Morgunblaðið - 18.09.2002, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 18.09.2002, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 43 DAGBÓK Milljónaútdráttur Þar sem einvörðungu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigendi bæði að hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti. Birt með fyrirvara um prentvillur. 9. flokkur, 17. september 2002 Kr. 1.000.000,- 1522B 4592G 18985G 28027B 30352B 34886F 37703B 38986F 42117E 59663B                  BRIDSSKÓLINN Leitin að fjórða manninum... Námskeiðin hefjast 23. og 25. sept. Byrjendur: Hefst 25. september og stendur yfir í 10 miðvikudagskvöld, þrjár klukkustundir í senn, frá kl. 20-23. Framhald: Hefst 23. september og stendur yfir í 10 mánudagskvöld, þrjár klukkustundir í senn, frá kl. 20-23. Staður: Síðumúli 37 í Reykjavík. Nánari upplýsingar og innritun í síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 daglega. ATH. Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði. „ÞEGAR fjórir af bestu spilurum landsins finna ekki rétta varnarleikinn má kannski draga þá ályktun að þrautin sé þung.“ Svo segir Barry Rigal um vanda vesturs hér að neðan: Vestur gefur; allir á hættu. Norður ♠ G65 ♥ K109654 ♦ 103 ♣G2 Vestur ♠ KD1073 ♥ DG32 ♦ 4 ♣K53 Vestur Norður Austur Suður 1 spaði Pass 4 spaðar 5 tíglar Pass Pass Dobl Pass Pass Pass Þú kemur út með spaða- kóng og átt slaginn. Hvað viltu gera í öðrum slag? (Spaði makkers í fyrsta slag hefur enga sérstaka merkingu, segir Rigal og bætir við: „Kannski ætti hann að segja einhverja sögu, en hann gerir það ekki.“ Og hananú.) Spilið kom upp í Grand National sveitakeppninni í Bandaríkjunum fyrir stuttu, þar sem spilað var á fjórum borðum. Einn vesturspilarinn hélt áfram með spaðann, annar skipti yfir í tromp og hinn þriðji spilaði hjartadrottningu. Á fjórða borðinu yfirtók austur með ás til að spila laufi… Norður ♠ G65 ♥ K109654 ♦ 103 ♣G2 Vestur Austur ♠ KD1073 ♠ Á842 ♥ DG32 ♥ -- ♦ 4 ♦ G62 ♣K53 ♣D108764 Suður ♠ 9 ♥ Á87 ♦ ÁKD9875 ♣Á9 Ekkert dugði. Lítið hjarta í öðrum slag er eina vörnin sem virkar. Þar sem austur yfirtók til að spila laufi, drap sagnhafi, tók trompin og gaf slag á lauf. Þvingaði síðan vestur í hálitunum! Er vonlaust að finna litla hjartað í slag númer tvö? Vissulega er það erf- itt, en tvennt gæti hjápað: Spaðaáttan ÆTTI að vera hliðarkall og doblið á fimm tíglum er líka leiðbeinandi. Stökk beint í fjóra sýnir lítil varnarspil og því er ekki fráleitt að dobl aust- urs sé byggt á stung- umöguleika. Fannstu vörnina? BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6 5. Rc3 Dc7 6. Bd3 Rf6 7. f4 Bb4 8. O-O Bc5 9. Rce2 Rc6 10. c3 d6 11. Kh1 Bd7 12. De1 h5 13. b4 Ba7 14. Be3 h4 15. h3 d5 16. e5 Re4 17. Hc1 Rxd4 18. cxd4 Dd8 19. Bxe4 dxe4 20. Rc3 Bc6 21. f5 De7 22. fxe6 fxe6 23. De2 Dxb4 Staðan kom upp í opna meistaramóti Hamborgar 2002. Zigurds Lanka, sem m.a. hefur þjálfað Alexey Shi- rov og Viktor Bo- logan, hafði hvítt gegn þýska stór- meistaranum Matthias Wahls. 24. d5! Bxe3 25. Dxe3 exd5 26. Dg5 De7 27. Dg6+ Kd8 28. Rxd5! Glæsileg manns- fórn sem setur svarta kónginn í herkví á mið- borðinu. 28...Bxd5 29. Hfd1 Dxe5 30. Df7 Hh5 31. Hc5! og svartur gafst upp. Lokastaðan er kostuleg og sýnir glöggt hversu mikil- vægt er að hafa gott skjól fyrir kónginn sinn! 5. skák Hreyfilseinvígisins hefst kl. 14.00 í dag í Þjóðarbók- hlöðunni. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. LJÓÐABROT VONIN Hvað er líf og hvað er heimur? Klæddur þoku drauma-geimur, þar sem ótal leiftur ljóma, er lifna, deyja’ og blika’ um skeið. Hvað er frægð og hreysti manna? Hvað er snilli spekinganna? Það er af vindi vakin alda, er verður til og deyr um leið. Allt, sem lifir, lifa girnir; lífið heli móti spyrnir. Þegar lífsins löngun hverfur, lífið er eðli sínu fjær. Hetjan, sem vill heldur deyja, en harðstjórans und vald sig beygja, lífi sínu’ ei lifað getur lengur, en meðan sigrað fær. Kristján Jónsson 80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 18. september, er áttræður Jón Gíslason, Innri-Skelja- brekku í Borgarfirði. Jón verður að heiman á afmæl- isdaginn. 