Morgunblaðið - 09.08.2002, Side 4

Morgunblaðið - 09.08.2002, Side 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ N O N N I O G M A N N I I Y D D A / si a .i s / N M 0 6 5 2 8 ...á girðinguna, gluggana, veröndina og sumarbústaðinn. Við veitum faglega ráðgjöf. Dugguvogi 4 • www.slippfelagid.is EKKI hefur verið til sérstakrar at- hugunar í fjármálaráðuneytinu að breyta reglum um frípunkta sem op- inberir starfsmenn fá þegar þeir ferðast vegna vinnu sinnar. Baldur Guðlaugsson, ráðuneytis- stjóri í fjármálaráðuneytinu, segir að á sínum tíma hafi verið reynt að ná utan um þetta. „Það gekk bara ekki og það náðist ekki heldur samstarf við Flugleiðir sem hefði þurft að koma til. Það er ákveðin hugmynda- fræði á bak við þeirra kerfi sem þeir voru þá ekki tilbúnir að sveigja að sjónarmiðum ríkisins þannig að í raun var ekki framkvæmanlegt að halda utan um þessa punkta og nýta í þágu ríkisins. Það var því tekin sú meðvitaða ákvörðun að það svaraði ekki kostnaði að vera að reyna það frekar.“ Alls ekki auðvelt að koma upp eigin kerfi hjá ríkinu Aðspurður segir Baldur að það sé engan veginn einfalt mál fyrir ríkið að koma sér upp eigin kerfi til að halda utan um þessa punkta. Og al- veg burtséð frá því séu í gildi hjá Flugleiðum ákveðnar reglur um nýt- ingu frípunktanna. Ef menn ætli að taka frípunkta eins starfsmanns vegna vinnuferðar og nota þá til greiðslu á næstu ferð hans geti það stangast á við reglur sem gilda hjá Flugleiðum. „Menn geta ekki notað punkta til greiðslu á ferð nema þeir nái, að mér skilst, 80% af þeim punktum sem þarf til þess að borga tiltekna ferð. Í öðru lagi má nefna að hjá Flugleið- um eru í gildi ákveðnar reglur um það hversu mörg sæti undir frí- punktafarþega eru tiltæk í hverri ferð og það myndi augljóslega valda vandræðum við skipulagningu ferða. Þá má í þriðja lagi nefna að það eru takmarkanir á því hverjir geta notað frípunktana. Að því er ég best veit hafa verið í gildi þær reglur að við- komandi punktaþegi auk maka hans og barna undir ákveðnum aldri geti notað punktana.“ Sömu skattareglur verða að gilda fyrir atvinnulífið allt Baldur segir að ekki sé óeðlilegt að hafa mál sem þetta til stöðugrar endurskoðunar en það sem viðgang- ist núna sé hreinlega ákvörðun sem er alveg uppi á borðinu þótt menn hafi á einhverju stigi ætlað sér að fara aðra leið. Þá segir Baldur að skattleg meðferð punktanna sé ann- ar handleggur og það gildi engar sérreglur um frípunkta opinberra starfsmanna, sama verði að gilda um opinbera starfsmenn og aðra sem ferðast á vegum fyrirtækja í at- vinnulífinu. „Það er væntanlega nokkuð snúið að ná utan um það vegna þess að saman við þetta bland- ast punktar sem menn vinna sér inn persónulega. Þetta er frekar spurn- ing um hversu stórt mál þetta er og hvaða þörf er á að taka fyrri ákvarð- anir til endurskoðunar vegna þess að það er viðbúið að þetta myndi í reynd ekki nýtast ríkinu sjálfu mikið að óbreyttum reglum. Það hefur því væntanlega ekki þótt ómaksins vert að þjösnast áfram í þessu máli. Þar með er ekki sagt að það geti ekki verið ástæða til þess að skoða það með reglulegu millibili,“ sagði Bald- ur. Fyrr í vikunni var haft eftir Guð- jóni Arngrímssyni, upplýsingafull- trúa Flugleiða, í Morgunblaðinu að frípunktakerfið sé hannað fyrir ein- staklinga og erfitt sé að laga það að stofnunum eða fyrirtækjum. Hins vegar sé fyrirtækjum og stofnunum í sjálfsvald sett að setja reglur um notkun frípunkta, þar á meðal hvort þeim sé deilt á starfsmenn. Frípunktar sem koma í hlut opinberra starfsmanna Erfitt í framkvæmd að láta ríkið njóta þeirra GERT er ráð fyrir að rannsókn- arnefnd flugslysa ræði við systur- stofnun sína í Danmörku í næstu viku um atvikið við austurströnd Grænlands í síðustu viku þegar flugmenn tveggja hreyfla Cessna 404 flugvélar frá flugfélaginu Jór- vík misstu vélina úr 13 þúsund feta hæð niður í 2 þúsund feta hæð vegna gangtruflana. Rannsóknin er á höndum