Morgunblaðið - 27.07.2002, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 9
Verðhrun á útsölu
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Útsalan
í fullum gangi
aukaafsláttur
Ný haustsending -
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Opið laugardag kl. 10-14
Sumarútsala allt að 50% afsláttur
4ra vikna uppbyggjandi námskeið fyrir þá, sem eiga við
streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegn-
um miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að
að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Ásmundur, sem
m.a. byggir námskeiðið á eigin reynslu af kvíða, tekur fyrir
þætti eins og jógastöður, öndunaræfingar, slökun og andleg
lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu. Ekki er krafist reynslu af
jóga. Yfirgripsmikið og traust námskeið frá árinu 1994.
Hefst fimmtudaginn 8. ágúst – þri. og fim. kl. 20:00
Auðbrekku 14, Kópavogi.
Símar 544 5560 og 864 1445,
www.yogastudio.is
Jóga gegn kvíða
með Ásmundi Gunnlaugssyni
BLINDRAVINNUSTOFAN ehf.
og Rekstrarvörur ehf. hafa gert
með sér samstarfssamning sem
felur í sér breytingar á starfsemi
Blindravinnustofunnar. Rekstrar-
vörur taka að sér alla dreifingu á
framleiðsluvörum Blindravinnu-
stofunnar fyrir stofnanamarkað,
svo sem til skóla, sjúkrahúsa og
annarra opinberra stofnana. Sam-
starfssamningurinn felur í sér
aukið samstarf milli fyrirtækj-
anna, en þau hafa átt mjög gott
samstarf í rúman áratug.
Nýi samningurinn gerir Blindra-
vinnustofunni kleift að einbeita sér
að atvinnusköpun fyrir blinda og
sjónskerta og efla pökkunardeild
vinnustofunnar, meðal annars með
pökkunarverkefnum frá Rekstrar-
vörum. Einnig hefur vinnustofan
tekið að sér fjölbreytt pökkunar-
verkefni fyrir ýmis fyrirtæki, og
hefur sú þjónusta mælst mjög vel
fyrir. Lager vinnustofunnar verður
seldur Rekstrarvörum og þar með
öll umsýsla hans einnig.
Mikilvægt að skapa atvinnu
fyrir blinda og sjónskerta
Að sögn formanns Blindrafélag-
ins, Gísla Helgasonar, er mikil-
vægt að skapa atvinnutækifæri
fyrir blinda og sjónskerta á Ís-
landi. Á Blindravinnustofunni fá
blindir og sjónskertir mjög góða
þjálfum í ýmsum störfum, sem síð-
ar geta nýst vel á almennum
vinnumarkaði. Áætlað er að stöðu-
gildum á Blindravinnustofunni
fjöldi um allt að sjö á þessu ári,
með nýja samningnum, en
Blindrafélagið á í samningaviðræð-
um við félagsmálaráðuneytið
vegna endurnýjunar þjónustu-
samnings um verndaðan vinnu-
stað. Töluverður fjöldi blindra og
sjónskertra bíður eftir starfi hjá
vinnustofunni, að sögn Valgeirs
Hallvarðssonar, stjórnarformanns
Blindravinnustofunnar.
Kristján Einarsson, forstjóri
Rekstrarvara, fagnaði nýja samn-
ingnum og sagði hann sannarlega
báðum fyrirtækjunum til góðs.
Samsvarandi samningar milli
Blindravinnustofunnar og fyrir-
tækja hafa verið gerðir á und-
anförnum árum.
Starfsmenn Blindravinnustofunnar að störfum.
Samstarf Blindravinnustofunnar og Rekstrarvara
Starfsemi eflist í
kjölfar nýs samnings
Morgunblaðið/Arnaldur
Kristján Einarsson, forstjóri Rekstrarvara (t.v.), og Valgeir Hallvarðs-
son, stjórnarformaður Blindravinnustofunnar, undirrita samninginn.
RÚMLEGA sautján hundruð manns hafa hringt
í söfnunarsíma Rauða kross Íslands, 907-2020,
og stutt þannig hjálparstarf á hungursvæðum í
sunnanverðri Afríku. Í fréttatilkynningu frá
Rauða kross Íslands segir að féð verði notað til
að koma matvælum til hungraðra, einkum fjöl-
skyldna sem enga fyrirvinnu hafa og til barna
og alnæmissmitaðra. Hver sem hringir leggur
1000 krónur til söfnunarinnar sem eru dregnar
af símreikningi viðkomandi. Þannig hafa nú
safnast rúmlega 1,7 milljónir króna í símasöfn-
uninni.
Í fréttatilkynningunni segir að deildir Rauða
krossins um allt land hafi einnig brugðist hratt
og vel við með framlögum sem nema samtals
rúmum tveimur milljónum króna. Þar af hefur
Reykjavíkurdeild lagt fram eina milljón og
Kópavogsdeild 400.000 krónur.
Rauði krossinn hefur einnig farið fram á það
við ríkisstjórn Íslands að hún styðji hjálpar-
starfið. Segir í tilkynningunni að hungursneyð
ógni þrettán milljónum manna í sunnanverðri
Afríku og að næsta uppskera sé ekki fyrr en í
mars á næsta ári. Rauði kross Íslands tilkynnti
á mánudag um fjögurra milljóna króna framlag
úr Hjálparsjóði félagsins.
