Morgunblaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 3.40, 5.45 8 og 10.15 . Vit 433 Tímamótaverk í íslenskri kvikmyndasögu  HJ Mbl Gunnar og Herdís leiða eftirminnilegan leikarahóp sem á þátt í að gera Hafið að einni bestu íslensku kvikmyndinni 1/2 HK DV „Íslenskt meistaraverk..“  SFS Kvikmyndir.is Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Vit 435 Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 429 Frábær fjölskyldumynd frá Disney um grallarann Max Keeblesem gerir allt vitlaust í skólanum sínum! Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 441. E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P 25.000 áhorfendur 2 5 . 0 0 0 Sýnd kl. 10.10. með enskum texta. B.i. 16.  Kvikmyndir.is Roger Ebert  DV  Kvikmyndir.com 1/2 SK.RadioX Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 8. B.i. 12 ára. Tímamótaverk í íslenskri kvikmyndasögu  HJ Mbl Gunnar og Herdís leiða eftirminnilegan leikarahóp sem á þátt í að gera Hafið að einni bestu íslensku kvikmyndinni 1/2 HK DV „Íslenskt meistaraverk..“  SFS Kvikmyndir.is Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 12. „Þetta er fyrsta flokks hasarmynd.“ Þ.B. Fréttablaðið.HANN VAR HIÐ FULLKOMNA VOPN ÞAR TIL HANN VARÐ SKOTMARKIÐ Hér er á ferðinni frumlegasti njósnatryllir ársins. Byggð á metsölubók Roberts Ludlum.  H.O.J. Kvikmyndir.com  Kvikmyndir.is Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 . B.i. 14.Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12. 25.000 áhorfendur GH Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  SG. DV MBL M A T T D A M O N E R J A S O N NEIL Gaiman er helst þekktur fyrir teiknimyndasögur sínar um Sandman en hann hefur líka skrifað bækur. American Gods kom út á síð- asta ári og sýndi að hann getur skrifað; í henni voru ágætir sprettir þó heildin hafi verið heldur slök. American Gods var mikil langloka og lopinn teygður. Coraline, sem kom út fyrir stuttu, er aftur á móti stutt og snörp barnasaga, hryllingssaga fyrir börn. Coraline er nýflutt í gamalt hús með foreldrum sínum. Í húsinu er allt eins og það á að vera, fyrir utan sér- kennilega nágranna, en í stofunni eru dyr sem liggja ekkert, eða svo virðist í fyrstu. Coraline kemst aftur á móti að því að á bak við þessar dyr á hún sér aðra foreldra, hina mömmu og hinn pabba, sem eru með tölur í stað augna. Í fyrstu kann Coraline ágæt- lega við sig hjá hinum foreldrum sín- um en áttar sig þó fljótlega á því að ekki er allt sem sýnist og sérstaklega virðist hin mamman hafa illt í huga þrátt fyrir fagurgala. Sagan af Coraline er skemmtilega krassandi, hryllileg saga og æsi- spennandi með góðum endi. Stúlkan þarf að sigrast á sjálfri sér fyrst og fremst og átta sig á að ekki er gott að fá allt það sem maður óskar sér, lífið er ekki síst skemmtilegt fyrir það að mann langar í hluti sem ekki er hægt að fá. Undanfarin ár hafa höfundar verið mjög uppteknir af því að skrifa fal- legar og innihaldsríkar bækur fyrir börn þar sem öll dýrin eru vinir og allt er í allra besta lagi. Aftur á móti kunna börn vel að meta hrylling og spennu og þó Coraline sé ekki beint fyrir viðkvæmar sálir þá er hún vel til þess fallin að skapa smá óhug og ótta, ekki síst í ljósi þess að allt fer vel að lokum. Gaiman hefur greinilega gott af því að takmarka sig við svo stuttan texta því bókin er hreinasta afbragð. Gaman hefði verið að hafa hana myndskreytta en þannig kom hún víst út innbundin, og mun dýrari, vestan hafs.Skemmtilega krassandi Coraline, barnasaga eftir Neil Gaiman. Bloomsbury gefur út 2002. 171 bls. og kostaði 1.395 kr. í Máli og menningu. Forvitnilegar bækur FÁAR bækur hafa vakið annað eins umtal vestan hafs og The Empe- ror of Ocean Park eftir Stephen L. Carter. Carter, sem hefur skrif- að nokkrar bæk- ur um lög- og fé- lagsfræðileg mál, var rétt byrjaður á bókinni þegar hann var búinn að selja útgáfu- réttinn á um 400 milljónir króna, búið var að panta 500.000 eintök og áður en hún kom út var búið að selja kvikmyndaréttinn líka fyrir hundruð milljóna. Það er því varla nema von að bókin sé umdeild þegar við bætist að auglýsingaherferðin til að kynna hana er með þeim mestu sem sést hafa, en þegar deilunum um umbúðir sleppir er því ekki að neita að inni- haldið er býsna gott. The Emperor of Ocean Park er mikið verk að vexti, sagan sjálf er um 650 síður, og býsna margir af þeim sem um bókina hafa fjallað hafa kveinkað sér yfir því hvað hún sé löng, að Carter noti aldrei eitt orð þar sem hann geti troðið tíu og svo má telja. Þeir hafa og nokkuð til síns máls, bókin er löng og Carter með orðabólgu á háu stigi. Það er þó hluti af því sem gerir bókina skemmtilega aflestrar, orðaflaumurinn er eins og þægilegt suð og dregur þá inn í verk- ið sem hafa nennu til að lesa langar