Morgunblaðið - 27.07.2002, Side 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Tvöfaldur hraði – lægra verð
H Á H R A Ð A S Í T E N G I N G V I Ð N E T I Ð
Lágmarkshraði 512 Kb/s.
ADSL II mótald að verðmæti 11.900 kr.
fylgir með 12 mánaða áskrift að ADSL II.
ADSL II mótald 11.900 kr.
Hringdu strax í síma 800 1111.
VERSLUNIN Nanoq var opnuð að
nýju eftir hádegi í gær, og eins og
sjá má var handagangur í öskjunni.
Almenningur hafði greinilega ekki
látið auglýsingar nýs eiganda versl-
unarinnar, Rekstrarfélagsins Nan-
oq ehf., fram hjá sér fara og fjöl-
mennti í Kringluna. Að sögn Arnar
Gústavssonar, sem er í forsvari fyr-
ir Rekstrarfélagið Nanoq þurfti að
hleypa viðskiptavinum inn í hópum,
til þess að þeir gætu athafnað sig í
versluninni. Fyrst og fremst væri
verið að koma versluninni aftur í
gang, en einnig væru íþróttavörur
á rýmingarsölu þar sem end-
urskilgreina á vöruúrval verslunar-
innar og hætta að selja íþróttavör-
ur. Í framtíðinni verða eingöngu
útivistarvörur til sölu í versluninni.
Þess má geta, að Rekstrarfélagið
Nanoq ehf. hefur ákveðið að taka
við inneignarnótum og gjafabréf-
um viðskiptavina eldra Nanoqs,
þrátt fyrir að nýja fyrirtækinu beri
ekki skylda til þess, að sögn Arnar.
Handagangur
í öskjunni
hjá Nanoq
Morgunblaðið/Sverrir
FIMM íslenskir skákmenn hafa
verið samþykktir af Alþjóðaskák-
sambandinu FIDE sem alþjóðlegir
titilhafar. Stefán Kristjánsson var
útnefndur alþjóðlegur meistari, en
bræðurnir Bragi og Björn Þor-
finnssynir, Sigurbjörn J. Björns-
son og Magnús Örn Úlfarsson
voru útnefndir FIDE-meistarar.
Allir eru þeir, að Birni Þorfinns-
syni undanskildum, nú staddir í
Tékklandi á Opna tékkneska
meistaramótinu. Stefán Kristjáns-
son var efstur Íslendinga að lokn-
um sjö umferðum á mótinu. Magn-
ús Örn Úlfarsson hafði fjóra
vinninga, Arnar E. Gunnarsson og
Sigurbjörn J. Björnsson höfðu
þrjá og hálfan vinning að lokinni 7.
umferð.
Víða Íslendingar
á skákmótum
Dagur Arngrímsson og Guð-
mundur Kjartansson taka nú þátt í
Politiken Cup í Kaupmannahöfn.
Þeim hafði gengið vel fram að
þessu, en töpuðu báðir í 10. um-
ferð. Dagur hafði að henni lokinni
fimm og hálfan vinning, en Guð-
mundur 5 vinninga.
Helgi Áss Grétarsson og kona
hans, Lenka Ptacnikova, eru á
skákhátíð í Dresden í Þýskalandi.
Í fyrradag vann Helgi Áss Þjóð-
verjann Armin Wolf, í áttundu og
næstsíðustu umferð skákhátíðar-
innar.
Alþjóðlegir
titilhafar FIDE
Fimm nýir ís-
lenskir skák-
meistarar
SVEINN Valfells, stofnfjáreigandi
í Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grennis, hefur sent stjórn spari-
sjóðsins bréf þar sem hann óskar
eftir að á fyrirhuguðum fundi
stofnfjáreigenda 12. ágúst næst-
komandi verði tekin fyrir tillaga
um vantraust á stjórn sjóðsins.
Verði tillagan samþykkt verður ný
stjórn kjörin.
Í tilkynningu segir Sveinn
ástæðu vantrauststillögunnar vera
ummæli stjórnar SPRON á opin-
berum vettvangi um að hún hygg-
ist ekki samþykkja viðskipti á
grundvelli samnings fimm stofn-
fjáreigenda við Búnaðarbanka Ís-
lands hf., þótt slíkt gengi í ber-
högg við vilja meirihluta
stofnfjáreigenda auk þess sem
Fjármálaeftirlitið hafi úrskurðað í
greinargerð um lögmæti þess að
stofnfé skipti um eigendur á yf-
irverði en þau viðskipti séu háð
samþykki stjórnar sparisjóðsins.
Morgunblaðið birtir hér í heild
bréf Sveins til stjórnar SPRON.
Bréf Sveins til
stjórnar SPRON
„Frá því hefur verið skýrt op-
inberlega, að stjórn Spron hyggist
boða til fundar stofnfjáreigenda
þann 12. ágúst 2002.
Svo sem yður er kunnugt, er ég
undirritaður einn þeirra fimm eig-
enda stofnfjár í sparisjóðnum, sem
hafa gert samning við Búnaðar-
banka Íslands hf. um kaup og sölu
á stofnfjárhlutum.
Með vísan til 3. mgr. 16. gr.
samþykkta fyrir Sparisjóð Reykja-
víkur og nágrennis leyfi ég mér að
krefjast þess að á dagskrá fund-
arins 12. ágúst 2002 verði tekin til-
laga um vantraust á stjórn spari-
sjóðsins og, verði hún samþykkt,
kjör nýrrar stjórnar. Skoða ber
mig, undirritaðan, sem flutnings-
mann tillögu um vantraustið. Óska
ég eftir að sú tillaga verði tekin
fyrir sem fyrsti dagskrárliður á
fundinum og verði hún samþykkt,
þá kjör nýrrar stjórnar strax á eft-
ir. Fallist stjórnin ekki á þetta,
mun ég í upphafi fundar flytja
dagskrártillögu í því skyni að þetta
verði röð dagskrárliða á fundinum.
