Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁTTA íslensk fyrirtæki voru á
meðal þeirra 500 framsæknustu í
Evrópu samkvæmt vali samtak-
anna Europe’s 500. Bakkavör
Group var í öðru sæti og Baugur
Group í 57. sæti en aldrei hafa
fleiri íslensk fyrirtæki verið í þess-
um hópi. Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra af-
henti fulltrúum fyrirtækjanna átta
í gær viðurkenningu frá ráðuneyt-
inu og Samtökum iðnaðarins.
Bakkavör er í annað sinn á með-
al framsæknustu fyrirtækjanna en
Baugur í fyrsta skipti. Opin kerfi
eru í 79. sæti í annað skipti á listan-
um, Íslensk erfðagreining er í
fyrsta skipti í hópnum, í 120. sæti.
TölvuMyndir eru í hópnum fjórða
árið í röð í 129. sæti. Össur hf. hef-
ur einnig verið fjórum sinnum á
meðal framsæknustu fyrirtækj-
anna og er nú í 183. sæti. Delta hf.
er í 385. sæti í annað skipti á listan-
um og Teymi í 420. sæti í fyrsta
skipti.
Samtökunum Europe’s 500 var
komið á fót að frumkvæði Evrópu-
sambandsins með það að markmiði
að efla starf frumkvöðla í Evrópu.
Markmiðið er að draga fram
reynslu þeirra sem bestum árangri
ná til þess að nýta hana til að búa í
haginn fyrir frumkvöðla framtíð-
arinnar, eins og fram kemur á vef
Samtaka iðnaðarins.
Starf Europe’s 500 felst í því að
finna framsæknustu frumkvöðla-
fyrirtæki Evrópu og birta árlega
lista yfir 500 vaxtarmestu fyrirtæki
Evrópu. Valið er úr fyrirtækjum í
15 Evrópusambandslöndum og
Noregi, Íslandi og Liechtenstein á
grundvelli vaxtar, eignaraðildar
frumkvöðuls, veltuaukningar,
fjölgunar starfa, stærðar o.fl.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sveinn Hannesson frá Samtökum iðnaðarins og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ásamt
fulltrúum þeirra átta íslensku fyrirtækja sem eru í hópi 500 framsæknustu í Evrópu.
Átta íslensk fyrirtæki
á meðal 500 fram-
sæknustu í Evrópu
FISKAFLINN síðastliðinn ágúst-
mánuð var 91.554 tonn en var
135.839 tonn í ágústmánuði árið
2001 og nemur samdrátturinn alls
44.285 tonnum. Botnfiskafli var
24.639 tonn samanborið við 33.724
tonn í ágústmánuði 2001, sem er
munur upp á tæplega 9.100 tonn.
Af þorski veiddust 10.850 tonn en
þorskafli var 4.570 tonnum minni
nú en í ágústmánuði í fyrra. Karfa-
afli varð rúm 5.000 tonn sem er
aukning um rúm 2.500 tonn frá
fyrra ári. Úthafskarfaafli minnkaði
um rúm 6.500 tonn á milli ára því
alls veiddust tæplega 1.900 tonn nú
en rúm 8.400 tonn í ágústmánuði í
fyrra. Af flatfiski bárust 2.484 tonn
á land en í ágústmánuði í fyrra
veiddust rétt rúm 2.000 tonn.
Af veiði einstakra tegunda má
nefna að 1.754 tonn veiddust af grá-
lúðu, aukning um 478 tonn frá fyrra
ári, og 428 tonn af skarkola, sem er
aukning um 109 tonn frá fyrra ári.
Af kolmunna veiddust 49.810 tonn
sem er samdráttur um tæp 41 þús-
und tonn samanborið við ágústmán-
uð 2001. Alls veiddust tæplega
8.700 tonn af síld og er það 4.800
tonnum meiri afli en í fyrra. Enginn
loðnuafli barst á land í nýliðnum
ágústmánuði sem einnig var raunin
í ágústmánuði ársins 2001.
Skel- og krabbadýraafli var 5.879
tonn, þar af var rækjuaflinn 4.572
tonn, kúfiskur 1.251 tonn og humar
38 tonn. Í ágúst 2001 var skel- og
krabbadýraaflinn 5.548 tonn og afl-
inn því 331 tonni meiri nú en þá.
Meiri heildarafli
Heildarafli landsmanna á fyrstu
átta mánuðum ársins er orðinn
1.752.399 tonn, sem er rúmlega
174.000 tonnum meiri afli en á sama
tímabili árið 2001. Heildarafli botn-
fisktegunda er orðinn tæplega 309
þúsund tonn og nemur aflaaukning-
in 10.637 tonnum. Uppsjávarafli
ársins 2002 er orðinn 1.381.529
tonn, flatfiskaflinn 25.161 tonn og
skel- og krabbadýraaflinn 36.732
tonn.
# $# #
!"#$%" & "
%
"&" ''(
) %
"&" ''(
) * +,,- +,,+ +,,- +,,+
-./01.2 2-0//3
-04/+0.22 -0/410,3/
Minni afli í ágúst
AÐALFUNDUR OZ
Communications var
haldinn í Montreal í Kan-
ada í gær í höfuðstöðvum
fyrirtækisins. Á fundin-
um var m.a. kosin ný
stjórn og samþykkt
breyting á kaupréttaráætlun fyrir-
tækisins.
