Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Umhverfisráðuneytið ákvað
í gær aðgerðir til að draga
úr veiðiálagi á rjúpnastofn-
inn. Með útgáfu reglugerða
verður friðaða svæðið á suð-
vesturhorni stækkað, veiði-
tími rjúpu styttur um 20
daga og aflað verður laga-
heimilda til að banna sölu á
veiðibráð auk þess sem hert
verður á öðrum atriðum
varðandi veiðarnar. Að-
gerðirnar eiga að standa til
ársins 2007 og er vonast til
að með þessu dragi úr veið-
um um þriðjung.
„Við teljum að við höfum
ekki nógu sterkar lagaheim-
ildir til að koma í veg fyrir
sölu á rjúpu,“ sagði Siv
Friðleifsdóttir umhverf-
isráðherra á blaðamannafundi í
gær. Það væri hæpið að banna sölu
á rjúpu eingöngu með reglugerð
m.a. vegna atvinnufrelsisákvæða
stjórnarskrárinnar og því væri
nauðsynlegt að óska eftir lögum
frá Alþingi. Ekki væri aðalatriðið
að grípa til aðgerða nú þegar, mik-
ilvægara væri að aðgerðirnar væru
heildstæðar og skiluðu árangri.
Stækka verndarsvæði
Eina aðgerðin sem kemur til
framkvæmda á þessu hausti er
stækkun á svæði á suðvestur-
horninu sem hefur verið friðað fyr-
ir skotveiði síðustu ár. Friðunin
mun ná til svæðis sem afmarkast af
Esjubrúnum og syðri hluta Þing-
vallavatns í norðri og Sogi og Ölf-
usá í austri. Skv. upplýsingum frá
ráðuneytinu er um að ræða fjór-
falda stækkun. Haustið 2003 verð-
ur rjúpnaveiðitíminn styttur þann-
ig að hann hefjist 25. október og
ljúki 12. desember en veiðitímabilið
hefur lengi verið frá 15. október til
22. desember. Í vetur mun um-
hverfisráðuneytið leggja fyrir Al-
þingi frumvarp um að heimilt verði
að banna sölu á veiðibráð, auk þess
sem hert verði á öðrum atriðum
varðandi vopnabúnað, veiði-
aðferðir og á banni við notkun
vélknúinna farartækja við veið-
arnar. „Það hafa komið fram upp-
lýsingar sem valda því að við telj-
um að það þurfi að grípa til
ákveðinna verndaraðgerða,“ sagði
Siv. Vísaði hún til skýrslu Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands um
ástand rjúpnastofnsins frá ágúst
sl., þar sem lagt var til að veiðitím-
inn yrði takmarkaður við nóv-
ember og að sala á rjúpu á almenn-
um markaði bönnuð. Í skýrslunni
kom m.a. fram að rjúpunni hefði
fækkað verulega á undanförnum
áratugum og að stofnsveiflur væru
við það að þurrkast út.
Eins og lög kveða á um voru til-
lögur Náttúrufræðistofnunar lagð-
ar fyrir ráðgjafanefnd um villt dýr
sem skilaði niðurstöðum í síðustu
viku. Nefndin klofnaði í afstöðu
sinni um það til hvaða aðgerða ætti
að grípa en meirihluti féllst á til-
lögu Náttúrufræðistofnunar um að
ótímabundið bann yrði sett við sölu
á rjúpum. Slíkt bann yrði að orða á
hliðstæðan hátt og gert er í lögum
varðandi æðaregg, þ.e. að leggja
bann við að kaupa rjúpur, selja,
gefa eða þiggja að gjöf. Fjórir af
sjö nefndarmönnum vildu leggja
bannið á strax í haust. Þá lagði
meirihluti nefndarinnar til að veiði-
tíminn yrði styttur næstu fimm ár-
in og bundinn við nóvember.
Aðrar aðgerðir vega upp
á móti minni styttingu
Siv sagði að þrátt fyrir að ráðu-
neytið legði ekki til að veiðitíminn
yrði aðeins bundinn við nóvember
væru tillögur ráðuneytisins jafnvel
enn umfangsmeiri en þær sem
komu frá nefndinni og Nátt-
úrufræðistofnun. Benti hún á að
ráðuneytið legði til mikla stækkun
á friðuðu svæði auk þess sem gripið
yrði til aðgerða varðandi skotvopn
og veiðiaðferðir. Margir veiðimenn
hefðu borið fram kvartanir yfir
veiðimönnum sem nota nota fjöl-
skotabyssur og hálfsjálfvirkar
byssur sem taka fleiri skot-
hylki en leyfilegt er. Þetta
yrði gert með varanlegum
breytingum á skotvopnunum,
skothylkjageymslurnar yrðu
„krumpaðar“ en núna er not-
aður pinni til að takmarka
fjölda skotanna. Siv sagði að
talsverð brögð væru að því að
skotveiðimenn tækju pinnann
úr byssunum til að koma fleiri
skotum fyrir og erfitt væri að
hafa eftirlit með slíku. Einnig
yrðu athugað hvort breyta
þyrfti lögum til að koma í veg
fyrir notkun fjórhjóla og vél-
sleða við rjúpnaveiðar. At-
hygli vekur að ráðuneytið
mun óska eftir heimild til að
banna sölu á allri veiðibráð en
ekki eingöngu á rjúpum. Að-
spurð sagði Siv að í ráðuneytinu
hefði verið talið heppilegt að fá
þessa heimild ef til þess kæmi að
banna þyrfti sölu á öðrum villtum
dýrum. „Í heildina eru þetta mjög
víðtækar aðgerðir og ég vonast
auðvitað til þess að sátt sé um þær
meðal hagsmunaaðila,“ sagði Siv.