Ætlar ekki að samþykkja
viðskiptasamninga
Ástæða þessarar kröfu er sú, að
núverandi stjórn hefur á opinber-
um vettvangi skýrt frá því, að hún
hyggist ekki samþykkja viðskipta-
samninga með stofnfé í sparisjóðn-
um, sem gerðir verða á grundvelli
samnings okkar fimm stofnfjáreig-
enda við Búnaðarbanka Íslands
hf., þó að forsenda þess samnings
sé að eigendur 2⁄3 hluta stofnfjár
samþykki hann. Virðist þá engu
máli skipta fyrir stjórnina, þó að
hún sæki umboð sitt til þessara
sömu stofnfjáreigenda. Hún lýsir
því einfaldlega yfir, að hún hyggist
hundsa vilja þeirra verði hann sá
að gera viðskiptin. Jafnframt ligg-
ur fyrir það álit Fjármálaeftirlits-
ins, að tillaga, sem tekin hefur ver-
ið á dagskrá fyrirhugaðs fundar,
þess efnis að gerð verði almenn
samþykkt um að stjórnin leggist
ekki gegn þessum viðskiptum, sé
ekki tæk til afgreiðslu á fundinum.
Taka verði afstöðu til hverra við-
skipta fyrir sig. Án þess að fallist
sé á réttmæti þessa álits Fjár-
málaeftirlitsins, er nauðsynlegt að
tryggja, að fundurinn hafi tæki-
færi til að bregðast við þessu,
standi vilji meirihluta stofnfjáreig-
enda til þess, með þeim hætti sem
örugglega dugar, þ.e.a.s. með því
að víkja núverandi stjórn frá og
kjósa nýja, sem ekki hefur þá fyr-
irfram afstöðu til viðskipta á þess-
um grundvelli, sem núverandi
stjórn hefur lýst sig hafa, heldur
verður reiðubúin að hlíta vilja svo
mikils meirihluta stofnfjáreig-
enda.“
Tillaga um vantraust
á stjórn SPRON
HIN NÝJA fræðslumiðstöð þjóð-
garðsins á Þingvöllum var opnuð
að viðstöddu fjölmenni í gær.
Fræðslumiðstöðin á Hakinu er um
220 fermetrar að stærð og þá er
um 60 fermetra útirými undir
þaki.
Kostnaður vegna arkitektasam-
keppni, hönnunar, byggingar og
lóðaframkvæmda var um 55 millj-
ónir króna og innan fjárhagsáætl-
unar. Við opnunina var undirrit-
aður samningur milli
Þingvallanefndar og Landsbanka
Íslands um samstarf við að efla
fræðslu í þjóðgarðinum. Björn
Bjarnason, formaður Þingvalla-
nefndar, minnti í ræðu sinni á að
Þingvellir eru lögum samkvæmt
friðlýstur helgistaður allra Íslend-
inga og skuli hið friðlýsta land æv-
inlega vera eign íslensku þjóðar-
innar undir vernd Alþingis. „Í ár
hefur Þingvallanefnd þó ekki að-
eins staðið að því að þetta hús
verði fullbúið heldur einnig ráðist í
að reisa skála fyrir starfsmenn
sína við þjónustumiðstöðina á völl-
unum. Þá hafa þau merku tíðindi
einnig gerst í ár, að langþráð ósk
Þingvallanefndar um að ríkið eign-
aðist Valhöll og þar með allt land
innan þjóðgarðsins hefur ræst.
Bíður það verkefni nú ríkisstjórn-
arinnar í samráði og samvinnu við
Þingvallanefnd að ákveða framtíð
þessa reits innan þjóðgarðsins og
hvernig mannvirkjum og rekstri
skuli háttað þar.“ Björn sagði að
vegna hins mikla áhuga á fræðslu-
starfi hafi Þingvallanefnd leitað
leiða til að auka alhliða þjónustu á
þessu sviði með samstarfi við aðra.
Fyrir nokkrum árum hafi tekist
samvinna við Landsbanka Íslands
um að hann stæði undir kostnaði
við merkingar á leiðum innan þjóð-
garðsins og samvinnan hafi síðan
þróast en markmið samningsins sé
að auka áhuga og skilning á stór-
brotinni sögu og náttúru Þingvalla.
„Það er von Þingvallanefndar og
allra, “sagði Björn,“ sem hafa
komið að því að reisa þetta hús og
vinna að sýningunni sem það hýs-
ir, að þessi verk standi undir mikl-
um kröfum staðarins og hér hafi
tekist með góðum hætti að tengja
meginþræði sögu hans og nátt-
úru.“
Ný fræðslumiðstöð opnuð
Morgunblaðið/Jim Smart
Halldór J. Kristjánsson og Björn Bjarnason, formaður Þingvallanefnd-
ar, handsala samninginn um eflingu fræðslustarfs á Þingvöllum.
JEPPABIFREIÐ valt í Hrútafirði í
gær rétt við Akurbrekku, stutt frá
Reykjaskóla. Talið er að hjólbarði
hafi sprungið og missti ökumaður
stjórn á bílnum, lenti út á túni og
velti bílnum þar.
Engin slys urðu á fólki en bif-
reiðin er mikið skemmd ef ekki
ónýt.
Bílvelta
í Hrútafirði
♦ ♦ ♦