bækur. Fléttan í The Emperor of Ocean Park er allvel heppnuð og aukaper- sónur forvitnilegar. Það er helst að fari í taugarnar á manni hve sögu- hetjan er uppburðarlítil þegar kem- ur að samskiptum hans við konu sína og einnig glímir hann við fullmikinn efa/óöryggi; maður hefði haldið að miðaldra prófessor í háskóla væri búinn að leysa obbann af gelgju- vandamálum, til þess virðist hann hafa gáfurnar. Fyrir bleiknefja uppi á Íslandi er ekki síst forvitnilegt að fá innsýn í líf menntaðra blökkumanna og litra embættismanna, en eins og Carter lýsir því þá er efri miðstétt blökku- manna á nokkurs konar einskis- mannlandi; situr fast á milli kyn- bræðra sinna í lágsett og hvíta yfirstéttarliðsins, sem virðist ráða öllu þar vestra, og á samleið með hvorugum. Umtöluð og umdeild The Emperor of Ocean Park eftir Stephen L. Carter. 672 síður innb. Knopf gefur út 2002. Fæst í Pennanum-Eymundssyni. Árni Matthíasson GRANT Morrison heimsótti okk- ur Íslendinga síðastliðna Menning- arnótt og hélt fyrirlestur um mynda- sögur í Borgarbókasafninu. Skemmst er frá því að segja að talan var vonum framar sótt og þurftu margir áhugasamir frá að hverfa vegna fjölda. Í fyrirlestrinum fjallaði Morrison meðal annars um ofurhetj- una í myndasögum og hvernig hún hefði raunverulega skírskotun til nú- tímasamfélags. Við nálgumst of- urhetjuna hröð- um skrefum með nýrri erfðatækni og framþróun læknavísinda. Hann kallaði því ofurhetjumynda- sögur raunsæis- bókmenntir fram- tíðarinnar. Morrison er enginn nýgræð- ingur innan ofur- hetjugeirans þótt hann sé þekktast- ur fyrir sögur sín- ar um Invisibles andspyrnuflokk- inn. Hann gat sér gott orð sem höf- undur The Justice League of Am- erica, sem eru samtök frægra ofurhetja eins og Batman, Super- man, Green Lantern og Wonder Woman. Meðlimir þessara hetju- samtaka mega margir muna sinn fífil fegri sem raunhæfar sögupersónur fyrir kröfuharða nútímalesendur. Superman hlýtur að vera að nálgast síðasta söludag og Wonder Woman hefur aldrei verið annað en kropp- urinn. Þrátt fyrir fremur rýrt hrá- efni tókst Morrison að glæða JLA nýju lífi með því að gera persónurnar áhugaverðari og söguflétturnar bita- stæðari. Nú upp á síðkastið hefur hann lyft grettistaki í meðförum sín- um á X-Men hópnum. Stökkbreytt snilld þar á ferð. Fantastic Four er eitt elsta og virtasta ofurhetjugengið í bransan- um; skapað af Stan Lee og Jack Kirby í árdaga (1961). FF hefur samt þurft að þola minnkandi áhuga og afdankaðan söguheim undanfar- inn áratug. Það er því kærkomið að Morrison skuli setja sitt raunsæis- fantasíumark á Fantastic Four í nýj- ustu bókinni um ævintýri þeirra, sem ber nafnið 1234. Hann ljær þeim raunsæisblæ með því að blása þeim raunverulegum tilfinningum í brjóst eins og afbrýði, heift, ást og gleði. Samhliða þessari rauntengingu leyf- ir hann sögunni að takast á loft í fantasíunni. Morrison hefur alltaf verið maðurinn með hugmyndirnar. Ætli hann sé ekki sá höfundur innan geirans sem félagar hans hafa oftast hugsað til með ,,af hverju fattaði ég þetta ekki sjálfur?“-öfund. FF fer ekki varhluta af því og fléttan fer yfir víðan völl áð- ur en hún nær endastöð. Hinn bráðilli Dr. Doom kemur í heimsókn og reynir að koll- varpa FF með enn einu út- smognu ,,plott- inu“. Það fer þó á sama veg og áður; hann lætur í minni pokann en þarf um leið að horfast í augu við ástæður gjörða sinna. Hvers vegna notar hann krafta sína og gáfur til að eyðileggja í staðinn fyrir að byggja upp? Loks- ins spurningar sem skipta einhverju máli í ofurhetjumyndasögu. Jae Lee er einn færasti teiknarinn sem starfar í myndasögum í dag. Myndir hans eru gríðarlega flóknar og nákvæmar í uppbyggingu. Per- sónurnar hans eru teiknaðar á raun- særri hátt en oft vill verða með ofur- hetjur. Hvert pennastrik ber vott um mikla fagmennsku og natni. Því miður þá á Lee, öfugt við Morrison, ekki sérstaklega vel við í ofurhetju- sögum að mínu mati. Hann vantar léttleika og hraða til að mæta flókn- um og skemmtilegum pælingum Morrisons í textanum. Myndirnar eru fallegar en á köflum ofhlaðnar og eiga betur við í jarðbundnari sögum. Það er merki um hæfni Morrison sem ofurhetjuhöfundar að menn úr steini og aðrir sem eru teygjanlegir eins og tyggjó, ósýnilegar konur og bræður þeirra, sem geta kveikt í sér að vild, skuli ná athygli lesandans og fá hann til að finna til með þeim og örvænta um örlög þeirra. Ofurhetjan er ekki dauð. Hún er búin að vera svolítið slöpp en er öll að braggast. MYNDASAGA VIKUNNAR Hin fjögur fræknu Myndasaga vikunnar er Fantastic Four 1234 eftir Grant Morrison og Jae Lee. Bókin er gefin út af Marvel Comics, 2002 og fæst í myndasöguversluninni Nexus. Steini Sterki tekur í lurginn á Doktor Dóna. Heimir Snorrason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.