Morgunblaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 1
TVÆR indverskar herflugvélar
rákust saman er þær voru í fylking-
arflugi yfir Goa á Vestur-Indlandi í
gær og er talið að allir tólf er voru
um borð í vélunum hafi farist, auk
þriggja á jörðu niðri. Önnur vélin
lenti á íbúðabyggð, eins og sjá má á
myndinni til hliðar, en hin kom nið-
ur á akri skammt frá, að sögn
Karnals Singhs, rannsóknarlög-
reglumanns í Goa-héraði.
Vélarnar voru af gerðinni Iljús-
ín-38, fjögurra hreyfla flutninga-
vélar sem smíðaðar voru í Sov-
étríkjunum sálugu til kafbáta-
eftirlits. Indversku vélarnar tvær
sem fórust voru á æfingu fyrir há-
tíðahöld vegna 25 ára afmælis
flotaflugdeildarinnar í Goa.
Reuters
15 fórust í
árekstri
herflugvéla
Mesic fór
hörðum
orðum um
Milosevic
STIPE Mesic, forseti Króatíu, lýsti
Slobodan Milosevic, fyrrverandi for-
seta Júgóslavíu, í gær sem kaldlynd-
um stríðsæsinga-
manni er bæri
ábyrgð á því að
Júgóslavía liðaðist
í sundur á síðasta
áratug síðustu ald-
ar. Mesic er fyrsti
þjóðhöfðinginn
sem ber vitni í
réttarhöldunum
yfir Milosevic, sem
nú fara fram í Haag í Hollandi, en Mil-
osevic er ákærður fyrir stríðsglæpi,
þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyni.
Mesic var síðastur til að gegna
embætti forseta Júgóslavíu áður en
landið tók að liðast í sundur 1991 en
fulltrúar sambandslýðvelda Júgóslav-
íu skiptust þá á um að gegna embætt-
inu. Hélt Milosevic því fram áður en
Mesic hóf framburð sinn í gær að ekk-
ert væri að marka Króatann, enda
hefði hann með glæpsamlegum hætti
stuðlað að því að Júgóslavía leystist
upp í frumeindir sínar. Richard May
dómari vísaði mótmælum Milosevic
hins vegar frá.
Milosevic gagnspyr Mesic í dag
Lagaspekingar sögðu í gær að
Mesic hefði gefið greinargóða mynd
af því hvernig Milosevic sölsaði undir
sig öll völd í júgóslavneska sam-
bandshernum og forsætisnefnd
landsins. Gaf Mesic í skyn að mark-
mið Milosevic hefði verið að stofna
Stór-Serbíu þar sem aðeins Serbar
byggju, land þar sem búið væri að
„hreinsa“ í burtu önnur þjóðarbrot.
„Milosevic losaði sig við alla þá sem
ekki vildu skrifa upp á stefnu hans,“
sagði Mesic í gær.
Gert er ráð fyrir stormasömum
vitnaleiðslum í dag en þá fær Milosev-
ic tækifæri til að gagnspyrja Mesic.
Stipe Mesic
Haag. AFP, AP.
230. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 2. OKTÓBER 2002
þó rætt um átta forsetahallir Sadd-
ams Hussein á fundi Blix og El-Sadi,
sem haldinn var í Vín, en Írakar hafa
reynst tregir til þess að heimila
vopnaeftirlit í höllunum og í ná-
grenni þeirra.
Haft var eftir háttsettum fulltrúa í
bandaríska utanríkisráðuneytinu að
Bandaríkin myndu koma í veg fyrir
að vopnaeftirlitsmenn SÞ færu aftur
til Íraks, ef ekki yrði samþykkt ný
ályktun fyrst. Gaf embættismaður-
inn í skyn að Bandaríkin myndu
beita neitunarvaldi sínu í öryggis-
ráðinu í þessu skyni.
Þá sagði Jack Straw, utanríkisráð-
SAMKOMULAG náðist í gær milli
erindreka Sameinuðu þjóðanna og
stjórnvalda í Írak um að vopnaeft-
irlitsmenn SÞ fari aftur til Íraks til
að kanna hvort þar sé að finna ólög-
legan vopnabúnað. Colin Powell, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
lýsti hins vegar óánægju sinni og
sagði að vopnaeftirlitsmenn SÞ ættu
ekki að halda til Bagdad fyrr en ör-
yggisráð SÞ hefði samþykkt ályktun
þar sem hert væri mjög á fyrri skil-
málum um afvopnun Íraka.
Eftir að samkomulagið náðist í
gær sagðist Amir El-Sadi, fulltrúi
íraskra stjórnvalda, gera ráð fyrir að
eftirlitsmenn SÞ yrðu komnir til
Bagdad innan tveggja vikna. Sagði
Hans Blix, yfirmaður vopnaeftirlits-
nefndarinnar, að samkomulagið fæli
í sér fullt athafnafrelsi til handa
vopnaeftirlitsmönnunum. Ekki var
herra Bretlands, að þó að það væru
góð tíðindi, að tekist hefði samkomu-
lag um vopnaeftirlitið, gæti það ekki
komið í staðinn fyrir nýja og harð-
orða ályktun öryggisráðsins.
