Morgunblaðið - 27.07.2002, Page 27
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 27
UM 1,7% verðmunur var á ódýr-
ustu matvörukörfunni og þeirri
næstódýrustu í skyndiverðkönnun
Morgunblaðsins á 13 matvöruteg-
undum í lágvöruverðsverslunum í
gær. Ódýrust var karfan í Bónus á
1.685 kr. en næst kom karfan í
Europris á 1.714 kr. Dýrust var
karfan í Nettó í Mjódd á 1855 kr. en
í Krónunni kostaði hún 1.813 kr.
Verðmunur á ódýrustu körfunni og
þeirri dýrustu var 10%. Blaðamenn
Morgunblaðsins fóru í fjórar versl-
anir, Bónus í Faxafeni, Europris á
Lynghálsi, Krónuna í Skeifunni og
Nettó í Mjódd og var vörunum
rennt í gegnum kassana á tíma-
bilinu 13:40–14:10 í gær en allar
vörutegundirnar fengust í verslun-
unum fjórum.
Bónus með lægsta
verðið í 11 tilvikum af 13
Kannað var hvort samræmi væri
á milli hillu- og kassaverðs og
reyndist svo vera alls staðar í öllum
tilvikum í Bónus, Krónunni og
Nettó. Í Europris var ósamræmi í
fjórum tilvikum en þá var verð allt-
af lægra á kassa en í hillu. Bónus
var oftast með lægsta verðið eða í
11 tilvikum af 13 en Europris var
fjórum sinnum með lægsta verðið.
Nettó var hins vegar oftast með
hæsta verðið.
Verðmunur milli verslana
mestur á tómötum
Mestur verðmunur á milli versl-
ananna var á tómötum eða tæp
62%, ódýrastir voru þeir í Europris
á 102 kr kg en dýrastir í Nettó á
165 kr kg. Næstmestur var verð-
munurinn á lauk eða tæp 60%, í
Bónus kostaði kílóið 37 kr en í
Nettó 59. Mestur verðmunur á
grænni papriku var hins vegar
12,6%.
Minni verðmunur var á mjólkur-
vörum en grænmetinu, þar var
mestur verðmunur á KEA kotasælu
sem kostaði 217 kr. í Bónus en 259
kr. í Europris, munurinn er því rúm
19%. Verðmunur á léttjógúrt með
trefjum var tæp 6%, hún kostaði 54
kr. í Nettó og Krónunni en 51 kr. í
Bónus. Engjaþykkni með jarðar-
berjum var síðan tveimur krónum
ódýrara í Bónus og Europris en í
Krónunni og Nettó.
Munur á hveiti var 23%, ódýrast
var það í Europris á 152 kr. en dýr-
ast í Krónunni og Nettó á 187 kr en
í Bónus kostaði það 181 kr. Á
Cheerios morgunkorni var 10%
verðmunur, í Bónus var það ódýrast
á 299 kr. en dýrast í Nettó á 329 kr.
Rétt er að vekja athygli á því að
aðeins var kannað verð á 13 vöru-
tegundum sem valdar voru af
handahófi svo ekki þarf að vera að
verðmunur endurspegli til fulls
verðlag í verslunum sem um ræðir.
Einungis var borið saman verð en
ekki lagt mat á gæði vöru eða þjón-
ustu í verslununum.
Verðkönnun á 13 vörutegundum í lágvöruverðsverslunum
Tæplega 2%
munur á Bón-
usi og Europris
5
< #7=
/%0
'00 5
<
#*,0
67
4 6%00 >?&$
@ $
?9
/1/)
<
8
<
6&01% 7%)( 6< A<
*
5
*
@; 4*
#A5
&
"
"
#<
&
'() %*$#
! "
4
54
RABARBARI eða tröllasúra er upp-
runninn í fjallahéruðum austur í
Kínaveldi en barst til Evrópu með
kaupmönnum á 14. öld. Sumir telja
heiti hans vera skylt orðinu barbari
sem vísi til hugmynda Evrópubúa um
þá sem upphaflega ræktuðu og seldu
rabarbara, að því er fram kemur í
bókinni Íslensk matargerð, eftir Hall-
gerði Gísladóttur sagnfræðing. Rab-
arbari var í fyrstu ræktaður vegna
rótarinnar sem var eftirsótt í lyf. m.a.
