Morgunblaðið - 27.07.2002, Side 52
DAGBÓK
52 LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
ÉG ER sammála „áhorf-
andanum“ sem skrifar í
Velvakanda 23. júlí um að
eiga val um hvaða sjón-
varpsstöðvar þú kýst að
vera áskrifandi að.
Ég er ein af þeim sem
þurfa að skera niður út-
gjöld og fyrir valinu varð
niðurskurður á fjölmiðlum.
Ég hef verið áskrifandi að
Stöð 2 frá því hún hóf
göngu sína og horfi ég að
mestu leyti á hana, utan
Skjás eins. Ég er eins og
allir landsmenn neydd til að
vera áskrifandi að Ríkis-
sjónvarpinu og get ekki
sagt þeirri stöð upp þótt ég
vildi og því neyddist ég til
að segja uppáhaldsstöðinni
minni upp.
Ég átti sem sagt ekkert
val. Það getur ekki staðist
lög að fólk sé neytt til
áskriftar að fjölmiðli og að
það hafi ekki val. Ég er afar
ósátt við þetta og vildi
gjarnan heyra frá fleirum
hvað þetta snertir.
Ein ósátt.
Nauðungaráskrift
ÉG ER innilega sammála
þeim sem hafa látið í sér
heyra undanfarið í sam-
bandi við skylduáskrift
RÚV. Það er löngu tíma-
bært að sleppa henni og
leyfa þeim að greiða sem á
horfa. Kona ein sagðist
ekki sjá eftir 2.500 kr. en
það geri ég. Ég get notað
þessar krónur til að greiða
fyrir sjónvarpsefni sem mig
langar að horfa á og það er
ekki Ríkissjónvarpið! Við
búum við lýðræði og vil ég
beina því til ráðamanna
þjóðarinnar að fella niður
nauðungaráskrift hið snar-
asta og leyfa fólkinu í land-
inu að taka sjálfstæða
ákvörðun varðandi áskrift.
Tökum nú höndum saman
og gerum eitthvað í málinu,
kæru samlandar.
Hver á myndina?
ÞESSI
mynd
var í
mynda-
albúmi
sem bú-
ið er að
vera í
óskilum
í nokkurn tíma. Þeir sem
kannast við myndina geta
haft samband við Lindu í
síma 862 3461.HG.
Þökk sé Blökk
ÉG LAS í Morgunblaðinu
nýlega um viðbrögð hryss-
unnar Blakkar er hún hitti
bresku prinsessuna sem
stödd var hér á landi. Til-
efnið var að flytja átti
Blökk út til Bretlands, en
hún var gjöf handa fötluð-
um börnum í Bretlandi. En
Blökk virtist ekki hafa
áhuga á þessari upphefð.
Það virðist vera í dag æðsti
draumur íslenskra hestaút-
flytjenda að selja sem flesta
hesta til útlanda án þess að
vita hvernig þessum skepn-
um muni líða í útlöndum.
Það er aukaatriði, svo lengi
sem þeir fá peningana.
Sigríður Eymundsdóttir.
Ertu að grisja?
MIG langaði að athuga
hvort einhver væri að
grisja í garðinum sínum og
vildi losna við fjölærar
plöntur og jafnvel tré eða
runna. Ef þú átt eitthvað
nýtilegt endilega hafðu
samband við Ingu í síma
861 6892.
Tapað/fundið
Glatað gullarmband
MJÓTT gullarmband týnd-
ist 14. júlí milli Furugerðis
og Selbrautar á Seltjarnar-
nesi. Skilvís finnandi vin-
samlega hafi samband við
Höllu í síma 553 6441 eða
692 1108.
Gult ullarveski
GULT og grænt ofið ullar-
veski glataðist sl. þriðju-
dag, líklega fyrir utan Bón-
us á Seltjarnarnesi eða á
leið þaðan til Hofsgötu.
Skilvís finnandi vinsamlega
hafi samband í síma
846 8512.
Dýrahald
Hefurðu séð
norskan kött?
KISAN Embla stakk af úr
pössun á Skólavörðustíg 5.
Hún er norskur skógar-
köttur, grábrún með rauða
ól. Þeir sem hafa orðið
hennar varir vinsamlega
láti vita í síma 551 1161.
Rúsínur fást gefins
ÞRÍR yndislegir kettlingar
fást gefins, tvö fress og ein
læða. Þau eru um 3 mán-
aða, kassavön og hvert öðru
fallegra. Áhugasamir hafi
samband í síma 820 2658.
