Morgunblaðið - 23.07.2002, Blaðsíða 21
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 21
Tölvuskóli
Til sölu nýlegur og frábær tölvuskóli sem er með nýlegan útbúnað,
frábær ný skólagögn sem einnig eru seld á hinum almenna markaði í
miklu magni. Mikil aðsókn er að skólanum. Kennarar eru undirverktak-
ar, hópur af vel menntuðum sérfræðingum. Arðsamt fyrirtæki sem
selst eingöngu vegna mikilla anna eigandans. Glæsilegt húsnæði í
sanngjarnri leigu. Frábær aðstaða. Mikill hagnaðartími framundan.
Rafeindavirkjar
Til sölu eitt elsta rafeindaverkstæði landsins vegna veikinda eig-
anda en sami eigandi hefur verið frá upphafi. Sérhæfir sig í tal-
stöðvum og þess háttar tækjum og er þekktur. Húsnæðið fylgir
ekki. Góð mælitæki. Selst ódýrt.
STOFNUN Sigurðar Nordals og
Norræna húsið gangast fyrir al-
þjóðlegri ráðstefnu um Hringa-
dróttins sögu eftir J.R.R. Tolkien
og tengsl hennar við norrænan
menningararf í tilefni af því að
gerðar hafa verið þrjár kvik-
myndir eftir sögunni. Ráðstefnan
fer fram í Norræna húsinu í
Reykjavík dagana 13.–14. sept-
ember. Viðfangsefni verða:
Hringadróttins saga og helstu
mýtur hennar; tengsl hennar við
norrænan menningararf; sam-
anburður á úrvinnslu Tolkiens og
Nóbelsverðlaunahafanna Halldórs
Laxness og Sigrid Undset á þess-
um arfi; skír-
skotun verka
þeirra til rit-
unartímans og
siðfræði skáld-
verkanna.
Auk íslensku
eru tungumál
ráðstefnunnar
enska og skand-
ínavísk mál.
Fyrirlesarar
verða: Ármann Jakobsson, Liv
Bliksrud, Eiríkur Guðmundsson,
Terry Gunnell, Helga Kress, Lars
Huldén, Jón Karl Helgason, Gun-
hild Kværness, Tom Shippey,
Olav Solberg, Sveinn Haraldsson,
Andrew Wawn og Matthew
Whelpton.
Síðdegis 13. september gefst
þátttakendum kostur á að fara í
ferð að Reykholti í Borgarfirði.
Þátttöku í ráðstefnunni og ferð-
inni þarf að tilkynna fyrir 31.
ágúst, á skrifstofu Stofnunar Sig-
urðar Nordals og á heimasíðu
hennar: http://www.nordals.hi.is.
Á heimasíðunni er einnig að finna
dagskrá þingsins.
Norræni menningarmálasjóð-
urinn, Clara Lachmanns fond og
Letterstedtska föreningen styðja
ráðstefnuna.
Ráðstefna um Hringadróttins sögu
J.R.R. Tolkien
Í TILEFNI listahátíðar Seyðis-
fjarðar, „Á seyði“, hýsir Seyðisfjarð-
arskóli sýningu á fjórum olíumálverk-
um eftir fjóra listamenn, þau Björgu
Örvar, Gunnar Karlsson, Jón Axel
Björnsson og Valgarð Gunnarsson.
Fjórmenningarnir útskrifuðust sam-
an úr málaradeild Myndlista- og
handíðaskóla Íslands árið 1979 og
hafa síðan skapað sér ágætis orðstír í
íslenskum listheimi. Sýningin nefnist
„170 x hringinn“ og er farandsýning,
en listamennirnir kunna þó að skipta
út myndum á milli sýninga. Áður var
hún í Borgarnesi, Ísafirði og Akureyri
og mun svo halda til Hafnar, Vest-
mannaeyja og Reykjavíkur. Málverk-
in eiga það sameiginlegt að vera 170 x
170 cm að stærð og þaðan er yfirskrift
sýningarinnar fengin. Hún hefur tvö-
falda merkingu. Annars vegar er það
að sýningin ferðast hringveginn og
hins vegar að hvert málverk er 170 cm
á alla kanta, eða allan hringinn.
Fyrsta málverkið sem blasir við
þegar maður gengur inn í sýningar-
rýmið er „Hvíldarstaður“ eftir Björgu
Örvar. Verkið er abstrakt að forminu
til, en minnir á framandi heim sem
getur bæði tilheyrt „míkró“ og
„makró“ kosmós. Efnisáferðin er
klísturleg sem er í góðu samræmi við
formin og ýtir undir hugmynd um að
þau séu lífræn. Það form sem þekur
mestan hluta myndarinnar minnir
mjög á leggöng en gæti líka verið hol
inn í aðra vídd. Rykkjóttar línur um-
hverfis formið gætu því verið tauga-
kerki eða rafstraumar. Þannig má
lengi lesa í verkið og leyfa hugarflug-
inu að ráða ferðinni.