hægðalyf og lyf sem áttu að geta
læknað kynsjúkdóma. Núna er hins
vegar stilkurinn aðallega notaður til
matargerðar en rótin lítið nýtt.
Ekki ráðlegt að gefa ungum
börnum rabarbara
Rabarbari telst til grænmetis þótt
hann sé notaður líkt og ávöxtur í mat-
argerð en hann er af súruætt, þeirri
sömu og t.d. hundasúra og ólafssúra.
Hann inniheldur trefjar og er tölu-
vert C-vítamínríkur, að sögn Laufeyj-
ar Steingrímsdóttur, forstöðumanns
Manneldisráðs. „Hann hefur líkast til
verið Íslendingum mjög mikilvægur
C-vítamíngjafi hér áður fyrr. Núna
borðum við hann hins vegar fyrst og
fremst af því að hann er bragðgóður.“
Hún segir að ekki sé ráðlegt að
gefa ungum börnum rabarbara vegna
þess að hann innihaldi efnið oxalat.
„Það kemur í veg fyrir nýtingu á öðr-
um næringarefnum og getur stuðlað
að myndun nýrnasteina. Fullorðnu
fólki og eldri börnum verður ekki
meint af en ung börn þola efnið síð-
ur.“
Mátulega þroskaður í júlí
Krökkum finnst oft gaman að fá
sér rabarbara úr garðinum og dýfa
honum þá gjarnan í sykur en er rab-
arbarinn ekki slæmur fyrir tennurn-
ar? „Hann er vissulega súr og sýran
getur eytt glerungi tannanna, samt
tel ég ekki ástæðu til að takmarka
rabarbaraát vegna þess. Gosdrykkja
og sælgætisát krakka er mun frekar
áhyggjuefni hvað varðar tennurnar.“
Um þessar mundir er góður tími til
að gera rabarbarasaft, núna er hann
mátulega þroskaður og úr honum
fæst mikil og góð saft, að sögn Bryn-
dísar Birnis hjá Leiðbeiningarstöð
heimilanna. Hún gaf okkur tvær upp-
skriftir að rabarbarasaft, í aðra er
notað vatn en í hina ekki.
Soðin rabarbarasaft án vatns
5 kg rabarbari
¼ kg sykur
Rabarbarinn er hreinsaður, þveg-
inn skorinn í bita og vigtaður. Því
næst er hann settur í pott með sykr-
inum og látinn bíða í sólarhring. Síðan
er hann settur í síu, til dæmis á klút,
og vökvinn látinn drjúpa niður í pott
þar sem hann er hitaður upp í 85
gráða hita. Saftin má ekki sjóða en er
látin malla rétt undir suðumarki í
hálftíma. Þá er saftin sett á flöskur og
lokað vel. Bryndís mælir með því að
flöskur séu skolaðar með rotvarnar-
hreinsi áður en saftin er sett í þær en
hann fæst í matvöruverslunum. Til-
valið er að sjóða rabarbarabitana sem
eftir eru í sultu eða í graut.
Rabarbarasaft með vatni
1 kg rabarbari
hálfur lítri vatn
375–500 g sykur (magn fyrir hvern
lítra af saft.)
Rabarbarinn og vatnið eru sett í
pott og hitað við hæga suðu þar til
rabarbarinn er mjúkur og á að hræra
í annað slagið. Þessu er hellt í síu og
vökvinn látinn drjúpa af í pott þar
sem sykrinum er blandað saman við.