75 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 18. september, er 75 ára Ari F. Guðmundsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri starfs- mannasviðs Landsbanka Ís- lands hf. Eiginkona hans er Katla Ólafsdóttir. BRÚÐKAUP. Hinn 17. ágúst sl. voru gefin saman í kirkju óháða safnaðarins af séra Pétri Þorsteinssyni Halldóra Þorgeirsdóttir og Anders Bo Pedersen. Hall- dóra og Anders eru búsett og við nám í Minneapolis í Bandaríkjunum. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 27. júlí sl. í Búða- kirkju á Snæfellsnesi af sr. Guðjóni Skarphéðinssyni þau Svanhildur Eiríksdóttir og Kristján Jóhannsson. Þau eru búsett í Njarðvík.            Bústaðakirkja. Foreldramorgnar hefjast á morgun, fimmtudag, kl. 10-12. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 520 9700. 9–10 ára starf kl. 16–17.20 og 11–12 ára starf kl. 17.30–18.50 í safnaðarheimilinu. Grensáskirkja. Samverustund aldraðra kl. 14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og spjall. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Háteigskirkja. Kvöldbænir kl. 18. Langholtskirkja. Kl. 17–18.30 ævintýra- klúbbur fyrir 7–9 ára börn með fjölbreyttri dagskrá. Þátttaka er börnunum að kostn- aðarlausu. Umsjón: Sólveig Halla Krist- jánsdóttir og Guðrún Halla Harðardóttir. Laugarneskirkja. Kirkjuprakkarar (1.–4. bekkur) kl. 14.10. Jóhanna G. Ólafsdóttir og Jóhanna Kristín Steinsdóttir leiða starf- ið. TTT-fundur (10–12 ára) kl. 16.15. Andri Bjarnason og Þorkell Sigurbjörnsson leiða starfið ásamt Sigurbirni Þorkelssyni, fram- kvæmdastjóra safnaðarins, og Bjarna Karlssyni sóknarpresti. Unglingakvöld Laugarneskirkju og Þróttheima kl. 20 (8. bekkur). (Sjá síðu 650 í Textavarpi.) Neskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12. Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lárusdótt- ir. Kirkjustarf fyrir 7 ára börn kl. 14.30. Sögur, leikir, föndur og fleira. Skráning í síma 511 1560. Fyrirbænamessa kl. 18. Sr. Örn Bárður Jónsson. Seltjarnarneskirkja. Hádegistíð kl. 12. Tíðagjörð þar sem textar Biblíunnar eru sungnir og íhugaðir í bæn og lofgjörð til drottins. Helstu þættir þessa helgihalds kynntir og æfðir í upphafi stundarinnar, sem tekur u.þ.b. 20 mínútur. Verið hjart- anlega velkomin. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Digraneskirkja. Unglingastarf KFUM- &KFUK kl. 20–22. Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Allir velkomnir. Kirkju- krakkar fyrir börn 7–9 ára í Rimaskóla kl. 17.30–18.30. KFUM fyrir drengi 9–12 ára í Grafarvogskirkju kl. 17.30–18.30. TTT fyrir börn 10–12 ára í Rimaskóla kl. 18.30–19.30. Æskulýðsfélag fyrir ung- linga í 8. bekk í Engjaskóla kl. 20–22. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–12. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. 12-spora námskeið kl. 20. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni í síma 567 0110. Æskulýðsfund- ur fyrir unglinga 14–15 ára kl. 20. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar verða í sumar í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 10–12. Við hittumst og spjöllum. Heitt á könnunni og djús fyrir börnin. Öll foreldri velkomin með eða án barnanna. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós- broti Strandbergs. Víðistaðakirkja. Opið hús eldri borgara í dag kl. 13. Spil, spjall, kaffiveitingar og fleira. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í dag kl. 10–12. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 11 helgistund á Hraunbúðum. Sr. Þorvaldur Víðisson. Kl. 20 opið hús fyrir unglinga í Æskulýðsfélagi Landakirkju/KFUM&K í KFUM&K-húsinu við Vestmannabraut. Njarðvíkurkirkja. Foreldramorgunn í Safn- aðarheimilinu í dag kl. 10.30 í umsjá Kötlu Ólafsdóttur og Petrínu Sigurðardóttur. Fyrsta skiptið á þessu hausti. Keflavíkurkirkja. Æfing Kórs Keflavíkur- kirkju frá 19–22.30. Stjórnandi Hákon Leifsson. Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30 bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í síma 565 3987. Kefas. Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Lofgjörð, hugleiðingar, fróðleiks- molar og vitnisburðir. Allt ungt fólk velkom- ið. Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10 í safnaðarheimili. Opið hús, kaffi og spjall. Allir foreldrar velkomnir með börn sín. Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58. Samkoma í kvöld kl. 20.30. Jónas Þór- isson talar út frá yfirskriftinni: „Haldið því sem þér hafið“. Heitt á könnunni eftir samkomu. Allir hjartanlega velkomnir. Safnaðarstarf NÚ er tækifæri til að kynnast hin- um vinsælu Alfa-námskeiðum, þar sem fjallað er um kristna trú og til- gang lífsins. Hópur sjálfboðaliða úr Laugarneskirkju hefur fengið til liðs við sig einn af brautryðjendum Alfa á Íslandi, Ragnar Snæ Karls- son, sem verður aðalleiðbeinandi námskeiðsins, og nú standa dyrnar opnar fimmtudaginn 19. september kl. 20:00. Á kynningarfundinum verður boðið upp á kaffi og með- læti og greint frá aðalatriðum námskeiðsins. Eftir það getur fólk skráð sig ef það lystir. Kostnaður er í algjöru lágmarki því Alfa er í raun og veru heimboð safnaðarins. Allt fólk velkomið, engin skil- yrði. Samstarfshópurinn. Kynning á Alfa- starfi í Laug- arneskirkju KIRKJUSTARF STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake MEYJA Afmælisbörn dagsins: Þér er nauðsyn að komast reglulega og helzt sem oftast út undir bert loft og sækja þér kraft til landsins. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Svo lengi lærir sem lifir. Haltu öllum óþægindum frá þér og einbeittu þér að lífsins björtu hliðum. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú leggur mikið á þig til þess að öðlast öryggi í líf- inu og það er vel. Njóttu kvöldsins í góðra vina hópi. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Nú stefnir í að þú hittir fyrir þá sem eru sama sinnis og þú og reiðubúnir til þess að vinna málstað ykkar brautargengi. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú verður að standast all- ar freistingar um að segja frá leyndarmáli, jafnvel þótt það kynni að ýta und- ir stöðu þína. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það er um að gera að leita eftir samstarfi við þá, sem þér finnst geta aukið við hugmyndir þínar. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þótt þú hafir sett markið hátt er engin ástæða til að ætla annað en þér takist að ná því. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Gerðu þér eitthvað til góða svo þú náir upp þreki og starfsorku. Þú þarft að sinna eigin málum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Láttu ekki ginnast af gylli- boðum því reikningana þarf að borga fyrr eða síð- ar. Reyndu að temja þér ný vinnubrögð sem leiða til ferskra lausna. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Hlustaðu á líkama þinn og leitaðu lausna á þeim vandamálum, sem hrjá hann. Svo má hjartað ráða stund þegar allt er í höfn. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þér verður treyst fyrir miklu leyndarmáli og mátt alls ekki bregðast því trausti. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þið þurfið að taka á öllu ykkar til þess að finna leiðina að takmarkinu. Svo er að láta slag standa. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Fjármálin liggja óvenju þungt á þér þessa dagana en það er ekki um annað að ræða en taka til hend- inni, gera áætlanir og fara eftir þeim. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.