Til móts við verk Bjargar er mál-
verk Valgarðs Gunnarssonar, „Tútt-
ustýrið“. Það er einnig abstrakt, en
óhjákvæmilega skoðar maður verkið
með titilinn í huga sem er sennilega
sprottinn af upplifun Valgarðs á form-
inu. Á miðjum myndfletinum er hring-
form sem er eflaust „stýrið“ og innan
hringsins eru „túttu“-löguð form í
anda þýska skúlptúristans Hans Arp.
Stílbrigði Valgarðs, sem eru skreyti-
kennd með þurri áferð, stundum eins
og þéttur þurrpastel, heilla mig venju-
lega mest við verk hans. En í „Tútt-
ustýrinu“ er lita- og formfræðin ekki
síður heillandi.
Í málverkum Jóns Axel Björnsson-
ar eru oft fígúrur sem virðast hafa
villst inn í abstraktmálverk og er tit-
illaust verk hans á Seyðisfirði í þeim
anda. Myndflöturinn er grófmálaður í
hvítum lit með svörtum abstrakt
formum. Neðarlega á fletinum eru
hendur í teiknimyndastíl sem steyta
hnefum eins og hópur manna sé að
hrópa skammaryrði að einhverjum
sem stendur utan myndflatarins. Jón
Axel hefur gott auga fyrir myndbygg-
ingu og þykir mér hann jafnan svolítið
hrekkjóttur málari, þótt vissulega
liggi alvara að baki.
Málverk Gunnars Karlssonar nefn-
ist „Fallinn engill“. Það er andlits-
mynd af nefstórum manni sem minnir
allnokkuð á söngvarann Boy George,
sem ég veit ekki hvort er með vilja
gert hjá listamanninum eða ekki. Á
höfði hans liggur lítill skeggjaður eng-
ill, kæruleysislegur á svip. Myndin er
skopleg og ber merki um nýjar og
skemmtilegar brautir hjá listamann-
inum sem áður hefur unnið með held-
ur dramatískara myndmál.
Léttleiki er yfir sýningu þessara
fjögurra fyrrverandi skólafélaga sem
ekki hafa sýnt saman síðan á útskrift-
arsýningu MHÍ fyrir 23 árum.
Rétt er að geta þess að í Seyðis-
fjarðarskóla er einnig sýning um sögu
olíuskipsins El Grillo sem var sökkt í
höfn bæjarins á stríðsárunum. Sem
myndlistargagnrýnandi er það ekki
hlutverk mitt að fjalla um heimildar-
sýningar en ég vil þó hvetja þá sem
eiga leið um bæinn að líta á sýning-
arnar báðar, sér til ánægju og fróð-
leiks.
Á ferð allan hringinn
Morgunblaðið/Ransu
„Fallinn engill“ eftir Gunnar Karlsson og málverk án titils eftir Jón Ax-
el Björnsson á málverkasýningunni sem haldin er í Seyðisfjarðarskóla.
MYNDLIST
Seyðisfjarðarskóli
Sýningin er opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 14–18. Henni lýkur 11.
ágúst.
MÁLVERK
BJÖRG ÖRVAR, GUNNAR KARLSSON, JÓN
AXEL BJÖRNSSON OG VALGARÐUR
GUNNARSSON
Jón B. K. Ransu
Bláa handklæðið
hefur að geyma
ljóð sex skálda og
nafn bókarinnar er
jafnframt nafn
ljóðskáldahóps-
ins. Ljóðin eru á
þremur tungu-
málum: ensku,
hollensku og ís-
lensku. Skáldin sem mynda hópinn
eru Birgir Svan Símonarson, Draumey
Aradóttir, Jeremy Dodds, Joop Ver-
haaren, Páll Biering og Unnur Sólrún
Bragadóttir.
Á fundi hópsins sem haldinn var í
Danmörku í júlí voru tveir nýir með-
limir teknir í hópinn: Þórdís Rich-
ardsdóttir og Helen Halldórsdóttir,
sem báðar búa í Svíþjóð. Helen var
kosin forseti hópsins og verður næsti
fundur haldinn í Svíþjóð að ári og mun
Svíþjóðardeildin skipuleggja næsta
átaksverkefni, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Útgefandi er ljóðskáldahópurinn
Bláa handklæðið. Bókin er 97 bls.
Hún er fáanleg í bókabúðum Máls og
menningar á Laugavegi og hjá skáld-
unum.
Ljóð
Nýjar
línur
á
nýjum stað
undirfataverslun
Síðumúla 3-5