Morgunblaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
SKULDBINDING B-deildar Líf-
eyrissjóðs starfsmanna ríkisins
(LSR) hefur tæplega tvöfaldast á
undanförnum fimm árum. Ástæðan
er fyrst og fremst kerfisbreyting á
launum opinberra starfsmanna.
Samkvæmt útreikningi trygginga-
stærðfræðings sjóðsins er áfallin
skuldbinding B-deildar, A-deildar,
alþingismannadeildar og ráðherra-
deildar metin á um 280 milljarða
króna, þar af er áfallin skuldbinding
B-deildar 260,5 milljarðar og hafði
aukist um 10% á milli ára, að því er
kemur fram í ársskýrslu LSR fyrir
árið 2001.
Meðalávöxtun hjá öllum deildum
LSR var 8,77% í fyrra sem svarar til
0,15% raunávöxtunar. Hrein raun-
ávöxtun þegar rekstrarkostnaður
hefur verið dreginn frá fjárfesting-
artekjum var nánast engin. Hrein
raunávöxtun A-deildar var neikvæð
um 2,9% í fyrra, raunávöxtun
B-deildar var jákvæð um 0,7% en
S-deildar (séreignardeild) neikvæð
um 3,2%.
Í skýrslunni er tekið fram að síð-
asta ár hafi verið fjárfestum erfitt,
bæði á verðbréfamarkaðinum hér
heima og erlendis; heimsvísitala
hlutabréfa hafi lækkað um 17,8% og
heildarvísitala aðallista Verðbréfa-
þingsins um 9,4%.
Af verðbréfaeign A-, B- og
S-deilda LSR og Lífeyrissjóðs hjúkr-
unarfræðinga voru 41% ríkistryggð
verðbréf. Skuldabréf voru tæplega
74% af heildarverðbréfaeigninni en
erlend hlutabréf 19% og innlend
hlutabréf 8%.
16,5% neikvæð raunávöxtun af
erlendri hlutabréfaeign
Raunávöxtun af erlendri hluta-
bréfaeign LSR var neikvæð um
16,5% í fyrra. Innlend hlutabréf í
eigu sjóðsins skiluðu hins vegar
11,9% neikvæðri raunávöxtun.
Skuldabréf skiluðu sjóðnum aftur á
móti 5,8% jákvæðri raunávöxtun.
Mikil aukning hefur orðið í lánveit-
ingum til sjóðfélaga og hefur sú upp-
hæð meira en fimmfaldast frá árinu
1998 og nam 4,9 milljörðum í fyrra.
Þá kemur fram að 9.349 lífeyrisþegar
hafi fengið greiðslur frá LSR og Líf-
eyrissjóði hjúkrunarfræðinga (LH) í
fyrra upp á samtals hátt í 8.100 millj-
ónir. Lífeyrisþegunum fjölgaði um
5%, heildarlífeyrisgreiðslur hækk-
uðu um 19,8% en meðalfjárhæð á
hvern lífeyrisþega hækkaði 9,4%.
Áfallnar skuldbindingar
B-deildar 260,5 milljarðar
Samanlagðar eignir allra deilda
LSR námu ríflega eitt hundrað millj-
örðum króna og er hann stærsti líf-
eyrissjóður landsins. Eignir sjóðsins
jukust um 32,5% frá fyrra ári, m.a.
vegna innborgana ríkissjóðs inn á
skuldbindingar sínar, en markmiðið
er að dreifa greiðslu skuldbindinga
ríkisins við sjóðinn á langan tíma.
Samkvæmt útreikningi trygginga-
stærðfræðings sjóðsins er þó áfallin
skuldbinding B-deildar, A-deildar,
alþingismannadeildar og ráðherra-
deildar metin á um 280 milljarða
króna, þar af er áfallin skuldbinding
B-deildar 260,5 milljarðar og hafði
aukist um 10% á milli ára. Skuldbind-
ing B-deildar LSR hefur tæplega
tvöfaldast á undanförnum fimm ár-
um og er ástæðan fyrst og fremst
kerfisbreyting á launum opinberra
starfsmanna 1998 og svo aftur árið
2000 vegna kjarasamninga kennara.
Þá hefur vísitala dagvinnulauna op-
inberra starfsmanna hækkað um
nær 78% frá ársbyrjun 1997 til árs-
loka 2001.
Á síðustu tveimur árum hefur rík-
ið greitt inn á skuldbindingar sínar
við B-deild sjóðsins, en B-deildin er í
meginatriðum LSR eins og sjóðurinn
leit út áður en lögunum var breytt
árið 1997. Uppreiknað nema þessar
greiðslur 30,6 milljörðum.
Heildarstaða A-deildar, þ.e. þegar
reiknað er með að núverandi sjóðs-
félagar greiði áfram iðgjöld til ellilíf-
eyrisaldurs og vinni sér inn réttindi í
samræmi við það, var um síðustu
áramót tæplega einum milljarði
lægri en heildarskuldbindingar hans.
Ekki er þó talin ástæða til að gera
breytingar á iðgjaldagreiðslum rík-
isins til sjóðsins því aðeins er 0,9%
munur á eignum og skuldbindingum
og telst afkoma A-deildar því vera í
jafnvægi.
Raunávöxtun Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins var 0,15% í fyrra
Skuldbindingar B-deildar
tvöfölduðust á fimm árum
GISSUR Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir að
stofnunin sé aftur farin að gefa út
atvinnuleyfi til nektardansmeyja
sem dansa á næturklúbbum hér-
lendis, en stofnunin hætti um tíma
að veita leyfin meðan embætti rík-
islögreglustjóra var að rannsaka
hvort vændi viðgengist á nætur-
klúbbum.