dönsku rannsóknar- nefndarinnar en íslenska nefndin er henni innan handar. Gagnasöfnun af hálfu íslensku nefndarinnar stendur yfir og annast hún viðtöl við flugmennina og aflar þeirra gagna sem danska nefndin kallar eftir. Að svo komnu máli þykir lík- legasta skýringin á atvikinu vera sú að ísing hafi valdið gangtruflunum í hreyfli vélarinnar með þeim afleið- ingum að hún missti mikla hæð skammt undan austurströnd Græn- lands. Flugvélin, sem er 25 ára gömul, hefur verið útskrifuð að lokinni skoðun og er komin aftur í notkun. Íslenska rannsóknarnefndin segir flugmennina hafa orðið vara við gangtruflanir í 13 þúsund feta hæð og segir Jón Grétar Sigurðsson framkvæmdastjóri Jórvíkur að þar sé eflaust átt við gangtruflanir af völdum ísingar. Augu manna hafi fyrst beinst að vatni í bensíni sem valdið hafi hökti í mótornum, en það sé samt ólíklegt. Hann segir samt að vatn myndist oft í bensíntönkum þessara flugvéla og því sé þess gætt daglega að bensínið sé ómengað af vatni. Aðspurður segir hann af og frá að hættan á daggarmyndun í bensíntönkum aukist eftir því sem vélarnar eldast. Hann segir að- spurður um viðbrögð flugmannanna þegar þeir lentu í atvikinu ásamt níu farþegum sínum, að þeir hafi komið flugvélinni út úr aðsteðjandi vanda. „Það segir mér að þeir hafi gert eitthvað rétt,“ segir hann.         ! "#$%&$ #!' $( )$ ! * &! +(,!! -!$-%.$$#! ! *( *!/$#!!  0! 11  (! ! 1!! %/! &2  13   4 1 ( *' $$+11 ! 5!*%+ (! ' $ !  3 1+$ .  !136 1 1 6  36 3 6  6  3   7 , 8 4 6  3                    Rannsóknarnefndirnar ræða flugatvikið í næstu viku FORSETI Lettlands, frú Vaira Vike-Freiberga, og eiginmaður hennar, prófessor Imants Freibergs, koma til Íslands 11. ágúst en opinber heimsókn þeirra í boði Ólafs Ragn- ars Grímssonar hefst 12. ágúst. Heimsóknin hefst með athöfn á Bessastöðum að viðstaddri ríkis- stjórn Íslands og handhöfum for- setavalds. Að loknum viðræðum for- setanna munu þeir halda sameigin- legan blaðamannafund en síðar þann dag mun forseti Lettlands eiga við- ræður við Davíð Oddsson forsætis- ráðherra. Eftir þann fund verða hringborðsumræður í Þjóðmenning- arhúsinu við Hverfisgötu um málefni smáríkja innan NATO og mun for- seti Lettlands flytja erindi um það efni. Vike-Freiberga mun skoða íslensk handrit í Stofnun Árna Magnússon- ar. Um kvöldið verður hátíðarkvöld- verður á Bessastöðum til heiðurs forsetahjónunum. Íslenskir og lettneskir viðskiptaaðilar ræðast við Hinn 13. ágúst munu forseti Ís- lands og forseti Lettlands setja við- skiptastefnu sem haldin verður með íslenskum og lettneskum viðskipta- aðilum í Húsi verslunarinnar í Kringlunni á vegum Verslunarráðs Íslands í samvinnu við Útflutnings- ráð Íslands og viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins. Þaðan verð- ur haldið til Þingvalla og staldrað við í Vinalundi. Forsetahjónin munu ásamt forseta Íslands og Dorrit Moussaieff snæða hádegisverð í boði Davíðs Oddssonar forsætisráðherra og Ástríðar Thorarensen á Þingvöll- um. Síðar um daginn mun forseti Lett- lands opna lettneska málverkasýn- ingu í Kringlunni og efna til móttöku í anddyri Borgarleikhússins. Í fylgdarliði forsetans eru meðal annars Aigars Kalvitis efnahags- málaráðherra, ásamt öðrum áhrifa- mönnum í stjórnkerfi Lettlands, auk rúmlega 40 manna viðskiptasendi- nefndar. Forseti Lettlands í opinbera heimsókn SENNILEGA fara að verða síðustu forvöð að njóta útivistar í „hlýju“ sumarsins. Og líklega kemst maður hvað best í snertingu við náttúruna með því að vaða berfættur yfir læki. Það gerði þessi unga kona, sem hér sést, og virtist fara létt með að vaða yfir Reykjadalsá við Hveragerði. Hún þarf hins vegar ekki að hafa áhyggjur af kulda því vatnið í ánni er ylvolgt. Síðustu daga hefur verið hlýtt og gott veður á Suðurlandi. En eins og flestum er í fersku minni rigndi mikið um síðustu helgi. Vaðið yfir Reykja- dalsá Morgunblaðið/Ingó

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.