Þórir Guðmundsson, upplýsingafulltrúi Rauða
kross Íslands, segir að alls hafi því rúmar sjö og
hálf milljón króna safnast. Hann segir neyðina á
þessu svæði mjög mikla. Hjálparstarf á svæðinu
sé stærsta einstaka verkefni alþjóðasambands
Rauða kross félaga síðan í Balkanskagastríð-
unum. Hann segir að ástandið geti orðið álíka
slæmt og í hungursneyðinni í Eþíópíu 1984. „Þá
brugðust menn of seint við, þá dóu um 800 þús-
und manns úr hungri og eitthvað svipað getur
gerst núna ef menn bregðast ekki við í tæka tíð.
Það er mikilvægt að þetta starf hefjist strax,“
segir Þórir.
Hann segir að söfnunin standi út vikuna. „Við
vonumst til að ríkisstjórnin bregðist myndar-
lega við, það hefur komið í ljós að Ísland er eitt
af sjö ríkustu löndum í heimi og ég held að okk-
ur beri skylda til að bregðast við þegar neyðin
er mikil, sem hún er þarna núna,“ segir Þórir.
Rúmar 7 milljónir hafa safnast í söfnun RKÍ vegna hungursneyðar í Afríku
Ógnar 13 milljónum manna
NICK Nicholson, sérfræðingur
hjá bandarísku alríkislögreglunni
(FBI), hefur í vikunni kynnt sér
starfsemi lögreglunnar í Reykja-
vík og haldið fyrirlestra um
stjórnunarhætti fyrir yfirmenn
hjá lögreglustjóranum í Reykja-
vík og hjá ríkislögreglustjóra.
Nicholson er með doktorspróf í
stjórnun lögregluliða og er pró-
fessor við FBI-skólann í Quantico
í Virginiu auk þess sem hann
heldur námskeið fyrir ýmis lög-
reglulið. Alls hefur hann unnið
við löggæslu í hátt í 30 ár og var
m.a. yfirmaður öryggismála hjá
orkumálaráðuneyti Bandaríkj-
anna og sat í nefnd um baráttu
gegn hryðjuverkum. Karl Steinar
Valsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn segir að Nicholson
hafi m.a. rætt um þjálfun stjórn-
enda, samskiptaferli innan emb-
ætta og reglur um stöðuhækk-
anir. Hann mun síðar skila
lögreglustjóranum í Reykjavík
tillögum til úrbóta á ýmsu sem
lýtur að stjórnun embættisins. Á
undanförnum árum hafa nokkrir
tugir íslenskra lögreglumanna
sótt námskeið hjá FBI en Karl
segir að samstarfið hafi aukist til
muna eftir fund Sólveigar Péturs-
dóttur dómsmálaráðherra með
Janet Reno, þáverandi dóms-
málaráðherra Bandaríkjanna.
Kennir
stjórn-
endum
stjórnun
Morgunblaðið/Júlíus
Nick Nicholsson frá bandarísku alríkislögreglunni kennir íslenskum lögreglumönnum stjórnun.
HELGA Jónsdóttir borgarritari seg-
ir að bréf Hreggviðs Jónssonar, til
borgarstjórnar þar sem hann skorar
á borgarstjóra að hafa forgöngu um
að borgarlögmanni verði falið að gera
kröfu til fjármuna Reykvíkinga sem
felist í SPRON, verði vísað til borg-
arlögmanns. Hann muni fara yfir
lagalega þætti málsins með tilliti til
hagsmuna Reykjavíkurborgar og
svara bréfi Hreggviðs.
Í bréfi Hreggviðs kemur fram að í
þeim átökum sem staðið hafa um
SPRON að undanförnu hafi komið
skýrt fram í máli þeirra hópa sem
berjast um yfirráðin að talið sé að um
2,8 milljarðar króna séu í sérstökum
sjóði, sem verja eigi til menningar- og
líknarmála.
Samkvæmt nýjum lögum um
sparisjóði jafnt sem eldri á að nota
stofnfé sparisjóða í viðkomandi bæj-
arfélagi. Hreggviður bendir á að í
þessu tilviki sé það Reykjavík. Því til
stuðnings bendir hann á að bæjar-
stjórn og síðar borgarstjórn Reykja-
víkur hafi í fjölda ára skipað menn í
stjórn SPRON.
„Við fljótlega skoðun á lögunum
virðist mér sem sjóður eða sjálfseign-
arstofnun af þessum toga verði þá
fyrst til, ef Sparisjóðnum verður
breytt í hlutafélag og hafi þá þann
megintilgang að stuðla að viðgangi og
vexti í starfsemi Sparisjóðsins. Verði
sjálfseignarstofnuninni slitið skal
verja fjármunum hennar um til
menningar- og líknarmála á starfs-
svæði viðkomandi sparisjóðs. Meðan
SPRON er rekinn í því formi sem nú
er sýnist mér því varla reyna á þetta-
,“segir Helga.
Bréf Hreggviðs Jóns-
sonar um málefni SPRON
Borgarlög-
maður mun
skoða málið