Morgunblaðið - 09.08.2002, Side 17
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2002 17
ræða, heldur þurfi að vinna með rót
vandans á annan hátt til að öðlast
lækningu.
Úrkoman setti ekki bara svip sinn
á mótshald um helgina
því hún hafði einnig
áhrif á samgöngur á
svæðinu og um tíma
voru Hellnar aflokaðar
á báða vegu þar sem
rann úr Útnesvegi við
Arnarstapa svo hann
var ófær og einnig fór
vegurinn í sundur við
Hólahóla. En Vega-
gerðin brást skjótt við
og gerði nauðsynlegar
úrbætur svo allir kom-
ust leiðar sinnar. Læk-
ir flæddu víða yfir
bakka sína og vegurinn
yfir Jökulhálsinn fór í
sundur á einum stað og
víða voru rásir í honum vegna vatns
sem hafði flætt þar um.
Upp úr hádegi á verslunar-
mannafrídaginn fór hins vegar að
létta til og nú ríkir blíðskaparveður
Undir Jökli.
TÖLUVERT færri en búist hafði
verið við sóttu Mannræktarmótið á
Brekkubæ á Hellnum í
hinni miklu úrkomu
sem gekk yfir Snæfells-
nesið sunnanvert um
verslunarmannahelg-
ina. Góðan gest rak
samt óvænt á fjörur
mótsgesta því á Gisti-
heimilinu Brekkubæ
dvaldi dr. Stan Goldin
taugasérfræðingur,
sem starfar við Har-
vard-læknaháskólann.
Goldin bauð móts-
gestum upp á fyrirlest-
ur á laugardeginum þar
sem hann fjallaði um
ýmsar nýjar rannsókn-
ir sem benda eindregið
til þess að stutt verði í að svokallaðar
óhefðbundnar lækningar verði not-
aðar samhliða hefðbundnum lækn-
ingum, þar sem m.a. hefur komið í
ljós að lyfjagjöf leysir oft ekki vand-
ann þegar um huglæg áföll er að
Stan Goldin
Góður gestur
í rigningunni
Hellnar
UM SÍÐUSTU mánaðamót lauk
grásleppuvertíð við Breiðafjörð.
Grásleppuvertíðin hófst 10. maí og
stunduðu 13 bátar veiðarnar frá
Stykkishólmi. Eru það mun fleiri
bátar en undanfarin ár. Í vor ríkti
bjartsýni með veiðarnar og eins
hefur verð fyrir hrogn farið hækk-
andi. Vonir manna um aflabrögð
rættust ekki. Veiði var léleg fram-
an af vertíðinni, en síðustu dag-
arnir voru skástir. Alls var landað
í Stykkishólmi tæpum 60 tonnum
af grásleppuhrognum. Flestir bát-
arnir lögðu upp aflann hjá Sigurði
Ágústssyni ehf. í Stykkishólmi.
Hjá kavíarvinnslu Sigurðar
Ágústssonar ehf. lönduðu í sumar
25 bátar víða að af landinu.
Kavíarvinnslan tók á mótin 649
tunnum af hrognum á móti 458
tunnum í fyrra, en fleiri bátar
lögðu upp hjá fyrirtækinu í sumar.
Í gráslepputunnunni eru um 150
kíló af hrognum.
Grásleppuveiðarnar sköpuðu
mörgum vinnu í Stykkishólmi, þar
sem yfirleitt eru 2 menn á hverj-
um báti.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Þröstur Auðunsson og Alexander Helgason voru saman á grásleppu-
veiðum í sumar og sögðu að veiðin hefði mátt vera meiri. Hér eru þeir
að taka grásleppunetin í land og næstu daga munu þeir skera af net-
unum og hafa teinana klára fyrir næsta vor.
Grásleppu-
vertíð lok-
ið í Stykk-
ishólmi
Stykkishólmur
UM 300 manns lögðu leið sína á
sandkastalakeppnina í Önund-
arfirði síðastliðinn laugardag en
hún hefur verið haldin árlega á
sendinni Holtsfjörunni í áratug.
Sigurverkið í keppninni var mynd-
arleg hafmeyja með þarablöðkur
fyrir hár og steina fyrir augu og
fóru höfundar hennar heim klyfj-
aðir verðlaunum. Sandkastala-
keppnin snýst, að sögn aðstand-
enda, einkanlega um að fara út að
leika sér með börnunum sínum.
Dómnefnd í keppninni skipuðu
þær Elísabet Gunnarsdóttir arki-
tekt, Dorothee Lubecki ferðamála-
fulltrúi og Sigríður Björk Guðjóns-
dóttir, sýslumaður Ísfirðinga.
Höfðu þær ærinn starfa við að velja
sigurverk úr hópi þeirra fimmtíu
listaverka sem litu dagsins ljós
þennan gráa laugardag.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Þessi haganlega gerða hafmeyja bar sigur úr býtum í keppninni.
50 verk á sandkastalakeppni
Önundarfjörður
ATVINNA mbl.is
í Fornalundi
Útsala - útsala
Viðbótarafsláttur
Síðustu dagar