Morgunblaðið - 09.08.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.08.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ AUÐUNN Bjarni Ólafsson hefur ásamt eiginkonu sinni, Sigurjónu Högnadóttur, unnið á landamær- um Makedóníu og Albaníu und- anfarið eitt og hálft ár á vegum Sænsku þróunarsamvinnustofn- unarinnar, SIDA, við að byggja upp stjórnsýslu sveitarfélaga beggja ríkja á ákveðnu til- raunasvæði við landamærin. Helsta starfssvæðið er við vötnin Ohrid og Prespa í suðvesturhluta Makedóníu. SIDA hefur verið leiðandi aðili í þróunarstarfi á stjórnsýslustigi en á einnig samstarf við ýmsar al- þjóðastofnanir, s.s. Evrópusam- bandið, Sameinuðu þjóðirnar og bandarískar stofnanir, um að koma á lýðræðislegri stjórnarháttum í löndunum. Sigurjóna hefur að undanförnu unnið fyrir SIDA við bókhald og ýmis störf sem til hafa fallið en ætl- ar að draga sig í hlé í bili þó að hún verði áfram í Makedóníu. Þau eru einu Íslendingarnir á vegum SIDA á þessu svæði, en Morgunblaðið náði tali af Auðuni Bjarna er þau voru stödd á Íslandi í sumarfríi. Auðunn Bjarni hefur frá árinu 1993 starfað nær samfleytt á Balk- anskaga við þróunarhjálp og dval- ið þar ásamt fjölskyldu sinni. Upp- haflega fór hann utan fyrir Hjálparstarf kirkjunnar og Lúth- erska heimssambandið til átaka- svæða í Bosníu og ætlaði að vera þar í þrjá mánuði. Heldur hefur vistin lengst því ekki er hann enn kominn heim. Fjölskyldan kom fljótlega út, Sigurjóna og tvö af þremur börnum þeirra, er hann starfaði í Zagreb í Króatíu en elsti sonurinn varð eftir heima í skóla. Börnin búa nú öll á Íslandi með sín- ar fjölskyldur. Auðunn hafði um nokkurra ára skeið verið hjá Lúth- erska heimssambandinu í Króatíu, Bosníu og Kosovo, síðast sem svæðisstjóri, áður en hann hóf störf fyrir SIDA í Makedóníu. „Okkar verkefni felst meðal ann- ars í því að byggja upp þátttöku al- mennings í stjórnmálum og að- stoða sveitarfélögin í löndunum tveimur við að koma upp mark- vissri stjórnsýslu. Við leiðbeinum þeim um hvernig stuðning þau þurfa, hvort sem það er tæknileg eða fjárhagsleg aðstoð, þannig að þau verði betur í stakk búin til að kljást við verkefnin sem ríkið hef- ur falið þeim að sinna,“ segir Auð- unn Bjarni um verkefni sitt hjá SIDA og bendir um leið á að Evr- ópusambandið hafi gert kröfu um algjöran aðskilnað ríkis og sveitar- félaga, í öllu falli að nafninu til. Starfsmenn SIDA og fleiri stofn- ana reyni að hafa hvetjandi áhrif á framkvæmd þess aðskilnaðar. Áfangasigrar hafa náðst Aðspurður hvernig þessi sveit- arfélög eru stödd minnir Auðunn Bjarni á að Makedónía og Albanía séu nýkomin úr miðstýrðu um- hverfi einræðis og sveitarstjórn- armenn eigi erfitt með að tileinka sér lýðræðisleg vinnubrögð og stjórnarhætti markaðsbúskapar. Hið sama eigi í raun við um al- menning á þessum svæðum. Enn séu teknar geðþóttaákvarðanir með tilheyrandi fyrirgreiðslu- pólitík og spillingu. Stöðugt sé ver- ið að saka ríkisstjórnir landanna um spillingu og þetta séu fyr- irmyndirnar fyrir sveitarstjórn- arstigið. Þá hafi þessar þjóðir bar- ist á banaspjót og verkefnið sé ekki síst það að draga úr tortryggni sem enn sé við lýði við landamærin. „Þetta er snúið verkefni á marg- an hátt en alls ekki óleysanlegt. Maður tekur aldrei að sér svona verkefni nema trúa því að eitthvað sé hægt að gera. Aðstoðin er yf- irleitt vel þegin og áfangasigrar hafa náðst. Við finnum að sveit- arstjórnirnar eru farnar að leita til okkar að fyrra bragði, þó ekki væri nema til að spjalla og skiptast á hugmyndum og skoðunum. Það er viss áfangi að okkar mati,“ segir Auðunn Bjarni en eitt af því sem SIDA hefur gert er að fjármagna ákveðin verkefni gegn því skilyrði að sveitarfélögin fái almenning til að taka þátt í þeim. Ekki á heimleið í bráð Friðsælt hefur verið að und- anförnu á því svæði sem Auðunn Bjarni og Sigurjóna vinna aðallega á en hann segir innbyrðis átök milli fylkinga enn eiga sér stað á vissum landsvæðum. Þau átök trufli ekki verkefni sænsku stofn- unarinnar. Áður en Auðunn Bjarni fór utan fyrir tæpum áratug hafði hann unnið við inn- og útflutning á frystivörum fyrir Ó. Johnson & Kaaber, starfað við markaðsmál lambakjöts fyrir Bændasamtökin og verið sveitarstjóri á Hellissandi um skeið. „Vissulega skiptum við alveg um gír. Það hafði lengi blundað í okk- ur Sigurjónu að breyta til og fara til útlanda, alveg frá því að við bjuggum á Hellissandi. Okkur hef- ur líkað dvölin á Balkanskaga það vel að við erum ekkert á heimleið í bráð. Annaðhvort fellur