Morgunblaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 15
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 15 VATNSVIRKINN ehf Ármúla 21 · Sími 533 2020 www.vatnsvirkinn.is ÞAKRENNUR Frábærar Plastmo þakrennur með 20 ára reynslu á Íslandi. Til í gráu, brúnu, hvítu og svörtu. Heildsala - Smásala SUÐURNES „ÞAÐ er mjög gott að búa hér, fallegt og nóg af fersku lofti í rokinu,“ segir Uffe Balslev, blómaskreytingamaður sem býr í Hvassahrauni í Vatnsleysustrand- arhreppi. Þar heldur hann nám- skeið í blómaskreytingum og vin- kona hans gerir myndverk. Í Hvassahrauni eru nokkrir sumarbústaðir en Uffe býr þar allt árið í heilsárshúsi. Það gerir einnig Sæunn Ragnarsdóttir lista- maður. Þau hafa vinnuaðstöðu í gömlum útihúsum sem blasa við af Reykjanesbrautinni enda orðið „sýning“ málað með stórum stöf- um á húsin. Uffe segir að þótt húsin séu skammt frá Reykjanes- brautinni sé friðsælt að búa í Hvassahrauni, stutt sé að sjónum og út í náttúruna og nóg af efni í blómaskreytingar. Aðeins er um 20 kílómetra akstur í miðborg Reykjavíkur. Alltaf hægt að fá nýtt efni Uffe vinnur við blómaskreyt- ingar í þremur blómabúðum í Reykjavík og hefur auk þess lengi haldið námskeið í blóma- skreytingum, núna í vinnustof- unni í Hvassahrauni, enda er hann lærður blómaskreytinga- kennari. Í sumar var hann með fimm daga náskeið og síðustu sunnudaga hefur hann verið með eins dags haustnámskeið. Hann segir jólanámskeiðin nálgast og þannig taki eitt við af öðru. Nemendurnir voru að gera skreytingar úr náttúrlegum hrá- efnum þegar blaðamaður kom við hjá Uffe á haustnámskeiðinu síð- astliðinn sunnudag. Hringur er gerður úr sinu og fyrsta stigið er að festa á hann blöð af hófblöðku sem er illgresi og við það unnu nemendurnir. Blöðin voru sett öf- ug á kransinn til þess að fá gráa litinn fram. Uffe segir að nóg hráefni sé í hrauninu auk hóf- blöðkunnar, njóli, mismunandi mosategundir, strá, berjalyng, greinar og spýtur. Allt er þetta notað við gerð skreytinganna. Segir Uffe að kransinn þorni og lifi vel fram á veturinn. Jafn- vel sé hægt að setja á hann kerti og nota sem aðventukrans. Hann segir að svo komi vorið og þá hendi fólkið gamla kransinum og geri nýjan úr því hráefni sem þá sé á boðstólum. „Það er hægt að gera svona kransa allt árið, alltaf er eitthvert áhugavert efni að fá,“ segir Uffe Balslev. Kennir blómaskreytingar í hrauninu Nóg af fersku lofti í rokinu Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Blómaskreytinganámskeiðin eru haldin í vinnustofunni í Hvassahrauni. Uffe Balslev festir hófblöðku- blöðin öfug á kransinn. Hvassahraun Á KYNNINGARFUNDI sem Iðn- tæknistofnun og Staðardagskrá 21 í Snæfellsbæ boðuðu til á dögunum voru kynntar lokaniðurstöður úr tveggja ára samnorrænu rann- sóknar- og samvinnuverkefni um ferðaþjónustu á norðurslóð. Hildur Bæringsdóttir frá Iðntæknistofnun kynnti niðurstöðurnar en bæj- arfélögin sem komið hafa að þessu verkefni eru þrjú, eitt á Íslandi, Grænlandi og á Svalbarða. Í ár voru lagðar fram átta spurn- ingar og þrjár bakgrunnsspurn- ingar á fjórum tungumálum og lágu spurningablöðin frammi á níu gisti- stöðum. Náttúran heillar Sem fyrr er það náttúran í Snæ- fellsbæ sem laðar til sín flesta ferða- menn, enda sögðust 92% ferða- manna koma þangað vegna hennar. Fjörutíu og sex prósent ferðamanna komu til að upplifa nálægðina við Snæfellsjökul og 37% höfðu mestan áhuga á fuglaskoðun, enda er gíf- urlega fjölbreytt aðstaða til hennar í Snæfellsbæ. Þrjátíu prósent ferða- manna komu í Snæfellsbæ vegna Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls og 26% vildu kynnast lífinu í sveitinni. Dul- magn svæðisins undir Jökli dró til sín 