Morgunblaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. SÍMI 588-0800 KRINGLAN www.sambioin.is Sýnd kl. 2. Vit nr. 370. Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára Vit 400 Sandra Bullock í spennumynd sem tekur þig heljartaki! Þeir búa til leik sem hún þarf að leysa.. takmarkið er hinn fullkomni glæpur.  kvikmyndir.is Sýnd kl. 10. B.i. 14. Vit 393. HETJA MUN RÍSA UPP... ...Á AFTURLAPPIRNAR. 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8. Vit 398 FRUMSÝNING Þau hafa 45 mínútur til að bjarga heiminum. En þau þurfa 46 mínútur Fyndnasta myndin í bænum í dag frá Barry Sonnenfeld, leikstjóra Get Shorty. Með topp leikurum í öllum hlutverkum, þar á meðal Johnny Knoxville úr sjónvarpsþáttunum JackAss. Þessi mynd mun koma þér skemmtilega á óvart, ekki missa af henni! Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 406 Sýnd kl. 3 og 5. Íslenskt tal. Vit nr. 410. FRUMSÝNING S ag a u m s tr ák 1/2 SV Mbl 1/2 Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com  ÓHT Rás 2 23 þúsund áhorfendur www.sambioin.is Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. Sýnd kl. 2, 4, 5.50, 8 og 10.10. Hið yfirnáttúrulega mun gerast. vegna fjölda áskorana. 1/2 Kvikmyndir.is Kvikmynd eftir Ágúst Guðmundsson Ugla Egilsdóttir vann tilverðlauna á dögunum sem besta aðalleikona. Aðrir leikarar: Margrét Vilhjálmsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Kristbjorg Kjeld ofl Sýnd kl. kl. 2, 4 og 6. Sýnd kl. kl. 2, 3.45, 6 og 8. Með íslensku tali. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára.  SG DV  DV  HL. MBL Með hinum frábæra Frankie Muniz úr „Malcolm in the Middle“ i i i l l i i l Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10. RICHARD GERE LAURA LINNEY  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 10. B. i. 16. Sýnd kl. 2 og 4. Íslenskt tal. 1/2 Kvikmyndir.is FRUMSÝNING MÚSÍKVATUR og Kira Kira eru listamannsnöfn þeirra Sighvats Óm- ars Kristinssonar og Kristínar Bjark- ar Kristjánsdóttur en þau hafa verið talsvert virk í listageiranum undan- farin ár. Sighvatur hefur t.d. leikið með sveitum eins og Bag of Joys, Buff, Emmet og sinnt eigin hljóm- smíðum og nú er hann meðlimur í orgelkvartettinum Apparat. Kristín er hins vegar ein af vaktstjórum Til- raunaeldhússins og hefur sem slík staðið fyrir alls kyns uppákomum, hvar hljóð og hljómar fara í nýstár- legar rennireiðar. Þau fengu styrk frá Nýsköpunar- sjóði þetta árið til að rannsaka turn- byggingar í Reykjavík. Hverri skoð- un verður lokið með uppákomum næstu fjóra laugardaga og fer sú fyrsta fram í dag, í gamla slökkvistöðvarturninum, Tjarnargötu 12. Um er að ræða hljóðinnsetningu sem haldin verður á milli kl. 14.00 og 16.00. Um er að ræða svokallaðan „slönguturn“, sem staðsettur er þar sem Slökkviliðsstöð Reykjavíkur var til húsa á árunum 1912–1966 (í port- inu vinstra megin við Tjarnarbíó). Turninn var m.a. notaður til þess að þurrka brunaslöngur og er ætlan Músíkvats og Kiru Kiru að reyna að fanga þann hljóðheim sem turninn bjó yfir og skýrist þar með titill inn- setningarinnar. Turnar út um allt „Þetta sprettur upp af hugmynd sem ég og Sighvatur vorum að leika okkur með fyrir margt löngu,“ segir Kristín. „Við vorum að glápa á turna úr Alþingisgarðinum og fórum að velta því fyrir okkur hvað væri að ger- ast inni í þessum turnum – þeir eru eitthvað svo dularfullir og búa margir hverjir yfir sterkum einkennissvip.“ Reykjavík myndi seint teljast há- reist borg en Sighvatur segir að það séu fleiri turnar hér en margur held- ur, sé athyglisgáfan virkjuð. „Eftir að við fórum í þessar pælingar erum við alltaf að sjá turna út um allt (hlær).