Saftin er látin sjóða í 10–20 mínútur
og er síðan sett á flöskur.
Rabarbaragóðgæti
½ kg rabarbari
½ dl sykur
2 dl púðursykur
2 tsk. kanill
2 egg
1dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
2 ½ dl muldar heslihnetur eða ristað
kókosmjöl
Rabarbarinn er skorinn í bita og
dreift á botninn á eldföstu móti. Sykri
og kanel blandað saman og stráð yfir,
því næst púðursykri. Formið er sett í
ofn og hitað við 180̊ C í 10 mín.
Egg og sykur eru þeytt vel saman,
hveiti, lyftidufti og hnetum eða kók-
osmjöli síðan bætt við. Blöndunni er
hellt yfir rabarbarann í forminu og
kakan bökuð á neðstu rim við 180° C í
20–30 mín. Borið fram með ís eða
þeyttum rjóma.
Í kökuna er vel hægt að nota fros-
inn rabarbara, gott er þá að vera búin
að skera hann áður en hann er settur í
poka inn í frysti.
Júlímánuður er góður tími til að gera saft úr rabarbara
Morgunblaðið/Jim Smart
Rabarbararót var áður talin hafa lækningamátt en er nú lítið nýtt, flestir nota einungis stilkinn en fleygja rótinni.
Inniheldur trefjar og C-vítamín
Rabarbari telst til
grænmetis þótt hann sé
notaður líkt og ávöxtur.
Hann var áður fyrr not-
aður í lyf en er nú fyrst
og fremst notaður til
matargerðar.
VEITINGASTAÐURINN Hard
Rock Cafe í Kringlunni heldur
upp á 15 ára afmæli sitt á morgun
með því að bjóða fimm rétti af
matseðlinum á 15 ára gömlu verði,
að sögn Konráðs Guðmundssonar
veitingastjóra. Hamborgarar,
samlokur, salat og djöflaterta
verða meðal réttanna en afmæl-
isveislan stendur yfir kl. 11:30–
23:30.
Bjóða rétti
á 15 ára
gömlu verði
Afmæli Hard
Rock Cafe
Morgunblaðið/Kristinn
KOMIÐ er á
markað Candidex
munnskol sem
ætlað er til varn-
ar sýkingum í
munni og and-
remmu. Í frétta-
tilkynningu frá
Dentalia kemur
fram að munn-
skolið innihaldi náttúruleg efni,
grænt te, anisfræolíu, myntuolíu og
negulolíu. Það sé án flúors og sætu-
efna og innihaldi engin gervi- eða
rotvarnarefni. Munnskolið fæst í
apótekum.
NÝTT
Munnskol
HARPA Sjöfn
hefur sett á
markað Texolín
eðalolíu, sem er
ný tegund af við-
arvörn. Hún hef-
ur þann eigin-
leika að mynda
ekki lakkfilmu á
yfirborði viðarins
og á því að henta vel til notkunar ut-
anhúss á ómálaðan við eins og veggi,
þakkanta, glugga, sólpalla og viðar-
húsgögn, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Hörpu Sjöfn.
Viðarvörnin inniheldur vætandi olíu,
vatnsfælu og ljóssíu sem ver viðinn
gegn útfjólubláu ljósi sólarinnar.
Viðarvörnin inniheldur ekki skaðleg
fúavarnarefni og er framleidd í
glæru og þremur litbrigðum, furu,
rauðviði og tekki.
Viðarvörn
FYRSTU fimm mánuði ársins
hafa jafnmargar Goða-pylsur
selst og allt árið í fyrra, en 80
tonn af pylsum hafa selst það
sem af er árinu, segir í frétta-
tilkynningu frá Norðlenska.
Þar kemur fram að frá árinu
2000 þar til nú hafi markaðs-
hlutdeild fyrirtækisins á þessu
sviði aukist úr 1% í 35%.
Sala á Goða-
pylsum
margfaldast