Morgunblaðið - 18.09.2002, Síða 42
DAGBÓK
42 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Detti-
foss, Selfoss og Ludvig
Andersen koma og fara í
dag. Tensho Maru,
Skjold og Mánafoss
koma í dag. Víðir og
Lagarfoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Hopen kom og fór í gær.
Hrafn kom í gær, Polar
Princess kemur í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur Sól-
vallagötu 48. Skrifstofa s.
551 4349, opin miðvikud.
kl. 14–17. Flóamarkaður,
fataúthlutun og fatamót-
taka opin annan og fjórða
hvern miðvikud. kl. 14–
17, s. 552 5277
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9 og
kl. 13 vinnustofa – postu-
línsmálning.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofa, kl. 13
spilað, kl. 10–16 pútt.
Sviðaveisla verður 11.
október. Hjördís Geirs
skemmtir.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–12
glerlist, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 10–10.30 Bún-
aðarbankinn, kl. 13–16.30
spiladagur bridge/vist,
kl. 13–16 glerlist.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing, kór eldri
borgara í Damos. Laug-
ard: kl. 10–12 bókband.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Grafarvogi. Púttað
er annan hvern fimmtu-
dag á Korpúlfsstöðum kl.
10 og annan hvern
fimmtudag er leikin keila
í Keilu í Mjódd. Þriðju-
dagar: Kl. 9.45 og föstu-
dagar kl. 9.30 vatns-
leikfimi í Grafarvogslaug,
byrjar þriðjudaginn 1.
október. Síðasta mið-
vikudag í hverjum mán-
uði eru haldnir fræðslu-
og skemmtifundir í fund-
arsal Miðgarðs við
Langarima 21.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–14 aðstoð við
böðun, kl. 10–10.45 leik-
fimi, kl.14.30–15 banka-
þjónusta, kl. 14.40 ferð í
Bónus, hárgreiðslustofan
opin kl. 9–16.45 nema
mánudaga.
Félagsstarfið Furugerði
1. Kl. 9 bókband og að-
stoð við böðun, kl. 13 leik-
fimi, kl. 14 sagan.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–16.
Skrifstofan í Gullsmára 9
opin í dag kl. 16.30–18.
Almennur félagsfundur
verður í félagsheimilinu
Gullsmára, laugard. 21.
september kl. 14. Bene-
dikt Davíðsson, form.
LEB, ræðir kjaramál og
samskipti við stjórnvöld.
Starfsemi og stefnumál
félagsins verða einnig á
dagskrá. Félagsmenn
eru hvattir til að mæta.
Félagsstarfið, Lönguhlíð
3. Kl. 8 böðun, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 hársnyrt-
ing, kl. 10–12 verslunin
opin, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Leirnámskeið
byrjar 23. sept. og snyrti-
námskeið 30. sept.
Miðvikud.: kl. 9.30 stól-
leikfimi, kl. 10.15 og kl.
11.10 leikfimi. Fimmtud.
kl. 13 leikfimi karla.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Myndlist
kl. 10–14, línudans kl. 11,
glerskurður kl. 13, pílu-
kast kl. 13.30. Bilj-
ardstofan opin virka
daga frá kl. 13.30 til 16,
skráning í Hraunseli s.
555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Söngfélag
FEB kóræfing kl. 17.
Línudanskennsla fellur
niður. Fimmtud.: Aðal-
fundur Bridsfélags FEB
kl. 13, spilað á eftir.
Söngfélag FEB kóræfing
kl. 17. Fyrirhugað er að
halda námskeið í fram-
sögn ef næg þátttaka
fæst. Leiðbeinandi
Bjarni Ingvarsson. Uppl.
á skrifstofu FEB.
Haustlitaferð að Þing-
völlum 28. september.
Skráning hafin á skrif-
stofu FEB. s. 588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, mósaík,
gifs og ísl. steinar, postu-
línsmálun, hárgreiðslu-
og fótaaðgerðarstofur
opnar. Sviðaveisla verður
föstud. 20. sept. kl. 12,
Árni Tryggvason leikari
verður með gamanmál og
Karl Jónatansson spilar
á harmonikku. Vinsam-
legast kaupið miða í síð-
asta lagi í dag.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10–17, kl. 9.05 og
kl. 9.55 leikfimi, kl. 9.30
boccia, kl. 10.45 hæg leik-
fimi, kl. 13 félagsvist, kl.
