Morgunblaðið - 27.07.2002, Page 22

Morgunblaðið - 27.07.2002, Page 22
ÁRBORGARSVÆÐIÐ 22 LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ VATNSVIRKINN ehf Ármúla 21 · Sími 533 2020 vatnsvirkinn@vatnsvirkinn.is MERKILÍMBÖND Sérstaklega hentug og þægileg merkilímbönd til notkunar í lagnakerfum. Merking og litir samkvæmt stöðlum RB Heildsala - Smásala „ÞÆR unnu auðvitað mótið, stelp- urnar, og eru því Tivoli Cup- meistarar 2002 í 3. fl. kvenna. Þetta var auðvitað glæsilegt hjá þeim og góður árangur og ferðin var í alla staði mjög góð, góður hópur, gott veður, góður þjálfari og gott skipu- lag,“ sagði Eygló Pétursdóttir, einn forsvarsmanna stúlknanna frá Sel- fossi í þriðja flokki kvenna sem tóku þátt í Tívolí Cup-mótinu í Dan- mörku og báru sigur úr býtum. Ár- angur stúlknanna er mjög góður og athyglisverður því þær settu sér það markmið þegar þær voru í yngri flokki að fara í keppnisferð til útlanda. Þessu markmiði náðu þær með mikilli vinnu, góðri sam- heldni sem sýndi sig í allri fjáröflun þeirra og vinnu með þjálfara og foreldrum. Veruleg aukning hefur verið á þátttöku stúlkna í knattspyrnu á Selfossi undanfarin ár og því skemmtilegt verkefni framundan fyrir Knattspyrnudeild Selfoss að halda utan um þann áhuga og ár- angur sem nú er kominn fram. Selfoss- stúlkur Tívolí Cup- meistarar Selfoss Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Aftari röð frá hægri: Anita Guðlaugsdóttir, Kristjana B. Birgisdóttir, Sunna Stefánsdóttir, Hjördís Olga Guð- brandsdóttir, Rakel Pálsdóttir, Rebekka Pálsdóttir, Elísabet Ósk Guðlaugsdóttir, Díana Gestsdóttir. Fremri röð f.v.: Heiðrún Erna Hlöðversdóttir, Sunna Kristín Óladóttir, Harpa Íshólm Ólafsdóttir, Ásdís Auðunsdóttir, Álfheiður Guðjónsdóttir, Þórleif Guðjónsdóttir, Hrafnhildur Magnúsdóttir, Antoine Van Kasteren þjálfari. „HVER einasta fæðing er alveg stórkostlegur atburður, það er ekkert sem jafnast á við það. Þetta er heilög stund í hvert skipti sem barn fæðist og dregur andann í fyrsta sinn. Ég upplifi þetta alltaf þannig þegar ég tek á móti barni,“ segir Svanborg Eg- ilsdóttir, yfirljósmóðir á Sjúkra- húsi Suðurlands á Selfossi, þar sem hún hefur starfað síðan 1982 og tekið á móti hátt í 600 börn- um. Hún segir hverja einustu fæðingu greypast í hugann. „Ég man eftir öllum börnum sem ég hef tekið á móti, það er bara þannig að þetta greypist í hugann í hvert einasta sinn,“ segir Svan- borg. Hún segir miklar breytingar hafa orðið á þeim tíma sem hún hefur verið við störf á Sjúkrahúsi Suðurlands. „Áður var öll tækni notuð í hámarki en þetta hefur þróast í að konan ræður meira um sína fæðingu en áður var. Við fengum vatnspott 1993 sem konur geta farið í á meðan á aðdrag- anda fæðingar stendur og við vorum frumkvöðlar að þessu. Við vorum líka fyrst að leyfa vatns- fæðingu en þá fæddu konurnar, sem það vildu, í pottinum. Í tengslum við nýjar áherslur höfum við lagt áherslu á að gera fæðingardeildina eins heimilislega og hægt er fyrir konurnar og fjöl- skyldur þeirra. Okkar markmið er að leyfa konunni að ráða hvar og hvernig hún vill fæða barnið. Við styðjum konuna í að taka ákvörðun varðandi fæðinguna og heimilum henni að eiga hvar sem er ef allt er með eðlilegum hætti. Mér finnst konurnar hér á Suð- urlandi hafa kunnað vel að meta þessar áherslur og aðstæður sem við höfum skapað. Með þessari aðferðafræði fáum við öruggari og ánægðari konur og minni hætta er á inngripi þegar konan ræður fæðingunni sjálf. Konur í dag eru betur upplýstar en áður, þær eru búnar að búa sig vel undir fæðinguna og eru afslapp- aðar og öruggari í fæðingunni. Á