Morgunblaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 52
Háhraðasítenging við Netið HITI og rennsli vatns í borholu á Eskifirði gefur mjög sterka vís- bendingu um að það henti til upp- hitunar húsa í öllu bæjarfélaginu. Á 936 metra dýpi komst jarðfræði- stofan Stapi ehf., sem stendur að boruninni, að þessu, en þá skar bor- inn vatnsæðina sem bundnar eru vonir við. Hitinn á vatninu úr hol- unni var um 70 gráður þegar Morgunblaðið ræddi við Ómar Bjarka Smárason, jarðfræðing hjá Stapa, í gærkvöldi og með loftdæl- ingu náði rennsli vatnsins 25–30 lítrum á sekúndu. Það dugar til að hita upp húsin í bænum. „Hitinn í holunni fer hækkandi, er nú um 77 gráður í 940 metrum,“ sagði Ómar Bjarki. „Við erum að loftdæla úr holunni um 25–30 lítr- um á sekúndu, en sjálfrennsli úr henni er að minnsta kosti um 10 lítrar á sekúndu. Vatnshitinn er kominn upp í 70 gráður.“ Hann sagði þetta mjög góðar fréttir, en með samfelldri dælingu í nokkra mánuði verður gengið úr skugga um hvort vatnið nýtist til vinnslu í hitaveitu á Eskifirði. „Svar við því fæst ekki fyrr en eftir nokkra mánuði, en þetta er mjög góð vísbending. Þetta er framar björtustu vonum og líkur eru á að við séum komnir með það vatn sem þarf fyrir Eskifjörð.“ Holan verður nú dýpkuð í 1.200 metra áður en hafist verður handa við að dæla upp úr henni og meta vatnsmagnið næstu mánuði, en hol- an er nú um 948 metra djúp. Góður árangur af borun eftir heitu vatni á Eskifirði Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Ómar Bjarki Smárason við vatnsflauminn úr borholunni í gærdag. Líklegt að hitaveita verði að veruleika FRUMVARP til fjárlaga fyrir árið 2003 gerir ráð fyrir 10,7 milljarða tekjuafgangi, en frumvarpið var lagt fram á Alþingi í gær. Frumvarpið gerir ráð fyrir 1,5% hagvexti á næsta ári sem er heldur minni vöxtur en Búnaðarbankinn spáði fyrir skemmstu. Reiknað er með að jafn- vægi verði á viðskiptum við útlönd í ár og á næsta ári, en það hefur ekki gerst síðan 1995. „Við teljum þetta góða niðurstöðu. Það verður áframhaldandi aðhald í rekstri ríkissjóðs,“ sagði Geir H. Haarde fjármálaráðherra um niður- stöðu frumvarpsins. Geir sagði að eftir kröftuga upp- sveiflu síðustu ára hefði hagkerfið náð jafnvægi á nýjan leik. Mikilvægt væri að áfram yrði fylgt aðhalds- samri stefnu í ríkisfjármálum sem einkum miðaði að því að halda út- gjaldavexti innan hóflegra marka og stuðla að stöðugleika í efnahagsmál- um. Sala eigna skili 8,5 milljörðum Geir sagði að frumvarpið endur- speglaði áframhaldandi trausta og aðhaldssama stöðu ríkisfjármála sem hefði átt mikinn þátt í því að meira jafnvægi ríkti nú í efnahags- málum en um nokkurt árabil. Frumvarpið gerir ráð fyrir að raunútgjöld og rauntekjur breytist lítið frá endurskoðaðri áætlun þessa árs. Reiknað er með að tekjur verði 264 milljarðar og útgjöld 253,3 millj- arðar. Tekjur ríkissjóðs lækka ekki þrátt fyrir að um áramót taki gildi margvíslegar skattalækkanir sem Alþingi samþykkti fyrir tæpu ári. Áætlað er að sala eigna skili rúmlega 8,5 milljörðum króna í ríkissjóð á árinu og er þá aðallega miðað við sölu á eignarhlut ríkisins í ríkisbönk- unum tveimur. Í þjóðhagsáætlun efnahagsskrif- stofu fjármálaráðuneytisins er gert ráð fyrir að jafnvægi verði í viðskipt- um við útlönd í ár, en það hefur ekki gerst síðan 1995. Viðskiptahallinn nam rúmum 32 milljörðum króna á síðasta ári. Reiknað er með að kaup- máttur aukist í ár um 1,5% og 2% á næsta ári, en kaupmáttur hefur auk- ist á hverju ári frá 1994. Gert er ráð fyrir að þjóðarútgjöld dragist saman um 3% á árinu 2002. Það er einkum rakið til samdráttar í fjárfestingu, m.a. er reiknað með því að fjárfest- ing atvinnuveganna verði fimmtungi minni en árið 2001. Árið 2003 eru þjóðarútgjöld hins vegar talin aukast um 1,5%. Frumvarp til fjárlaga gerir ráð fyrir 