Morgunblaðið - 02.10.2002, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 02.10.2002, Qupperneq 46
46 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.  HL Mbl Sýnd kl. 8. The Sweetest Thing Sexý og Single miðaverð aðeins 350 kr! STUTTMYND  HJ Mbl  ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 4 og 5. Síðustu sýningar Yfir 20.000 MANNS  Kvikmyndir .com  DV  HK DV „ARFTAKI BOND ER FUNDINN!“ Ný Tegund Töffara Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.Sýnd 5.15, 8 og 10.40. B.i. 14. Hvað gerist þegar þú tekur smábæjargaurinn, gefur honum 40 milljarða dollara og sleppir honum lausum í stórborginni? Adam Sandler fer á kostum í geggjaðri gamanmynd! FRÁ FRAMLEIÐENDUM BIG DADDY 1/2Kvikmyndir.is kl. 4.45, 7.30 og 10. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.  HK DV „ARFTAKI BOND ER FUNDINN!“ Hvað gerist þegar þú tekur smábæjargaurinn, gefur honum 40 milljarða dollara og sleppir honum lausum í stórborginni? Adam Sandler fer á kostum í geggjaðri gamanmynd! Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i. 14. FRÁ FRAMLEIÐENDUM BIG DADDY 1/2Kvikmyndir.is Allir áttu þeir eitt sameiginlegt.........ekki neitt Sýnd kl. 6. ÚTGÁFU Eddu er dreift á þrjú und- irmerki sem öll hafa sín sérkenni. Hitt Hitt-merkið hefur einbeitt sér að útgáfu rokktónlistar og framsækinn- ar, nýgildrar tónlistar. Í ár verða heilar þrjár hipp-hopp/rappplötur undir merkjum Hitt. Þeir félagar Bent og 7berg eru með sína fyrstu plötu en Bent er einn af meðlimum hinna vinsælu XXX Rottweiler- hunda. Þá gefur hljómsveitin Af- kvæmi guðanna út sína aðra plötu sem nefnist Ævisögur. Fyrsta plata þeirra, Dæmisögur, kom út í tak- mörkuðu upplagi fyrir síðustu jól og þótti framúrskarandi frumraun. Þá sameinast Hitt og annað undirmerki Eddu, Ómi, um útgáfu á plötu sem inniheldur upptökur frá umliðinni Menningarnótt í Reykjavík, hvar rímnamenn og rapparar sameinuð- ust á eftirminnilegan hátt. Hér má heyra Steindór Andersen, Vivid Brain, félaga úr Kvæðamannafélag- inu Iðunni og Erp úr Rottweiler reyna með sér. Þriðja plata Ensíma kemur þá út á Hitt en síðasta plata, BMX, kom út fyrir réttum þremur árum síðan. Sigurvegarar Músík- tilrauna í ár, Búdrýg- indi, gefa þá einnig út frumburð sinn. FD/Fljúgandi diskar Fljúgandi diskar er „opið“ merki og þar hefur komið út allt frá heims- tónlist til barnatónlistar. Í ár verða útgáfurnar tvær; annarsvegar ný hljóðversskífa KK, hans fyrsta með nýju efni í fimm ár og hinsvegar safn- plata með hinu virta söngvaskáldi Herði Torfasyni en hann hefur nú verið að í rúmlega 30 ár. Ómi Undir merkjum Óma hafa komið út djassplötur og sígildar, aukinheld- ur sem raftónlist og hljómorðalist hefur átt þarna skjól. Sígildu plöturnar eru þrjár þetta árið. Hin „hæga og hljóða“ fyrrum júróvisjón-söngkona Halla Margrét Árnadóttir verður með plötuna Sole del Cuore, þar sem hún flytur úrval af Napólísöngvum. Léttklassísk plata þar sem henni til aðstoðar eru þeir Tatu Kantomaa, Jón Steinþórs- son, Magnús Einarsson og Erik Qvik. Óþarfi er að kynna þá félaga Krist- in Sigmundsson og Jónas Ingimund- arson. Saman flytja þeir nokkur sí- gild íslensk sönglög ásamt perlum óperubókmenntanna. Allt í allt um þrjátíu lög en meðal laga er óvenju- leg útgáfa af Hamraborginni góðu. Einn okkar efnilegasti tenór um þessar mundir, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, söng með Mótettu- kórnum á vinsælum jólatónleikum kórsins í fyrra. Þær upptökur verða nú gefnar út á hljómdiski. Fimm djassplötur verða þá í jóla- pottinum þetta árið. Hinn kunni gít- arleikari Björn Thoroddsen hefur þegar gefið út plötuna Jazz í Reykja- vík, þar sem hann nýtur fulltingis bassaleikarans Jóns Rafnssonar og danska djassfiðluleikarans Kristians Jörgensen. Tónlistin er í anda gítar- snillingsins Django Reinhardt. Saxófónleikarinn Óskar Guðjóns- son er einn af mikilhæfustu djass- leikurum Íslands af yngri kynslóð- inni. Plötuna Eftir þögn, sem inniheldur hljóðláta, angurværa tón- list, gerir hann með bassaleikaranum Skúla Sverrissyni sem hefur verið búsettur í Bandaríkjunum um langt skeið og unnið með fólki eins og Laurie Anderson og Jim Black. Tómas R. Einarsson leggur nú fyrir sig suðræna sveiflu