maður inn í svona störf og umhverfi eða ekki,“ segir Auðunn Bjarni að end- ingu í samtali við Morgunblaðið. Sænska þróunarsamvinnustofnun hefur tengiliði í hverju sveitarfélagi og hér er heimili eins þeirra sem Auðunn Bjarni hefur verið í samstarfi við. Auðunn Bjarni Ólafsson skrifar undir nýjan samstarfssamning við full- trúa eins sveitarfélags í suðvesturhluta Makedóníu. Morgunblaðið/Kristinn Hjónin Auðunn Bjarni Ólafsson og Sigurjóna Högnadóttir hafa und- anfarið starfað á vegum SIDA í Makedóníu og Albaníu. Þriggja mánaða dvöl á Balkan- skaga orðin að tíu ára starfi Vinna hjá sænskri stofnun við uppbyggingu sveitarstjórna í Makedóníu og Albaníu TVEIR gefa kost á sér til formennsku í Heimdalli við kosn- ingar á aðalfundi fé- lagsins, sem haldinn verður í kvöld, en þeir eru Magnús Þór Gylfason, fram- kvæmdastjóri SUS, og Þórlindur Kjart- ansson, starfsmaður í fjármálaráðuneytinu. Komnir eru fram tveir framboðslistar í stjórnarkjörinu og er búist við fjölmenni á aðalfundinum en á síðasta ári tóku um 700 manns þátt í for- mannskosningu á aðalfundi Heim- dallar. Þórlindur leggur í samtali við Morgunblaðið áherslu á að ger- breyta þurfi starfsháttum Heimdall- ar en Magnús Þór segir ekki greini- legan hugmyndafræðilegan ágrein- ing á milli framboðanna. Magnús Þór segir að eðlilega séu skiptar skoðanir um menn, málefni og áherslumál innan stjórnmála- hreyfingar sem í séu 4.000 manns. Kosningar á aðalfundi séu sjálfsögð aðferð félagsmanna til að skera úr um ágreining ef hann er til staðar. Að hans áliti séu þó báðir hópar að berjast fyrir sama takmarkinu í stjórnmálum. ,,Ég hef fengið hvatn- ingu víða að úr ungliðahreyfingunni í sumar um að bjóða mig fram og opna dyr Heimdallar fyrir fleirum en orð- ið er og efla félagsstarfið enn meira,“ segir Magnús Þór. Hann leggur áherslu á að hann muni sem formað- ur einbeita sér að því að taka tillit til allra sjónarmiða. ,,Mér finnst mjög mikilvægt að menn leysi ágreining, sem er nú oft minniháttar, innbyrðis og komi sterkir til leiks út á við og berjist fyrir framgangi sjálfstæðis- stefnunnar í íslensku þjóðfélagi.“ Þórlindur segir að stór hluti ungra sjálfstæðismanna finni ekki sam- hljóm með Heimdalli vegna mál- flutnings sem félagið hafi lagt áherslu á, t.d. með hugmyndum um lögleiðingu fíkniefna. Þessu þurfi að breyta því Heimdallur sé fjölda- hreyfing og mikilvægt hreyfiafl sam- félagsbreytinga og því sé mikilvægt að sem flestir geti fundið sér farveg þar innanborðs. ,,Við höfum áhyggjur af að mál- flutningur Heimdallar, þar sem mik- il áhersla er lögð á málefni á borð við lögleiðingu fíkniefna, sé ekki hug- myndafræðinni til framdráttar. Mjög stór hluti ungra hægrimanna og frjálslynds fólks sem vill starfa innan Sjálfstæðisflokksins getur ekki fundið farveg innan hreyfingar sem tekur mikla öfgaafstöðu.“ Þórlindur bendir á að í könnun Talnakönnunar sem birtist 22. maí sl. hafi komið fram að stuðningur fólks á aldrinum 18 til 24 ára við Sjálfstæðisflokkinn væri um 43% og að stuðningur fólks á aldrinum 25 til 34 ára væri tæplega 41,7%. „Þetta eru aldurshópar sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur sótt mikið fylgi til fram að þessu. Það hefur greinilega kvarnast úr því fylgi. Markmið okk- ar er að endurheimta það.“ Ný stjórn kjörin á aðalfundi Heimdallar í kvöld Magnús Þór Gylfason Þórlindur Kjartansson Tveir bjóða sig fram til formennsku í félaginu GARÐYRKJUBÆNDUR eru bæri- lega ánægðir með uppskeruna, telja hana vera í meðallagi góða. Þeir eru farnir að senda á markaðinn allar þær tegundir grænmetis sem rækt- aðar eru hérlendis. Þá telja þeir gæðin betri en oft áður. Sala hefði þó gjarnan mátt vera meiri en hún mun hafa verið að aukast síðustu daga. Garðyrkjubændur segja að sam- keppni við innflutt grænmeti hafi aukist en treysta á að neytendur spyrjist fyrir um hvaðan varan sé. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Þau Lesya Proniv frá Úkraínu og Krzysztof Opalka frá Póllandi, sem starfa við garðyrkjustöðina á Melum, eru meðal margra útlendinga sem starfa við garðyrkjuna á Flúðum. Hrunamannahreppi. Morgunblaðið. Uppskera grænmetis í meðallagi LÖGREGLAN á Dalvík fann í gær lítið magn af höfrunga- kjöti við leit í bátnum Búa EA 100. Lögreglunni barst vísbend- ing um að ólöglegar höfrunga- veiðar hefðu hugsanlega verið stundaðar frá bátnum. Kæra hefur verið lögð fram vegna málsins en það er enn í rann- sókn. Höfrunga- kjöt fannst á Dalvík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.