1,5% hagvexti á næsta ári Tekjuafgangur áætlaður 10,7 milljarðar króna Jafnvægi í viðskiptum við útlönd í fyrsta skipti frá árinu 1995  Útlit er fyrir/6  Sala eigna/11 VERIÐ er að undirbúa stærri þyrlu Landhelgisgæslu Íslands, TF-LÍF, og áhöfn hennar fyrir notkun næt- ursjónauka. Í þeim tilgangi eru staddir hér á landi sérfræðingar frá bresku fyrirtæki sem sérhæfir sig í lýsingarbúnaði sem til þarf um borð við notkun nætursjónaukanna. „Breyta þarf allri lýsingu í vél- inni, en nota þarf sérstakar perur til að hægt sé að nota sjónaukana,“ segir Oddur Garðarsson, tækni- stjóri viðhaldsdeildar hjá Land- helgisgæslu Íslands. Nú tekur við þjálfun áhafnar þyrlunnar við notkun nætursjón- aukanna. Ætla má að þjálfunin standi yfir í um mánuð. Að henni lokinni verða sjónaukarnir teknir í notkun. Nætursjónaukarnir eru festir á hjálm hvers og eins áhafnar- meðlims og eru því ekki ósvipaðir venjulegum sjónaukum, að sögn Odds, en vinna á öðru tíðnisviði. Morgunblaðið/Árni Sæberg Anthony Andades og John Hitchen frá fyrirtækinu Oxley, sem sérhæfir sig í lýsingu vegna nætursjónauka, stilla ljósin í TF-LÍF. Breytt lýsing fyrir nætur- sjónauka JÓHANN Þ. Jóhannsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir að nú um mánaðamótin hafi 14 flugmenn hætt störfum hjá Flugleið- um og uppsagnir 20 til viðbótar gangi í gildi um næstu mánaðamót. Þá hafi 20 flugmenn sem sagt var upp þar í fyrra ekki fengið störf í sumar og því hafi og muni alls fækka um 54 flug- menn hjá Flugleiðum á 12 mánuðum. Áður en til uppsagnanna kom störf- uðu um 230 flugmenn hjá fyrirtækinu og segir hann flugmönnum félagsins því hafa fækkað um nærri 24% á rúmu ári. Formaðurinn segir að Flugleiða- menn leiti nýrra verkefna og muni ráða flugmenn á ný beri það árangur. Hann segir hins vegar slæmt að fyr- irtækið skuli vera að festa sig í árs- tíðasveiflum sem þýði að yngstu flug- mönnunum bjóðist aðeins sumarstörf. Stjórn FÍA hefur ályktað um málið og segir þar m.a. að með þessum aðferð- um kunni fyrirtækið að „missa flug- menn, sem miklu hefur verið kostað til, til annarra flugfélaga“. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Flugleiða, segir uppsagnirnar koma til vegna samdráttar í áætlun- arfluginu yfir veturinn. Hann segir stöðugt leitað nýrra verkefna á sviði leiguflugs og fraktflugs en ekkert sé hægt að segja um árangur að svo stöddu. Cargolux hefur undanfarið ráðið allmarga flugmenn, flesta frá Austur- ríki, Þýskalandi og Belgíu. Eyjólfur Hauksson, flugrekstrarstjóri Cargo- lux, segir marga hafa sótt um frá Belgíu í kjölfar gjaldþrots Sabena flugfélagsins. Hann sagði einnig nokkra íslenska flugmenn hafa sótt um í kjölfar uppsagna hjá Flugleiðum en þá hafi Cargolux nýlega verið búið að skipa í flestar stöðurnar. Hann segir þó ekki útilokað að íslenskir flugmenn verði ráðnir á næsta ári. Hann segir ekkert því til fyrirstöðu að ráða íslenska flugmenn sem uppfylli kröfur JAR-reglugerða um skírteini atvinnuflugmanna. Hjá Cargolux starfa alls um 320 flugmenn sem Eyjólfur segir vera frá um 14 löndum. Fyrirtækið hefur nú 12 þotur í rekstri og réð nýverið hátt í 20 flugmenn til að manna nýja þotu sem bættist nýlega í flotann. Hann segir yfirleitt um 10 áhafnir á hverri þotu. Fjórtán flugmenn hætta hjá Flugleiðum um mánaðamótin Nærri fjórðungs- fækkun flug- manna á rúmu ári ÖNNUR kvikmyndin sem gerð er eftir sögunum um Harry Potter verður frumsýnd hér 22. nóvember. Myndin, sem ber nafn bókarinnar Harry Potter og leyniklef- inn, verður frumsýnd í Bandaríkjun- um og Bretlandi viku áður. Þorvaldur Árnason hjá Sam- bíóunum gerir ráð fyrir að for- sala hér heima hefjist í kring- um mánaðamótin næstu og segist hann greina mikinn áhuga fyrir myndinni. Harry Potter til Íslands 22. nóvember  Forsala/45 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.