15.15 söngur, Guðrún
Lilja leikur undir á gítar,
kl. 15–16 viðtalstími
FEBK, kl. 17 bobb.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
salur opinn,vist og brids.
Kl. 13.30 kóræfing hjá
Gerðubergskórnum. All-
ar upplýsingar á staðn-
um og í s. 575 7720.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05
leikfimi, kl. 9.55 stóla-
leikfimi, kl. 10 ganga, kl.
13 keramikmálun. Í til-
efni af áttatíu ára afmæli
sínu opnaði Guðrún Jó-
hannesdóttir myndlist-
arsýningu í félagsheim-
ilinu Gullsmára,
Gullsmára 13 í sept-
ember. Sýningin er opin
þegar félagsheimilið er
opið, frá kl. 9–17 virka
daga. Allir velkomnir.
Heitt á könnunni og
heimabakað meðlæti.
Laus pláss í leikfimi,
postulínsmálun og ensku.
Lyfja hf. verður með
fræðslu um notkun lyfja í
Gullsmára föstudaginn
20. sept kl. 14.45. Kaffi-
veitingar.
Félag eldri borgara Suð-
urnesjum. Selið, Vall-
arbraut 4, Njarðvík, kl.
14 félagsvist alla mið-
vikudaga.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
hárgreiðsla og fótaað-
gerð, kl. 13 bridge, búta-
saumur, harðangur og
klaustur.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
og kl 10 jóga, kl. 9 böðun
og föndur, kl. 15 teiknun
og málun. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa, kl.
9–12 tréskurður, kl. 10–
11 samverustund, kl. 9–
16 fótaaðgerðir, kl. 13–
13.30 banki, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi-verðlaun.
Mósaíknámskeið hefst
þriðjud. 1. okt. kl. 13–17,
kynningartími verður 24.
sept. frá kl. 13, leiðbein-
andi Áslaug Benedikts-
dóttir. Uppl. hjá Birnu s.
568 6960.
Vesturgata 7. Kl. 8.25–
10.30 sund, kl. 9–16 fóta-
aðgerð og hárgreiðsla,
kl. 9.15–16 postulíns-
málun og myndmennt, kl.
10.30–11.30 jóga, kl.
12.15 verslunarferð í
Bónus, kl. 13–14 spurt og
spjallað, kl. 13–16 tré-
skurður. Haustlitaferð
verður miðvikudaginn
25. sept. kl. 10. Steina- og
íþróttasafnið á Akranesi
skoðað, Byggðasafnið op-
ið. Léttur hádegisverður
í Hreðavatnsskála, súpa,
brauð og kaffi. Ekið að
Paradísarlundi og foss-
inn Glanni skoðaður.
Komið við í Borgarnesi á
heimleið. Leiðsögumaður
Nanna Kaaber. Far-
miðar óskast sóttir fyrir
mánudaginn 23. sept.
Jóganámskeið hefst
mánudaginn 23. sept-
ember kl. 10.30–11.30,
einnig verður kennt á
miðvikudögum 10.30–
11.30, skráning í s.
562 7077.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10
fótaaðgerðir, morg-
unstund, bókband, búta-
saumur, kl. 13 hand-
mennt og kóræfing, kl.
13.30 bókband, kl. 14.10
verslunarferð.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl. 11.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
Hátúni 12. Kl. 19.30 fé-
lagsvist.
Vinahjálp, brids spilað á
Hótel Sögu í dag kl.
13.30.
ITC Korpa Mosfellsbæ.
Fundur í kvöld kl. 20 í
safnaðarheimili Lága-
fellssóknar, Þerholti 3.
Í dag er miðvikudagur 18. sept-
ember, 261. dagur ársins 2002.
Imbrudagar. Orð dagsins:
Sá sem trúir á mig, frá hjarta hans
munu renna lækir lifandi vatns,
eins og ritningin segir.
(Jóh. 7, 38.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 flæðarmál, 8 slitið, 9
svarar, 10 hestur, 11
sjúga, 13 týna, 15 priks,
18 hótar, 21 tangi, 22
ákæra, 23 krók, 24 flakk-
ari.
LÓÐRÉTT:
2 eins, 3 hreinsa, 4 klett-
ur, 5 leggja í rúst, 6 vað á
vatnsfalli, 7 tengja sam-
an, 12 ganghljóð, 14 að-
ferð, 15 poka, 16 stétt, 17
kjaftæði, 18 login, 19
tappa, 20 suð.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 þjark, 4 hægur, 7 áflog, 8 rykug, 9 góð, 11 lært,
13 assa, 14 ásátt, 15 sjal, 17 arma, 20 ótt, 22 jagar, 23
aukið, 24 lúnar, 25 annan.