Kisu vantar heimili
BLÍÐ og góð, ársgömul
læða er að leita sér að nýj-
um eiganda. Hún er fimm-
lita dvergköttur, kassavön
og sæt. Með henni fylgir
hefðbundið kattainnbú;
kattaklóra, sandkassi, mat-
arílát og fleti. Dýravinir
vinsamlega hringi í síma
555 4089 eða 696 5790.
Átt þú þennan kött?
ÞESSI
köttur
settist
nýlega
að á
heimili á
Óðins-
götu.
Hann er
ógeldur,
mjög
fallegur og blíður köttur
með svartan feld. Hann var
með svarta hálsól með
steinum í. Eigandinn er
vinsamlega beðinn að vitja
kattarins – sími 551 0539
eða Kattholt.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Ekkert val
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur undanfarin árlagt sig eftir því að ferðast sem
mest hann má innanlands. Hann við-
urkennir fúslega að til meðvitundar um
þetta ægifagra land sitt vaknaði hann
ekki fyrr en um einn þriðji ævinnar var
að baki eða svo gott sem. Borgarbarnið
hafði haldið náttúrubarninu í gíslingu
fram að þeim dýrðardegi en nú þeytist
hið síðarnefnda út um velli víða sem
það mest má. Og hefur unun af.
Já, landið okkar Ísland er yndislegt
land og fagurt – það er engin tugga. Og
setningin „sækjum það heim“ er með
spaklegri auglýsingaslagorðum sem
fram hafa komið í seinni tíð. En þar
með erum við komin að kjarna málsins.
Eða eins og gárunginn sagði í lúmskri
glettni: „Þar liggur hundurinn grafinn í
kúnni“ og sneri þar með skemmtilega
út úr tveimur, mikið notuðum, orðtök-
um. Það er nefnilega ekkert hlaupið að
því að sækja landið okkar heim. Ástæð-
an? Vegirnir.
x x x
VÍKVERJI gerir sér grein fyrir þvíað með þessum umkvörtunum er
hann að slást í hóp þúsunda annarra
samlanda, og leggur hér með lóð á vog-
arskálar, sem hafa táknbundið eitt
helsta ergelsismál Íslendinga í tugi ára.
En ekki veitir af, ó nei! Því að hérlendir
vegir eru margir hverjir einfaldlega til
háborinnar skammar. Mikið skildi Vík-
verji forseta vorn er hann gerðist svo
brattur að gera vegina í Barðastrand-
arsýslum að umtalsefni, er hann var
búinn að sitja í embætti í fáeina mán-
uði. Er nema von að þessi orð hafi hrot-
ið úr honum, er hann var nýkominn úr
vegahossi og klöngri, sem ærir hvern
þann sem hættir sér á vegina á Vest-
fjörðum. Nær er að tala um vegalíki
stundum, slíkar eru holurnar þar.
Það er við hæfi að minnast á orð for-
setans í þessu samhengi. Náttúrufeg-
urð Vestfjarða er mikil, stæðileg fjöll,
skrúðgyrtir firðir og útsýni til hafs,
sem á sér fáa líka annars staðar á land-
inu. Hvílík synd að ekki sé löngu búið
að leggja þar vegi, sem eru mönnum
bjóðandi og myndu þá efalaust auka
straum ferðamanna þangað, innlendra
sem erlendra. Rómverjar gerðu sér
grein fyrir því að undirstaða hvers
samfélags væru góðar samgöngur.
Glúrin lífsspeki sem íslenskir ráða-
menn hafa greinilega látið fram hjá sér
fara, frá fyrsta degi.
x x x
VÍKVERJI heimsótti Mývatn ádögunum, náttúruperlu sem á
sér engan líka í veröldinni. Túrhesta-
slagorðið „Magical Mývatn“, sem
finna má á póstkortum er engin upp-
hafning heldur með réttu sönn lýsing
á veruleikanum sem blasir við manni
þar. Áður en keyrt er inn í töfraland-
ið fara menn yfir svokallaða Mý-
vatnsheiði, sem er um 7 kílómetra leið.
Þessi kafli er hluti af þjóðvegi 1 og er
enn ómalbikaður og torfær. Þetta þyk-
ir Víkverja hið undarlegasta mál ef
ekki reginhneyksli. Um Mývatnssveit
er óhemjumikil umferð manna á sumr-
in, og er svæðið hæglega fjölsóttasti
ferðamannastaður landsins. Augljóst
er að úr þarf að bæta hið allra snar-
asta.
x x x
VÍKVERJI rak reyndar glyrn-urnar í áætlanagerð Vegagerð-
arinnar á dögunum, þar sem má sjá
að hinir og þessir vegakaflar eigi að
fara undir malbik eða slitlag. Guð
gefi að sem flest af því, sem þar er
lofað, standist.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 mjög þykk, 8 útlimur, 9
kjánar, 10 þræta, 11 heit-
ir á, 13 hagnaður, 15 heil-
næms, 18 syrgja, 21 ílát,
22 ávöxtur, 23 tortímir,
24 úrsvöl.