Gissur segir að verklagsreglur
Vinnumálastofnunar geri ráð fyrir
að stofnunin taki sér allt að
tveggja mánaða frest til að rann-
saka hvort öll skilyrði séu lög-
formleg varðandi veitingu atvinnu-
leyfa. Hann segir að hann hafi
tilkynnt næturklúbbunum í síðasta
mánuði að ekki verði gefin út at-
vinnuleyfi að svo stöddu, meðan
rannsókn fari fram á því hvort
vændi sé stundað á næturklúbb-
um. Fyrir mánuði sendi hann um-
sækjendum, sem þá höfðu beðið
svars í einn mánuð, bréf þar sem
sagði að umsóknirnar yrðu af-
greiddar í síðasta lagi 24. júlí eftir
að tveggja mánaða rannsóknar-
frestur væri liðinn.
Gissur segist engin viðbrögð
hafa fengið frá embætti ríkislög-
reglustjóra við umleitan Vinnu-
málastofnunar um hvað liði rann-
sókn á vændi á næturklúbbum hér
á landi.
„Ég veit í raun ekki hvort það
varð nein rannsókn, þar sem ég
fékk engin viðbrögð. Í ljósi þeirra
upplýsinga og gagna sem liggja
fyrir gátum við því ekki gert ann-
að en að heimila útgáfu þessara
leyfa að nýju,“ segir Gissur.
Búið að gefa út 10
leyfi síðustu daga
Gissur segir Vinnumálastofnun
hafa gefið út um það bil 10 leyfi
síðan á miðvikudag. Um 40 um-
sóknir um atvinnuleyfi bíði af-
greiðslu. „Ég met það svo að við
höfum fengið vottorð frá lögregl-
unni um að það sé í lagi að veita
þessi leyfi. Við báðum um rann-
sókn, fáum engin viðbrögð og get-
um því ekki metið það öðruvísi en
svo að það sé í lagi,“ segir Gissur.
Ekki fengust upplýsingar frá
embætti ríkislögreglustjóra í gær
um málið.
Karl Steinar Valsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í
Reykjavík, segir að embættið hafi
verið með rannsókn í gangi sem
varðar grun um að vændi hafi ver-
ið stundað á einum tilteknum næt-
urklúbbi í borginni.
„Ég get staðfest að það er til
rannsóknar hjá embættinu mál
sem varðar einn næturklúbb í um-
dæmi okkar og málið hefur verið
talsvert lengi í meðferð hjá emb-
ættinu,“ segir Karl Steinar.
Rannsókn á málinu er ekki lokið
og óljóst hvort ákært verður í því.
Um 40 dansmeyjar hafa sótt um
atvinnuleyfi til Vinnumálastofnunar
Veitir á ný
atvinnuleyfi til
nektardansmeyja
ÖKUMAÐUR Audi-sportbifreiðar
missti stjórn á bíl sínum á mjög
mikilli ferð á leið sinni austur um
Hverfisgötu og Laugaveg eða í
sveigjunni rétt austan gatnamót-
anna við Rauðarárstíg um hálfátta-
leytið í gærkvöld. Lenti sportbíllinn
þar á kyrrstæðum jeppa, velti hon-
um og þeyttist svo á annan bíl.
Kyrrstæðu bílarnir voru mann-
lausir en farþegi var með ökumanni
í sportbílnum og voru þeir báðir
fluttir á slysadeild lítið slasaðir að
því er talið var.
Að sögn sjónarvotta var sport-
bifreiðin á miklum hraða þegar
ökumaðurinn missti stjórn á henni
og að sögn lögreglunnar í Reykja-
vík má teljast mildi að gangandi
vegfarendur skyldu ekki slasast.
Morgunblaðið/Júlíus
Ofsaakstur
á LaugavegiRÚMLEGA 10% verðmunur
var á ódýrustu og dýrustu mat-
arkörfunni í skyndiverðkönnun
Morgunblaðsins í lágvöru-
verðsverslununum fjórum í
gær. Verð var kannað á þrettán
algengum vörutegundum.
Karfan var ódýrust í Bónusi
á 1.685 kr. en næstódýrust í
Europris á 1.714 krónur. Dýr-
ust var karfan í Nettó í Mjódd á
1.855 krónur en í Krónunni
kostaði hún 1.813 kr. Um 1,7%
verðmunur var á ódýrustu
körfunni í Bónusi og þeirri
næstódýrustu í Europris.
Í 11 tilvikum af 13 var verðið
lægst hjá Bónusi og í fjórum til-
fellum lægst hjá Europris.
Um 10%
verðmunur
Tæplega/27
ÞRIGGJA bíla árekstur varð í Norð-
urárdal í gærkvöldi. Bílstjóri á norð-
urleið ætlaði að taka fram úr tveimur
bílum sem voru fyrir framan hann en
náði því ekki og snarhemluðu þrír
bílar sem komu úr gagnstæðri átt og
lentu saman. Bílstjórinn sem ætlaði
fram úr var nýkominn út úr beygju,
að sögn lögreglu, en þar sem nýbúið
var að malbika veginn var ekki búið
að mála línur á götuna sem gefa til
kynna hvort leyfilegt sé að taka fram
úr. Fjórir voru fluttir undir læknis-
hendur en þeir voru lítið meiddir.
Þriggja bíla
árekstur