Lóðrétt: 1 þjáll, 2 aflar, 3 kugg, 4 hörð, 5 gikks, 6 regla,
10 ófátt, 12 tál, 13 ata, 15 skjól, 16 angan, 18 ríkan, 19
arðan, 20 órór, 21 taða.
Frábær krossgáta
ÉG TEK undir orð Bar-
böru og Ólafs í Velvakanda
sl. laugardag. Þessi kross-
gáta er alveg frábær. Á
mínu heimili (sem er á
Vestfjörðum) er beðið með
eftirvæntingu eftir sunnu-
dagsblaðinu.
Til okkar kemur blaðið
seinnipartinn á sunnudög-
um, stundum er ekki flogið
og þá hefur komið fyrir að
kunningjar á höfuðborgar-
svæðinu hafi sent krossgát-
una í tölvupósti, annars er
dagurinn bara ónýtur, mað-
ur ánetjast þessu, þetta er
með því besta sem hægt er
að ánetjast.
Ég geymi alltaf úrklippu
úr Morgunblaðinu, þar sem
krossgátukonan Ásdís
Bergþórsdóttir gefur les-
endum nokkur góð ráð. Þar
segir m.a. að gefa þurfi sér
tíma og leggja höfuðið í
bleyti og það er alveg rétt,
það liggur stundum við að
rjúki úr höfðinu á manni.
Sagt er að það sé mjög gott
að stunda svona hugarleik-
fimi.
Kærar þakkir, Ásdís.
Guðný.
Tapað/fundið
Húslykill í óskilum
ASSA-húslykill fannst við
Bleikjukvísl í Reykjavík.
Upplýsingar í síma
862 4282.
Telpnasandalar
í óskilum
LITLIR telpnasandalar
fundust við Blómaval. Upp-
lýsingar í síma 692 3515.
Einnota myndavél
týndist
EINNOTA myndavél,
merkt Hilary, týndist lík-
lega á Akureyri eða á leið-
inni til Reykjavíkur dagana
9.–16. ágúst. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
587 4990.
Dýrahald
Kettlingur í óskilum
KETTLINGUR, u.þ.b. 3ja
mánaða, fannst í Seiðakvísl
fyrir nokkrum dögum.
Þetta er ómerkt læða að
mestu hvít á litinn. Eigandi
kettlingsins hafi samband í
síma 581 1517 eða 895 1517.
Simbi er týndur
SIMBI er appelsínugulur
högni, loðinn með brún
augu. Hans er ákaflega
saknað og það er orðið
langt síðan hann týndist
svo hann gæti verið hvar
sem er. Ef einhver hefur
séð hann síðustu mánuði
eða veit hvar hann er vin-
samlega hringið í síma 565-
6519 eða 847-6671. Allar
upplýsingar vel þegnar.
Fundarlaun.
Týnd kisa á Ísafirði
ÞESSI kisa er í Tungu-
skógi við Ísafjörð. Hún er
brúnbröndótt og mjög gæf
en saknar eigenda sinna.
Það er möguleiki að
tjaldbúar eða ferðalangar
hafi týnd henni. Upplýsing-
ar gefur Ruth í Gamla bak-
aríinu í síma 456 3226 og
hs. 456 3228.
Kanína í óskilum
HVÍT kanína fannst í Álf-
heimum sl. laugardags-
kvöld. Ef einhver saknar
hennar hringið í síma
553 9264.
Hvít kanína í óskilum
HVÍT kanína með brún
eyru og snoppu fannst í
Grafarvogskirkjugarði.
Upplýsingar í síma
567 6269.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
OFT dáist Víkverji að þeim semhjóla um landið. Hvort sem það
eru landar eða útlendingar þykir
honum þeir sýna mikla þrautseigju
með því að hjóla milli landshluta
hvernig sem viðrar. Víkverji er mjög
hlynntur hjólreiðum en afrek hans á
því sviði eru aðeins unnin í logni og
helst sólskini, standa ekki lengur en
hálftíma og þá helst með kaffistoppi
og ná ekki út fyrir hverfið. Það má
nefnilega ekki vera of langt tilbaka.
x x x
HAFIÐ er þó nokkuð mergjuðbíómynd að mati Víkverja.