á plötunni Kúbanska. Með honum spila þeir Ey- þór Gunnarsson, Hilmar Jensson, Pétur Grétarsson, Matthías M.D. Hemstock, Samúel J. Samúelsson og Kjartan Hákonarson. Raddir þjóðar heitir nýstárlegt verk eftir þá Sigurð Flosason og Pét- ur Grétarsson. Þar tónsetja þeir gamlar hljóðritanir með söng Íslend- inga, sem varðveittar hafa verið í Þjóðminjasafninu og á Árnastofnun. Í fyrra gaf Jóel Pálsson út plötuna Klif, sem fékk feikigóðar móttökur. Hann kemur nú með nýtt verk þar sem hrynhiti og taktsköpun eru í for- grunni. Nýtur hann hér aðstoðar Ey- þórs Gunnarssonar, Einars Scheving og bandaríska trompetleikarans Greg Hopkins. Haustútgáfa tónlistardeildar Eddu – miðlunar og útgáfu Morgunblaðið/Árni Sæberg Elvar og Kristján í Afkvæmum guðanna, sem gefa út aðra plötu sína, bregða á leik. Óskar Guðjóns- son gefur út Eftir þögn með Skúla Sverris. TENGLAR ..................................................... www.edda.is KK verður með nýja plötu, þá fyrstu í fimm ár. Edda – miðlun og útgáfa tekur nú þátt í jólaflóði tónlistarinnar í annað sinn. Líkt og verið hefur er flóran fjölbreytt og kennir hér ýmissa grasa. Allt frá suddarokki til hins sígilda Morgunblaðið/Sverrir P. DIDDY verður kynnir á Tónlist- arhátíð MTV í Evrópu, sem fram fer í Barcelona á Spáni hinn 14. nóvem- ber. Breska hljómsveitin Coldplay, sem er á leiðinni hingað til lands í annað sinn, er tilnefnd sem besta hljómsveitin en sætir harðri sam- keppni frá U2, Red Hot Chili Pepp- ers, Linkin Park og No Doubt. Coldplay er einnig tilnefnd fyrir bestu plötuna en þá keppir hljóm- sveitin við Eminem, Kylie Minogue, No Doubt og Pink. Tilnefningarnar til verðlaunanna voru kynntar á mánudag þegar einnig var upplýst að P. Diddy yrði kynnir hátíð- arinnar. Rappstórlax- inn lofaði við það tækifæri að skemmta áhorfendum hátíðarinnar, sem verða margir í sjón- varpi auk þess sem 13.000 manns eiga eftir að fylgjast með honum og fleiri stjörnum í eigin persónu í Pal- au Sant Jordi. „Hlutirnir verða ekki kynþokka- fyllri en þetta, MTV, Barcelona og Diddy. Við ætlum að halda almenni- legan gleðskap og það verður ekki ein leiðinleg stund,“ sagði Diddy. Pink, Enrique Iglesias, Shakira og Röyksopp eru tilnefnd til fernra verðlauna. Bestu Bretlandseyjasveitirnar eru taldar vera Coldplay, Ms. Dynamite, Atomic Kitten, Sugababes og Und- erworld. Robbie Williams er á meðal þeirra sem fram koma á verðlaunahátíð- inni en hann leikur efni af nýrri plötu, Escapology, fyrir áhorfendur. Pierce Brosnan, Halle Berry, Holly Valance og Sugababes eru svo í hópi þeirra er afhenda verðlaunin eft- irsóttu. P. Diddy er sjálfur tilnefndur sem besti hipp hopp-listamaðurinn. Hann er ákveðinn í því að láta áhorfendum ekki leiðast. „Ég ætla að leyfa ykkur að finna orkuna í gegnum sjónvarps- tækin. Ég vil að þetta verði besta há- tíðin hingað til og við ætlum að reyna að gera hluti sem hafa ekki sést fyrr. Við ætlum að skemmta okkur að hætti Diddy,“ sagði hann. Árið 2001 fóru Gorillaz, Craig David og Limp Bizkit heim með tvenn verðlaun hver en þá var hátíð- in haldin í Frankfurt í Þýskalandi. P. Diddy kynnir MTV- verðlaunin TENGLAR ..................................................... www.mtve.com Rappari með meiru, Sean „P. Diddy“ Combs. HARRISON Ford og Calista Flockhart ætla að ganga í það heilaga á jóladag en þetta verður þriðja hjónaband Harrisons. Skilnaður hans og handritahöfundarins Melissu Matheson er nýlega genginn í gegn og vildi gamalreyndi hjartaknúsarinn greinilega ekki sóa neinum tíma því hann bað Calistu umsvifalaust að giftast sér. Bónorðið bar hann upp á vinsælum veitingastað við Malibu-strönd, Geoffrey’s Restaurant. Calista er töluvert yngri en tilvonandi eig- inmaður hennar en hún er 37 ára. Aldursmunurinn á parinu er því 27 ár. Viðstaddir á veitingastaðnum voru ekki í neinum vafa um hvert svarið var en hún sýndi af sér mikla kæti og stökk í faðm Harrisons eftir að hann bar upp spurninguna stóru. Brúðkaupið verður haldið í Plaza-hótelinu í New York að morgni 25. desember, á sama stað og annað Hollywood-par, Michael Douglas og Catherine Zeta Jones, gekk í hjónaband. Ford vill Flockhart Reuters

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.