Í stjórn OZ Communications eru
nú Skúli Mogensen, Guðjón Már
Guðjónsson, Steinþór Baldursson,
Robert Quinn og Lars Lindqvist.
Stærstu hluthafar í OZ eru Guðjón
Már Guðjónsson, Erics-
son og Skúli Mogensen.
Úr stjórn hverfa Marc
Ferland og Stig-Arne
Larsson. Sá síðarnefndi
var stjórnarformaður OZ
og gekk til liðs við stjórn
OZ þegar skrifstofa var opnuð í Sví-
þjóð. Þar er nú ekki lengur starfsemi
og hefur Larsson því dregið sig í hlé.
Hilmar Gunnarsson, markaðs-
stjóri OZ, segir í samtali við Morg-
unblaðið að aðalfundurinn hafi farið
vel fram en fáir hluthafar frá Íslandi
hafi gert sér ferð til Kanada til að
taka þátt. Samþykkt var að breyta
svokallaðri kaupréttaráætlun, þ.e. að
fjölga þeim hlutum í fyrirtækinu sem
starfsmenn fyrirtækisins geta fengið
kauprétt á. Samþykkt var að fjölga
þeim úr 18 milljónum í 23 milljónir
hluta. Hilmar segir það skoðun OZ
að slíkt sé nauðsynlegt til að laða að
og halda í gott starfsfólk.
Starfsmenn OZ eru nú um 48 í
Kanada, Bandaríkjunum og á Ís-
landi þar sem starfrækt er þróun-
arsetur með 5 starfsmönnum.
Ný stjórn kosin á
aðalfundi OZ í gær
HAGNAÐUR Sam-
kaupa hf. nam 131
milljón króna á fyrri
hluta ársins en á
sama tímabili í fyrra nam hagn-
aður félagsins 2 milljónum
króna.
Rekstrartekjur félagsins voru
tæpir 4,2 milljarðar króna og
jukust um 5,2% miðað við sama
tíma í fyrra. Rekstrargjöld voru
rúmlega 3,9 milljarðar og jukust
um 2%. Hagnaður fyrir afskrift-
ir og fjármagnsliði (EBITDA)
nam 226 milljónum króna miðað
við 98 milljónir króna í fyrra.
Bætt eiginfjárhlutfall
Þá nam veltufé frá rekstri 215
milljónum króna nú en 78 millj-
ónum í fyrra. Eiginfjárhlutfall
var í júnílok 42% og hafði aukist
úr 38,5% frá áramótum. Veltu-
fjárhlutfall reyndist 1,22 og arð-
semi eigin fjár var 34,4% en var
22,6% um áramót.
Á árinu 2002 hætti félagið að
taka tillit til áhrifa almennra
verðlagsbreytinga við gerð
reikningsskila sinna.
Samkaup rekur 25 verslanir á
Vestfjörðum, Norðurlandi, Suð-
urnesjum, Akranesi og á höfuð-
borgarsvæðinu. Auk þess rekur
félagið kostverslun á Akureyri
og kjötvinnslu á Suðurnesjum.
Bætt afkoma
Samkaupa
● TAP af rekstri bandarísku lág-
vöruverslunarkeðjunnar Kmart hefur
haldið áfram, en keðjan óskaði eftir
greiðslustöðvun í byrjun þessa árs.
Fram kemur í netútgáfu BBC að tap
Kmart á þriggja mánaða tímabilinu
frá maí til júlí á þessu ári hafi numið
377 milljónum Bandaríkjadala, jafn-
virði um 33 milljörðum íslenskra
króna. Á sama tímabili í fyrra var tap-
ið um 304 milljónir dala. Haft er eftir
stjórnendum fyrirtækisins að áætl-
anir um að snúa rekstrinum við, áður
en greiðslustöðvuninni lýkur í júlí á
næsta ári, séu í raun runnar út í
sandinn.
Segir í frétt BBC að Kmart hafi
ekki tekist að halda í við samkeppn-
ina og að forskot Wal-Mart versl-
unarkeðjunnar hafi aukist. Þannig
hafi vörusala Kmart dregist saman
um 11% á tímabilinu en aukist um
tæp 4% hjá Wal-Mart.
Kmart heldur
áfram að tapa
● TAP Hlutabréfasjóðsins Auðlindar
hf. á tímabilinu 1. maí 2002 til 31.
júlí 2002 nam 134 m.kr. en að teknu
tilliti til tekjuskattsinneignar nam
tapið 111 m.kr. Til samanburðar
varð 538 m.kr. tap á tímabilinu 1.
maí 2001 til 31. júlí 2001 en 481
m.kr. að teknu tilliti til tekjuskatts-
inneignar.
Fjármunatekjur námu 30.935.000
kr. á tímabilinu, fjármagnsgjöld voru
154.178.000 kr. og rekstrargjöld
10.528.000 kr. Skuldir og eigið fé
sjóðsins er 2,7 milljarðar króna.
Eignarhlutir sjóðsins í innlendum
félögum eru 61% af heildareignum,
skuldabréf og hlutdeildarskírteini í
verðbréfasjóðum eru 18% og eign-
arhlutir í erlendum félögum og hlut-
deildarskírteinum 20%.
Auðlind tapar
111 milljónum
♦ ♦ ♦