Morgunblaðið - 09.08.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 09.08.2002, Blaðsíða 44
FÓLK Í FRÉTTUM 44 FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ                             ! "#  $% !                                     Íslands eina von Eyjólfur Kristjáns Vesturgötu 2 sími 551 8900 2 DAGA „COUNTRY & WESTERN FESTIVAL“ ******************** Laugard. 10. ágúst kl. 19.30 - 03 Kántrýstjarnan GÍSLI JÓHANNSSON & BIG CITY LEYNIGESTIR LÍNUDANS DANSLEIKUR Á matseðli kvöldsins: Barbecue - Grillveisla Miðaverð með mat kr. 3.500 Miðaverð án matar kr. 2.000 Sætaferðir frá BSÍ kl. 19.00 Verð báðar leiðir kr. 1.500 Óvæntur glaðningur hatthöfða og hestamenn bæði kvöldin! *************************** Sunnudagskv. 11. ágúst 22 - 01 KVEÐJUTÓNLIEKAR! GÍSLI JÓHANNSSON & BIG CITY í síðasta sinn á Íslandi Miðaverð kr. 1.000 Sætaferðir frá BSÍ kl. 21.00 Verð báðar leiðir kr. 1.500 Stapinn býður gesti velkomna eftir gagngerar breytingar! & ' $      (# %  / #5  +     5  + %   "=>'" BÖGGVER, Dalvík: Hljómsveitin Sixties spilar föstudagskvöld og kynnir nýja hljómplötu sína. CAFÉ AMSTERDAM: Hljómsveitin Sólon spilar. CAFÉ CATALÍNA: Sváfnir Sigurðar- son trúbador. CAFÉ ROMANCE: Ray Ramon og Mete Gudmundsen spila fyrir gesti til kl. 3. GAUKUR Á STÖNG: Sálin hans Jóns míns spilar. KAFFI REYKJAVÍK: Íslands eina von og Eyjólfur Kristjánsson. LIONSSALURINN, Kópavogi, Auð- brekku 25: Gísli Jóhannsson og the Big City kl. 22. Spila þetta eina kvöld á dansæfingu . LUNDINN, Vestmannaeyjum: Hljómsveitin Hafrót leikur. O’BRIENS, Laugavegi 73: James Hickman. RÁIN, Reykjanesbæ: Hjómsveitin SÍN spilar. SPOTLIGHT: Berlínarkabarett með Wolfang Muller, Stereo Total og gestum föstudagskvöld kl. 21. STAPINN, Reykjanesbæ: Jet Black Joe með tónleika föstudagskvöld. Í för er hljómsveitin Vínyll. VIÐ POLLINN, Akureyri: Hljóm- sveitin Einn & sjötíu skemmtir. VÍKIN, Höfn: Diskórokktekið og far- andskífuþeytirinn Dj Skugga-Baldur. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Morgunblaðið/Sverrir Jet Black Joe leika í Stapanum. ÞAÐ ER mér enn minnisstætt er Forgarður helvítis tók þátt í Mús- íktilraunum Tónabæjar fyrir ára- tug. Þá var dauðarokkið í algleym- ingi og þátt tóku sveitir eins og In Memoriam, Cranium, Condemned, Inflammatory, Dystophia, Crem- ation og Baphom- et, svo dæmi séu tekin og ansi þungt andrúmloft í salnum þegar tók að líða á hvert tilraunakvöld. Þeim mun skemmtilegra var að fá For- garðinn á svið, kolvillta grindcore- kappa sem brutu af sér allar viðjar hefðar og smekkvísi; hristu upp í þunglamalegu dauðarokkinu með því að vera bráðskemmtilegir. Upp frá því hefur Forgarðurinn haldið sínu striki, verið iðinn við tónleikahald og gefið talsvert út af efni, nú síðast diskinn Gerninga- veður sem hér er gerður að umtals- efni. Enn er sami kjarninn í sveit- inni og á tilraununum forðum daga, þeir Sigurgrímur, Vernharður og Sigurður, en Magnús Halldór bætt- ist síðar við traustur á bassann. Grindcore léku þeir félagar í upphafi, eða eitthvað í þá átt, og róa svosem á sömu mið, en hafa náð að skapa sér sérstakan nútíma- legan stíl sem bræðir saman hefð- bundið dauðarokk og harðkjarna með skemmtilegum laglínum sem gægast fram óforvarandis í miðjum hamaganginum, á stundum bækl- aðar og skældar eða þá sviðnar og snúnar þar sem Sigurður hreytir þeim útúr sér djöfullegri röddu. Það segir svo sitt að þessi eldspú- andi ófreskja sem syngur/öskrar er með ljúfustu mönnum í viðkynn- ingu. Erfitt reynist vísast flestum að greina orðaskil hjá Sigurði, enda reynir hann ekki að hemja tján- inguna, leyfir reiðinni að streyma fram og af henni er nóg. Gott texta- blað fylgir plötunni og þar má sjá að hann er á köflum mistækur í textagerðinni, víða sigrar efnið andann, en á líka góða spretti eins og í Fjandafælu: Mín sannfæring / að trú / á æðri mátt // Sé draumur / maðka / í svartri mold // Setur / von minni / mörk. Plötur Forgarðsins eru um margt áþekkar við fyrstu hlustun en þegar grannt er skoðað eru lagasmíðar að verða æ beinskeytt- ari, og útsetningar hnitmiðaðri. Nefni sem dæmi