LÓÐRÉTT:
2 gagnlegur, 3 ýlfrar, 4
kös, 5 grænmetið, 6 eld-
stæðis, 7 skjótur, 12 reið,
14 sefa, 15 hitta, 16 læsir,
17 brotsjór, 18 grikk, 19
hóp, 20 siga.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 skjól, 4 halda, 7 rýkur, 8 ölóði, 9 Týr, 11 káma,
13 etin, 14 kaðal, 15 hopa, 17 lekt, 20 krá, 22 látún, 23
meini, 24 agnar, 25 nælan.
Lóðrétt: 1 strók, 2 jukum, 3 lært, 4 hjör, 5 ljótt, 6 afinn,
10 ýfður, 12 aka, 13 ell, 15 hylja, 16 pútan, 18 ekill, 19
teikn, 20 knýr, 21 áman.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Black
Prince og Crystal
Symphony koma og fara
í dag.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Í dag
morgungangan kl. 10 frá
Hraunseli. Rúta frá Firð-
inum kl 9.50. Félags-
heimilið Hraunsel verður
lokað vegna sumarleyfa
starfsfólks til 11. ágúst.
Orlofsferð að Hrafnagili
við Eyjafjörð 19.–23.
ágúst, munið að greiða
gíróseðlana sem fyrst.
Orlofsferð að Höfða-
brekku 10.–13. sept.
Skráning og upplýsingar
eru kl. 9 til 21, sími
555 1703, 555 2484 og
555 3220.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in virka daga frá kl. 10–
13. Kaffi, blöðin og matur
í hádegi. Félagið hefur
opnað heimasíðu,
www.feb.is. Hringferð
um Norðausturland 17.–
24. ágúst. Uppselt.
Farið verður í Land-
mannalaugar 6. ágúst,
ekið inn Dómadal niður
hjá Sigöldu. Leið-
sögumaður Tómas Ein-
arsson, fyrirhugaðar eru
ferðir til Portúgals 10.
september í þrjár vikur
og til Tyrklands 1. októ-
ber í tíu daga fyrir fé-
lagsmenn FEB, tak-
markaður fjöldi.
Skráning er hafin í ferð-
irnar á skrifstofunni.
Ekki verður dansleikur á
sunnudagskvöldið vegna
sumarleyfa. Silfurlínan
er opin á mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10–12.
Skrifstofa félagsins er
flutt í Faxafen 12, sama
símanúmer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í Ás-
garði Glæsibæ. Upplýs-
ingar á skrifstofu FEB í
s. 588 2111
Gerðuberg, félagsstarf.
Lokað vegna sumarleyfa,
opnað aftur þriðjudaginn
13. ágúst. Á vegum
Íþrótta- og tóm-
stundaráðs eru sund- og
leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug kl. 9.30 mánu-
daga, miðvikudaga og
föstudaga. Umsjón
Brynjólfur Björnsson
íþróttakennari.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Púttað verður
á Listatúni í dag, laug-
ardag, kl. 10.30. Mætum
öll og reynum með okk-
ur.
Gönguklúbbur Hana-nú.
Morgunganga kl. 10 frá
Gjábakka í Kópavogi
laugardagsmorgna.
Krummakaffi kl. 9. Allir
velkomnir.
Félag fráskilinna og ein-
stæðra. Fundur í kvöld
kl. 21 í Konnakoti Hverf-
isgötu 105. Nýir félagar
velkomnir. Munið göng-
una mánu- og fimmtu-
daga.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið til að hætta
reykingum í Heilsu-
stofnun NLFÍ í Hvera-
gerði, fundur í Gerðu-
bergi á þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í fræðslu-
deild SÁÁ Síðumúla 3–5
og í Kirkju Óháða safn-
aðarins við Háteigsveg á
laugardögum kl. 10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20 á
Sólvallagötu 12. Stuðst
er við 12 spora kerfi AA-
samtakanna.
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, er opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Margt góðra muna.
Ath.! Leið 10 og 110
ganga að Kattholti.
