Morgunblaðið - 02.10.2002, Side 7

Morgunblaðið - 02.10.2002, Side 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2002 7 OUTLET 10 +++merki fyrir minna+++ Faxafeni 10, s. 533 1710 Opið mán.-fös. 11-18 laugardag 11-16 GERÐU GÓÐ KA UP Skóladagar - allt fyrir haustið Merkjavara og tískufatnaður á 50-80% lægra verði Everlast gallar kr. 2.990 með og án hettu St. XS-XXL Blátt - grátt - rautt - svart Everlast dúnúlpa 4.990 Póstsendum Barnadeild Fila úlpur................2.990 Parrot buxur...............2.500/2.900 - St. 98-158 Fila íþróttabuxur .1.990 Everlast gallar .............2.500 - St. 60-100 Fila bolir ................ 990 Fila húfur .............. 500 Dæmi: Fila ............úlpur ....................................... 4.990 Diesel ........gallabuxur (Ný sending)............... 3.990 Everlast .....dúnúlpur ................................. 4.990 Tark ...........buxur ...................................... 2.900 Sparkz........dúnkápur ................................ 4.900 InWear .......ullarkápur............................... 7.900 Part Two ....peysur..................................... 3.900 Xtra.is........jakkar ..................................... 7.900 DKNY..........peysur..................................... 5.900 Húfur.......................................................... 500 Herraskór......... ný sending Dömustígvél ... ný sending Öll jakkaföt .............................................12.500 Skyrtur ....................................................... 1.900 Bindi .......................................................... 1.900 gallar 2.990 Fila úlpa 2.990 Fila úlpa 2.990 Parrot buxur 2.900 Parrot buxur 2.500 St. 98-158 Galli án hettu 2.990 Galli - renndur m. hettu 2.990 FJÖLDI manna og hesta var í Lauf- skálarétt í Hjaltadal í Skagafirði síðastliðinn laugardag í blíðskap- arveðri. Talið er að hátt í 3 þúsund manns hafi látið sjá sig, þeirra á meðal fjölmargir stjórnmálamenn og fólk úr heimi menningar og við- skipta. Hestar voru eitthvað færri en þó nógu margir til að láta mann- fólkið hafa vel fyrir því að koma þeim í réttu hólfin. Að vanda tóku menn lagið undir réttarveggjunum þar sem í sumum tilvikum var búið að mýkja raddböndin með eilítilli brjóstbirtu. Fullbókað var í öll gisti- rými í Skagafirði um helgina en í tengslum við Laufskálarétt var haldin sölusýning á hrossum í Reið- höllinni á Sauðárkróki kvöldið áð- ur. Að kvöldi laugardags streymdu hestamenn svo á dansleiki sem haldnir voru á Hofsósi og í reiðhöll- inni við undirleik landsfrægra hljómsveita, Papanna og Sixties. Þar skemmtu sér samanlagt vel á annað þúsund manns, þar af um 900 í reiðhöllinni, og fór allt vel fram að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki.Morgunblaðið/Sigurður Sigmunds Fjölmenni og fjörugt í Laufskálarétt ÚTSENDINGAR kristilegu sjón- varpsstöðvarinnar Ómega nást víða í Evrópu og hafa vakið athygli, að sögn Eiríks Sigurbjörnssonar sjón- varpsstjóra, en hann segir að sér- staklega góð viðbrögð hafi borist vegna þessara útsendinga allan sól- arhringinn. Sjónvarpsstöðin Ómega hefur verið með útsendingar á Íslandi í áratug, en hóf tilraunaútsendingar til Norðurlanda í maí sem leið og sendir þangað efni í gegnum gervi- hnöttinn Thor 2 allan sólarhringinn. Útsendingarnar nást jafnframt víða á meginlandi Evrópu, á Grænlandi, í Færeyjum og víða á skipum úti á sjó. Eiríkur Sigurbjörnsson segir að efnið sé að mestu leyti það sama og sent er út hér á landi en samt sé sumt aðlagað aðstæðum á Norður- löndum. „Þetta er nánast sama dag- skrá en samt svolítið öðruvísi,“ segir hann. Að sögn Eiríks tengjast átta manns útsendingunum reglulega en að auki koma um 20 til 30 manns að þeim í sjálfboðastarfi. Hann segir að stöðin sé mjög tæknivædd og því ráði hún við þessi auknu verkefni, en allt sé framkvæmt á eins hag- stæðan hátt og hægt sé. „Við höfum fengið sérstaklega góð viðbrögð. Fólk er mjög þakklátt fyrir að vera komið með svona dagskrá, sem það segist hafa beðið lengi eftir,“ segir hann og bætir við að þetta sé árang- urinn af 10 ára starfi hérlendis. „Jesús sagði: „Farið út um allan heim“ og við tökum því bókstaflega og erum byrjaðir.“ Eiríkur segir að Ómega hafi verið minnsta sjónvarpsstöðin fyrir ára- tug en nú sé hún með stærsta dreifi- kerfi landsins. Þetta kosti sitt og því hafi stöðin hvatt fólk til að leggja fram frjáls framlög í staðinn fyrir að vera með áskrift. „Þetta lofar mjög góðu og er mjög uppörvandi,“ segir hann um auknar útsendingar stöðv- arinnar. Margir hafi reynt að senda út svona efni í Skandinavíu en þar sem það hafi ekki gengið hafi marg- ir efast þegar Ómega hafi byrjað út- sendingar þangað. Mörg bréf frá þakklátum áhorfendum sýni að til- raunin hafi heppnast vel og fólk seg- ist hafa öðlast lifandi trú á Krist. „Loksins fáum við almennilega rás, segja þeir til dæmis í Færeyjum.“ Í máli Eiríks kemur fram að góðir og trúfastir stuðningsmenn hafi haft óbilandi trú á stöðinni og stutt hana í gegnum árin, og fyrir það beri að þakka. „Við höfum ekki gefist upp þó oft hafi blásið á móti. Þetta er ekki auðvelt en það mun takast.“ Útsend- ingar nást víða í Evrópu Ómega í gangi 24 tíma á sólarhring

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.