Morgunblaðið - 09.08.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 09.08.2002, Blaðsíða 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2002 39 Nokkrir lausir veiðidagar í næstu viku, mánudag til föstudags Eingöngu fluguveiði Langá á Mýrum Upplýsingar í síma 864 2879, 899 2878 eða 437 23777. NÝVERIÐ buðu eigendur Ruby Tu- esday á Akureyri fötluðum íþrótta- iðkendum úr íþróttafélögunum Akri og Eik á Akureyri til kvöldverðar. Þetta er í annað skipti sem veitinga- staðurinn sýnir fötluðum þessa gest- risni. Fyrir tveimur árum var öllum starfsmönnum Vinnustofunnar Áss í Reykjavík boðið að borða á staðnum, en starfsmennirnir eru flestir virkir þátttakendur í íþróttum fatlaðra. Félagar í Akri og Eik voru að von- um ánægðir með gott boð og tóku hraustlega til matar síns. Ruby Tuesday bauð fötluðum í mat „HELGINA 10.–11. ágúst verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í Árbæjarsafni. Á laugardaginn verða tónleikar kl. 14. Í sumar hef- ur safnið lagt áherslu á að kynna ungt og efnilegt tónlistarfólk og að þessu sinni eru það hljóðfæraleik- ararnir Hrafn Ásgeirsson sem spil- ar á saxafón og Davíð Þór Jónsson á píanó og rafhljóð sem gleðja gesti safnsins. Verkin sem þeir félagar leika eru byggð á spuna, sum hver djasskennd. Tónleikarnir eru í hús- inu Lækjargötu 4 í Árbæjarsafni. Sunnudaginn 21. júlí verður mjólkurdagur í safninu. Húsbænd- ur og hjú í Árbæ draga fram gömul áhöld úr búrinu: byttur, trog, skyrsíur og strokka og breyta mjólk í mat. Börn og fullorðnir fá að hjálpa til við að strokka og fræð- ast um vinnslu mjólkur á árum áð- ur. Þá verður yngstu gestunum boðið í ferð með hestvagni um safn- svæðið en einnig verða leikföng við Kornhúsið, hressir krakkar geta gengið um á stultum og slegið nýtt met með húllahringjum. Börn og fullorðir geta farið í búleik og hand- fjatlað leggi og skeljar. Vert er að minna á skepnurnar í safninu, hér er að finna kýr og kálf, hesta og fol- ald, kindur og lömb. Einnig eru heimalningar við Árbæ. Klukkan 13.30 verður messa í gömlu safn- kirkjunni, prestur er séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson. Klukkan 14 hefst síðan sýning á sjónleiknum Spekúlerað á stórum skala en þar býður Þorlákur Ó. Johnson gestum upp á skemmtidagskrá og varpar ljósi á lífið í Reykjavík á 19. öld. Húsfreyjan í Árbæ býður gestum og gangandi upp á nýbakaðar lummur og á baðstofuloftinu verður spunnið og saumaðir roðskór. Í Dillonshúsi eru ljúffengar veitingar en alla sunnudaga í sumar er boðið upp á heimilislegt kaffihlaðborð,“ segir í fréttatilkynningu frá Árbæj- arsafni. Tónleikar og mjólkur- vinnsla á Árbæjarsafni LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft- ir vitnum að ákeyrslu á gráa Toyota Corolla (UI-411) mánudaginn 5. ágúst. Ekið var á vinstri hlið bifreið- arinnar þar sem hún stóð mannlaus á Vitastíg skammt norðan við Berg- þórugötu. Atvikið átti sér stað milli kl. 17 og 23 og fór tjónvaldur af vett- vangi án þess að gera viðvart um at- vikið. Vitni að atvikinu, svo og tjón- valdur sjálfur, eru beðin um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Lýst eftir vitnum MÁLFUNDUR sósíalíska viku- blaðsins The Militant verður haldinn í dag föstudaginn 9. ágúst kl. 17.30 í Pathfinderbóksölunni, Skólavörðu- stíg 6b (bakhús). „Nauðsyn kommúnísks flokks verkafólks og byltingarsinnaðra æskulýðssamtaka til að svara stríðs- rekstri og kreppu kapítalismans,“ verður umjöllunarefni fundarins að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu. Nauðsyn komm- únísks flokks EFNT verður til fjölskyldugöngu Landssamtaka hjartasjúklinga um land allt í 12. sinn á morgun laug- ardag. Í Reykjavík hefst gangan kl. 14 og verður gengið frá SVR-bið- stöðinni í Mjódd um Elliðaárdal, tvær vegalengdir, 2,5 og 5 km. Björgunarsveitin Ársæll mun fylgja göngunni eftir. Skólahljómsveit Sel- tjarnarness leikur létt lög fyrir göngu og við Félagsheimili Rafveit- unnar þar sem veittur verður svala- drykkur sem er í boði Félags hjarta- sjúklinga á Reykjavíkursvæðinu og Mjólkursamsölunnar í Reykjavík. Fjölskylduganga FÖSTUDAGINN 9. ágúst hitt- ast félagar í Félagi húsbílaeig- enda hjá Ölfusvatni í Grafningi þar sem gist verður. Fyrir þá sem vilja verður boðið upp á leiðsögn um Nesjavelli kl. 14 á laugardag. Félag hús- bílaeigenda Í MORGUNBLAÐINU hinn 7. ágúst sl. birtist frétt um ráðstefnu Íslensku menntasamtakanna. Þar misritaðist nafn aðalfyrirlesara en hann heitir David G. Lazear. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.