“ Kristín útskýrir fyrir blaðamanni hvernig framvindan verður, næstu fjóra laugardaga. „Þetta verða fjögur verkefni hjá okkur og við ætlum að reyna að tak- ast á við eðli og inntak hvers turns. Listræna nálgunin hverju sinni verð- ur því löguð að hverjum turni fyrir sig. Það er spennandi að takast á við þessa sögufræga turna, fara um þá okkar höndum og sleppa þeim síðan aftur,“ segir Kristín. Næsta verkefni mun eiga sér stað um Verslunarmannahelgina, en þá verður gamli Söluturninn í Lækjar- götu tekinn traustataki en hann er nú staðsettur í Mæðragarðinum. „Hann er nú notaður sem kaffiað- staða af strætisvagnastjórum,“ upp- lýsir Kristín. „Ætlunin er að færa hann í skrúða, skrúbba og skúra og endurvekja hans fornu frægð. Selja lummur og og bregða á leik. Hafa fjör í kringum hann.“ Turnfálkar, turn- kóngar, turnuglur og aðrir turn- áhugamenn, fylgist vinsamlega með næstu vikur. Því Reykjavík verður sannanlega umturnað, í ögn breyttri merkingu þess orðs! Umturnun í Reykjavík Turnar, af ýmsum stærðum og gerðum, sitja um þessar stundir fast í huga ofangreindra listamanna. Ekki nóg með það, heldur fara þeir af stað í dag með fyrsta verkefni sitt, tengt slíkum bygg- ingum. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við Kiru og ’Vat. Morgunblaðið/SverrirMúsíkvatur, Turni Brunason og Kira Kira eiga í listrænu samstarfi. Síðustu droparnir – hljóðinnsetning eftir Músíkvat og Kiru Kiru arnart@mbl.is Í TJARNARBÍÓI í kvöld mun landslið plötusnúða Íslands reyna með sér í skífuskanki fimmta árið í röð. Að þessu sinni munu sigurvegarar keppninnar fara utan og keppa í Skandinavíuriðli Vestax Extravaganza plötusnúðakepnninnar. „Þetta er í annað sinn sem Skandinavíuriðill- inn er haldinn og í fyrsta sinn sem Íslendingar munu taka þátt í keppn- inni,“ segir Ómar Ómar sem er liðsmaður í áhugafélaginu TFA (Tími fyrir aðgerðir) og aðalskipuleggjandi Skífuskanksins. Að sögn Ómars verður keppnin tvískipt, en keppt verður bæði í syrpuriðli og skankriðli. Þegar hann er spurður um nánari útlist- anir á þessum riðlum svarar hann: „Plötusnúðarnir nota plötuspil- arana sem hljóðfæri. Í syrpuriðl- inum nota plötusnúðarnir líkams- hreyfingar og plötuspilarana og flytja fjögurra mínútna syrpur. Í skankriðlinum er einungis ein mín- úta á mann þar sem frjálst hljóð og frjáls taktur ráða ríkjum.“ Alls taka 10 plötusnúðar þátt í keppninni, allir í skankriðlinum en einungis helmingurinn í syrpuriðl- inum. Keppendur sem lenda í efstu þremur sætum hins síðarnefnda munu svo taka þátt í Skandinavíu- riðlinum. Verðlaunahafinn verður sömu- leiðis leystur út með hinum ýmsu gjöfum en þar ber hæst Vestax PDX2000 plötuspilara sem er að sögn Ómars „sá besti sem völ er á“. Keppendurnir munu einnig leika á sams konar spilara í keppninni sjálfri. Ómar segir keppnina aldrei hafa verið veglegri og í þetta sinn eru það meira að segja fagmenn erlend- is frá sem munu velja sigurvegara kvöldsins. „Plötusnúðarnir DJ Stig og DJ Unique munu koma frá Danmörku til að dæma keppnina og DJ Saber, sem vann Skandinavíuriðilinn í fyrra, mun taka syrpu fyrir við- stadda,“ upplýsir hann. Skrykkdanshópurinn The 5th Element mun taka nokkur spor ásamt kollegum sínum í Sushi frá Noregi og 360 frá Bandaríkjunum en Ómar segir þá fyrstnefndu lofa „flottustu skrykkdanssýningu sem haldin hefur verið á landinu“. Keppnin fer sem áður sagði fram í Tjarnarbíói og hefst klukkan 20.30. Ómar hvetur áhugasama til að mæta tímanlega þar sem síðast hafi færri komist að en vildu. Til að fagna sigurvegurum keppninnar og Skífuskankinu í heild sinni verður svo blásið til veislu að keppninni lokinni á Gauki á Stöng. Ómar Ómar með hinn forláta Vestax PDX2000 plötuspilara. TENGLAR ..................................................... www.tfa.is birta@mbl.is Skífuskank og syrpur í Tjarnarbíói Morgunblaðið/Arnaldur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.