Minningarkort
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum í
Reykjavík: Skrifstofu
Hjartaverndar, Lág-
múla 9, s. 535-1825. Gíró
og greiðslukort. Dval-
arheimili aldraðra
Lönguhlíð, Garðs apó-
tek, Sogavegi 108, Ár-
bæjar apótek, Hraunbæ
102a, Bókbær í
Glæsibæ, Álfheimum 74,
Kirkjuhúsið, Laugavegi
31, Bókabúðin Grímsbæ
v/ Bústaðaveg, Bóka-
búðin Embla, Völvufelli
21, Bókabúð Grafarvogs,
Hverafold 1–3.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á
Reykjanesi: Kópavogur:
Kópavogs apótek,
Hamraborg 11. Hafn-
arfjörður: Lyfja, Set-
bergi, Sparisjóðurinn,
Strandgötu 8–10, Kefla-
vík: Apótek Keflavíkur,
Suðurgötu 2, Lands-
bankinn, Hafnargötu
55–57.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á Vest-
urlandi: Akranes:
Hagræði hf., Borgarnes:
Dalbrún, Brákarbraut 3.
Grundarfjörður: Hrann-
arbúð sf., Hrannarstíg 5.
Stykkishólmur: Hjá
Sesselju Pálsd., Silf-
urgötu 36. Ísafjörður:
Póstur og sími, Að-
alstræti 18. Stranda-
sýsla: Ásdís Guð-
mundsd. Laugarholti,
Brú.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á Aust-
urlandi: Egilsstaðir:
Gallery Ugla, Miðvangur
5. Eskifjörður: Póstur og
s., Strandgötu 55. Höfn:
Vilborg Einarsdóttir,
Hafnarbraut 37.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á Norð-
urlandi: Ólafsfjörður:
Blóm og gjafavörur, Að-
algötu 7. Hvammstangi:
Verslunin Hlín,
Hvammstangabraut 28.
Akureyri: Bókabúð Jón-
asar, Hafnarstræti 108,
Möppudýrin, Sunnuhlíð
12c. Mývatnssveit: Póst-
húsið í Reykjahlíð. Húsa-
vík: Blómasetrið, Héð-
insbraut 1, Raufarhöfn:
Hjá Jónu Ósk Péturs-
dóttur, Ásgötu 5.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á Suð-
urlandi:
Vestmannaeyjar: Apótek
Vestmannaeyja Vest-
mannabraut 24. Selfoss:
Selfoss apótek, Kjarninn.
Samúðar- og heilla-
óskakort Gídeonfélags-
ins er að finna í anddyr-
um eða
safnaðarheimilum flestra
kirkna á landinu, í
Kirkjuhúsinu, á skrif-
stofu KFUM&K og víð-
ar. Þau eru einnig af-
greidd á skrifstofu
Gídeonfélagsins, Vest-
urgötu 40, alla virka
daga frá kl. 14–16 eða í
síma 562 1870. Allur
ágóði fer til kaupa á Nýju
testamentum sem gefin
verða 10 ára skólabörn-
um eða komið fyrir á
sjúkrahúsum, hjúkr-
unarheimilum, hótelum,
fangelsum og víðar.
Minningarspjöld
Kristniboðssambandsins
fást á skrifstofunni,
Holtavegi 28 (hús
KFUM og K gegnt
Langholtsskóla), sími
588-8899.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju eru til sölu í
kirkjunni í síma 587 9070
eða 587 9080. Einnig er
hægt að nálgast kortin í
Kirkjuhúsinu, Laugavegi
31, Reykjavík.
Líknarsjóður Dómkirkj-
unnar, minningarspjöld
seld hjá kirkjuverði.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði, til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði eru afgreidd í síma
456-2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafnarfirði
fást í Bókabúð Böðvars,
Pennanum í Hafnarfirði
og Blómabúðinni
Burkna.
Minningarkort Áskirkju
eru seld á eftirtöldum
stöðum: Kirkjuhúsinu,
Laugavegi 31, þjón-
ustuíbúðum aldraðra við
Dalbraut, Norðurbrún 1,
Apótekinu Glæsibæ og
Áskirkju, Vesturbrún 30,
sími 588-8870.
KFUM og KFUK og
Samband íslenskra
kristniboða. Minningar-
kort félaganna eru af-
greidd á skrifstofunni,
Holtavegi 28, í s.
588 8899 milli kl. 10 og 17
alla virka daga. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Í dag er laugardagur 27. júlí, 208.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Drottinn er ljós mitt og fulltingi,
hvern ætti ég að óttast?
Drottinn er vígi lífs míns, hvern
ætti ég að hræðast?
(Sálm. 27, 1.)