakanna Global
Exchange í The New York Times
að eftirgrennslan þeirra hafi leitt í
ljós að mannfall í röðum óbreyttra
borgara sé á níunda hundraðið.
Þessa tölu dró talsmaður Hamids
Karzai, forseta Afganistans, hins
vegar í efa og sagði færri en 500
óbreytta borgara hafa beðið bana.
Áframhaldandi hernaðarað-
gerðir Bandaríkjamanna í Afgan-
istan miða að því að ráða niðurlög-
um þeirra talibana og liðsmanna
al-Qaeda, hryðjuverkasamtaka
Osma bin Ladens, sem enn hafast
við í landinu. Hefur stjórn Karzais
fram að þessu varið framgöngu
Bandaríkjamanna en mannfallið í
Oruzgan-héraði fyrr í þessum
mánuði, þegar a.m.k. 54 óbreyttir
borgarar biðu bana í loftárásum
Bandaríkjahers, breytti afstöðu
Afgana hins vegar mikið.
Þykja ummæli, sem höfð eru
eftir Abdullah utanríkisráðherra
benda til að þeir vilji framvegis
hafa meira um það að segja hvern-
ig Bandaríkjamenn haga aðgerð-
um sínum; jafnvel að afgönsk
stjórnvöld muni leitast við að setja
þeim stólinn fyrir dyrnar. „Þeir
verða að fela okkur stærra hlut-
verk,“ sagði Abdullah í samtali við
The New York Times. „Ef ástand-
ið batnar ekki þá mun ég kannski
áfram óska Bandaríkjamönnum
velfarnaðar en ég mun ekki leng-
ur geta stutt þessar aðgerðir.“
Upplýsingar stríðsherra
stundum vísvitandi rangar
Eftirgrennslan á ellefu stöðum,
þar sem talið er öruggt að a.m.k.
400 óbreyttir borgarar hafi fallið,
hefur leitt í ljós að jafnvel þar sem
sannarlega var ráðist gegn hern-
aðarmannvirkjum talibana og al-
Qaeda hafi óbreyttir borgarar oft
og tíðum fallið einnig, sökum
þeirrar stefnu Bandaríkjahers að
spara engu til í loftárásum sínum.
Er fullyrt að bandaríska varn-
armálaráðuneytið styðjist oftar en
ekki við upplýsingar frá afgönsk-
um stríðsherrum um skotmörk á
jörðu niðri en þeir hafa verið afar
gjarnir á að deila innbyrðis. Kom-
ið hafi á daginn að þessar upplýs-
ingar séu oft ónákvæmar, jafnvel
stundum vísvitandi rangar en að
Bandaríkjaher hafi þrátt fyrir það
verið reiðubúinn til að láta til
skarar skríða á grundvelli þeirra.
Þessu hafna yfirmenn í banda-
ríska hernum.
Hernaðurinn í Afganistan
Hundruð
óbreyttra
borgara féllu
Washington, Kabúl. AFP.
YFIRVÖLD í Grikklandi ákærðu í
gær 36 ára strætisvagnstjóra, Thom-
as Serifis, fyrir aðild að hryðjuverka-
samtökum. Er hann níundi maðurinn
sem hefur verið handtekinn og
ákærður fyrir aðild að marxistahreyf-
ingunni 17. nóvember sem hefur lýst
á hendur sér 23 pólitískum morðum
og um 50 sprengju- og flugskeyta-
árásum frá 1975.
Serifis var einnig ákærður fyrir
þátttöku í sprengjuárás árið 1989 og
vopnuðum ránum. Þrír hinna ákærðu
sögðu fyrir rétti á sunnudag að þeir
væru félagar í 17. nóvember og hefðu
tekið þátt í morðum og ránum.
Níundi liðsmaður 17.
nóvember ákærður
Aþenu. AFP.