Morgunblaðið - 23.07.2002, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ú
T
S
A
L
A
15-70%
afsláttur
Stærðir 36–54 (S-3XL)
Opið virka daga frá kl. 10-18,
lokað á laugardögum í sumar
Sími 567 3718
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í HEILSUSTOFNUN NLFÍ (áður
Heilsuhælið) í Hveragerði, sem
starfrækt hefur verið frá árinu 1955,
er veitt bæði sér-
hæfð og almenn
endurhæfing eftir
slys og sjúkdóma,
svo sem hjarta-
áföll, krabba-
meinsmeðferð,
gigtsjúkdóma og
liðaðgerðir. Einn-
ig er í boði hvíld-
ar- og hressing-
ardvöl. Við stofnunina vinnur fjöldi
sérhæfðra heilbrigðisstarfsmanna,
þar á meðal læknar, sjúkraþjálfarar,
íþróttakennarar, hjúkrunarfræðing-
ar, sjúkraliðar, sjúkranuddarar,
næringarfræðingur og sálfræðingur.
Á meðferðardeildum er veitt hefð-
bundin sjúkraþjálfun, sjúkranudd
og nálastungur, ásamt heilsuböðum,
víxlböðum og leirböðum. Góð heilsu-
ræktaraðstaða er í Heilsustofnun
þar sem hægt er að stunda alhliða
heilsurækt. Einnig eru fallegar
gönguleiðir í nágrenninu.
Þarfir, lífsgæði og markmið
Öll höfum við mismunandi þarfir
og reynum að ná mismunandi mark-
miðum í lífinu. Sumt tekst okkur en
annað breytist af ýmsum ástæðum.
Flestum finnst það tákn um lífsgæði
að geta gert það sem mann langar til
að gera. Stundum reynist erfitt að
ná settum markmiðum, t.d. vegna
sjúkdóma eða slysa. Einkenni sjúk-
dóma geta einnig komið fram við of
mikið andlegt eða líkamlegt álag.
Þetta leiðir til þess að við erum ekki
eins vel í stakk búin og áður til að
stunda vinnu, sinna fjölskyldunni
eða njóta frístunda. Þá getur verið
nauðsynlegt að fá sérhæfða hjálp til
að bæta getu okkar og styrkja það
heilbrigða í okkur svo að við getum
notið þess sem við viljum kalla lífs-
gæði.
Grundvallarmarkmið Heilsustofn-
unar NLFÍ er að bæta andlegt og
líkamlegt atgervi dvalargesta og
efla eigin lækningamátt líkamans
með fræðslu um heilsusamlegt líf-
erni, neyslu hollrar fæðu og líkams-
rækt.
Reynsla og árangur
Reynslan sýnir að dvöl í Heilsu-
stofnun hjálpar fólki sem er haldið
alls kyns sjúkdómum og vanlíðan.
Þar er þeim sem vilja breyta lifn-
aðarháttum sínum hjálpað til að
vinna bug á svokölluðum „menning-
arsjúkdómum“ svo sem streitu og
þeim sem fylgja röngu mataræði.
Áhersla er lögð á fræðslu, með for-
varnir í huga, og fólki er kennt að
skilja gang og eðli sjúkdóma og læra
að lifa með því sem ekki er hægt að
lækna til fulls.
Dvalarbeiðnir
Beiðni um dvöl í Heilsustofnun
þarf að koma frá lækni og henni
þurfa að fylgja læknisfræðilegar
upplýsingar um umsækjanda. Með
slíkum upplýsingum er hægt að
velja rétta meðferð og ráðleggja
hæfilegan dvalartíma. Ekki þarf
beiðni frá lækni til þátttöku í vik-
unámskeiðum gegn streitu (Heilsu-
dagar) og námskeiðum gegn reyk-
ingum sem eru haldin í
Heilsustofnun. Næsta námskeið til
hjálpar þeim sem vilja hætta að
reykja verður haldið vikuna 18. til
25. ágúst nk. Nánari upplýsingar í
Heilsustofnun NLFÍ.
ANNA PÁLSDÓTTIR,
upplýsingafulltrúi HNLFÍ.
Að njóta lífsins
Frá Önnu Pálsdóttur:
Gjafabrjóstahöld
Meðgöngufatnaður í úrvali
Þumalína, Skólavörðustíg 41
Meðgöngufatnaður
meðgöngubelti - brjóstahöld
Þumalína, Skólavörðustíg 41