Gjörningaveður, sem er frábært lag, og Geldingu óskhyggjunnar. Einnig er sér- deilis snjöll flétta í Vítahring öm- urleikans sem gefur vísbend- ingu um að enn sé Forgarðurinn í sókn, besta lag plötunnar – al- gjör snilld. Eins góð og þessi lög eru, og reyndar fleiri lög á skífunni, gjalda mörg þeirra þó þess að hljómur er ekki nógu góður, sérstak- lega hvað botn- inn varðar. Þannig hefði ver- ið gaman að fá almennilegan þunga í innganginn á Ferðasýn og einnig í upphafi Guð er stærsta lygi í heimi. Gerningaveður er tvímælalaust besta skífa Forgarðs helvítis til þessa, sönnun þess að sveitin er enn að bæta sig, og hlýtur að koma til álita sem ein af bestu rokkskíf- um ársins. Eitt það besta við For- garð Helvítis er að maður fær á til- finninguna að þeim félögum sé skítsama hvort maður kunni að meta tónlistina eða ekki, þeir eru að gera það sem þá langar og tröll taki þá sem ekki eru með á nót- unum. Tónlist Reiðin streymir Gerningaveður Forgarðs helvítis sem hljómsveitin sjálf gefur út. Sveitina skipa Sigurður Harðarson söngvari, Magnús Halldór Pálsson bassaleikari, Vernharður R. Sigurðsson gítarleikari og Sigurgrímur Jónsson gítar- og trommuleikari. Árni Matthíasson Forgarður helvítis gefur út Gerningaveður. About a Boy Hugh Grant fer fyrir ein- stökum leikhópi og myndin er undur vel gerð og skrifuð. Frábær skemmtun. (S.V.) Háskólabíó, Sambíóin. The Mothman Prophecies Vönduð mynd og áhrifa- rík sem byggist lauslega á sönnum yfirnáttúruleg- um atburðum. Góðir leik- arar njóta sín vel og áhorfandinn er á taugum allan tímann. (H.L.)  Sambíóin, Háskóla- bíó. Skrímsli hf. Raddsett tölvuteiknuð barna- og fjölskyldu- mynd um skrímslin í skápnum sem reynast jafnvel hræddari við börn en börn við þau. (S.V.)  Sambíóin. Murder by Numbers Í anda Rope eftir Hitchcock og vinnubrögð Barbets Schroeder eru öll hin fagmannleg- ustu. Morðsagan sjálf er hins vegar fullfyr- irsjáanleg. Ungu leikararnir standa sig best. (S.V.)  ½ Sambíóin Kóngulóarmaðurinn Ný og flott mynd um Kóngulóarmanninn í gamaldags hasarblaðastíl, í bland við straumlínulagað tölvugrafíkútlit. (H.J.)  Regnboginn. Reign of Fire/ Eldríkið Gamli góði B-vísindahrollurinn kominn aftur í fullu fjöri. Hrá, grá og notalega vitlaus. (S.V.)  ½ Laugarásbíó, Regnboginn Bad Company Hopkins og Rock eru furðulegt par sem venst vel í annars stundum fyndinni en alltof langri og ófrumlegri spennumynd. (H.L.) Sambíóin, Háskólabíó. Pétur Pan 2: Aftur til Hvergilands Pétur Pan berst enn við Kaftein Krók og nú með hjálp Jónu dóttur hennar Vöndu. Ósköp sæt mynd en heldur tíðindalítil og ófrumleg. (H.J.) Sambíóin, Háskólabíó. Big Fat Liar Atburðarásin leiðist úr sæmilegri sögu um dreng sem þarf að læra að ljúga minna í dæmigerða sadíska hefndarmynd í anda Home Alone. Þessi tilraun er allmisheppnuð. (H.J.)  ½ Sambíóin Scooby Doo Fjallar um krakkana og hundinn í Ráðgátum hf. sem lenda nú á draugaeyju. Ósköp svip- uð sjónvarpsþáttunum, með álíka lélegum húmor, en þó ekki jafn fyrirsjáanleg. Og krakkarnir skemmta sér vel. (H.L.)  ½ Háskólabíó Mr. Bones (Herra Bones) Ófyndið þunnildi frá S-Afríku sem minnir mest á slagorð Idioterne: Vitlaus mynd, gerð af vitleysingum fyrir vitleysinga. (S.V.) ½ Sambíóin Van Wilder Party Liaison Einhver alversta mynd sem rekið hefur á fjörur íslenskra kvikmyndahúsagesta í lang- an tíma. (H.J.) 0 Regnboginn. The New Guy/Nýi gaurinn Lengi getur vont versnað en hér er botninum náð í heimsku og hugmyndaleysi. Aular í öll- um hlutverkum framan sem aftan við töku- vélarnar. (S.V.) 0 Regnboginn, Laugarásbíó „Gamli góði B-vísindahrollurinn kominn aftur í fullu fjöri. Hrá, grá og notalega vitlaus,“ segir Sæbjörn Valdimarsson meðal annars um Reign of Fire. Reuters BÍÓIN Í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir  Meistaraverk  Ómissandi  Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn Brúðargjafir Mörkinni 3, s: 588 0640 Opið mánudag-föstudags 11-18. Lokað á laugardögum í sumar Salsaskálar frá Viltu léttast um 1-4 kíló á viku Símar 557 5446 og 892 1739

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.