Hann er ekki mikill bíósjúklingur en
þau undur og stórmerki gerðust um
síðustu helgi að hann átti kost á að
sjá þessa nýju mynd. Reyndar sá
hann líka nýverið myndina Maður
eins og ég og hlýtur að fara að spyrja
sig hvort þessi mikla bíósókn sé
merki um að hann sé að veikjast af
bíósýkinni.
En hvað um það. Víkverji getur
mælt með því að menn geri sér ferð
til að sjá Hafið. Þetta er átakasaga
fjölskyldu sem virðist engin venju-
leg fjölskylda. Þarna er hrúgað inn
öllum þeim uppákomum, erfiðleik-
um, deilum og samskiptavandræð-
um sem nokkur getur ímyndað sér.
Kannski leggst þetta svona í ein-
stakar fjölskyldur. Fyrir utan magn-
aða sögu er leikurinn góður og öll
gerð myndarinnar vönduð að mati
Víkverja. Þá eru ekki síður í mynd-
inni góðir sprettir með kímni sem er
hreint óborganleg og nauðsynleg í
mynd sem þessari. Það er sem sagt
alveg þess virði að sjá Hafið.
x x x
NOTKUN á plasti er fyrirferðar-mikil í daglegu lífi. Plast er al-
gengast umbúða um matvæli og þeg-
ar við verslum er allt borið heim í
plastpokum, burðarpokunum, sem
við kaupum á 10 eða 15 krónur. Þeir
fara síðan fljótlega í ruslið. Þannig
er þetta að minnsta kosti hjá Vík-
verja. Hann kaupir inn og skellir öllu
í plastpoka sem safnast upp í poka-
skúffunni, þokast þaðan í rusla-
grindina og síðan út í tunnu. Víkverji
verður að viðurkenna að þetta veld-
ur honum stundum heilabrotum.
Finnst honum það nokkur sóun að
kaupa poka nánast til þess eins að
henda þeim. Dáist hann mjög að
öldruðum sem koma í búðina með
innkaupatuðru eða körfu og spara
sér kaup á ruslapokum. Lítur Vík-
verji á þetta sem góða fyrirmynd
sem hann hefur þó ekki getað tekið
upp. Samt sem áður myndi þetta
spara talsverðan pening. Segjum 10
krónur á dag að meðaltali. Ekki er
reyndar farið í búðina á hverjum
degi en stundum er nauðsynlegt að
taka nokkra poka. En poki á dag
þýðir að minnsta kosti 3.650 krónur
á ári og kannski eru útgjöldin ennþá
meiri. Líklega væri rétt að telja
þetta saman yfir árið.
Líklega þarf Víkverji að taka
ákveðinni hugarfarsbreytingu.
Hann á nóg af tuðrum og töskum og
ílátum til að fara með í búðina og
bera heim dótið. Og ruslapokamálið
hlýtur að mega leysa með öðrum
hætti, kaupum á ódýrari pokum en
10 til 15 krónur stykkið. En meðan
hinn síungi Víkverji tekur ekki
gamla fólkið sér til fyrirmyndar í
þessum efnum getur hann huggað
sig við það að pokagjaldið er ekki
bara kostnaður. Hluti gjaldsins fer í
pokasjóð eða aðra sjóði sem renna
síðan til þjóðþrifamála. Líklega
heldur Víkverji þá bara áfram að
kaupa burðarpokana með glöðu geði.
ÞAÐ er ekki oft sem mað-
ur sér ástæðu til þess að
skrifa í blöðin með það í
huga að lýsa yfir ánægju
með sjónvarpsdagskrána.
Nú í nokkrar vikur hef-
ur sjónvarpið slegið í gegn
hjá mér og ég læt aðrar
stöðvar eiga sig. Nú eru
sérstaklega spennandi
þættir eftir 10-fréttir á
kvöldin, öll mánudags-,
þriðjudags- og mið-
vikudagskvöld og á
fimmtudagskvöldum verð-
ur hin stórskemmtilega
þáttaröð Stóri vinning-
urinn. Einnig verða góðir
grínþættir á dagskrá í vet-
ur og aðaltrompið, Leið-
arljós, er komið aftur á
dagskrá og svona mætti
lengi telja.
Vil ég óska Ríkissjón-
varpinu til hamingju og
þakka fyrir frábæra dag-
skrá undanfarið og vona
að þeir haldi áfram á sömu
braut.
Ánægður áhorfandi.
Sjónvarpsdagskráin