Ljóst væri að margir þyrftu að taka
á sig byrðar til að hægt væri að
rétta rjúpnastofninn við, jafnt
sportveiðimenn, magnveiðimenn
sem bændur. Þá yrðu þetta tals-
verð viðbrigði fyrir þá u.þ.b. 50.000
Íslendinga sem hafa rjúpur á borð-
um, einkum um jólin.
Tekur nokkur ár að virka
Kristinn Haukur Skarphéð-
insson, formaður ráðgjafanefndar
um villt dýr, sagði að tillögur ráðu-
neytisins væru vel til þess fallnar
að styrkja stöðu rjúpnastofnsins og
væru í stórum dráttum í sama anda
og ræddar hefðu verið innan
nefndarinnar og hjá
Náttúrurfræðistofnun. Það væri af-
ar jákvætt að taka á því að veiði-
menn hefðu ekki of mörg skot í
byssum sínum og taldi hann að sú
aðgerð gæti vel vegið upp á móti
minni styttingu veiðitímans. Menn
yrðu að gera sér grein fyrir að það
tæki nokkur ár þar til aðgerðirnar
virkuðu að fullu. Fyrstu árin yrði
eflaust eitthvert svartamark-
aðsbrask með rjúpur en reynsla
Breta af banni við sölu á gæsum
sýndi að slíkt bann virkaði. Að-
spurð sagði Siv að eftirlit með sölu-
banni myndi einkum beinast að
verslunum, veitingastöðum og
veisluþjónustum.
Mun óska eftir lagaheimild
til að banna sölu á rjúpum
Umhverfisráðuneytið hefur lagt fram tillögur sem eiga
að draga úr veiðiálagi á íslenska rjúpnastofninn
Morgunblaðið/Golli
TILLAGA fræðslunefndar Hafnar-
fjarðar um að samningi bæjarins við
Íslensku menntasamtökin um rekst-
ur Áslandsskóla verði rift komst ekki
á dagskrá bæjarstjórnarfundar í
Hafnarfirði sem hófst klukkan 17 í
gær. Ákveðið var að boða til auka-
fundar um málið í dag klukkan 17.30.
Í upphafi fundarins í gær var lögð
fram dagskrártillaga frá meirihluta
bæjarstjórnar um að fundargerð
fræðsluráðs frá í fyrradag yrði tekin á
dagskrá fundarins. Til að svo megi
verða þarf að samþykkja afbrigði frá
fundarsköpum og þarf 2⁄3 hluta at-
kvæða til að slík tillaga hljóti sam-
þykki. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
greiddu atkvæði gegn tillögunni og
náði hún því ekki fram að ganga.
Magnús Gunnarsson, oddviti sjálf-
stæðismanna, sagði við upphaf fund-
arins að bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokks myndu ekki greiða því atkvæði
að tillaga fræðsluráðs yrði tekin til
umræðu og afgreiðslu á fundinum.
Segja riftun ekki eiga sér stoð í
samningi eða réttarreglum
Þá óskuðu fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins bókað:
„Á fundi fræðsluráðs [í fyrradag]
samþykktu fulltrúar Samfykingar-
innar tillögur um fyrirvaralausa rift-
un samnings um rekstur Áslands-
skóla við Íslensku menntasamtökin.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks mótmæla
harðlega því gerræði sem felst í sam-
þykki tillögu um fyrirvaralausa riftun
samnings við Íslensku menntasam-
tökin og er þá sérstaklega haft í huga
að riftunin á sér ekki nokkra stoð í
samningi aðila eða almennum réttar-
reglum. Verður að telja að slík vinnu-
brögð séu algjörlega óforsvaranleg,“
segir þar.
Í bókun sjálfstæðismanna er einnig
á það bent að óvíst sé hvernig fram-
kvæma eigi tillöguna þar sem Ís-
lensku menntasamtökin hafi full yf-
irráð yfir skólahúsnæði, skrifstofum
og annarri aðstöðu. Það verði að telj-
ast afar ólíklegt að dómstólar muni
heimila bæjarstjórn að ryðja húsnæði
skólans á grundvelli aðfaralaga sem
muni leiða til enn frekari ágreinings
um málið sem eingöngu muni bitna
skólabörnum og foreldrum þeirra.