26% ferðamenn sem er einu pró- senti fleiri en í fyrra og 24% komu vegna áhuga á hvalaskoðun. Lífið í sjávarplássum heillaði 22% ferðamanna, 21% sóttust í ferðir á Snæfellsjökul og 19% komu í Snæ- fellsbæ vegna umhverfisvænnar ferðaþjónustu. Spurningarnar voru lagðar fyrir næturgesti á gististöðum í Snæ- fellsbæ í júní og júlí í sumar, en könnunin í fyrra stóð yfir í júlí og ágúst. Níutíu og fjögur prósent þátt- takenda töldu að ástand náttúrunn- ar í Snæfellsbæ væri mjög gott eða gott og eru þær tölur samsvarandi niðurstöðunum í fyrra. Í ár svöruðu 510 ferðamenn könnunni en í fyrra 260. Áttatíu og átta prósent ferða- manna vildu koma aftur til Snæfells- bæjar sem ferðamenn og 96% sögð- ust vilja ráðleggja öðrum að koma. Hvers vegna Snæfellsbær? Mikilvægt er að vita hvers vegna ferðamenn velja að koma á ákveðin svæði landsins frekar en önnur og gáfu niðurstöður könnunarinnar mjög skýra mynd af því. Tuttugu og átta prósent völdu Snæfellsbæ vegna meðmæla frá vinum. Jafnhá prósenta ferðamanna skráði val sitt undir „annað“ og við nánari athug- un kom í ljós að það var vegna lest- urs á bók Jules Verne um Leynd- ardóma Snæfellsjökuls og eins höfðu bækur Halldórs Laxness haft áhrif á val fólks. Tuttugu og sex pró- sent komu til Snæfellsbæjar í gegn- um ferðaskrifstofur og 13% þeirra sem svöruðu könnuninni komu í Snæfellsbæ vegna auglýsingar í blaði, bæklingi eða tímariti. Þegar kom að búsetu ferðamann- anna voru tilgreind fjórtán lönd í könnuninni, auk þess sem einn lið- urinn flokkaðist undir önnur lönd. Flestir ferðamannanna eða 24% voru frá Þýskalandi en fast á eftir fylgdu Íslendingar, 21%. Bretar voru 9% ferðamannanna og 8% voru bæði frá Sviss og Bandaríkjunum. Frá Svíþjóð, Danmörku og Noregi voru samtals 10% ferðamannanna, 5% frá Frakklandi og 2–3% frá Belg- íu, Spáni, Ítalíu, Austurríki og Hol- landi og svo 4% frá öðrum löndum. Þau Hildur Bæringsdóttir sem séð hefur um verkefnið fyrir hönd Iðntæknistofnunar og Guðlaugur Bergmann, verkefnisstjóri Stað- ardagskrár 21 sem séð hefur um verkefnið fyrir hönd Snæfellsbæjar, voru mjög ánægð með niðurstöður verkefnisins og töldu að vinna að því hefði þjappað ferðaþjónustuaðilum í Snæfellsbæ betur saman. Tveggja ára rannsókn í ferðamálum lokið Hellnar Morgunblaðið/Guðrún Bergmann Hildur Bæringsdóttir kynnti niðurstöður samnorrænu rann- sóknarinnar á fundinum. DAGSKRÁ verður í Eldborg í Svartsengi á degi vatnsins, 7. októ- ber næstkomandi. Félag heilbrigðis- og umhverfisfulltrúa (FHU) stendur fyrir athöfninni. Á meðal framsögumanna verða sérfræðingar frá Hollustuvernd rík- isins, heilbrigðiseftirliti sveitarfé- laga, Orkustofnun, Landvernd og umhverfisráðuneytinu. Umhverfis- ráðherra, Siv Friðleifsdóttir, mun setja fundinn og Árni Sigfússon, bæjarstjóri, stýra honum. Fjallað verður um vatn bæði sem náttúru- auðlind og neysluvöru. Fyrir hádegi verður sjónum beint að umhverfi sjávar en eftir hádegi verður ferskvatn og neysluvatn í brennidepli. Dagskrá og upplýsingar um skráningu er að finna á heima- síðu Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, www.hes.is. Ásamt FHU standa Hitaveita Suðurnesja, umhverfis- ráðuneytið og Samorka að fundinum. Dagskrá á degi vatnsins Svartsengi STJÓRNENDUR Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suður- nesja ræða saman um möguleika á því að ráðast sameiginlega í rann- sóknir á jarðhitasvæðinu í Brenni- steinsfjöllum en iðnaðarráðuneytið veitti báðum fyrirtækjunum leyfi til rannsókna þar. Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, segir útilokað að fyrir- tækin fari í jafn dýrar rannsóknir hvort fyrir sig, engin skynsemi sé í því. Ef ekki náist samkomulag um að þau vinni saman að málinu geti þau slegist áfram um leyfið eða jafnvel að ekkert verði gert. Hann segir að huga þurfi að ýms- um atriðum. Nefnir hann sérstak- lega skuldbindingu aðila til fram- kvæmda ef rannsóknir leiði til jákvæðrar niðurstöðu. Vonast Júlíus til að niðurstaða fáist í viðræðurnar við Orkuveituna á allra næstu dög- um. Þreifingar um sameiginlegar rannsóknir Brennisteinsfjöll EIGENDUR jarðarinnar Eyvindar- tungu í Laugardal í Bláskógabyggð vinna þessa dagana að fjórðu kyn- slóð raforkuvirkjunar í Sandá sem rennur frá uppsprettum sem koma upp á 500 til 1.000 m kafla undan Kolhól á landamerkjum jarðanna Eyvindartungu og Laugarvatns. Ráðgert er að virkjunin muni fram- leiða 230 kw af rafmagni inn á net RARIK auk þess að nýtast til heima- notkunar að Eyvindartungu. Vegfarendur um Laugarvatnsveg- inn hafa í sumar tekið eftir jarðraski við Sandá neðan Laugarvatns við bæinn Eyvindartungu. Nú á haust- dögum hefur síðan risið hús niðri við ána og ljós timburstokkur tekið að teygja sig frá þessu húsi upp eftir skurði meðfram ánni. Það eru eigendur Eyvindartungu, þau Sigurður Jónsson og hjónin Helga Jónsdóttir og Snæbjörn Þor- kelsson, sem standa í þessum fram- kvæmdum með það að markmiði að framleiða 230 kw af rafmagni til sölu inná dreifikerfi RARIK. Býlið hefur ekki verið tengt opinberu dreifikerfi fram til þessa. Allt frá árinu 1928 hefur Sandá verið virkjuð til heima- notkunar, fyrst af Teiti Eyjólfssyni bónda í Eyvindartungu og síðar í kringum 1950 af Héraðsskólanum á Laugarvatni. Ábúendur Evindartungu keyptu síðar alla virkjunina af skólanum. Sú virkjun var í upphafi 75 kw og mun áfram verða í notkun meðan hún endist. Áin hefur mjög jafnt og gott rennsli og hefur lágmarksrennsli verið mælt um 1,5 rúmmetrar á sek- úndu. Vatnið mun leitt um 110 sm víðan stokk frá stíflu, 370 m leið nið- ur í stöðvarhúsið gegnum kross- rennslistúrbínu sem knýr rafal. Stokkurinn er smíðaður úr timbri sem kemur tilsniðið úr verksmiðju BYKÓ í Lettlandi. Ástæða þess að notað er timbur en ekki plast í stokk- inn er einungis af fjárhagslegum toga, enda um 5 milljóna króna mun- ur á því og plasti. „Svo er líka þekk- ing og reynsla af byggingu og við- haldi á slíkum stokk fyrir hendi hér á bænum,“ sagði Sigurður Jónsson, einn eigendanna. Uppistöðulón virkjunarinnar verður á sama stað og verið hefur frá upphafi, en ætlunin er að hækka stífluna nokkuð. Við þessa hækkun stækkar lónið að flatarmáli en vegna aðstæðna í landslaginu er það óveru- legt. Áætlaður byggingarkostnaður virkjunarinnar er á bilinu 25–30 milljónir. Samið hefur verið við RA- RIK um kaup á orkunni. Fyrir- greiðsla opinberra stofnana og sjóða hefur verið góð að sögn fram- kvæmdaraðila, sem vilja þakka já- kvæðar og góðar undirtektir RA- RIK, Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands sem aðstoðaði við áætl- anagerð, Lánasjóðs landbúnaðarins sem hefur veitt lánsloforð fyrir 12,5 milljónum, Byggðastofnunar sem hefur veitt lánsloforð fyrir 5 millj- ónum og Búnaðarbankans sem veitir framkvæmdalán meðan á fram- kvæmdum stendur. Sótt var um styrk hjá Framleiðnisjóði landbún- aðarins en sjóðurinn hefur hins veg- ar ekki gefið svar þrátt fyrir nokkra eftirgangsmuni. Árni Sigurðsson hjá Verkfræði- stofu Norðurlands á Akureyri sá um teikningar og hönnun nýju virkjun- arinnar. Meistari og yfirsmiður er einn eigendanna, Snæbjörn Þorkels- son húsasmíðameistari og bóndi í Austurey. Ljósmynd/Kári Jónsson Séð yfir virkjunarsvæði Sandár við Eyvindartungu. Stöðvarhúsið er næst á myndinni en sjá má eldra stöðvarhúsið ofar til vinstri. Raforkubændur í Laugardal Laugarvatn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.