Morgunblaðið - 23.07.2002, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 39
DAGBÓK
Kringlunni, sími 588 1680,
v. Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
iðunn
tískuverslun
ÚTSALA
ÚTSALA
20%
aukaafsláttur
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir hugrekki í dag-
lega lífinu. Þú missir aldrei
sjónar á takmarkinu. Þú
býrð yfir mikill atorku sem
aflar þér velgengni. Aðrir
bera virðingu fyrir þér. Öll
náin sambönd þín munu
ganga vel á komandi ári og
árið er hjónabandinu hlið-
hollt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú mátt búast við því að
hafa áhyggjur af gerðum
barna. Þá munu ástarsam-
bönd einnig verða sett á
oddinn í dag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Heitar umræður verða í
fjölskyldunni í dag. Þú þarft
að sýna foreldri þolinmæði
og skilning.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Meiri hraði færist í líf þitt.
Leyfðu þér að berast með
straumnum og gerðu ráð
fyrir því að verða önnum
kafin(n) í félagslífinu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú færð ný atvinnutækifæri
eða tækifæri til að bæta
stöðu þína í vinnunni í dag.
Þú skalt vera reiðubúin(n)
að grípa tækifærið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú skalt setja sjálfa(n) þig í
forgang og hlaða batteríin.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Gættu að því að ætla þér
stund í næði til að ígrunda
þá stefnu sem líf þitt hefur
tekið. Hversu vel gengur
þér í listinni að lifa?
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hittir mikið af fólki bæði
í félagslífinu og á vegum
vinnunnar. Ígrundaðu
hvernig fólk þú vilt hafa í
kringum þig.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það ber mikið á þér núna.
Aðrir líta á þig sem fyr-
irmynd.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ferðalöngun þín er sterk
núna og þú skalt láta það
eftir þér að ferðast og heim-
sækja nýja staði.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er mikilvægt fyrir þig
að takmarka skyldur þínar
gagnvart annarri mann-
eskju. Það er ekki sann-
gjarnt að þú axlir alla
ábyrgðina.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú gætir fundið til þreytu á
næstu vikum. Þú skalt samt
ekki draga þig í hlé heldur
nýta sérhvert tækifæri til
samvista við aðra.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ert staðráðin(n) í að
skipuleggja þig betur í
vinnunni og heima fyrir. Þig
langar að þrífa, flokka og
henda því sem þú hefur
ekki lengur not fyrir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
80 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 23. júlí,
er áttræður Þorleifur Bragi
Guðjónsson, Nýbýlavegi
102, Kópavogi. Eiginkona
hans er Úrsúla von Balrzún.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2
Be7 4. e5 c5 5. Dg4 Kf8 6.
dxc5 Rc6 7. Rdf3 f6 8. Bf4
Bxc5 9. Bd3 f5 10. Dg3
Rge7 11. Re2 Rg6 12. h4
Rxf4 13. Rxf4 Bd7 14. h5
De7 15. c3 Hc8 16. 0–0
Bb6 17. Had1 Hd8
Staðan kom upp á öðru
bikarmóti FIDE sem lauk
fyrir
skömmu í
Moskvu. Vla-
dimir Akopj-
an (2.678)
hafði hvítt
gegn undra-
barninu
Teimour
Radjabov
(2.610). 18.
Bxf5! exf5
19. Rxd5 De8
20. Rxb6
axb6 21.
Hd6! Manns-
fórn hvíts
var fyrst og fremst stöðu-
legs eðlis. Svörtu mennirn-
ir vinna illa saman og nýtir
hvítur sér það í ystu æsar.
21. …Be6 22. Hfd1 Hxd6
23. Hxd6 De7 24. Df4 Ke8
25. Rd4 Rxd4 26. cxd4 g5
27. Dd2 Bd7 28. Dc3 Hf8
29. d5 f4 30. Hxb6 Hf5 31.
e6 Ba4 32. Dc4 Bd1 33. d6
Dd8 34. d7+ Kf8 35. Hxb7
He5 36. Dc8 og svartur
gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
SÍÐKVÖLD
Nú sveipa heiðar næturfölva feldi
um fætur hægt, og döggvast gróin tún.
Hnigin er sól, en aftangeisla eldi
er ennþá dreift um hæstu fjalla brún.
Um sævardjúp á lágum bárum bíður
blikfegurð kvölds og vaggar dagsins þraut.
Í aftanblævar fylgd mín ljóðúð líður
til lags við röðulbjarmans töfraskraut.
Kvöldhimins fögur litadýrð er dofnuð
og dökkva slungið græðis ljósa traf.
Hver alda harms er lægð, hver sárkennd sofnuð.
Hver sorgarelfur tæmd í vordraums haf.
Sigurjón Friðjónsson
ÞAÐ þykir tíðindum sæta
ef Ítalinn Lorenzo Lauria
tapar spili sem hægt er að
vinna. Þegar við bætist að
sami samningur vinnst á
hinu borðinu er ástæða til
að staldra við og spyrja –
hvað gerðist?!
Austur gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ Á7652
♥ 74
♦ 105
♣D542
Vestur Austur
♠ G8 ♠ 4
♥ D652 ♥ KG103
♦ D763 ♦ Á9842
♣1073 ♣KG8
Suður
♠ KD1093
♥ Á98
♦ KG
♣Á96
Spilið kom upp í leik
Ítala og Frakka á EM. Á
báðum borðum vakti aust-
ur á einum tígli og síðan lá
leið NS upp í fjóra spaða.
Þar sem Frakkinn Michel
Bessis var við stýrið gekk
spilamennskan þannig fyr-
ir sig:
Bessis dúkkaði fyrsta
slaginn, tók þann næsta á
hjartaás, tók trompin og
stakk hjarta. Spilaði svo
tígli að KG. Austur fór upp
með kónginn og spilaði sér
út á tígli. Eftir eitt tromp í
viðbót var staðan þessi:
Norður
♠ 7
♥ --
♦ --
♣D542
Vestur Austur
♠ -- ♠ --
♥ D ♥ G
♦ D ♦ 9
♣1073 ♣KG8
Suður
♠ D10
♥ --
♦ --
♣Á96
Bessis spilaði laufsex-
unni að blindum og hugðist
dúkka slaginn fyrir til
austurs. Vestur sá hvað
verða vildi og stakk upp tí-
unni, en það dugði lítt.
Austur tók drottninguna
með kóng, en varð svo að
spila laufi frá G8 í gegnum
Á9.
Lauria fékk upp sömu
stöðu á hinu borðinu, en
valdi að spila laufás og
laufi á drottninguna.
Ástæðan var sú að vestur
hafði ekki stutt tígulinn og
því reiknaði Lauria með að
skipting austurs væri 1-4-
6-2, en þá er þessi leið
örugg, hvort sem austur á
laufkónginn eða ekki.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu kr. 7.550. Þær heita Hjördís Marí-
anna Tómasdóttir og Thelma Smáradóttir.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Jim Smart
Árnað heilla
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnað-
arlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/
eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
70 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 23. júlí,
er sjötug Arndís Birna Sig-
urðardóttir, Blöndubakka
15, Reykjavík, áður búsett
að Hólagötu 28 í Vest-
mannaeyjum. Arndís tekur
á móti gestum í Víkinni, fé-
lagsheimili Víkinga, Traðar-
landi 1, frá klukkan 17 á af-
mælisdaginn.