meðan á þessu stendur reynum við að horfa sem minnst á klukk- una, þetta hefur allt sinn tíma. Öll þessi skipulagning okkar er í þágu beggja, barnsins og kon- unnar, og reyndar einnig föðurins því feðurnir taka virkan þátt í ferlinu og undirbúa sig líka undir þennan einstæða atburð sem fæð- ingin er. Eftir fæðinguna bjóðum við konunum upp á sængurlegu á sjúkrahúsinu og heimaþjónustu. Þær geta valið um að fara heim eftir fjóra tíma eða að liggja á fæðingardeildinni í 7 daga. Það er í þessu eins og við fæðinguna, við styðjum konuna og hennar eigin ákvörðun. Velji hún heimaþjón- ustu fær hún heimsókn ljosmóður í níu skipti en velji hún sæng- urlegu fær hún val um hversu mikið barnið er hjá henni á stof- unni. Við erum á sólarhringsvökt- um og konurnar geta alltaf hringt í okkur, það hefur gefist vel og við veitum mikla símaþjónustu við konur á Suðurlandi,“ segir Svanborg Egilsdóttir, yfirljós- móðir á Sjúkrahúsi Suðurlands. Það er heilög stund í hvert skipti sem barn fæðist Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Með nýfætt barn á fæðingardeildinni á Sjúkrahúsi Suðurlands, Svanborg Egilsdóttir yfirljósmóðir, nýfædd stúlka Gísladóttir, Sig- rún Kristjánsdóttir ljósmóðir og móðirin Sólveig Gunnarsdóttir. Selfoss Svanborg Egilsdóttir, yfirljósmóðir á Selfossi, hefur tekið á móti um 600 börnum ÞRÁTT fyrir rigningu og þoku var glatt á hjalla á Fosshóteli Ingólfi í Ölfusinu 21. júlí sl. Þá var haldin fjöl- skylduhátíð. Boðið var upp á ýmislegt gott í gogginn, leiki fyrir börn á öllum aldri, hestasýningu, happdrætti, gestir fengu að fara á hestbak að ógleymdu kaffihlaðborðinu svo eitt- hvað sé nefnt. Tilefni hátíðarinnar er að Fosshótel hóf starfsemi sína á Hóteli Ingólfi nú í sumar og er þetta fyrsta tilraun Fosshótela til að kynna starfsemi sína á þennan hátt. Að sögn Jóns Tryggva Jónssonar hótelstjóra er þetta annað sumarið sem hótelið starfar, en Fosshótel tóku við rekstr- inum 1. maí sl. Í hótelinu eru 16 her- bergi í tveimur raðhúsum og eru öll herbergin með heitum pottum á ver- öndinni. Grunnur er kominn að þriðja raðhúsinu og því von á stækkun á næstunni. Stærri pottur og sauna, ásamt búningsklefum eru við hliðina á gistrýmunum. Sú aðstaða hefur fengið nafnið „ströndin“ því þar er hvítur sandur og líkist þetta helst baðströndum erlendis. Hótelið starf- rækir einnig veitingahús. Þar er hinn kunni Garðar Rúnar, kokkur en hann hóf þar störf 1. júní sl. Töluvert hefur því verið um að fyrirtæki og félaga- samtök haldi árshátíðir og ýmsar skemmtanir á staðnum. Susanne Götzinger, sölustjóri Fosshótela, sagði að hugmyndin væri sú að byggja upp sveitahótel, þar sem einnig væri fyrsta flokks veitinga- staður og einnig samstarf við reið- skólann. Hótelið er rekið með þarfir Íslendinga jafnt sem erlendra gesta. Athygli hefur vakið að mikið af Jap- önum sækist í að koma á hótelið og fyrir næsta vetur er mikið bókað það- an. Japanskir hópar verða á hótelinu nánast vikulega. Á Ingólfshvoli er einnig rekinn reiðskóli og er mikil og góð samvinna milli skólans og hótelsins. Það eru þau Margrét Magnúsdóttir og Viðar Arnarson sem reka hann ásamt því að vera með hestaleigu. Að sögn Mar- grétar hefur verið mikið að gera í sumar og hafa þau m.a. boðið upp á námskeið fyrir börnin í nágranna- bæjarfélögunum. Einnig standa þau fyrir hestasýningum í allt sumar á miðvikudögum, laugardögum og sunnudögum kl. 21. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Ungum og öldnum var boðið á hestbak á hátíðinni. Fjölskylduhátíð á Fosshóteli Ingólfi Hveragerði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.