Áhrifavald SÞ í veði
Fyrr í gær hafði Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, varað við
því að hætta væri á að SÞ glötuðu
áhrifavaldi sínu ef þeim tækist ekki
að þvinga Saddam til að hætta til-
raunum til að koma sér upp gereyð-
ingarvopnum.
Blair sagði í ræðu, sem hann flutti
á ársþingi breska Verkamanna-
flokksins, að aðeins með því að gera
Írökum ljóst með skýrum hætti að
þeir gætu átt von á hernaðarárás
væri líklegt að SÞ tækist að fá Íraka
til að hlíta tilmælum um vopnaeftirlit
og eyðingu gereyðingarvopna.
„Setjum Saddam úrslitakosti. Lát-
um Saddam fara að vilja Sameinuðu
þjóðanna,“ sagði Blair. „Ef hann
gerir það ekki hugleiðið þá þetta: Ef
við höfum sameiginlega komið auga
á hættuna [sem af Saddam stafar] en
búum hins vegar ekki yfir viljanum
til að bregðast við þeirri hættu, þá
höfum við ekki aðeins eyðilagt
áhrifavald Bandaríkjanna og Bret-
lands, heldur sjálfra Sameinuðu
þjóðanna.“
„Stundum er það þannig – einkum
þegar eiga þarf við einræðisherra –
að eina vonin um frið felst í því að
vera tilbúinn í stríð,“ sagði Blair.
Bandaríkjastjórn ósátt við
samkomulag Íraka og SÞ
Vín, Washington, Blackpool. AFP.
Vill ekki að vopnaeftirlitsmenn fari
til Bagdad fyrr en öryggisráð SÞ
hefur samþykkt ný og hert skilyrði
♦ ♦ ♦
GENGI hlutabréfa tók kipp upp á
við í gær eftir mikið verðfall á mörk-
uðum í fyrradag. Á Wall Street
hækkaði Dow Jones-hlutabréfavísi-
talan um 4,51% og Nasdaq-vísitala
tæknifyrirtækja um 3,5%. Allnokkur
hækkun varð einnig í Evrópu.
Fréttaskýrendur töldu líklegt að
hækkunin skýrðist af miklum um-
svifum verðbréfasjóða á fyrsta degi
síðasta ársfjórðungs, sem og fréttum
af því að samkomulag hefði náðst
milli Sameinuðu þjóðanna og Íraka
um vopnaeftirlit í Írak.
Markaðir
tóku kipp
New York, London. AFP.
FORYSTA Græningja í Svíþjóð
samþykkti í gærkvöldi að halda
áfram stuðningi sínum við minni-
hlutastjórn jafnaðarmanna, undir
forystu Görans Perssons. Öruggt
má því telja að stjórn Perssons falli
ekki í atkvæðagreiðslu um van-
trauststillögu sem boðuð hafði ver-
ið á sænska þinginu í dag.
Um nokkurra daga skeið höfðu
Græningjar, sem fengu 4,6% at-
kvæða í þingkosningum í landinu
15. september, þrefað við jafnaðar-
menn um stuðning við minnihluta-
stjórn Perssons. Forsætisráð-
herrann neitaði hins vegar statt og
stöðugt að veita flokkunum beina
aðild að stjórn sinni.
Vinstriflokkurinn hafði fyrir sitt
leyti lýst því yfir að þingmenn hans
myndu ekki greiða atkvæði með
vantrauststillögu en Græningjar
höfðu hins vegar ýjað að því að þeir
myndu styðja vantraust, ef ekki
næðist samkomulag.
Samkomulagið sem náðist í gær
felur ekki í sér að Græningjar fái
ráðherra í stjórninni, eins og þeir
vildu, en Persson hefur samþykkt
að setja umhverfismál mjög í for-
grunn. Felur samkomulagið m.a. í
sér að Svíar hætti öllum þorskveið-
um í Eystrasalti frá og með 1. jan-
úar nk. Þá verður bensínstöðvum í
Svíþjóð gert skylt að bjóða upp á
umhverfisvænt eldsneyti frá og
með árinu 2005.
Persson hafði boðað „græna vel-
ferðarstefnu“ í ræðu sem hann hélt
fyrr í gær. „Grundvallarmarkmið
stjórnarinnar í umhverfismálum er
að búa svo um hnútana í Svíþjóð að
næsta kynslóð taki við landi þar
sem búið er að leysa öll meiriháttar
umhverfisvandamál,“ sagði hann.
Persson áfram við völd
Stokkhólmi. AP.