Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                     BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÉG HLUSTAÐI í síðustu viku á Hallgrím Thorsteinsson á útvarpi Sögu. Einu sinni sem oftar, enda Halli frábær fjölmiðlamaður og spyrjandi. Ég kom inn í umræðuna í bílnum, og var því ekki alveg með á hreinu við hverja hann var að tala. Hins vegar var á hreinu að hann var að tala um hugsanlega árás Banda- ríkjanna á Írak. Engan langar til að sjá slíka árás verða að raunveru- leika. Hins vegar greinir menn á um hvort hún sé nauðsynleg eða ekki. Vilja menn bíða og sjá hvað gerist, þegar Saddam Hussein er búinn að verða sér úti um kjarnorku- sprengju? Það er spurningin sem þjóðir heims verða að taka afstöðu til á næstu vikum. Einn af viðmælend- um Halla var með þetta nokkuð á hreinu. Hann taldi George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, vera meiri ógnun við heimsfriðinn en Saddam Hussein. Hann sagði einnig að Saddam væri enginn froðufellandi islamisti. Þvert á móti væri ríkisstjórn hans borgaralegs eðlis, og Bath, flokkur hans, stjórnaði af föðurlegum mynd- ugleika. Þetta fannst mér stórkost- legt framlag í umræðuna, og óska höfundi til hamingju með þessa skil- greiningu. Ýmislegt hefur verið sagt um Saddam Hussein, en ég minnist þess ekki að hafa heyrt áður um föð- urlega stjónarhætti hans. En maður er jú alltaf að læra eitthvað nýtt. ÓLI TYNES, fréttamaður. Faðir vor Frá Óla Tynes: FYFIR nokkru skrifaði ég pistil hér í blaðið. Þar minntist ég á skrif manns nokkurs er ég sagði vera formann KFUM og K. Þetta er ekki rétt, maður þessi er vara- formaður nefnds félags og leiðrétt- ist þetta hér með og beðist er af- sökunar á mistökunum. Ekki vil ég skreyta menn með titlum sem þeim ber ekki og því síður hafa af mönnum það sem þeirra er með réttu. Ég má til með að bæta hér við nokkrum línum. Það hringdi í mig maður, sagði ekki til nafns þó að gengið væri eftir því, alveg bál- reiður. Húðskammaðist góða stund og spurði svo í lokin hvernig í ósköpunum mér dytti í hug að „ráðast svona á gyðinga“? Þetta er þjóðin sem gaf okkur Krist. Ég svaraði hægt og rólega: „Og hvað gerði þjóðin við hann?“ Svo lagði ég á. GUÐJÓN V. GUÐMUNDSSON, eftirlaunaþegi, Helgalandi 5, Mosfellsbæ. Mistök leiðrétt Frá Guðjóni V. Guðmundssyni: FRAMTÍÐ ferjusiglinga hefur verið nokkuð til umræðu að und- anförnu. Í Vestmannaeyjum ríkir reiði meðal almennings vegna ófremdarástands í samgöngu- málum, enda hefur samgöngum þar hrakað undanfarin ár. Það sést svart á hvítu á því að meira en helmingur kjósenda hefur nú und- irritað áskorun til ríkisstjórnarinn- ar um að halda a.m.k. tveimur ferðum Herjólfs á dag yfir vetr- artímann og hvetja til þess að fá hraðskreiða ferju sem fyrst milli Eyja og Þorlákshafnar. Það hefur sem sé komið í ljós þegar að er gáð að hægt er að fá hingað ferju sem siglir á 1 klst. milli lands og Eyja í stað tæpl. 3 klst. eins og Herjólfur gerir, og þarf ekki að hafa mörg orð um hvílík sam- göngubót það yrði. Undirskrifta- listarnir verða afhentir næstkom- andi föstudag á borgarafundi í Eyjum. Í hinni merku Byggðaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir 2002–2005 sem samþykkt var á þingi í vor segir m.a.: „Í Vestmannaeyjum hefur byggðin átt í vök að verjast und- anfarin ár og fólki fækkað. Vest- mannaeyjar hafa mikla sérstöðu hér á landi vegna legu sinnar, mik- ilvægis sjávarútvegs, sérstakrar náttúru og sögu, og eyjasamfélags- ins. Leita þarf allra leiða til að bæta samgöngur milli lands og Eyja. Greiðar samgöngur eru for- senda þess að hægt sé að auka fjölbreytni í atvinnulífi og treysta byggðina“ Eyjamenn taka heilshugar undir þessi orð og spyrja jafnframt hvort það sé til of mikils mælst að menn séu sjálfum sér samkvæmir og láti nú verkin tala? KRISTJÁN BJARNASON, Dverghömrum 37, Vestmannaeyjum. Ófremdar- ástand í sam- göngumálum Frá Kristjáni Bjarnasyni:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.