„Er framganga fulltrúa Samfylk-
ingarinnar í málinu því fordæmd og
munu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
leita eftir lögmæti þessarar ákvörð-
unar,“ segir í bókun sjálfstæðis-
manna.
Lúðvík Geirsson bæjarstjóri taldi
rétt að upplýsa við upphaf fundarins
að eins og öllum ætti að vera kunnugt
væru málefni Áslandsskóla með þeim
hætti að ekki yrði brugðist við með
öðrum hætti en málið yrði tekið fyrir í
bæjarstjórn. Að því búnu lagði bæj-
arstjóri til að boðað yrði til aukabæj-
arstjórnarfundar um málefni Ás-
landsskóla í dag kl. 17.30 og að á
dagskrá þess fundar yrði tekin fyrir
fundargerð fræðsluráðs frá því í
fyrradag. Var fundarboði þar að lút-
andi dreift á bæjarstjórnarfundinum í
gær.
Morgunblaðið/Kristinn
Magnús Gunnarsson, oddviti Sjálfstæðismanna, las bókun sjálfstæðis-
manna á fundinum í gær þar sem m.a. er efast um lögmæti þeirrar
ákvörðunar að rifta samningi bæjarins við Íslensku menntasamtökin.
D-listi hyggst
leita eftir lög-
mæti ákvörðunar
Tillaga um riftun samnings um rekstur Áslandsskóla komst ekki á dagskrá bæjarstjórnar í gær
TÆPLEGA 10 metra löngu
barborði úr Þjóðleikhúskjall-
aranum, sem fjarlægt var úr
húsnæðinu fyrr í þessum
mánuði, var skilað á sinn stað
í fyrradag í pörtum, ásamt pí-
anói sem tekið var. Barinn
var orðinn mjög fúinn vegna
langvarandi raka svo stæka
súrlykt lagði af honum, að
sögn fyrrverandi rekstrar-
aðila staðarins. Þjóðleikhús-
stjóri kærði brottflutning
munanna til lögreglu og seg-
ist ekki búast við því að kær-
an verði dregin til baka þótt
mununum hafi verið skilað.
Stefán Axel Stefánsson,
framkvæmdastjóri Forum
ehf., sem rekið hefur Þjóð-
leikhúskjallarann, lét fjar-
lægja munina og segir ástæð-
una þá að barinn hafi þurft að
fara í viðgerð. Þjóðleikhússtjóri tek-
ur ekkert mark á slíkum útskýring-
um og segir ekkert hafa verið að
barnum. Hafi svo verið hefði verið
eðlilegra að fá viðgerðarmenn á stað-
inn. Stefán Axel segir á móti að ekki
hafi verið hægt að gera við barinn á
staðnum með tilheyrandi vinnu-
vélahávaða án þess að trufla leiklist-
aræfingar í Þjóðleikhúsinu.
Barinn illa útlítandi
„Barinn er illa útlítandi og alls
ekki í því horfi að hægt verði að setja
hann saman. Það er gríðarlegt verk
og við höfum ekki látið meta það á
þessu stigi. Þetta er allt í skoðun og
lögreglan er í málinu auk lögmanna,“
segir Stefán Baldursson þjóðleik-
hússtjóri. Hann segir að brottnám
barsins og píanósins hafi verið korn-
ið sem fyllti mælinn í samskiptum
Þjóðleikhússins við rekstraraðila
Þjóðleikhúskjallarans og bætir við
að rekstraraðilarnir hafi ekki staðið
við skyldur sínar samkvæmt leigu-
samningi og því hafi honum verið rift
í byrjun þessa mánaðar.
Í fréttatilkynningu frá Forum ehf.
kemur fram að setja hafi þurft bar-
inn í viðgerð og fjarlægja hann í því
skyni. Þegar skila hafi átt honum
hafi þjóðleikhússtjóri verið búinn að
skipta um skrár í húsinu. Hilmar
Ingimundarson, lögmaður Forum,
lýsti þeim gerningi á blaðamanna-
fundi í gær, sem lögleysu af hálfu
þjóðleikhússtjóra. Væri slíkt kallað
sjálftaka á lagamáli.
Stefán Axel segist sæta þungum
ásökunum, sem ekki eigi sér stoðir í
raunveruleikanum en segist ekki
geta kveðið upp úr með það hvort
hann vilji halda áfram með rekstur-
inn eða losna við hann, enda búið að
leggja í mikinn kostnað á staðnum.
Deilur Þjóðleikhúss og Forum ehf.
Kærur verða ekki
látnar niður falla
Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri með
hluta barsins sem kominn er aftur.
Morgunblaðið/Golli
Forsvarsmenn Forum ehf., f.v.: Hilmar Ingimundarson hrl., Ólafur Thor-
oddsen lögfræðingur og Stefán Axel Stefánsson framkvæmdastjóri.
Morgunblaðið/Þorkell